Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.06.2019, Qupperneq 19
um. Af þessari ástæðu eigi að taka fréttum um
aukna aðsókn í kennaranám með fyrirvara,
ekki nægi að ræða um aukna aðsókn í námið ef
útskrifaðir skila sér takmarkað í starfið.
Meyvant segir að rýna þurfi í þetta gaum-
gæfilega auk þess að veita fjármagn í þessi
mál. Stjórnvöld eigi að einbeita sér að þessu
vandamáli frekar en að verja mörgum millj-
ónum í verkefni eins og Látum draumana ræt-
ast sem Reykjavíkurborg hefur staðið að;
vissulega gangi skólayfirvöldum Reykjavíkur
gott eitt til með þessari stefnu til ársins 2030,
en hann segist ekki sjá í henni þær lausnir sem
til þarf. „Ég hef hvergi séð í þeim draumum
neitt sem heitir rannsókn á því sem ég nefndi
hér á undan.“
Þarf að fara út fyrir skólann
-Hvað myndir þú vilja sjá breytast í þessum
málum á næstu árum, þá helst að því er varðar
bráðger börn?
„Ég myndi vilja sjá einhvers konar samstarf
um úrræði. Á Íslandi eru skólarnir svo fá-
mennir, að meðaltali um 250 nemendur, og í
fámennustu skólunum eru eðli málsins sam-
kvæmt hlutfallslega fáir bráðgerir nemendur.
Þá þarf einhvern veginn að fara út fyrir skól-
ann með verkefni fyrir slíka nemendur. Eitt-
hvað svipað og var gert í samstarfi við háskól-
ann um aldamótin.
Í kennaramenntuninni þarf að taka þetta
inn líka. Ég heyrði af því að í Danmörku hefðu
nemendur fengið rannsóknarverkefni í stærð-
fræði. Rannsökuðu til dæmis sannanir á Pýþa-
górasarreglu. Það var svona afmarkað verk-
efni og þau fengu að kynna það fyrir öðrum.
Það þarf að laga viðhorfið. Duglegan nemanda
má ekki stimpla sem nörd og senda út í horn.
Það er feikilega frumstætt. Það þarf, eins og
ég segi, að taka mið af þessum hópi eins og
öðrum og hann þarf stuðning, samstarf við
aðra og endurgjöf eins og allir nemendur.“Morgunblaðið/Eggert
23.6. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Sumarútsala
30% afsláttur af öllum vörum
Opið virka daga kl. 11-18, lokað á laugardögum í sumar
Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík,
sími 551 2050
LISTHÚSINU