Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.06.2019, Qupperneq 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.06.2019, Qupperneq 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.6. 2019 Afstaða lækna til boðaðrarheilbrigðisstefnu virðistnokkuð ráðast af því hvar þeir eru starfandi. Afstaða samtaka lækna er svo aftur varfærin, þeir vilja greinilega sem fæsta styggja og minna á veðurfræðinginn sem sagður var hafa spáð fyrir versl- unarmannahelgi: „Gert er ráð fyrir breytilegu veðri – um allt land.“ Það sannleikskorn er í þessari aulafyndni að spá um slæmt veður um verslunarmannahelgi getur valdið mótshöldurum sem fjárfest hafa í skemmtanahaldi tjóni. Spáin getur svo reynst röng eins og dæm- in sanna en þá er skaðinn skeður, örfáar hræður á sólríku mótssvæði, allt illum veðurfræðingunum að kenna. Réttast væri að fara í mál við þá! Nálægð við peningahagsmuni getur gert lífið flókið. Og þannig er því tvímælalaust háttað í sambúð ríkisvalds og heilbrigðiskerfis. Þar er um mikla hagsmuni að tefla. Og nú finnst sjálfstætt starfandi lækn- um hagsmunir þeirra fyrir borð bornir í nýsamþykktri heilbrigð- isstefnu. Hún taki aðeins til 70% kerfisins, segir talsmaður lækna- samtaka. Hún taki ekki til þess hluta sem er einkarekinn. Ekki ætla ég í umræðu hér um stefnuna í smáatriðum. En hitt vil ég segja: Allt of lengi hefur það verið svo að sá hluti kerfisins sem telst opinber í þeim skilningi að hann er fjármagnaður og rekinn af hinu opinbera hefur þróast í anda bráðamóttöku svo notað sé líkinga- mál úr heilbrigðisþjónustunni. Ákvarðanir hafa oftar en ekki verið viðbrögð við bráðavanda. Atburðarásin hefur þá verið þessi: Skorið er niður í opinbera kerfinu. Fyrir vikið hefur það ekki ráðið við að sinna eftirspurn. Þá lengjast biðraðir og spurt er hvers vegna í ósköpunum sjúklingar séu ekki sendir til útlanda eða á Klíník- ina eða annað þar sem fjárfestar hafa verið tilbúnir að setja fé sitt vitandi að verði á annað borð gefið grænt ljós á að sjúklingarnir komi til þeirra með samþykki kerfisins, þá fylgja greiðslur úr ríkissjóði, gagnstætt því sem gerist þegar sjúklingurinn er sendur á allt of smáar aðgerða- og göngudeildir op- inberu sjúkrahúsanna. Ef ekki er orðið við þessu kalli – að opna fyrir ríkisfjármagnaðar að- gerðir á Klíníkinni – þá er heil- brigðisráðherrann skammaður og þá gjarnan núið um nasir að sýna af sér mannvonsku. Mér sýnist nú- verandi heilbrigðisráðherra vera að bregðast við vandanum á annan hátt en þann sem líkja mætti við skyndiaðgerð á bráðamóttöku held- ur með það fyrir augum að op- inbera kerfið verði losað úr þeim vítahring sem hér hefur verið lýst. Það er gott. Fram hefur nefnilega komið að til standi að stórefla göngudeildir sjúkrahúsanna og þar með gera það gerlegt til frambúðar að veita þá þjónustu þar sem ætlast er til af kerfinu. Oft hafa skipuleggjendur innan opinberu heilbrigðisþjónustunnar unnið að því að horft verði til fram- tíðar með þessum hætti og þá reytt hár sitt þegar fjárveitingarvaldið hefur haft tillögur þeirra að engu. Um þetta get ég borið vitni frá minni tíð sem heilbrigðisráðherra. Á Íslandi hefur ekki verið um það deilt að opinbert heilbrigð- iskerfi og opinberlega fjármögnuð einkarekin þjónusta eigi að geta þrifist hlið við hlið. Það sem hins vegar hefur verið deilt um er tvennt. Í fyrsta lagi hvort hægt sé að ætlast til þess af skattgreið- endum að þeir fjármagni fyrirtæki á heilbrigðissviði sem greiða eig- endum sínum arð eins og í hverjum öðrum bisness. Því er ég fyrir mitt leyti algerlega andvígur og grunar mig að þorri landsmanna sé einnig á því máli. Í öðru lagi hefur verið deilt um mörkin á milli opinbers reksturs og einkareksturs, hvar landamærin eigi að liggja. Í seinni tíð hafa landamærin ver- ið að færast á kostnað opinberu þjónustunnar. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigð- isráðherra, er hins vegar að rétta af kúrsinn og er það vel. Þá er að vita hvað Bjarni gerir Benediktsson. Hann heldur um pyngjuna. Ef bið- raðir lengjast ættu menn að spara gífuryrðin í garð heilbrigð- isráðherrans en beina sjónum að Stjórnarráðinu í heild sinni og Arn- arhváli sérstaklega. Þar er fjár- málaráðuneytið til húsa og þar er geymt gullið sem margir vilja seil- ast í. Heilbrigðisráðherrann er ekki einráður um framlögin til síns málaflokks. Ráðherrann mótar stefnuna en aðrir telja í hann krón- urnar. Fjöldi þeirra krónupeninga getur skilið á milli feigs og ófeigs. Og í þessu samhengi meira að segja í óhugnanlega bókstaflegum skiln- ingi. Heilbrigðisráðherra vill út úr bráðamóttökunni Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is ’ Mér sýnist núverandi heilbrigðisráðherra vera að bregðast við vandanum á annan hátt en þann sem líkja mætti við skyndiað- gerð á bráðamóttöku heldur með það fyrir augum að op- inbera kerfið verði losað úr þeim vítahring sem hér hef- ur verið lýst. Atvinna Mynd Baltasars Kormáks 101Reykjavík var algjör snilld og varfyrsta skrefið á ferðalagi hans til heimsfrægðar. Hún er byggð á frábærri bók Hallgríms Helgasonar um Hlyn Björn, reyk- vískan lúða sem er stórkostlega misheppn- aður en samt er hægt að finna til með hon- um. Myndin kom út árið 2000 og síðan höfum við ekkert séð meira af þessu fólki. Sem er ákveðinn skellur. Það á nefnilega helst alltaf að gera framhaldsmynd, þó ekki væri nema til að gefa okkur einhverja niðurstöðu í þessu máli. Closure er það kallað í útlönd- um. Og það vita náttúrlega allir að stundum gerist það að framhaldsmyndir verða jafnvel betri en fyrsta myndin. Það á til dæmis við um Batman, Superman og Spiderman. Og ég hef lengi haldið því fram að City Slickers 2 sé í raun betri en fyrri myndin. Bara svo það komi fram. En einhverra hluta vegna höfum við aldrei fengið framhaldið á 101. Mér finnst við eiga það inni. Rétt eins og 102 Dalmatíuhundar þá ætti að vera til 102 Reykjavík. Sem hefur náttúrlega ekki gengið enda ekkert slíkt til. En loksins er það möguleiki, þökk sé hinni illræmdu póstnúmeranefnd. En það er erfitt að fylgja svona mynd eft- ir. Ekki síst í ljósi þess að Hlynur Björn væri orðinn soltið miðaldra og skoðanir hans og viðhorf til kvenna eiga kannski ekki alveg upp á pallborðið hjá fólki lengur (hafi þær einhvern tímann átt það). Það mætti að minnsta kosti búast við sæmilegum hvelli á Twitter ef hann héldi áfram að verðmeta konur eins og hann gerði og vera almennt svona mikill drullusokkur. En er þá ekki bara komið frábært tæki- færi að finna nýjan flöt á sögunni? Hlynur Björn var þrítugur þegar við skildum við hann í myndinni. Nú er hann 49 ára (eða 53 ef við förum eftir útgáfutíma bókarinnar) íbúi í Skerjafirðinum sem kemst að því að vondi borgarstjórinn (Björn Thors) ætlar að skipta um póstnúmer í hverfinu hans. Hlynur, sem er strangt til tekið í atvinnu- leit, leggur allt í sölurnar. Hann fær með sér íbúa í hverfinu og svona frekar átakasækinn borgarfulltrúa (Brynhildur Guðjónsdóttir) og saman berjast þau gegn þessu af öllum lífs- og sálarkröftum. Ég sé þetta meira fyrir mér sem spennu- mynd. Æsilegir og ótrúlega spennandi fundir í borgarstjórn, svo ekki sé talað um borgarráð og allar nefndirnar. Leynifundir póstnúmeranefndar, magnþrungnir Facebook-þræðir og heitar umræður í pottunum í Vesturbæjarlauginni (af því að það er engin sundlaug í Skerjafirði). Inn í þetta blandast svo spennandi auka- persónur sem eru íbúar í hverfinu. Til dæm- is rauðbirkinn lögfræðingur á fertugsaldri sem er þurr en þó gull af manni (Víkingur Kristjánsson), glaðlega skáldkonan (Saga Garðarsdóttir), ofurhressi fréttalesarinn (Randver Þorláksson) og fyrrverandi borg- arstjórinn (Örn Árnason). Ég sé lokaatriðið fyrir mér. Björn Hlynur nær að sannfæra skipulagsnefnd borg- arinnar með mikilli eldræðu í ráðhúsinu og saman taka þau strætó á fund póstnúm- eranefndar á Stórhöfða og ná að hnekkja þessari vitfirrtu ákvörðun. Kemur sem sagt í ljós að formaður póstnúmeranefndar (Jón Gnarr) ætlaði að lækka verðið á öllum eign- um í Skerjafirði, kaupa öll húsin og skipta svo aftur í 101. Lokaskotið (tekið úr krana) er svo af þeim gangandi meðfram flugvellinum, með kvöld- sólina í bakið og á móti þeim kemur glaðlegi bréfberinn (Ólafur Darri), sem leggur frá sér pokann og segir: Takk fyrir að standa með okkur. Ég get bara ekki ímyndað mér að þetta gæti klikkað. 102 Reykjavík Á meðan ég man Logi Bergmann Eiðsson logi@mbl.is ’En einhverra hluta vegnahöfum við aldrei fengið fram-haldið á 101. Mér finnst við eigaþað inni. Rétt eins og 102 Dal- matíuhundar þá ætti að vera til bíómyndin 102 Reykjavík. Sem hefur náttúrlega ekki gengið enda ekkert slíkt til. En loksins er það möguleiki, þökk sé hinni ill- ræmdu póstnúmeranefnd. Holtagörðum, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is Opið 11-16 laugardag Fyrir ferðalagið framundan aGO 5.995 kr. Þú finnur útskriftargjöfina í Fakó Settu þína ráðstefnu í Hörpu Taktu næstu stóru ákvörðun hjá okkur Nánar á harpa.is/radstefnur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.