Morgunblaðið - 05.07.2019, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2019
Jón Birgir Eiríksson
Rósa Margrét Tryggvadóttir
Landssamtök lífeyrissjóða munu
láta sig varða mál VR og Lífeyris-
sjóðs verslunarmanna að sögn Þór-
eyjar S. Þórðardóttur, fram-
kvæmdastjóra samtakanna, en hún
segir málið fordæmalaust. Fjár-
málaeftirlitið hefur nú lýst þeirri af-
stöðu sinni að fjórir stjórnarmenn,
hverra umboð VR kallaði aftur í júní,
sitji enn í stjórninni og mælst til þess
við stjórnir lífeyrissjóða að sam-
þykktir verði skoðaðar með hliðsjón
af sjálfstæði stjórnarmanna.
„Landssamtökin hafa ekki tekið
þetta sérstaklega fyrir, en það eru
allir sammála um að sjálfstæði
stjórnar skipti gríðarlega miklu
máli,“ segir hún. „Nú verður yfirfar-
ið hvernig staðan er hjá öðrum sjóð-
um, hvernig sé rétt að fara með mál
þannig að það sé alveg tryggt að
stjórnir sjóða séu alveg sjálfstæðar í
sínum störfum og séu ekki beittar
þrýstingi í ákveðnum málum, hvorki
af tilnefningaraðila né einhverjum
öðrum öflum í þjóðfélaginu,“ segir
hún. „Þetta mál verður alveg tví-
mælalaust rætt,“ segir hún og
kveðst hafa stungið upp á því að
komið verði á fót fræðslu í framhaldi
þess og jafnvel haldið málþing.
„Þetta er fordæmalaust mál.
FME tekur það fyrir og það er alveg
ljóst að FME lítur þetta þeim augum
að það þurfi almennt að rýna í sam-
þykktirnar og fara yfir það hvernig
best sé að sjálfstæði stjórnarmanna
sé tryggt,“ segir Þórey. „Hagsmunir
tilnefningaraðila og hagsmunir sjóð-
félaga fara oft saman, en þurfa ekki
að gera það í öllum tilvikum. Þá þarf
að vera alveg tryggt að stjórnir sjóð-
anna fái frið til að standa undir þeirri
ábyrgð sem þær bera, sem er að
gæta að og ávaxta fjármuni sjóð-
félaganna,“ segir hún.
Segir FME tala skýrt
Deildar meiningar eru um niður-
stöðu FME, en Ragnar Þór Ingólfs-
son, formaður VR, lýsti yfir fulln-
aðarsigri og að FME hefði lýst því
yfir að VR gæti afturkallað umboð
stjórnarmannanna. Ólafur Reimar
Gunnarsson, stjórnarformaður
sjóðsins, sagði í samtali við mbl.is í
gær að Ragnar Þór gæti ekki haldið
til streitu þeirri ákvörðun að aftur-
kalla umboðið. „Mín afstaða er sú að
ég held að hann geti ekki haldið
þessu áfram á þeim forsendum sem
hann gerði í afturkölluninni eins og
hún er í gangi núna. FME segir að
þetta sé einfaldlega íhlutun í störf
stjórnarinnar,“ sagði hann.
Í bréfi FME er ákvörðun VR um
afturköllun sett í samhengi við yfir-
lýsingar félagsins í tengslum við
ákvörðun stjórnar LV um vaxta-
hækkun og tekið fram að nái ákvörð-
un VR fram að ganga megi líta svo á
að um tilraun til beinnar íhlutunar í
stjórn lífeyrissjóðsins sé að ræða.
Það vegi að sjálfstæði stjórnarinnar
og góðum stjórnarháttum.
Spurður hvort sama ástæða verði
að baki afturköllun umboðsins og í
upphafi sagði Ragnar Þór að ekki
þyrfti að gefa neina skýringu á því.
„Ég get ekki ímyndað mér annað en
að þótt hann gefi enga ástæðu fyrir
þessu sé það samt íhlutun því upp-
haflega var þetta gert út af þessari
hækkun á vöxtunum,“ segir Ólafur
Reimar. „Ég hugsa að menn myndu
líta á þetta sem undirliggjandi
ástæðu,“ segir hann.
Stjórnirnar virki sjálfstætt
Í samtali við mbl.is í gær sagði Jón
Þór Sturluson, aðstoðarforstjóri
FME, að litið yrði á málið heildstætt
og ný ákvörðun um afturköllun um-
boðs stjórnarmannanna túlkuð í
samhengi við aðra hluti. „Ég get
ekki úttalað mig um það hvort við
leggjum það að jöfnu, fyrri ástæður
eða hugsanlegar nýjar ástæður. Við
getum ekki haft skoðun á því fyrr en
að því kæmi,“ sagði hann. Verði nýir
stjórnarmenn valdir vegna ágrein-
ings um tiltekið málefni mun FME
fylgjast náið með málinu að hans
sögn.
Jón Þór segir að ef afturköllunin
byggist á öðrum forsendum en gert
var í upphafi sé ekki útilokað að
heimilt sé að afturkalla umboð
stjórnarmannanna. „Það liggur fyrir
okkar afstaða um að það gæti gengið
á svig við góða stjórnarhætti. Það
sem við teljum mikilvægast í þessu
er að stjórnin virki sjálfstætt. Ef það
koma inn nýir stjórnarmenn vegna
ágreinings um eitthvert tiltekið mál-
efni, þá þurfum við að fylgja því náið
eftir. Hvernig viðkomandi stjórnar-
menn ætla að taka ákvarðanir í þeim
málum og öðrum,“ sagði hann.
FME fer fram á það, sem fyrr
sagði, að lífeyrissjóðirnar líti yfir
samþykktir sínar. „Okkur sýnist að
þær séu óskýrar um þetta og hvetj-
um því lífeyrissjóði almennt til að
skoða sínar samþykktir svo hægt sé
að gæta að sjálfstæði stjórna lífeyr-
issjóða og góðum stjórnarháttum,“
segir Jón Þór.
Sjálfstæði stjórnanna lykilatriði
Fordæmalaust að sögn Landssamtaka lífeyrissjóða Tryggja þurfi sjálfstæði stjórna lífeyrissjóða
Ragnar Þór geti ekki staðið við ákvörðunina FME fylgist með verði nýir stjórnarmenn valdir
Morgunblaðið/Eggert
Lífeyrissjóður Í húsi verslunarinnar eru LV og VR til húsa. Stjórnarformaður sjóðsins segir formann VR ekki geta
afturkallað umboð stjórnarmanna sinna í sjóðnum, en FME segir stjórnarmennina munu sitja þrátt fyrir ákvörðun VR.
Fulltrúaráð VR samþykkti á fundi
sínum 20. júní sl. að afturkalla
umboð fjögurra stjórnarmanna
sem félagið skipar í stjórn Lífeyr-
issjóðs verslunarmanna og til-
nefndi nýja í þeirra stað. Í aðdrag-
andanum hafði Ragnar Þór
Ingólfsson, formaður VR, lýst því
yfir að ákvörðun stjórnar LV um
hækkun breytilegra vaxta verð-
tryggðra sjóðfélagalána, úr 2,06%
í 2,26%, væri stríðsyfirlýsing.
Tveimur dögum fyrr hafði Seðla-
bankinn lækkað stýrivexti um
hálft prósentustig. Ragnar Þór
sagði vaxtahækkunina vinna gegn
markmiðum lífskjarasamninganna
frá því í vor.
Ákvörðun VR vakti hneykslan
stjórnarmanna sem og þeirra sam-
taka atvinnurekenda sem skipa í
stjórn lífeyrissjóðsins, þ.á m. Sam-
taka atvinnulífsins og Samtaka at-
vinnurekenda. Ólafur Stephensen,
framkvæmdastjóri FA, sagði hæp-
ið að ákvörðunin stæðist lög.
Vegna vaxtahækkunar
UPPHAF MÁLSINS Í HNOTSKURN
Fjórir umsækjendur voru um emb-
ætti sóknarprests í Garða- og Hval-
fjarðarstrandarprestakalli. Þetta er
nýtt prestakall, en því tilheyra
Akranes og nágrannasóknir, Innra-
Hólms-, Leirár- og Saurbæjarsókn-
ir.
Sóknarpresturinn á Akranesi,
séra Eðvarð Ingólfsson, er að láta
af prestskap. Hann hefur gegnt
embættinu á Akranesi frá árinu
1997.
Umsækjendurnir eru Dagur
Fannar Magnússon guðfræðingur,
Jón Ásgeir Sigurvinsson guðfræð-
ingur, séra Úrsúla Árnadóttir og
séra Þráinn Haraldsson. Frestur til
að sækja um embættið rann út á
miðnætti miðvikudaginn 25. júní
síðastliðinn.
Biskup Íslands skipar í embættið
frá 1. september 2019 til fimm ára.
Umsóknir hljóta umfjöllun mats-
nefndar um hæfni til prestsembætt-
is og að fenginni niðurstöðu hennar
fjallar kjörnefnd prestakallsins um
umsóknirnar. Kjörnefnd kýs að því
búnu milli umsækjendanna og skip-
ar biskup Íslands þann umsækjanda
sem hlýtur löglega kosningu.
Breyting á starfsreglum um
skipulag kirkjunnar í héraði og nýtt
prestakall var tilkynnt með auglýs-
ingu í Stjórnartíðindum í mars sl.
Það var einnig tilkynnt að hið sögu-
fræga Saurbæjarprestakall á Hval-
fjarðarströnd yrði lagt niður.
Þá er á vef biskups tilkynnt að
ein umsókn hafi borist um að þjóna
sem sóknarprestur Húsavíkur-
prestakalls, Eyjafjarðar- og Þing-
eyjarprófastsdæmi, frá 1. septem-
ber 2019 til 31. maí 2020.
Umsóknarfrestur rann út á mið-
nætti mánudaginn 1. júlí sl.
Umsækjandinn er sr. Sólveig
Halla Kristjánsdóttir, sem þjónar
sem settur sóknarprestur Laufás-
prestakalls, sem er innan sama pró-
fastsdæmis. sisi@mbl.is
Fjórir sóttu um
Garðaprestakall
Morgunblaðið/Ómar
Saurbær Hallgrímskirkja á Hval-
fjarðarströnd. Sóknin er niðurlögð.