Morgunblaðið - 05.07.2019, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 05.07.2019, Qupperneq 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2019 Í dag tökum við fjölskyldan þung spor þegar við fylgj- um ömmu Millu til grafar. Kletturinn okkar er farinn og skarðið sem því fylgir er mikið, við höfum hjól- að, keyrt og gengið fram hjá Bjarkó seinustu vikur með sorg í hjarta yfir að geta ekki farið inn í smá spjall og knús. Ég var lítil stelpa þegar ég kynntist ömmu Millu og heppninni að hafa fengið hana í líf mitt má líkja við lottó- vinning. Ég man núna í seinni tíð þegar við vorum spurðar hvernig við tengdumst þá svaraði amma Milla svo skemmtilega „dóttir mín var með pabba hennar Nínu svo skildu þau en ég skildi ekki við Nínu“. Ég man sem barn hversu notalegt mér fannst að koma á Bjarkó, þar var dekrað við mig eins og prinsessu. Ávallt var tekið á móti manni með knúsi og andinn sem fylgdi húsinu var yndislegur. Eftir að ég eignaðist stelpurnar mínar hafa þær sömu reynslu og ég af ömmu Millu. Amma Milla var einstök kona, sem dæmi þá gaf hún systrum mínum sammæðra alltaf jólagjaf- ir svo þær yrðu ekki útundan. Margar stundir átti ég með elsku ömmu Millu og að setjast við borðið í eldhúsinu og eiga góðar samræður er eitthvað sem maður tekur ekki sem sjálfgefnum hlut. Það eru forréttindi að eiga góða að og það er alls ekki sjálfgefið að eiga gott samband við fólkið sitt. Það voru forréttindi mín að geta komið við hjá ömmu eftir langan dag, sest niður með henni og átt góðar samræður um daginn og veginn. Það er skrýtið að geta ekki hringt og manni sé svarað „guð gefi þér góðan daginn ástin mín“ eða „hæ sweety“ lengur. Elsku amma Milla, við fjöl- skyldan viljum þakka þér fyrir allt það sem þú hefur gert fyrir okkur, það er ómetanlegt. Að hafa þig til að leiðbeina mér, Al- dísi, Karen og litla grjóninu þínu er svo dýrmætt fyrir okkur og við yljum okkur allar núna við minn- ingar. Allar höfum við grætt heil- an helling á því og fyrir þrjár litl- ar stelpur að fá alast upp með annan fótinn hjá þér er meira en nokkur maður getur beðið um. Þar til næst, kossar og knús. Nína Björk. Elsku besta amma Milla. Ég var svo heppin að fá þig inn í lífið mitt þegar ég og Axel byrjuðum saman. Við eyddum mest öllum tímanum okkar á Íslandi uppi á Skaga hjá þér og hundunum tveimur. Ég á eftir að sakna þess sárt að koma í kósý upp á Bjarkó þar sem allt mátti og hægt var að njóta þess að vera til. Við Axel heyrðum í þér daglega þegar við vorum úti í Danmörku og það er skrítið að hugsa til þess að við getum ekki hringt hvenær sem er í þig til þess að spjalla. Þú varst alltaf með veðurspána í Dan- mörku á hreinu og fylgdist meira með dönsku samfélagi en við ger- um (og við búum hérna úti), enda alltaf með kveikt á dönsku rásinni í sjónvarpinu. Það var hægt að leita til þín með hvað sem er og þú hafðir svar við öllum spurningum. Þú varst stoð og stytta fjölskyld- unnar og margra annarra líka. Í hvert einasta skipti sem við vor- um upp á Bjarkó komu gestir í heimsókn. Það er eiginlega ótrú- legt hversu mörg líf þú snertir á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Emilía Petrea Árnadóttir ✝ Emilía PetreaÁrnadóttir fæddist 6. október 1943. Hún lést 7. júní 2019. Útförin fór fram 3. júlí 2019. Þú munt lifa áfram í hjörtum þeirra sem elska þig og líta upp til þín, og þín verður minnst með gleði og væntumþykju. Þú kenndir mér æðru- leysi, þolinmæði og hvernig á að slaka á. Ég dáist að styrk þínum og ást þinni á fjölskyldunni þinni. Frá því ég kynntist þér hef ég litið upp til þín og vona að ég verði jafn góður einstak- lingur og þú varst, einn daginn. Þrátt fyrir að þú sért ekki hjá okkur ennþá í jarðlegri mynd þá veit ég að þú ert ekki langt undan í öllum þeim gildum og lífsreglum sem við lærðum í gegnum þig. Mér finnst sárt að kveðja þig, elsku amma Milla. Þrátt fyrir þú sért ekki blóðamma mín þá finnst mér ég eiga þig líka sem ömmu. Ég lofa að fara varlega og passa sérstaklega vel upp á Axel. Elsku amma Milla, njóttu hvíldarinnar með Gutta og Kófí. Það er og verður enginn eins einstök/ein- stakur og þú. Knús, þín Guðlaug. Nú hefur okkar kæra vinkona, Milla Peta, kvatt okkur á sinn snaggaralega hátt, hratt og óvænt. Hennar háttur var ekki að drolla eða tvínóna við hlutina. Með reisn stóð hún af sér storm- inn til síðasta dags. Milla var svo stór manneskja, með stórt hjarta sem lét sig aðra varða og stóran faðm sem veitti mörgum skjól. Vinátta var alvara í huga Millu og hún ræktaði hana á sinn einstaka hátt sem ætti að vera okkur hinum til eftirbreytni. Í gegnum árin hafði Milla mynd- að víðfeðmt tengslanet og þeir sem höfðu komist undir radarinn gátu treyst á vináttu hennar. Milla Peta setti sterkan svip á vinahópinn, sem við innbyrðis kölluðum Lampavinafélagið og varð til í Skagaleikflokknum fyrir mörgum áratugum. Þar var Milla alltumlykjandi og hélt í alla þræði og fylgdist vel með velferð allra í vinahópnum, huggaði, gladdist og hvatti til dáða. Húm- orinn hennar Millu var eitt af hennar höfuðeinkennum, á hon- um komst hún langt og kald- hæðninni kunni hún að beita af snilld. Mikið hefur vinahópurinn hlegið saman og þá var hlegið með fólki, ekki að fólki. Milla elti ekki tískustrauma eða veraldlega hluti, krafta sína lagði hún í að hlúa að fjölskyldu og vinum með honum Gutta sín- um sem kvaddi svo skyndilega fyrir ekki svo löngu. Umgjörð heimilis þeirra var svo mögnuð, alsett menningarverðmætum frá foreldrum Gutta og honum sjálf- um og mikil virðing borin fyrir menningararfinum. Ræktarsemi hennar við ættingja og vini sem glímdu við veikindi eða áföll var mikil, alltaf var Milla nærri með sína umhyggju og kærleika og mikið af húmor. Nú þegar enn er rofið skarð í okkar góða vinahóp með fráfalli elsku Millu minnumst við hennar með sorg í hjarta og miklu þakk- læti en gleðjum huga okkar með öllum minningunum sem við eig- um frá samfylgdinni. Vinahópurinn vottar Hellu og Lalla og þeirra góðu fjölskyldum innilega samúð. Fyrir hönd vinahópsins þökk- um við samfylgdina nú að leið- arlokum. Valgerður Janusdóttir, Jakob Þór Einarsson. Elsku Mílla! Mikið er erfitt að labba fram hjá Bjarkó núna. Það gerði mað- ur, droppaði inn, sagði hæ hæ, er ekki allt í góðu? Jú jú, allt í þessu fína hjá mér, var alltaf svarið. En endalokin komu svo sannarlega á óvart. Við viljum þakka þér fyrir barnabörnin okkar, þú varst þeim sem besta amma. Þú gafst þeim tíma og lærðu þær mikið hjá þér. Eitt sinn kom ég við þá var Helga Lind 6 ára að sauma á saumavélina, þú sagðir bara: „þetta verður hún að læra!“ Eins þegar ég gat ekki haft Sí- rus minn þá fannst þér ekki mik- ið mál að bæta honum við í hundahópinn. Já, það var alltaf pláss hjá þér, hvort heldur sem það var fyrir börn eða hunda. Takk fyrir vináttu og tryggð. Gulli og perlum að safna sér sumir endalaust reyna. Vita ekki að vináttan er verðmætust eðalsteina. (Hjálmar Freysteinsson.) Nína Áslaug, Daníel og Sírus. Emilíu Petru Árnadóttur, eða Millu, kynntist ég fyrir allmörg- um árum, eða um 1970 í Kerling- arfjöllum. Þar áttum við eftir að vinna saman nokkur sumur. Milla var skemmtileg og hafði ákveðnar skoðanir bæði í pólitík og á öðrum sviðum. Það góður vinskapur þróaðist með okkur Millu að hann hélt áfram löngu eftir að þau hjón Milla og Gutti hættu að vinna í fjöllunum. Á ár- unum 1970-1976 má segja að ég hafi verið með annan fótinn í Bjarkargrund 20, á knattspyrnu- leikjum Skagamanna og í gamla „Telinu“ eins og það kallaðist. Margar gleðistundir voru í Bjarkargrundinni á þessum tíma og tók Milla ávallt vel á móti gestum og gangandi. Eftir þenn- an tíma hélt vinskapur okkar áfram og við hittumst af og til. Það var einhvern veginn þannig að ég fór frá þeim heiðurshjónum betri maður eftir hverja heim- sókn. Lífssýn Millu var sterk og það sýndi hún á ýmsum sviðum. Hún tók þessum veikindum sínum af æðruleysi, tjáði mér þegar ég heimsótti hana í apríl síðastliðn- um, að þetta væri bara verkefni sem þyrfti að takast á við. Hellti upp á kaffi og spurði mig spjör- unum úr um börnin mín og mína tilveru, eins og hún væri nokkuð merkileg á þessari stundu. Það var gott að heimsækja Millu og hennar viðmóti og sýn á lífið er kanski best lýst með ljóði Árna Grétars Finnssonar, Mannlegt viðmót. Þú ert það, sem þú öðrum miðlað get- ur, og allar þínar gjafir lýsa þér og ekkert sýnir innri mann þinn betur en andblær hugans, sem þitt viðmót ber. Því líkt og sólin ljós og yl þér gefur og lífið daprast, ef hún ekki skín, svo viðmót þitt á aðra áhrif hefur og undir því er komin gæfa þín. Kæru Hella og Lalli og aðrir aðstandendur, innilegar samúð- arkveðjur frá okkur öllum í Björkinni. Hans Kristjánsson. Hvernig er hægt að súmmera upp ævi Millu okkar í fáum minn- ingarorðum eða skrifa um hana í þátíð? Hún var alltaf í nútíð, með opinn faðminn, sposk á svip og með glettni í augum. Hún var skemmtileg, kærleiksrík og áhugasöm um allt og alla. Að skoða ævi Millu er eins og meist- aranám í lífsleikni, þar var hún flinkust. Lífsviðhorfin voru ein- föld: „Lífinu skyldi fagnað með manngæsku, húmor og æðru- leysi.“ „Hver hefur sitt göngu- lag“ var Millu mottó og hennar göngulag var svo sannarlega til eftirbreytni. Hún var ósínk á tíma og umhyggju og uppskar ríkulega elsku og vináttu svo margra. Við vinkonurnar vorum svo stálheppnar að kynnast Gutta og Millu í Kerlingarfjöllum þegar listasmiðurinn Gutti var þar við störf og Milla dreif sig í eldhúsið til okkar, sprúðlandi skemmtileg. Þar spannst fallegur vináttuþráð- ur sem styrktist og þykknaði með árunum. Skagaheimsóknir voru alltaf tilhlökkunarefni. Gutti og Milla voru samhent í gleði, vin- arþeli og höfðingsskap. Við söknum góðrar vinkonu og syrgjum mörg þennan ofurklett Skagamanna. En eitt er víst, nú er kátt í efra, sérstaklega hjá Gutta! Elsku Hella og Lalli, missirinn er sár en arfleifðin er einstök. Það er góð tilfinning að vita að þið og ykkar fólk takið við kyndl- inum. Fjallastelpurnar Nína, Sigríður (Sirrí) og Ragnhildur (Raggý). Þegar tengdamóðir mín, Arin- björg Clausen sem var vinkona Millu, dó fyrir nokkrum árum, sagði hún við Sturra son minn sem þá var 5 ára; Nú er amma þín dáin og ég skal vera amma þín í staðinn. Við það stóð hún svo sannarlega. Sturri sótti mikið í ömmu Millu og var mikið hjá henni eins og svo margir aðrir sem voru svo heppnir að þekkja hana. Fólk sótti endalaust í fé- lagsskap hennar, góða nærveru, hennar góðu hlustun og góðu ráð. Það var alltaf til kaffi á Bjark- argrundinni hjá Millu og tími til að spjalla í litla vinalega eldhús- inu, en það var ekki oft sem mað- ur sat einn að Millu – það var allt- af einhver í heimsókn enda dyrnar alltaf galopnar. Þær voru meira að segja alltaf ólæstar hjá henni útidyrnar þó að hún væri ekki heima – svona ef einhver kæmi við sem þyrfti að nota kló- settið í forstofunni. Hún kvartaði aldrei yfir neinu, ekki heldur þegar leið að lokum hjá henni og hún trompaði mann yfirleitt með jákvæðri og yfirleitt hárbeittri athugasemd ef maður var eitthvað að kvarta sjálfur. Lífið var verkefni og leikur. Milla var eins og orkuver og félagsheimili – átti endalaust af vinum og kunningjum, trygg og trú alla tíð, skemmtileg, jákvæð, hjálpsöm og gefandi. Ég verð ævinlega þakklátur Millu fyrir allt það sem hún hefur gert fyrir mig og mína fjölskyldu og sérstaklega hvað hún var góð honum Sturra okkar. Þeir eru ekki margir sem hafa náð eins vel til hans og amma Milla. Það er stundum sagt að enginn sé ómissandi, en það er bara ekki rétt. Það er hoggið skarð í líf ótal margra núna þegar Milla okkar er farin. Milla þú varst einstök – við söknum þín – takk fyrir sam- veruna Ólafur Páll Gunnarsson. Milla var vinkona mömmu og síðar amma hans Sturra míns. Milla var yndisleg kona og engri lík. Ég kynntist Millu vel því hún og mamma voru góðar vinkonur og vinnufélagar á Höfða. Miklar og hæfileikaríkar handverkskonur sem brölluðu ýmislegt saman. Þær höfðu sama húmorinn og hlógu mikið saman, mest að sjálfum sér og aðeins að öðrum líka. Skemmtilegar og glaðar vinkonur sem brunuðu saman á handverkssýningar hingað og þangað. Góðir tímar, bjart yfir og góðar minningar. Þær áttu djúpa og fallega vináttu og ég man að þær gáfu hvor ann- arri alltaf gjöf á aðfangafags- morgun, alltaf sömu gjöfina. Mamma fór með jóla-túlipana- vönd til Millu sem hún hafði sett fallega saman með greni og bundið fallega saman. Hún fékk alltaf til baka jólasíld í krukku sem Milla hafði gert sjálf og skreytt fallega. Dýrmæt og eft- irminnileg vinátta rétt eins og þær báðar, dýrmætar, afar kær- ar og eftirminnilegar konur. Eft- ir að mamma dó 2015 tók Milla að sér að vera amma hans Sturra míns. Hugsið ykkur hversu ein- stök Milla var. Þau brölluðum ýmislegt sam- an og Sturri var alltaf velkominn, ég man að hún sagði eitt sinn „hvað heldurðu að mig muni um einn keppinn enn“. Hún hringdi gjarnan og bauð honum heim ef langt var liðið síð- an síðast. Hún lét hann sinna hin- um ýmsu verkefnum á Bjarkar- grundinni og leyfði honum að spreyta sig. Eða þau bara lágu í sófanum og horfðu saman á mynd. Sturri er einstaklega heppinn að hafa kynnst henni og nú á hann það í hjarta sínu alla tíð. Við Sturri fórum með ís til Millu tveimur dögum áður en hún dó. Hún réði hann þá í garðvinnu á launum á Bjarkó með því skil- yrði að ég myndi keyra hann og sækja hann til vinnu. Bauð hon- um með í athöfn á Elínarhöfða þegar hún kæmi heim, sagði mörg falleg orð um hann við hann eins og hún gerði alltaf, sem er svo ótrúleg dýrmætt og svo knús- aði Sturri hana bless og kyssti í síðasta sinn. Falleg síðasta minn- ing fyrir lítinn dreng að eiga í hjarta sínu. Ég sagði Millu oft hversu heppin við værum og hversu ein- stök og dýrmæt hún væri okkur. Það var mannbætandi að þekkja hana. Nú hittir hún manninn sinn, vinkonu og fleiri. Elsku Hella, Lalli og fjölskyld- ur, ykkur vil ég senda þakklæti, ást og umhyggju, knús og kossa. Minning um frábæra konu lif- ir! Stella María Arinbjargardóttir. Eva Ragnars- dóttir er látin eftir langa og viðburða- ríka ævi. Það er ekki nema rúmlega ár síðan faðir minn, Ásmundur Brekkan, rifjaði upp í ræðu á níræðisafmæli sínu hvernig vinirnir Ragnar Ásgeirsson og Friðrik Ásmundsson unnu sér kornungir fyrir farinu til Dan- merkur þar sem báðir síðan fóru í nám og störfuðu. Báðir urðu þeir fyrir Amorspílum heldur betur á danskri grundu, Friðrik hitti Estrid sem að vísu var sænsk og Ragnar heillaðist af hinni undurfögru Grethe sem var svo fín með perlufesti alla ævi. Svo náin voru fjölskylduböndin að þegar Grethe kom að heimsækja okkur í Gautaborg þegar ég var barn hélt ég að hún væri ömmusystir mín og var það ekki leiðrétt fyrr en mörgum árum síðar þegar við Úlla, systurdóttir Evu, vorum að leik í fallegum garði Grethe og Ragnars í Hveragerði. Eva var Eva Ragnarsdóttir ✝ Eva HarneRagnarsdóttir fæddist 14. júlí 1922. Hún lést 12. júní 2019. Útför hennar fór fram 2. júlí 2019. elst fjögurra systkina og ætt- boginn var stór, engu að síður var alltaf eins og hún væri líka frænka okkar því vináttu- böndin voru svo sterk kynslóð fram af kynslóð. Eitt af því sem Eva ræddi við mig fyrir stuttu er ég heim- sótti hana, var að hún óttaðist að nú myndi keðjan rofna. Þegar Ásmundur og Eva voru varla nema unglingar var þeim treyst fyrir Vikunni eitt sumar á alþingishátíðinni 1944. Þau ritstýrðu blaðinu af mynd- arbrag. Það er nú bara nýlega sem ég fékk að vita að Kæri Póstur var algerlega saminn við eldhúsborðið hjá Grethe. Eva var glimrandi penni en það var þó ekki penninn sem varð hennar aðalstílvopn, held- ur nálin. Hún var snillingur í útsaumslistinni og Reykjavík- urmynd hennar rómuð, þar sem helstu kennileiti borgar- innar raðast upp í föngulegu myndverki málað með kross- saumi af kunnáttu á blæbrigði litanna. Þau Eva og Önundur voru virðuleg hjón og eignuðust fjögur fjallmyndarleg börn. Á kveðjustund er margs að minn- ast og vil ég taka undir orð ömmu minnar sem sagði svo oft „hún Eva er lady“. Með þessum fátæklegu orð- um vil ég þakka fyrir öll minn- ingabrotin, myndirnar og góðu samverustundirnar. Samúðar- kveðjur, Elísabet Brekkan. Eva var mikil vinkona föð- ursystur minnar, hennar Ragn- heiðar O. Björnsson. Eva bauð mér að búa á heimili þeirra Ön- undar á meðan ég var í tveggja ára námi í kennaradeild Mynd- listar- og handíðaskólans sem þá var undir stjórn Lúðvíks heitins Guðmundssonar. Heim- ili Evu og Önundar var hlýlegt og smekklegt, þar héngu á veggjum falleg listaverk, meðal annars eftir Kjarval. Stundum passaði ég litlu börnin þeirra og oft var þá glatt á hjalla. Af og til settumst við Eva yfir laugardagskaffibolla og spjöll- uðum þá um alla heima og geima. Stundum hlógum við hjartanlega og stundum réði alvaran ferð. Eftir að ég lauk myndlistarkennaranáminu þá tók við nýr heimur hjá mér, nýjar áskoranir og nýjar kröf- ur og leiðir okkar lágu ekki lengur saman. Hugur minn leitaði þó oft til þessa tíma með þakklæti og innilegri væntum- þykju. Sigríður Björnsdóttir. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. . Minningargreinar Sálm. 16.1-2 biblian.is Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.”

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.