Morgunblaðið - 05.07.2019, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2019
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Einstök gæði frá
40 ár
á Íslandi
Öflugar og
notendavænar
sláttuvélar
Alþingi tekur nú þátt í setningu Man-
arþings (e. Tynwald) í fyrsta sinn síð-
an 2009 þegar þátttakan var aflögð í
kjölfar efnahagshruns.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti
Alþingis, var á leið sinni til eyjunnar
Manar þegar blaðamaður náði tali af
honum í gær.
„Tengslin á milli Alþingis og Man-
arþings eru þá að komast á aftur og
það má segja að það hafi byrjað á því
að við buðum forseta Manarþings til
hátíðarhaldanna [vegna 100 ára af-
mælis fullveldis Íslands] í fyrra í ljósi
þess að það eru löng söguleg tengsl á
milli þessara þinga, Tynwald og Al-
þingis,“ segir Steingrímur.
Margt tengir Ísland og eyjuna
Mön, að sögn Steingríms.
„Sögulegar rætur liggja saman.
Þótt þeir séu talsvert minni en við og
auðvitað sjálfstjónarsvæði þá eru þeir
samt sjálfstæðir í sínum málum og
hafa haldið sérstakri stöðu innan
bresku krúnunnar. Þeir eru í raun
ekki hluti af Stóra-Bretlandi heldur
eiga þeir í sérstöku sambandi við
krúnuna. Það er sumpart líkt okkar
stöðu á milli 1918 og 1944. Bretar sjá
um varnarmál og eiga að gæta hags-
muna Mana í utanríkismálum en
Manar eru í raun alveg sjálfráða um
sín innri mál,“ segir Steingrímur sem
bætir því við að Manarþing og Al-
þingi séu uppbyggð á svipaðan hátt
en þingin voru stofnuð á svipuðum
tíma.
Steingrímur segir líklegt að Al-
þingi muni senda fulltrúa á setningu
þingsins framvegis.
ragnhildur@mbl.is
Alþingi á Manarþing á ný
Fulltrúar Alþingis hafa ekki látið sjá sig síðan árið 2009
Forseti Alþingis segir margt tengja Manarþing og Alþingi
Ljósmynd/Richard Hoare
Manarþing Tynwald-hæð á eyjunni
Mön. Þingið er sett utandyra.
Loka öðru hverju rúmi á bráðageðdeild
Neyðarráðstöfun segir framkvæmdastjóri geðsviðs LSH Fólk veikist líka á sumrin segir Geðhjálp
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Um helmingi rúma á deild 33A á
Landspítala, sem er móttökugeðdeild
og ein af þremur bráðageðdeildum
spítalans, verður lokað í dag. Þessi
ráðstöfun mun standa fram yfir versl-
unarmannahelgi og María Einisdótt-
ir, framkvæmdastjóri geðsviðs Land-
spítala, segir þetta neyðarráðstöfun
sem gripið sé til vegna skorts á fé og
fagfólki, einkum hjúkrunarfræðing-
um. Anna Gunnhildur Ólafsdóttir,
framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir
þessa lokun ekki forsvaranlega, hún
komi fólki með geðsjúkdóma afar illa
og sé ekki í neinu samræmi við yf-
irlýsta stefnu yfirvalda um mikilvægi
góðrar geðheilbrigðisþjónustu.
Að sögn Maríu er sjálfsvígshætta
algengasta ástæða þess að fólk er lagt
inn á deildina. Þar eru að öllu jöfnu
rúm fyrir 31 sjúkling, en frá og með
deginum í dag og næstu fjórar vik-
urnar verða plássin 16. Reyndar
liggja oft fleiri en 31 inni á deildinni,
því að í fyrra var meðalnýting rúma
þar 106%. Spurð hvernig verja megi
þá ákvörðun að loka helmingi rúm-
anna þegar þörfin sé svo mikil segir
María að nýtingin hafi verið nokkru
minni yfir sumarið; hún hafi t.d. verið
95% í nýliðnum júní og enn meiri í
júní í fyrra. „Sem er samt of mikið, því
æskileg meðalnýting á bráðadeild á
sjúkrahúsi er 85-90%,“ segir María.
Hún segir að þetta sé líklega 10.
sumarið í röð sem fækka þurfi rúmum
á deildinni, en lokunin núna muni vara
skemur en oft áður. „Í fyrra þurftum
við að loka í sex til sjö vikur og við höf-
um fundið það, þegar við höfum opnað
öll rúmin aftur, að það er uppsöfnuð
þörf, því þá leita gríðarlega margir til
okkar.“
Anna Gunnhildur segir að Geðhjálp
hafi ávallt mótmælt lokunum sem
þessum og muni einnig gera það
núna. „Þetta kemur mér í opna
skjöldu og er alls ekki í takt við þörf-
ina. Það er alls ekki forsvaranlegt að
geðheilbrigðisþjónusta sé skert ár
eftir ár. Það þarf að tryggja stöðugt
fjármagn til geðheilbrigðismála,“ seg-
ir Anna Gunnhildur.
Hún segir að það sé reynsla þeirra
sem starfa hjá Geðhjálp að sumrin,
ýmsir hátíðisdagar og frí séu oft erf-
iðari en aðrir tímar ársins fyrir fólk
með geðraskanir. „Fólk veikist nefni-
lega ekkert síður á sumrin en á öðrum
tímum ársins,“ segir hún.
Vonandi í síðasta skiptið
Anna Gunnhildur segir að niður-
skurður sem þessi sé hvorki í sam-
ræmi við þá umræðu sem verið hefur í
samfélaginu um geðheilbrigðismál né
þær áherslur sem stjórnmálamenn
hafa sagst hafa í þessum málaflokki.
Hún segist hafa fullan skilning á því
að ekki takist að ráða nægilegan
fjölda hjúkrunarfræðinga til starfa,
en hugsanlega megi gera aðrar ráð-
stafanir án þess að draga úr þjónustu.
„Kannski gætu aðrar fagstéttir eins
og t.d. iðjuþjálfar eða félagsráðgjafar
starfað á deildinni án þess að ganga í
störf hjúkrunarfræðinga.“
Spurð hvort hún viti til þess að al-
varleg tilvik hafi komið upp í gegnum
tíðina vegna lokana á deildinni segist
María ekki hafa heyrt af því. „En auð-
vitað gerum við okkur grein fyrir að
þetta er íþyngjandi fyrir marga. Við
hörmum það; þetta er erfitt fyrir alla
og ég vona að þetta verði í síðasta
skiptið sem við þurfum að skerða
þjónustuna,“ segir María.
Anna Gunnhildur segir að þegar
deildum sé lokað að hluta eins og nú
er sé meira um að fólk hafi samband
við Geðhjálp. „Við veitum fólki auðvit-
að alla þá ráðgjöf og aðstoð sem við
getum. En við getum aldrei komið í
staðinn fyrir spítala, ekki frekar en
nokkur annar.“
María
Einisdóttir
Anna G.
Ólafsdóttir
Unnið hefur verið að því undanfarna daga að
undirbúa matartorg og leiksvæði á Miðbakka við
gömlu höfnina í Reykjavík.
Svæðið hefur verið málað í áberandi litum og
mynstri. Hins vegar hefur rigningin sett strik í
reikninginn undanfarna daga svo ekki tókst að
mála allt svæðið. Vonir voru bundnar við að það
tækist að opna torgið í dag, föstudag, en hæpið
er að það takist. Veitt verða dagsöluleyfi fyrir
5-6 matarvagna/bíla á svæðinu frá klukkan 9:00
til 21:00 alla daga, fram til 15. september. Sjáv-
arfang verður áberandi á matseðlunum en einn-
ig verður boðið upp á annars konar mat. Notkun
á plastáhöldum og -umbúðum er bönnuð.
Komið verður upp körfuboltavelli, hjóla-
brettavelli og hjólaleikvelli. Hugmyndin er að
breyta hafnarbakkanum úr bílastæðum í lifandi
almenningsrými. sisi@mbl.is
Undirbúa litríkan matarmarkað á Miðbakka
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Það verður líf og fjör í nýju almenningsrými við gömlu höfnina í sumar
Veitingamaðurinn Magnús Már
Kristinsson mun bjóða upp á ókeyp-
is pylsur fyrir alla þá sem fá sér bjór
á Reykjavík Brewing í dag milli
fjögur og sex. Mun þetta vera gert í
mótmælaskyni eftir að Reykjavík-
urborg hafnaði umsókn hans um
leyfi fyrir pylsuvagni við Sundhöll
Reykjavíkur. Erindi Magnúsar var
tekið fyrir hjá menningar-, íþrótta-
og tómstundaráði sem komst að
þeirri niðurstöðu að ekki væri
„heppilegt“ að hafa pylsuvagn við
Sundhöllina og að allmörg kaffihús,
veitingastaðir og skyndibitastaðir
væru í nágrenninu. Magnús segist
sorgmæddur yfir niðurstöðu borg-
arinnar í málinu en ætlar hins vegar
ekki að gefast upp.
„Við sækjum um aftur. Við höfum
aldrei verið þekktir fyrir að gefast
upp. Ég hef rekið mörg fyrirtæki og
er vanur því að fá nokkur nei áður
en maður fær já,“ segir Magnús.
Býður pylsur í
mótmælaskyni
Fjögur börn hafa á undanförnum
tveimur til þremur vikum greinst
með alvarlega sýkingu af völdum E.
coli-bakteríu að því er greint var frá
á vefsíðu Landlæknis í gær. Fram
kom í viðtali við Þórólf Guðnason
sóttvarnalækni í kvöldfréttum RÚV
að tvö barnanna hefðu verið lögð inn
á barnaspítala Hringsins alvarlega
veik. „Börnin sem sýktust búa öll á
höfuðborgarsvæðinu en hafa öll lík-
lega smitast í uppsveitum Árnes-
sýslu eða nánar tiltekið í Bláskóga-
byggð, en á þessari stundu er ekki
ljóst hver uppspretta smitsins er,“
segir á vef Landlæknis.
Fjögur börn með
E.coli-bakteríusýkingu