Morgunblaðið - 05.07.2019, Page 6

Morgunblaðið - 05.07.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2019 kranar & talíur STAHL kranar og talíur frá Þýskalandi eru áreiðanlegir vinnuþjarkar sem auðvelda alla vinnu. Kranarnir og talíurnar eru í hæsta gæðaflokki þar sem öryggi og góð ending eru höfð að leiðarljósi. Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Atkvæði verða greidd um það árdegis í dag hvort Vatnajökulsþjóðgarður verði tekinn upp á heimsminjaskrá UNESCO. Miðað við þær undirtektir sem umsóknin hefur fengið eru taldar líkur á að hún verði samþykkt. Fulltrúar umhverfisráðuneytisins, mennta- og menningarmálaráðuneyt- isins og Vatnajökulsþjóðgarðs sitja heimsminjaráðstefnu UNESCO, Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem nú er haldin í Bakú í Aserbaídsjan. Greidd verða atkvæði um Vatnajökulsþjóðgarð um klukkan sjö árdegis. Eftirsótt skráning Heimsminjaskrá UNESCO nær yfir staði sem teljast sérstaklega verðmætir frá menningar- eða nátt- úrufræðilegu sjónarmiði og þannig hluti af menningararfi mannkyns. Staður eða náttúrufyrirbæri sem kemst á skrána fær sérstaka stöðu og athygli enda leggja margir ferða- menn áherslu á að heimsækja þá. Er því eftirsótt að komast á skrána og heimsminjanefnd setur ströng skil- yrði fyrir upptöku. Staðirnir þurfa að hafa einstakt gildi á heimsvísu sem kallar á alþjóðlega vernd. Unnið hefur verið að undirbúningi málsins frá árinu 2016. Sérstök verk- efnisstjórn hafði umsjón með verkinu og Snorri Baldursson líffræðingur ritstýrði umsókninni. Í tilnefningunni var lögð áhersla á rekbeltið, heita reitinn undir landinu og eldstöðvakerfi í gosbeltunum ásamt samspili elds og íss sem talið er einstakt á heimsvísu. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra og Lilja Dögg Al- freðsdóttir menningarmálaráðherra undirrituðu tilnefninguna í janúar á síðasta ári. Síðan hefur hún verið yf- irfarin af heimsminjanefndinni og Al- þjóðanáttúruverndarsamtökunum. Í umsögnum kemur fram sá vilji að Herðubreiðarlindir skuli vera hluti af heimsminjasvæðinu sem og hluti Lónsöræfa sem eru friðland en utan Þjóðgarðsins. Nú hefur Vatnajökuls- þjóðgarður verið stækkaður til norð- urs þannig að Herðubreiðarlindir eru orðnar hluti af honum. Aftur móti er ekki fallist á það að Jökulsárgljúfur og Ásbyrgi verði á heimsminjaskrá þótt svæðið tilheyri Vatnajökulsþjóðgarði. Magnús Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Vatna- jökulsþjóðgarðs, segir að sú afstaða tengist friðlýsingu á Jökulsá á Fjöll- um sem þurfi að ljúka og skýra eign- arhald. Það bíður því um sinn en Magnús segir að áfram verði unnið í þeim málum. Heiður fyrir þjóðgarðinn „Fyrir Vatnajökulsþjóðgarð er það fyrst og fremst heiður að komast á heimsminjaskrá ásamt innan við 250 öðrum náttúrusvæðum í heiminum,“ sagði Magnús Guðmundsson í gær en þá lá ekki fyrir hvort umsóknin næði í gegn en hann var vongóður um já- kvæða niðurstöðu heimsminja- ráðstefnunnar. Bendir Magnús á að þjóðgarðurinn lendi í flokki heims- þekktra þjóðgarða, nefnir Yellow- stone og Yosemite í Bandaríkjunum, Galapagos í Ekvador, Serengeti í Kenía og Glacier National Park í Argentíu. „Skráning á heimsminja- skrá er æðsta gæðavottun sem nokkru náttúrusvæði getur hlotnast á heimsvísu.“ Hann segir að reikna megi með auknum áhuga landsmanna og ferða- manna og ekki síst auknum kröfum um vandaða miðlun fræðslu um þjóð- garðinn. Husanlega muni erlendum ferðamönnum fjölga við skráningu en hann bendir á að Ísland hafi hvort sem er verið vinsæll áfangastaður. Hins vegar kunni hlutur kröfuharðra náttúruferðamanna að aukast innan þjóðgarðsins. Vatnajökulsþjóðgarður heitur  Greidd verða atkvæði í dag á heimsminjaráðstefnu UNESCO um upptöku Vatnajökulsþjóðgarðs á heimsminjaskrá  Talin mesta gæðavottun sem náttúrusvæði getur hlotnast á heimsvísu Fyrsta kartöfluuppskera sumarsins er komin í verslanir á Höfn og kart- öflur frá Hornafirði eru væntanlegar í verslanir á höfuðborgarsvæðinu strax eftir helgi. Bændur á Seljavöllum hófu að taka upp kartöflur í vikunni. „Ég tók örlítið upp á mánudag til að prófa nýjar vélar og þær fóru í Nettó á Höfn. Ég tók meira upp í dag og um helgina tek ég upp kartöflur til að senda til dreifingar á höfuðborgar- svæðinu,“ sagði Hjalti Egilsson við blaðið í gær. „Þetta er með fyrra fallinu. Ég hef þó áður tekið upp á þessum tíma. Ég setti snemma niður í vor og ræktaði undir plasti. Þetta eru fljótsprottin afbrigði, Premier,“ segir kartöflu- bóndinn. Uppskeruhorfur eru ágætar í Hornafirði, að mati Hjalta. „Það hef- ur raunar verið óvenju þurrt, svona þurrkar hafa varla þekkst hjá okkur. Það virðist þó ekki ætla að verða okkur til trafala. Ég hef getað vökv- að akrana í sumar og tel að það hafi haft áhrif,“ segir hann. helgi@mbl.is Ljósmynd/Oddleifur Eiríksson Uppskerustörf Seljavallabændur eru byrjaður að taka upp kartöflur. Nýjar kartöflur koma í verslanir  Bændur á Seljavöllum hefja upptöku Nú eru 845 staðir skráðir á heimsminjaskrá vegna menn- ingarverðmæta, 209 vegna ein- stakrar náttúru og 38 staðir sem geta státað af bæði ein- stakri náttúru og menningar- minjum. Greidd verða atkvæði um 45 staði til viðbótar á heimsminjaráðstefnunni í dag og því stefnir í einhverja fjölg- un. Tveir staðir á Íslandi eru á heimsminjaskrá. Þingvellir eru í flokki menningarminja og Surtsey sem einstakur staður í jarðfræði. Vatnajökulsþjóð- garður fellur undir náttúru- svæði, ekki síst vegna samspils eldvirkni og jökla sem og lofts- lags og jökulíss. Surtsey og Þingvellir TVEIR STAÐIR Á SKRÁNNI Morgunblaðið/RAX Vatnajökull Þjóðgarðurinn dregur nafn sitt af stærsta jökli landsins. Innan hans eru þó einnig mörg sérstök nátt- úrusvæði, ekki síst jarðfræðifyrirbrigði. Á myndinni sjást Færunestindar í Skaftafellsfjöllum. Vatnajökuls- þjóðgarður Þjóðgarðs- mörk Kortagrunnur: Vatnajökulsþjóðgarður Herðubreið Dettifoss Askja Jökulsárlón Skaftafell Snæfell Ó d á ð a h r a u n Veiðivötn Grímsvötn Jökulsár- gljúfur Jökulsárgljúfur Vatnajökull

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.