Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.06.2019, Qupperneq 8
FERÐAMENN
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.6. 2019
Sólskinið
kom á óvart
Ferðamenn streyma enn til landsins og má bóka að
margir heimsæki Hallgrímskirkju. Blaðamaður lagði
leið sína á Skólavörðuholtið og tók púlsinn á túristum
einn sólskinsdag í júní til að forvitnast um hvað þeir
væru að vilja hingað á hjara veraldar. Flestir komu til að
njóta náttúrunnar og lofuðu landslagið í hástert. Það
sem kom öllum á óvart var veðrið; það bjóst enginn við
blíðviðri og sól og kom það þeim skemmtilega á óvart.
Texti og ljósmyndir Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Við gamla fangelsið gengu hönd í hönd hjónin
Shieraaj og Nazley America frá Suður-Afríku.
„Við komum hingað því ferðin er hluti af vinnu-
staðahvatningu. Við erum hér 25 saman í hóp
sem vinnum saman og ferðumst við til nýs
lands á hverju ári og í ár varð Ísland fyrir val-
inu,“ segir Shieraaj sem vinnur hjá fjárfest-
inga- og fjármálafyrirtæki í Capetown.
„Mökum er boðið með,“ segir hann og getur
þess að börnin þeirra tvö hafi orðið eftir heima.
„Við höfum verið hér í nokkra daga og gert
alveg helling. Við höfum farið í Bláa lónið og
upp á jökul á snjósleða. Það var þessi langi jök-
ull, ég veit ekki hvað hann heitir,“ segir hann
og brosir breitt.
„Það var svakalega skemmtilegt. Sólin skein
og það var alveg fullkomið. Svo fórum við á
Geysi og svo höfum við heimsótt ýmsa veit-
ingastaði,“ segir Shieraaj.
„Í dag er hvíldardagur og ekkert plan. Við
ætlum að kíkja í búðir og skoða bæinn,“ segir
Nazley.
Spurð um hvað hafi helst komið á óvart
stendur ekki á svari.
„Það er miklu hlýrra en við áttum von á! Svo
er landslagið hér ólíkt öllu öðru sem við höfum
séð. Við kunnum vel að meta Ísland,“ segja
þau.
„Eina sem við hefðum viljað sjá sem ekki er
hægt að sjá eru norðurljósin en við skiljum að
þetta er ekki rétta árstíðin,“ segir hann og
kveður með virktum.
Hjónin Shieraaj
og Nazley frá
Capetown í Suð-
ur-Afríku komu
hingað í boði
fyrirtækis hans.
„Sólin skein og það
var alveg fullkomið“
SUÐUR AFRÍKA
Popa-fjölskyldan frá Texas var mætt á Skóla-
vörðustíg einn sólskinsdag í síðustu viku.
Hjónin voru á ferð með tveimur uppkomnum
börnum og tveimur litlum börnum. Spurð um
ástæðu þess að Ísland hafi orðið fyrir valinu
segir móðirin Robyn:
„Við erum alltaf að leita að áhugaverðum
áfangastöðum til að heimsækja og reynum að
finna staði sem eru ekki í alfaraleið allra túr-
ista. Þar sem við erum að ferðast með tvo litla
krakka vildum við líka fara til staðar sem væri
bæði öruggur og ekki yfirfullur af ferðamönn-
um.“
Þegar blaðamann bar að garði höfðu þau
aðeins dvalið tvo daga á Íslandi og ferðin því
rétt að hefjast. Þau voru alsæl með lífið.
„Veðrið er dásamlegt og við erum núna í
airbnb-íbúð. Í gær gengum við um bæinn og í
dag ætlum við að keyra út á land og sjá heita
hveri og fossa,“ segir hún og nefnir að þau hafi
leigt sér bíl, og það stóran. Þau hyggjast dvelja
hér í viku og halda svo heim á leið til Banda-
ríkjanna.
„Við ætlum að njóta náttúrunnar hér og
fara í alls kyns göngur. Svo bara að slappa af
og borða góðan mat. Það lengsta sem við för-
um er í Jökulsárlón, fram og til baka á einum
degi.“
Þegar blaðamaður nefnir að það sé ansi
mikil keyrsla segir hún: „Það er allt í lagi, hér
er mikið dagsljós.“
Hjónin segjast hafa uppgötvað eftir að þau
keyptu miða hingað að nokkrir vinir og ná-
grannar hefðu komið hingað. „Þau sögðu okk-
ur frá fegurð landsins, þannig að við vorum
mjög spennt. Hingað til hefur þetta verið góð
ákvörðun,“ segir faðirinn Florin.
„Það er helst veðrið sem hefur komið á óvart;
við héldum að það yrði kaldara,“ segir hann.
„Það hafa allir verið svo vingjarnlegir og
það kemur líka á óvart hvað allir tala góða
ensku hér,“ segir Robyn.
Florin, Robyn, Josh, Nicole,
Elyse og Asher ætla að njóta
lífsins á Íslandi í eina viku.
„Hér er mikið dagsljós“
BANDARÍKIN
Tvær ungar konur standa fyrir ut-
an Hallgrímskirkju og virða fyrir
sér mannlífið í gegnum dökk sól-
gleraugu. Þetta eru vinkonurnar
Yimin Wang og Nan Zhuang frá
Kína.
Þær segja vinsælt hjá Kínverjum
að koma til Íslands og að þeir séu
duglegir að miðla til vina sinna
upplýsingum um landið og sýna
myndir úr ferðum sínum hingað.
Segjast þær báðar hafa heyrt mikið
um Ísland frá löndum sínum, en
sem stendur búa þær í Sheffield í
Englandi þar sem þær eru við nám.
Þær voru nýlentar og á dagskrá
var að dvelja viku á Íslandi en þær
leigðu sér íbúð í miðbænum. Þar
sem þær voru nýkomnar höfðu þær
enn ekki ferðast mikið en gullni
hringurinn var á planinu.
„Við ætlum líka á demanta-
ströndina,“ segir Nan.
Þær segja veðrið koma skemmti-
lega á óvart.
„Í London og Sheffíeld er skýjað
og rigningarlegt en þegar við kom-
um hingað – sólskin!“
Yimin og Nan voru
ánægðar með sólina.
„Sólskin!“
KÍNA