Morgunblaðið - 05.07.2019, Side 1
F Ö S T U D A G U R 5. J Ú L Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 156. tölublað 107. árgangur
MISSTI FOR-
ELDRA OG
UNNUSTU HEILSUBÓT FYRIR ALLA
QIGONG Á KLAMBRATÚNI 11VANN PGA-MÓT 33
Vatnajökulsþjóðgarður verður í
hópi merkustu þjóðgarða heims,
eins og til dæmis Yellowstone í
Bandaríkjunum og Galapagos í
Ekvador, ef umsókn íslenskra
stjórnvalda um skráningu hans á
heimsminjaskrá UNESCO verður
samþykkt. Greidd verða atkvæði
um nýja minjastaði á ráðstefnu í
dag. Miðað við þær undirtektir sem
umsóknin hefur fengið er búist við
að skráningin takist.
Heimsminjaráðstefnan er haldin
í Bakú í Aserbaídsjan og eru
fulltrúar þjóðgarðsins og tveggja
ráðuneyta staddir þar.
Áhersla á jarðfræðina
Í tilnefningu Vatnajökulsþjóð-
garðs var lögð áhersla á rekbeltið,
heita reitinn undir landinu og eld-
stöðvakerfi í gosbeltunum ásamt
samspili elds og íss sem talið er
einstakt á heimsvísu. Hann fer því
í flokk náttúrustaða. Verður þjóð-
garðurinn þriðji heimsminjastað-
urinn á Íslandi, fái umsóknin braut-
argengi. Surtsey er fyrir á skrá
sem náttúrustaður vegna ein-
stæðrar jarðfræði og Þingvellir
sem menningarminjar. »6
Í hópi
merkra
þjóðgarða
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Herðubreiðarlindir Friðlandið við
Herðubreið er nú innan þjóðgarðs.
Atkvæði greidd um
Vatnajökulsþjóðgarð
Sænska tónlistarkonan Lykke Li spilaði í Silfur-
bergi í Hörpu í gærkvöldi fyrir hátt í 1.200
manns. Hún er óvön því að halda tónleika fyrir
svo fámennan áhorfendahóp en Lykke Li er ein
eftirsóttasta söngkona heims í dag og nýtur
einkum hylli yngri kynslóðarinnar.
Viðmælandi blaðsins sem var á tónleikunum
sagði að tónleikagestir hefðu skemmt sér vel í
Hörpu.
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Lykke Li
heillaði
tónleikagesti
Daglegt umferðaröngþveiti við
Vatnsmýri í Reykjavík neyðir
Strætó til að bregðast við með því
að breyta leiðakerfi sínu. Þegar
mest er sitja fjórir vagnar fastir
vegna umferðarvandans. Er lagt til
að leið 5 hætti að keyra að Nauthól
og fari þess í stað að BSÍ. Þar geta
þeir farþegar sem vilja enda í ná-
munda við Háskólann í Reykjavík
farið í annan vagn, leið 8, sem
myndi aka á milli BSÍ og Nauthóls.
Framkvæmdastjóri Strætó kallar
eftir lausnum og vill m.a. borgina
að borðinu í þeim efnum. Hann seg-
ir þetta vera mesta vandræðasvæði
leiðakerfis Strætó. »8
Vatnsmýrin mikið
vandræðasvæði
Matvælasprotinn Lava Cheese,
sem framleiðir snakk úr bráðnum
og storknuðum osti, hefur lokið við
100 milljóna króna fjármögnun.
Féð ætlar fyrirtækið að nota til að
sækja fram með vörur sínar í
Skandinavíu, en félagið er nú þegar
með skrifstofu í Svíþjóð auk skrif-
stofunnar hér á landi.
Guðmundur Páll Líndal, sem
stofnaði Lava Cheese ásamt Jósep
Birgi Þórhallssyni, segir að fram-
leiðsla snakksins fari fram í Graf-
arvogi og eftirspurnin sé mikil. Um
framleiðsluna sjá þrír flóttamenn
frá Írak, Sýrlandi og Afganistan.
Guðmundur segir að það sé stefna
fyrirtækisins að ráða eingöngu
flóttamenn í vinnu. Þeir séu góðir
starfskraftar sem vilji vinna. Í Got-
landi í Svíþjóð, þar sem fram-
leiðslan fyrir sænska markaðinn
fer fram, sé hins vegar minna um
flóttamenn og erfiðara að halda
stefnunni til streitu. »12
Lava Cheese vill flóttamenn í vinnu
Ostur Jósep Birgir Þórhallsson og
Guðmundur Páll Líndal.
„Þetta er fordæmalaust mál.
FME tekur það fyrir og það er al-
veg ljóst að FME lítur þetta þeim
augum að það þurfi almennt að
rýna í samþykktirnar og fara yfir
það hvernig best sé að sjálfstæði
stjórnarmanna sé tryggt,“ segir
Þórey S. Þórðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Landssamtaka lífeyr-
issjóða, um nýtt álit Fjármálaeft-
irlitsins (FME) á þeirri ákvörðun
fulltrúaráðs VR að afturkalla um-
boð fjögurra stjórnarmanna í Líf-
eyrissjóði verzlunarmanna.
Að sögn hennar munu lands-
samtökin láta sig þetta mál varða.
„Nú verður yfirfarið hvernig stað-
an er hjá öðrum sjóðum, hvernig sé
rétt að fara með mál þannig að það
sé alveg tryggt að stjórnir sjóða séu
alveg sjálfstæðar í sínum störfum
og séu ekki beittar þrýstingi í
ákveðnum málum, hvorki af til-
nefningaraðila né einhverjum öðr-
um öflum í þjóðfélaginu.“ »9
Tryggja að stjórnir séu alveg sjálfstæðar
Morgunblaðið/Eggert
Umdeilt FME segir stjórnarmenn VR
sitja enn í stjórn lífeyrissjóðsins.
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Frá og með deginum í dag verður
þjónusta skert verulega á deild 33A
á Landspítala, sem er ein þriggja
bráðageðdeilda spítalans. Um helm-
ingi rúmanna á deildinni, 15 af 31
rúmi, verður lokað og munu þau
standa lokuð næstu fjórar vikurnar.
Er þetta gert vegna sparnaðar og
manneklu. María Einisdóttir, fram-
kvæmdastjóri geðsviðs Landspítala,
segir að sjálfsvígsáhætta sé algeng-
asta ástæða þess að fólk er lagt inn á
deildina.
Anna Gunnhildur Ólafsdóttir,
framkvæmdastjóri Geðhjálpar, seg-
ir ekki forsvaranlegt að
geðheilbrigðisþjónusta sé skert ár
eftir ár. Það sé ekki í samræmi við
yfirlýsingar ráðamanna um mikil-
vægi þessarar þjónustu og komi
fólki með geðsjúkdóma afar illa.
Tryggja þurfi stöðugt fjármagn til
málaflokksins.
Hún segir að það sé reynsla þeirra
sem starfa hjá Geðhjálp að sumrin,
ýmsir hátíðisdagar og frí séu oft erf-
iðari en aðrir tímar ársins fyrir fólk
með geðraskanir. „Fólk veikist
nefnilega ekkert síður á sumrin en á
öðrum tímum ársins,“ segir hún.
„Auðvitað gerum við okkur grein
fyrir að þetta er íþyngjandi fyrir
marga. Við hörmum það, þetta er
erfitt fyrir alla og ég vona að þetta
verði í síðasta skiptið sem við þurf-
um að skerða þjónustuna,“ segir
María.
Loka 15 rúmum af 31
Öðru hverju rúmi á einni bráðageðdeild Landspítala lokað fram yfir verslunar-
mannahelgi Fólk veikist líka á sumrin, segir framkvæmdastjóri Geðhjálpar
MLoka öðru hverju rúmi … »4
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Geðdeild Þar verður skert þjónusta
og rúmum verður lokað.
DJASSGEGGJ-
ARAR UNDIR
EYJAFJÖLLUM
HÁTÍÐ Í SKÓGUM 36