Morgunblaðið - 05.07.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2019
Bresk samkeppnisyfirvöld hafaákveðið að taka til skoðunar
yfirburðastöðu Google og Face-
book á stafrænum auglýsingamark-
aði og hvort sú staða hafi truflandi
áhrif á markaðinn. Ástæðan fyrir
slíkri rannsókn er vitaskuld sú stað-
reynd að leitarvélar og samfélags-
miðlar hafa haft mjög skaðleg áhrif
á fjölmiðla á sama tíma og þessi fyr-
irbæri nærast á því sem fjölmiðlar
framleiða án þess að greiða fyrir.
Samkvæmt erlendum rann-sóknum hafa leitarvélar og
samfélagsmiðlar, einkum Google
og Facebook, sogað til sín lang-
stærstan hluta af þeim auglýs-
ingum sem fara á vefinn.
Og þessir „miðlar“ eru síður ensvo vandir að virðingu sinni
þegar kemur að því að birta auglýs-
ingar og nota svo markaðsaðstöðu
sína til að dreifa vafasömum aug-
lýsingum víða. Nýlegt dæmi eru
ósannindi um íslenska fjármála-
ráðherrann sem sagður var hafa
grætt stórfé á einhvers konar bit-
coin-fjárfestingu.
Erfitt er að eiga við útþenslu Google og Facebook og dreif-
ingu þeirra á vafasömu efni af
ýmsu tagi. Þó er augljóst að mikil-
vægt er að hefðbundnir fjölmiðlar
haldi stöðu sinni en verði ekki undir
í ósanngjarnri samkeppninni.
Vandinn er hins vegar sá að hiðopinbera er seint að bregðast
við og lætur sér almennt nægja að
skrifa skýrslur. Breska skýrslan á
til dæmis að koma út eftir ár. Hvað
ætli Google og Facebook verði búin
að gera út af við marga breska fjöl-
miðla fyrir þann tíma?
Risar rannsakaðir
STAKSTEINAR
SAMSTARFSAÐILI
HVAR SEM ÞÚ ERT
Hringdu í 580 7000
eða farðu á sumarhusavorn.is
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Brottfarir erlendra farþega frá
landinu voru 16,7% færri í júnímán-
uði þetta árið en í fyrra eða 39 þús-
und færri samkvæmt talningu
Ferðamálastofu og Isavia.
Brottförum erlendra ferðamanna
hefur fækkað í hverjum mánuði frá
áramótum. Í janúar fækkaði brott-
förum um 5,8%, í febrúar um 6,9%,
í mars um 1,7%, í apríl um 18,5%
og um 23,6% í maí. Mest hefur
brottförum bandarískra ferða-
manna fækkað á þessu ári eða um
26,5% en langflestar brottfarir voru
þó frá bandarískum ferðamönnum
komnar.
Kínverskum ferðamönnum hefur
fjölgað mikið síðustu ár hér á landi
en þeim hefur fjölgað um 12,7%
þetta árið.
Frá árinu 2010 hefur fjöldi ferða-
manna rúmlega fimmfaldast en í
umfjöllun mbl.is um málið er bent á
að ef vöxturinn hefði haldið sér á
svipuðum hraða hefðu hingað komið
17,5 milljónir erlendra gesta árið
2028, 218 milljónir árið 2038 og upp
úr 2060 væru gestirnir orðnir fleiri
en íbúar jarðarinnar.
Brottförum Íslendinga fækkaði
einnig í júní en um 64 þúsund Ís-
lendingar fóru utan í júní í ár eða
9% færri en í júní 2018.
ragnhildur@mbl.is
Brottförum fækkaði um tæp 17%
Bandarískum ferðamönnum fækkar
mest Kínverjum fjölgar um 12,7%
Morgunblaðið/Ómar
Ferðamenn Líkt og búist var við
fækkaði ferðamönnum í júní.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Allir vagnar á þessu svæði eru
stopp á ákveðnum tíma dagsins sem
setur allt úr skorðum. Þetta er því
eins konar neyðarúrræði og vonandi
verður hægt að leysa þetta einhvern
tímann fyrir næstu áramót, en til að
svo megi verða þurfa allir að koma
að borðinu,“ segir Jóhannes Svavar
Rúnarsson, framkvæmdastjóri
Strætó, við Morgunblaðið.
Vísar Jóhannes Svavar í máli sínu
til hins mikla umferðarvanda sem
daglega skapast við Vatnsmýri í
Reykjavík. Sitja vagnar Strætó, sem
m.a. þurfa að keyra að Háskólanum í
Reykjavík við Nauthólsveg, þá fastir
í umferð og setur það áætlun þeirra
úr skorðum. Þegar mest er segir Jó-
hannes Svavar fjóra vagna stopp
vegna umferðarvandans.
Til að bregðast við þessu er lagt til
að leið 5 hætti að keyra að Nauthól
og fari þess í stað að BSÍ. Þar geta
þeir farþegar sem vilja enda innan
vandræðasvæðisins við Vatnsmýri
farið í annan vagn, leið 8. Sá myndi
aka á milli BSÍ og Nauthóls.
„Ég hef ekki lausnina á þessu
vandamáli, ef ég hefði hana væri ég
búinn að hrinda henni í framkvæmd.
En menn verða að setjast niður og
finna einhverja lausn á þessu,“ segir
Jóhannes Svavar og á þar einkum
við fulltrúa frá Strætó, Reykjavíkur-
borg og HR. „Hver niðurstaðan
verður veit ég ekki. Kannski vilja
menn bíða eftir þessari brú sem
byggja á yfir Fossvoginn. Það gerist
kannski einhvern tímann á næstu
árum,“ bætir hann við.
Spurður hvort þetta sé mesta
vandræðasvæði Strætó kveður Jó-
hannes Svavar já við. „Við lendum
illa í síðdegisumferð á nokkrum
stöðum en hvergi eins og þarna.“
Strætó bregst við
umferðaröngþveiti
Flöskuhálsinn við
Nauthól versti staður
leiðarkerfis Strætó
Morgunblaðið/Hari
Reykjavík Tafir eru daglegt brauð
þeirra sem ferðast um í borginni.