Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.06.2019, Qupperneq 29
Hann fór reyndar á tvenna tónleika í
þeirri ferð, í Glasgow og Aberdeen.
Þá voru að vísu bara tveir menn eftir í
bandinu, téðir Le Bon og Rhoades.
„Bandið hljómaði auðvitað aðeins
öðruvísi á þessum tíma, var heldur
hrárra, en þetta voru samt stórkost-
legir tónleikar og loksins rættist
draumurinn um að sjá þá „live“.“
Fullmannað var þegar Ómar sá
Duran Duran næst, á Wembley
Arena í Lundúnum 2004; Taylor-
arnir allir komnir heim, John bassa-
leikari, Roger trymbill og Andy gít-
arleikari. „Það voru geggjaðir
tónleikar. Planet Earth var lag núm-
er tvö og þakið rifnaði hreinlega af
höllinni. Ég var frekar aftarlega í
salnum og fyrir framan mig var kona
um sjötugt sem söng hástöfum með.
Þarna sá maður að Duran Duran
nær til allra kynslóða.“
Ómar var að sjálfsögðu á tónleik-
unum í Egilshöll ári síðar og segir þá
hafa verið mjög góða. „Það var
hörkustuð í Egilshöllinni en það jafn-
ast samt ekkert á við það að sjá
bandið á heimavelli í Bretlandi; það
er alltaf eins og þeir gefi aðeins
meira í þar,“ segir hann.
Vorið 2011 ætlaði Ómar á þrenna
tónleika í Bretlandi en þeim var af-
lýst vegna raddleysis Simons söngv-
ara. Raddböndin eitthvað viðkvæm í
karlanganum. Hann náði þó fljótt
heilsu og Ómar komst á alla þrenna
tónleikana fyrir jólin sama ár. Þarna
var Duran Duran að fylgja eftir
nýrri plötu, All You Need Is Now, en
Ómar hefur gert það að venju að sjá
sína menn þegar nýtt efni hefur
komið út.
Seinast ætlaði hann að fara út að
sjá Duran Duran árið 2015 en þá
gripu veðurguðirnir í taumana; það
gerði storm með þeim afleiðingum að
flugi var seinkað og Ómar missti af
tónleikunum. „En þeir lofa nýrri
plötu á næsta ári og þá flýg ég út.“
Hæðir og lægðir
Duran Duran var stofnuð árið 1978
og Ómar viðurkennir að bandið hafi
bæði farið gegnum hæðir og lægðir á
langri vegferð. Gullöldin var
snemma á níunda áratugnum þegar
Duran Duran var ein vinsælasta
hljómsveit í heimi. Hratt fjaraði und-
an bandinu er leið á þann áratug.
„Þar var ekki gott að tala mikið um
að maður væri að hlusta á Duran á
þessum árum. Radíusbræður gerðu
mikið grín að þessu í uppistandi sínu
og sögðu aðdáendur Duran Duran
þurfa að fela sig inni í skáp með tón-
listina,“ rifjar Ómar upp hlæjandi.
Sveitin náði sér ágætlega á strik
aftur eftir að hin svokallaða Brúð-
kaupsplata kom út 1993 en Ómar seg-
ir tímabilið í kringum aldamótin hafa
verið strembið. Seinustu árin þykir
honum Duran Duran hafa verið á
góðri siglingu. „Hljómsveitin hefur
gefið út nýtt efni jafnt og þétt gegn-
um tíðina og seinustu plötur hafa ver-
ið ljómandi góðar. Það þekkja
kannski ekki eins margir þetta nýrra
efni en það er ekkert verra fyrir það.
Duran Duran hefur alltaf gengið vel
að laga sig að straumum og stefnum á
hverjum tíma og lítið verið í því að
endurtaka sig enda þótt það sé alltaf
einhver Duran Duran-hljómur fyrir
hendi. Svolítið eins og hjá Bubba
Morthens hérna heima.“
Og það eru ekki gömlu lummurnar
sem draga Ómar í Laugardalshöllina
á þriðjudaginn. „Ég er að fara til að
hlusta á nýtt efni – og mögulega eitt
og eitt gamalt lag sem ég hef ekki
heyrt áður.“
Ómar og Lilja, dóttir hans, á tröppunum heima í Bolungarvík íklædd bolum
með mynd af fjórtándu hljóðversplötu Duran Duran, Paper Gods.
Marín, yngri dóttir Ómars, deilir af-
mælisdegi með John Taylor, 20. júní.
23.6. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
MÁLAFERLI Gömlu brýnin í rokk-
bandinu Mötley Crüe hafa hótað
sjónvarpsstöðinni Reelz lögsókn
vegna umfjöllunar um bandið í
þáttaröðinni Breaking the band.
Bæði Vince Neil söngvari og Nikki
Sixx bassaleikari staðfesta að þeir
hafi ekki haft neina aðkomu að
gerð þáttarins sem byggist á upp-
lýsingum frá fyrrverandi umboðs-
manni þeirra, Doug Thaler, og frá-
sögn hans af því þegar Neil var
vikið úr bandinu árið 1992 sé inni-
lega misvísandi og bjöguð.
Mötley Crüe hótar lögsókn
Mötley Crüe-liðar hressir að vanda.
AFP
BÓKSALA 12.-18. JÚNÍ
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Sara Árelía Eydís Guðmundsdóttir
2 Sumareldhús Flóru Jenny Colgan
3 Ljóð 2007-2018 Valdimar Tómasson
4 Engin málamiðlun Lee Child
5 Móðir Alejandro Palomas
6 Óvænt endalok Ævar Þór Benediktsson
7 Gullbúrið Camilla Läckberg
8 1793 Niklas Natt och Dag
9 Barist í Barcelona Gunnar Helgason
10 Kennarinn sem hvarf Bergrún Íris Sævarsdóttir
1 Óvænt endalok Ævar Þór Benediktsson
2 Barist í Barcelona Gunnar Helgason
3 Kennarinn sem hvarf Bergrún Íris Sævarsdóttir
4
Þín eigin saga
– draugagangur
Ævar Þór Benediktsson
5
Þín eigin saga
– piparkökuhúsið
Ævar Þór Benediktsson
6 Risasyrpa – íþróttakappar Walt Disney
7
Handbók fyrir Ofurhetjur 4
– vargarnir koma
Elias/Agnes Vahlund
8 Elmar á afmæli David McKee
9 Svarta kisa – barnið Nick Bruel
10 Svarta kisa – móri frændi Nick Bruel
Allar bækur
Barnabækur
Bókin Óvinafagnaður – Fjórar skáldsögur um
Sturlungaöld er komin út hjá Máli & menningu.
Um er að ræða sagnabálk Einars Kárasonar um
átök, mannvíg, skáld og höfðingja Sturlungaaldar.
Óvinafagnaður, Ofsi, Skáld og Skálmöld birtast
hér allar í einni bók, raðað eins og rás atburða
kallar á og því er yngsta bókin fremst. Höfundur
skrifar sjálfur inngang. „Sagnalist eins og hún ger-
ist best,“ segir í kynningu útgefanda.
ÁHUGAVERÐAR BÆKUR
Ég myndi segja að ég væri ómark-
viss og hægur lesandi. En oft glögg-
ur. Verð reyndar að lesa talsvert
vegna vinnu minnar en ég kenni ís-
lensku við Fjölbrautaskóla Suður-
lands. Í kennslunni kýs ég frekar að
velja nýjar bækur til lestrar en að
lesa þær gömlu aft-
ur. Endurlas og
kenndi á vorönninni
Sumarljós og svo
kemur nóttin eftir
Jón Kalman Stefáns-
son og upplifði dýrð-
ina í þessu verki á
nýjan hátt. Stórkostlegur sagna-
sveigur með yfir 50 persónum sem
Bjartur verður að endurútgefa.
Ég er í ljóðafélagi á Selfossi þar
sem við hittumst nokkrir sérvitr-
ingar og lesum og greinum ljóð.
Þetta er reyndar mjög áhugavert
áhugamál. Núna les-
um við ljóðabækur
Kristínar Svövu
Tómasdóttur, Blót-
gælur, Skrælingja-
sýninguna og Storm-
viðvörun. Hún er
róttæk og berorð og brýtur nánast
af sér allar viðjar í ljóðagerð.
Svo er ég að smjatta á Ritgerð
minni um sársaukann eftir Eirík
Guðmundsson sem kom út fyrir
síðustu jól. Mér finnst gott að lesa
hana með hægð. Hin fastmótaða
atburðarás er horfin í þessu verki.
Hugleiðingin stendur eftir í búningi
ferðalags. Mér finnst Eiríkur bæði
fyndinn og frábær textahöfundur
sem nýtir sér stílbrögð eins og end-
urtekningu á nýjan og ferskan hátt.
Síðast en ekki síst verð ég að
nefna nýútkomna skáldsögu Berg-
sveins Birgissonar Lifandi lífslæk
sem ég las í vor. Saga með at-
burðarás sem skipt-
ir máli. Mótífið hið
sama og í Heart of
Darkness og Kristni-
haldi undir Jökli.
Besta skáldsaga sem
ég hef lesið í langan
tíma. Alltaf þegar ég
finn við lestur sagna að umfjöll-
unarefnið er mennskan (eða sú
spurning hvað gerir okkur að
manneskjum?) fæ ég lestrarfiðring
sem lýsir sér í því að þegar ég hef
náð sambandi við bókina (með
lestri) og er að sinna mínum dag-
legum störfum þá verður mér
hugsað til hennar (og sakna henn-
ar) og hlakka til að hitta hana að
nýju.
JÓN ÖZUR ER AÐ LESA
Ómarkviss en glöggur
Jón Özur
Snorrason er
íslenskukenn-
ari við Fjöl-
brautaskóla
Suðurlands.
ÁRMÚLA 26 – 108 REYKJAVÍK