Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.06.2019, Qupperneq 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.06.2019, Qupperneq 17
heppnaður leiðtogi. Enginn hefur þó fengið aðrar eins gusur frá sínum fyrirrennurum og Jeremy Cor- byn frá þeim Blair og Brown. Er það handan við öll mörk. Dregið hefur verið í efa að nokkur annar þingmað- ur en Eden hefði náð í öllum sínum önnum að lesa ítrekað Proust, Balzac, Maupassant, Zola og Sten- dhal, og á sama tíma að sökkva sér niður í arabískar og persneskar bókmentir á frummálinu. Eden, sem átti létt með að spjalla á góðri þýsku við Adolf Hitler og gefa frönskum starfsbróður svo úrdrátt af samtal- inu á óaðfinnanlegri frönsku og dengja síðan arbísk- um spakmælum á Nasser situr hins vegar uppi með þann dóm í skoðanakönnunum nú að hann væri versti forsætisráðherra Breta ef Theresa May, lukkutröllið hans, hefði ekki komið til. Og á þessu er hamrað svo sennilega verður það á endanum það eina sem um Antony Eden verður vitað. Vissulega gerðu þessi miklu hæfileikar hans á ýmsum sviðum hann ekki endilega að góðum stjórnmálamanni. En kannski urðu þeir til þess að hann sá á undan mörgum öðrum þá ógn sem Bretum, meginlandi Evrópu og stórum hluta mannkyns myndi stafa af Adolf Hitler. Þess vegna snerist hann til fylgilags við Winston Churchill sem þá var í litlum metum hjá þingheimi, þótt þjóðin væri smám saman að opna augu sín fyrir honum. Það er svo víða sem þingheimur vaknar síðastur. Enn hleypur gönuhlaupari á sig Ríkisútvarpið er sérkennileg stofnun, sem auglýsir oft á viku sjálfa sig með því að segja að þetta „sé stofnun okkar.“ Það þarf ekki að auglýsa. Stofnunin og svokölluð fréttastofa hennar sérstaklega hefur lengi umgengist þessa opinberu stofnun sem „stofn- unina sína“ og þverbrotið daglega þær reglur sem um hana gilda. Sífellt fleiri þeirra sem til almennings telj- ast og eru neyddir með atbeina skattstjórans til að halda þessari stofnun uppi gegn vilja sínum og með vaxandi ógleði átta sig á því hvað hin misnotaða aug- lýsing „stofnunin okkar“ þýðir. „RÚV“ dregur á hverjum degi taum vinstri flokk- anna, Samfylkingar og VG, og tekur aðra smáflokka á vinstri kantinum með þegar það hentar þessum tveimur. RÚV er með frátekin sæti í aðdáendaklúbbi Vinstrimeirihlutans í Reykjavík og nálgast hann aldr- ei með gagnrýnum hætti. Og svo á stofnunin sína óvini. Bréfritari er stoltur af því að teljast til þeirra, þótt stofnunin hafi engar lagaheimildir til að leggja stjórnmálalega andstæðinga sína í einelti. Þegar bréfritari hélt á sínum tíma ræðu á landsfundi, frjáls úr hlutleysiskröfu bankastjóra, þar sem margt frétt- næmt var sagt, hljóp fréttamaður RÚV á það að bréf- ritari hefði líkt sjálfum sér við Jesú Krist. Að svo miklu leyti sem bréfritari líkti sér við einhvern eða einhverja í þeirri ræðu þá hefðu menn í erindagjörð- um, eins og RÚV gjarnan er, getað sloppið með að segja að Davíð Oddsson hefði líkt sjálfum sér við ræningjana sem hengdir voru Kristi til samlætis. En sú frétt hefði ekki bent til að maðurinn væri orðinn galinn. Sjálfsagt gat þessi undarlega „frétt“ skrifast á heimsku þess tiltekna fréttamanns sem í hlut átti. En þegar ekkert var leiðrétt né sjálfsögð afsökun send sást hvað hékk á spýtunni. Svo var það fyrir 10 árum Þegar tveir ritstjórar voru ráðnir að einkafyrir- tækinu Morgunblaðinu fyrir tæpum 10 árum var RÚV með mikinn æsing í kvöldfréttatímum sínum um þetta einkafyrirtæki og samkeppnisaðila gegn 7 milljarða forskoti þess. Hringt var „live“ inn í frétta- tímann og sá kynntur sem starfsmaður og sagði hann að „fólk gengi grátandi um ganga Morgunblaðsins.“ Á daginn kom að heimildin hafði ekki verið á staðnum vikum saman. Sagt var frá miklu uppsögnum á áskriftum og „RÚV“ gaf upp símanúmer sem áskrif- endur gætu hringt í til að segja upp áskrift að blaðinu!!! Næstu tvo daga birti textavarp Ríkisútvarpsins símanúmerið sem ætti að hringja í til að segja upp Morgunblaðinu! Ríkisútvarpið (það er klíkan sem þykist eiga það og auglýsir þá eign), hefur aldrei beðið afsökunar á þess- ari einstöku framkomu. Á fimmtudagkvöld var fengið frægt samfylkingar- tröll úr Hafnarfirði og Háskólanum sem lengi hefur afflutt stöðu andstæðinga Samfylkingar á kosn- inganótt og fengið borgað fyrir. Nú var hann pant- aður til að ráðast á bréfritara. Enda frægur orðinn fyrir ótrúlegt ofstæki í þeim efnum og þá persónu- legu fæð sem hann leggur á þann mann. Verstu dæm- in hefur hann afsakað með sömu rökum sem RÚV tekur ekki gild gagnvart þingmönnum sem það hefur á heilanum. Út á þekju Eins og sagt var í fréttum : „Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands tal- aði um Davíð Oddsson og stöðuna innan Sjálfstæðis- flokksins, en Ólafur var gestur í kvöldfréttum RÚV. Ólafur: „Ég man eiginlega ekki eftir dæmi þar sem að gamall formaður hundskammar eftirmenn sína eða nýja forystu eins og óþekka krakka.““ Það eru reyndar til margar fréttir um slíkt og sum- ar nýlegar, aðrar nokkra mánaða eða ára og úr öllum áttum. Til dæmis þessi alveg splunkuný: „Baklandið innan Framsóknarflokksins er óánægt með stöðu mála og kom það skýrt fram í máli margra fulltrúa á miðstjórnarfundi nýverið. Hélt þar Guðni Ágústsson, fv. formaður flokksins, mikla eldmessu og vandaði flokkssystkinum ekki kveðjurnar.“ Í valdatíð Sigmundar Davíð krafðist Guðni Ágústsson þess opinberlega að Sigmundur hætti sem formaður. Það er svo sem enginn ágreiningur um að Ólafur Harðarson sé ekki beisinn fræðimaður en varla svona yfirgengilega slappur að hann kann- ist ekki við dæmi og segir þau ekki til þótt horft sé áratugi aftur í tímann. Hvernig hafa formennirnir Jón Baldvin og Ingibjörg Sólrún talað við hvort ann- að? Hvernig hefur gamall formaður Alþýðflokksins talað um framgöngu sinna flokksystkina í orkupökk- um. Þótt Ólafur Harðarson sé með eindæmum slappur fræðimaður og það sé ágreiningslítið, þá hlýtur hann þó að frétta eitthvað að minnsta kosti um það sem gerist á hans eiginn bæjum. Hann getur varla alltaf og ætíð haft sömu afsökunina, þá sem hann notaði þegar hann deleraði síðast og fyrr var getið um. Fræðimaður feilar Svo kom þessi furðu setning: „Ég man eiginlega ekki eftir dæmi um gamlan foringja sem hefur skammað eftirmenn sína jafn rækilega og ritstjóri Morgunblaðsins gerir núna, síðan að Jónas Jónsson frá Hriflu, um miðja síðustu öld hafði mjög svipað orðbragð um eftirmenn sína: Hermann Jónasson og Eystein Jónsson.“ Er það virkilega Ólafur? Af handahófi hafa hér verið nefnt brot af ótal dæmum sem til eru og allir að jafnaði allsgáðir menn sem leggja sig eftir slíku, mundu þekkja. En Ólafur fer út af í fyrstu beygju. Jónas var ekki fyrrverandi formaður þegar hann fór í Hermann og Eystein. Þegar Jónas Jónsson var að finna að þeim Her- manni og Eysteini þá gerði hann það ekki sem gam- all fyrrverandi formaður. Hann var enn formaður flokksins þá. Maður sem eitthvað kann fyrir sér í sögu, eða í stjórnmálafræðum og er að jafnaði allsgáður, myndi vita þetta og ekki gera sig enn einu sinni að kjána. Vill Ólafur færa fram staðreyndir sem sýna að bréfritari hafi haft „svipað orðalag“ og Jónas frá Hriflu um Hermann og Eystein? Ólafur „fræðimaður“ RÚV sagði einstætt að Davíð Oddsson hefði fram að færa athugasemdir um eftir- menn sína í Sjálfstæðisflokknum. Fyrirrennarar Davíðs Oddssonar í formannsæti í Sjálfstæðisflokknum og eða í forsætisráðuneytinu eru: Jón Þorláksson, Ólafur Thors, Dr. Bjarni Bene- diktsson, Jóhann Hafstein, Geir Hallgrímsson, Gunnar Thoroddsen og Þorsteinn Pálsson. Ef Ólaf- ur Harðarson væri á fyrsta ári í stjórnmálafræði gæti honum dottið í hug, auðvitað að undangenginni ítarlegri fræðilegri rannsókn, að ástæða þess að hin- ir fyrstu 6 töldu höfðu aldrei gert athugasemd við störf bréfritara í forsætisráðuneytinu væri sú, að þeir voru allir látnir þegar að hann kom þangað! Sá 7. sat hins vegar hjá bréfritara í ríkisstjórn og var svo veitt sendiherraembætti að eigin ósk og því óhægt um vik um pólitískar athugasemdir. Þótt Ólafur Harðarson hafi margoft sannað fræði- lega veikleika sína opinberlega er ekki hægt að ásaka fréttastofuna fyrir að kalla ekki þennan póli- tíska sálufélaga sinn jafnan aftur til „vísindalegra og hlutlausra umsagna.“ Um það gildir hending Sig- urðar jarðfræðings: Okkur mun sambúðin endast vel, úr því að... Þarna er mikið jafnræði í hlutleysis- og hæfi- leikaskorti. Grátlega mikið. Morgunblaðið/RAX 23.6. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.