Morgunblaðið - 05.07.2019, Page 19

Morgunblaðið - 05.07.2019, Page 19
í ljós að nákvæmlega eins lán og þeirra, var leiðrétt. Það virðist vera að fólki hafi verið mismunað í boði Dróma. Lýðræðið fótum troðið af RÚV Hver er raunveruleg ástæða fyrir því að ekki hefur tekist að endurnýja traust Alþingis? Getur það verið að óánægjan hjá þessum 15 þúsund fjölskyldum sem voru bornar út af heimilum sínum hafi eitthvað með það að gera? Þetta voru um 40-50 þúsund manns! Og allt í boði von- lausra stjórnvalda eftir hrun, sem ekkert kunnu til verka. Það þarf að rannsaka öll þessi voðaverk sem unnin voru eftir hrun frá A til Ö. Hver var ástæðan? Var það hefnigirni, vanhæfi, óþverra- háttur eða heimska? Eða hafði þetta með ESB að gera? Hvað veit ég? Svar óskast. Þá held ég að RÚV skuldi þegnum sínum rannsóknar- vinnu í þessum Drómamálum. Lýð- ræðið var nefnilega fótum troðið á fréttastofu RÚV á árunum eftir hrun. Þegar hamfarir verða á ríkis- miðillinn að standa með fólkinu í landinu en ekki hrægammasjóðum sem höfðu fengið kröfurnar á nokk- ur prósent. Ég mæli eindregið með tillögu Hagsmunasamtaka heim- ilanna um rannsóknarskýrslu heim- ilanna strax! tur » Það þarf að rannsaka öll þessi voðaverk sem unnin voru eftir hrun. Höfundur býr í Mosfellsbæ. doriulfars@gmail.com UMRÆÐAN 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2019 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is SAMEINUÐ GÆÐI BJB-Mótorstilling ar Kvartmílan laugardaginn 6. jú lí Kvartmílubrautin ni við álfhellu Dagskrá 11:15 Tímatökur hefjast 14:00 Keppni hefst 17:00 Verðlaunaafhending Á morgun fer fram 2. umferð Íslandsmótsins í kvartmílu 2019 Verð: 1.500 kr Frítt fyrir yngri en 12 ára í fylgd með fullorðnum • Buggy bíll frá BJB-Mótorstillingu verður til sýnis • Veitingasala á staðnum • Gestir velkomnir í pitt og sjá action • Stefnir í nýtt met í ofurflokki • Kvartmíluklúbburinn fagnar 44 ára afmæli Eitthvað um 3,4 milljónir deyja árlega sökum offitu. Reyk- ingar drepa örlitlu fleiri, eða um 5 milljónir árlega. Þetta eru op- inberar tölur frá Alþjóðaheilbrigðis- málastofnuninni. Svo við heimfærum þetta á einn dag þá deyja tæp- lega tíu þúsund manns í heiminum í dag sökum offitu eða u.þ.b. heill Mosfellsbær. Séu teknir inn aðrir kvillar sem fylgja óhollu mataræði og hreyfingarleysi má gróflega ætla að óhollt mataræði sé að drepa sambærilegan fjölda og síg- aretturnar. Andvaraleysi Íslensk börn eru næstfeitustu börn Evrópu. Þetta er dapurleg staðreynd sem byggð er á opinberum tölum frá Efnahags- og framfarastofnuninni. Fjallað var um þetta í íslenskum fjöl- miðlum fyrir um tveimur árum en ráðamenn létu þær fregnir sem vind um eyru þjóta og nauðsynleg um- ræða féll í gleymskunnar dá. Foreldrar bera höfuðábyrgð á ástandi barna sinna og þeir eru fyrir- myndirnar. Það virðist oft gleymast í umræðunni að foreldrarnir eiga ekki að vanrækja börnin sín og þeir geta ekki varpað foreldraábyrgðinni yfir á einhverja menntastofnun eða skatt- greiðendur. Þeir eiga heldur ekki að vanrækja sína eigin heilsu. Sennilega myndi ekkert foreldri bjóða barninu sínu sígarettu en töl- fræðin sem var nefnd hér að ofan bendir til þess að nammið sé engu skárra, jafnvel verra. Það er því ógnvænlegt að vita til þess að á hverjum laugardegi sé selt u.þ.b. eitt tonn af nammi í regnbogalituð- um nammibar Hag- kaups í Skeifunni. Það nammi er allt selt eftir vigt og því var einfalt að óska eftir þeim upp- lýsingum. Eitt símtal nægði. Tonn af nammi, á einum degi, í einni matvöruverslun. Nammiát og gosdrykkja hefur al- varlegar afleiðingar í för með sér og menn ættu að varast nammigjafir. Á hverjum degi eru framkvæmdar 23 aflimanir á Bretlandi vegna sykur- sýki. Erfitt er að nálgast tölur yfir ástandið á Íslandi en miðað við offitumet íslenskra barna verður ástandið varla betra í náinni framtíð. Efnafræðileg svör líkamans eftir nammiát og gosdrykkju mætti taka til sérstakrar skoðunar, þá með áherslu á fjölgun andlegra sjúkdóma en síendurteknar og miklar sveiflur í insúlíni, adrenalíni og fleiri boðefn- um gætu verið þáttur í kvíðaröskun. Þetta þarf einnig að setja í samhengi við fjölgun öryrkja á Íslandi en á árinu 2016 var nýgengi örorku í fyrsta sinn meira en náttúruleg fjölgun starfsfólks á vinnumarkaði. Ekkert samfélag er sjálfbært til lengri tíma með slíka þróun. Forvarnir virka Forvarnir í reykingamálum voru til fyrirmyndar á níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Öflug tóbaks- varnarlög hafa gert það að verkum að menn falla síður í freistni; nú mega sígaretturnar ekki vera sýni- legar, þær eru skattlagðar og neyslan mjög takmörkuð. Sem krakki á þeim tíma þurfti ég að horfa á hin og þessi áróðursmyndbönd í grunnskóla en í þeim myndskeiðum var reykingafólki stillt upp sem einhverslags sóðum sem væri ógeðslegt að kyssa. Ég held að allir muni eftir slagorðinu „að kyssa reykingamann er eins og að sleikja öskubakka“. Það slagorð bjargaði mörgum mannslífum. Átak- ið hefði sennilega vakið blendnar til- finningar nú til dags svo ekki sé meira sagt en það skilaði árangri og sá árgangur skal ekki vanmetinn. Fyrir utan mannslífin er kostnaður við lífsstílssjúkdóma einnig gríð- arlegur og eins og ég nefndi hér að ofan í raun ósjálfbær til lengri tíma litið. Það er því fyrir löngu kominn tími á að ráðamenn líti þróun lífsstílssjúk- dóma alvarlegum augum, hætti inni- haldslausum yfirlýsingum og fari að láta verkin tala. Tveir leikfimitímar á viku, síendurtekin stytting sumarfrís hjá krökkum, aukin innivera og aukin skólaseta virka augljóslega ekki fyrir börnin okkar. Hömluleysishvati með ríkisábyrgð Til umræðu hlýtur að koma ein- hverslags lagasetning í kringum of- fituvarnir og aðrar lífsstílssjúkdóma- varnir, rétt eins og með tóbaksvarnir. Í það minnsta mætti byrja á einhvers konar söluhömlum á gosið og namm- ið; að það liggi ekki úti um allt í versl- unum, að það sé ekki selt börnum og að eftirlit og forvarnir séu fjármagn- aðar með sölutengdum gjöldum. Jafnvel mætti setja einhverslags óheillamyndir á gosið eins og sígar- ettupakkana. Það má ekki gleymast að eins manns frelsi má ekki verða annars helsi. Þegar sífellt er verið að hækka skatta á meðaltekjufólk og fyrirtæki til þess að niðurgreiða ábyrgðarlaus- an lífsstíl manna er frelsi eins orðið að helsi annars. Hinn duglegi er hnepptur í fjötra því einhver annar er ábyrgðarlaus í sínu eigin lífi. Það er ekki sanngjarnt að hið op- inbera seilist dýpra og dýpra ofan í vasa þeirra sem borða hollt og hugsa um heilsuna til þess að borga fyrir sjúkdómsmeðferðir þeirra sem borða óhollan mat. Slík stefna er í raun svo óréttlát og ábyrgðarlaus að það mætti tala um hana sem einhvers konar hömluleysishvata með óbeinni ríkisábyrgð. Staðreyndin er í öllu falli nokkuð borðleggjandi. Ef samfélagið hefur ekki tíma fyrir heilsuna í dag, þá mun það ekki hafa heilsu fyrir tímann á morgun. Heilbrigður þegn er dýr- mætasta auðlind þjóðarinnar. Lífsstílssjúkdómar Eftir Viðar Guðjohnsen » Það er því fyrir löngu kominn tími á að ráðamenn líti þróun lífsstílssjúkdóma alvarlegum augum. Viðar H. Guðjohnsen Höfundur er lyfjafræðingur og sjálfstæðismaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.