Morgunblaðið - 05.07.2019, Page 28

Morgunblaðið - 05.07.2019, Page 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2019 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Raðauglýsingar Húsnæði íboði Til leigu Til leigu nýleg 2ja herb. 80m² íbúð á Mýrargötu 26. Geymsla og sérstæði í bílakjallara. Verð 280.000, hússjóður og hiti innifalinn. Laus strax. Upplýsingar: straxehf@simnet.is Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Stekkjarbyggð 20, Þingeyjarsveit, fnr. 233-9125, þingl. eig. Timbra ehf, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi eys, fimmtudaginn 11. júlí nk. kl. 14:00. Klapparstígur 15, Dalvíkurbyggð, fnr. 215-6628, þingl. eig. Sigurþór Brynjar Sveinsson og Hólmfríður Helga Björnsdóttir, gerðarbeið- endur Automatic ehf. og Íbúðalánasjóður og Dalvíkurbyggð, þriðju- daginn 9. júlí nk. kl. 14:10. Skessugil 21, Akureyri, eignarhluti gerðarþola, fnr. 227-3321, þingl. eig. Stanislaw Staniszewski, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves, þriðjudaginn 9. júlí nk. kl. 10:00. Uppsalir, Eyjafjarðarsveit, fnr. 152817 , þingl. eig. Ingólfur Jóhanns- son, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjud. 9. júlí nk. kl. 13:15. Fannagil 6, Akureyri, fnr. 227-8530, þingl. eig. Björn Berg Gunnars- son, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 9. júlí nk. kl. 10:15. Sandvík, Norðurþing, 10% eignarhluti gerðarþola, fnr. 216-6530 , þingl. eig. Hans Alfreð Kristjánsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves, miðvikudaginn 10. júlí nk. kl. 13:00. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra 4. júlí 2019 Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 9-15. Opið hús kl. 13-15. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt og 18 holu úti- púttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700. Boðinn Hugvekja kl. 13.30. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi og blöðin við hringborðið kl. 8.50. Frjálst í listasmiðju kl. 9-16. Hugmyndabankinn opinn kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11.30. Bíó kl. 13. Gáfumannakaffi kl. 14.30. Allir vel- komnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Föstudagshópurinn hittist, botsía kl. 10 í dag. Ferð í Grasagarðinn og Café Flóru kl. 11,30. Vöfflukaffi kl. 14,30. Opið hjá okkur alla virka daga. Hádegismatur frá kl. 11.30 til 12.30 og kaffi frá kl. 14.30 til 15.30 alla daga vikunnar. Verið hjartanlega vel- komin. Nánari upplýsingar í síma 411-9450. Garðabær Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 20 félagsvist. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upplest- ur kl. 11, hádegisverður kl. 11.30, föstudagsskemmtun kl. 14, síðegis- kaffi kl. 14.30. Uppl. í s. 4112760. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30, spilað í króknum kl. 13.30 Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4, Dansleikur í Stangarhyl 4 sunnudagskvöld 7. júlí kl. 20. Hljómsveit hússins. Mætum öll og njótum. 200 mílur ✝ Gísli Jónssonfæddist í Reykjavík 9. ágúst 1949. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 22. júní 2019 eftir baráttu við bráðahvítblæði í á þriðja ár. Foreldrar hans voru Lea Eggerts- dóttir, f. 10.5. 1910 að Kleifum í Seyðisfirði við Ísafjarðardjúp, stúdent frá MA, cand. phil., kennari og hús- freyja, d. 26.11. 1994, og Jón Gíslason dr. phil, skólastjóri Verzlunarskólans, f. 23.2. 1909 í Dalbæ í Gaulverjahreppi, d. 16.1. 1980. Bróðir Gísla var Eggert Jónsson, f. 25.8. 1941, fyrrverandi borgarhagfræð- ingur, d. 11.10. 2016. Gísli kynntist Höllu Árna- dóttur, f. 28.10. 1948, fyrrver- andi starfsmanni Landsbanka Íslands, 1973 og kvæntist henni 22.12. 1978. Foreldrar Höllu: Árni Ingvar Vigfússon, f. 10.7. 1914, leigubifreiðastjóri hjá 1997, Viktor Andri Her- mannsson, f. 17.8. 2001, og Sæ- rún Sigurjónsdóttir, f. 12.8. 2005. Gísli lauk stúdentsprófi frá MR 1969 og viðskiptafræði, cand. oecon, frá Háskóla Ís- lands 1977, Þjóðhagskjarna, hagrannsóknasviði. Gísli var háseti á Kofra sem stundaði línuveiðar frá Súðavík á ár- unum á milli menntaskóla og háskóla. Hann hóf störf sem viðskiptafræðingur á skattstofu Reykjanesumdæmis 26.1. 1977 og varð deildarstjóri atvinnu- rekstrardeildar og yfirvið- skiptafræðingur frá 1. júlí 1977 til ágúst 1990. Hann var stundakennari í bókfærslu við MH tvær haustannir árin 1976 og 1977 og í skattskilum við Tækniskóla Íslands 1987 til 1990. Hann var í stjórn kjara- deildar ríkisstarfsmanna innan Félags viðskipta- og hagfræð- inga (FVH) frá 13. maí 1982 til 1984. Hann starfaði hjá ríkis- skattanefnd frá september 1990 til júní 1992 og hjá yfirskatta- nefnd frá júlí 1992 sem yfirvið- skiptafræðingur til ársloka 2016, í hálfu starfi frá 2015. Útför Gísla fór fram í kyrr- þey að hans ósk. BSR í Reykjavík, d. 16.4. 1982, og Hulda Halldórs- dóttir, f. 10.5. 1920, húsfreyja, d. 12.2. 2000. Gísli og Halla skildu 1985. Þeirra börn eru: 1) Jón Gíslason, f. 1.3. 1977, tamningar- maður. Hans börn eru Danival Orri Jónsson, f. 25.2. 2004, og Kristján Gísli Jónsson, f. 8.4. 2005. 2) Hulda Gísladótt- ir, f. 22.4. 1979, MBA og master í Evrópufræði, sérfræðingur á sviði mannauðs og starfsum- hverfis hjá Reykjavíkurborg. Hennar barn er Seifur Salvars- son, f. 14.10. 2016. Fyrir átti Halla Önnu Guð- rúnu Guðnadóttur, f. 18.12. 1969, sölustjóra Forlagsins, hún er í sambúð með Sigurjóni Ólafssyni, verslunarstjóra hjá Hagkaup, þeirra börn eru Aníta Sigurjónsdóttir, f. 27.10. 1991, Guðmundur Óli Sig- urjónsson, f. 22.4. 1994, Selma Björk Hermannsdóttir, f. 23.7. Gísli frændi föðurbróðir var fastur punktur í tilverunni frá því við bræður munum eftir okkur. Einna eftirminnilegast er þegar mamma og pabbi fóru í þriggja vikna ferðalag til Egyptalands og Gísli fékkst til að passa okkur á meðan í Sól- heimunum þar sem við áttum heima. Þetta var í febrúar fyrir rúm- lega þrjátíu árum og á þeim tíma þegar grunnskólahald okk- ar bræðra var í föstum skorð- um. Gísli hugsaði vel um okkur á meðan vistaskiptunum stóð og með honum blésu ferskir vindar þar sem hann gaf okkur taum- inn lausari en við höfðum vanist hjá foreldrum okkar, ekki síst hvað snerti háttatíma. Um kvöldmatarleyti beið okkar all- oft kjötsúpa, sem á einhvern undraverðan hátt bragðaðist betur og betur eftir því sem á dagana leið. Eftir mat fengum við að fara út að hitta félaga okkar og þeg- ar við skiluðum okkur heim gaf Gísli sér alltaf tíma til að ræða við okkur og taka í spil, stund- um langt fram eftir kvöldi. Eins var það þegar Gísli kom í heimsókn til foreldra okkar, oft á sunnudögum og um hátíð- ir, ávallt urðu til góðar samræð- ur þar sem Gísli gat fyrirvara- laust skellt upp úr og fengið aðra til að engjast um af kæti enda maðurinn með góðan húm- or og með afbrigðum smitandi hlátur. Gísli gat verið dálítið alvar- legur í fasi, eins og hann átti kyn til, en var bæði skemmti- legur og sumpart framúrstefnu- legur. Hann mætti í allar veisl- ur, tók mann með í bíó, spilaði við mann og tefldi, hlustaði með okkur á músík, stytti sér stund- ir í snooker og gaf frumlegar jóla- og afmælisgjafir. Hann var náttúruunnandi og hafði gaman af útivist, lagði stund á golf og naut þess að vera við Hafravatn að rækta garðinn sinn. Eitt sinn þegar við vorum litlir tók hann okkur í göngu- ferð í kringum Hestinn í Ísa- fjarðardjúpi, ferðin reyndi á óþroskaða fætur og við vorum uppgefnir þegar við komum í hlað í Fjarðarhorn, bústað fjöl- skyldunnar fyrir botni Seyðis- fjarðar. Leiðin heim til Reykja- víkur reyndist þó ekki síður erfið fyrir annan okkar sem þá var kominn með mikinn maga- verk sem hann tengdi við of- þreytu en síðar kom í ljós að var botnlangabólga. Í gegnum Gísla fengum við að kynnast alls kyns litbrigðum lífsins, sem á það til að vera hverfult. Aðeins nokkrar vikur liðu frá því við jarðsettum pabba haustið 2016 og þar til Gísli var kominn á spítala með ólæknandi sjúkdóm. Sú barátta var erfið en allt fram í andlátið var hann í góðri umsjá barnanna sinna og vina sem og heilbrigðisstarfsfólks. Við vott- um aðstandendum innilega samúð. Tómas Guðni Eggertsson, Eiríkur Áki Eggertsson. Fallinn er frá Gísli Jónsson æskuvinur okkar eftir erfið veikindi. Margs er minnst frá æskuárunum í Úthlíðinni. Við undirritaðir vorum aðeins eldri í árinu og kynni okkar hófust þegar við vorum á fjórða ári. Gísli var þá tjóðraður í beisli fyrir framan heimili sitt og undi hag sínum illa. Við leystum hann og lögðum af stað út í heiminn og þar með hófst löng og traust vinátta. Margt var brallað: ótal ferðir í Sundhöllina og hjólatúrar, hark og púkk, landaparís, stillansaklifur í Há- teigskirkju sem var þá í bygg- ingu o.s.frv. Gísli var kappsamur hvort sem var í leikjum, spilum eða tafli og gaf sig hvergi. Oft þurfti hann að skila séráliti í kappræðum og ekki vorum við alltaf sammála en deilur okkar skerptu aðeins vináttuna. Stundum tókst okkur að sann- færa hann um að hann hefði haft rangt fyrir sér en þá hló hann góðlátlega að sjálfum sér því að hann hafði ágæta kímni- gáfu þótt hann væri í grunninn alvörugefinn. Til dæmis játaði hann sig sigraðan í deilunni um Háskólabíó sem hann hafði staðhæft að unnt væri að draga sundur og saman eins og harm- onikku. Föður hans, doktor Jóni, var falið dómsvald í deil- unni. Þegar hún var borin undir hann hló hann svo mikið að hann datt af stólnum. En oft hafði Gísli betur í deilum okkar og brá þá gjarnan fyrir sig málshætti eins og þegar hann og Benni fóru undirgöngin við Miklubrautina en Bragi nennti því ekki og datt í drullupoll. Þá varð honum að orði: „Betri er krókur en kelda,“ og hló dátt. Að loknu háskólanámi í við- skiptafræði gerðist Gísli skatt- heimtumaður, fyrst hjá skatt- inum í Hafnarfirði en lengstum hjá yfirskattanefnd. Eins og við þekktum hann erum við þess fullvissir að hann rækti störf sín af nákvæmni og samviskusemi. Þannig þekktum við hann. Stundum var vík milli vina á fullorðinsárum en alltaf héldum við samt nokkru sambandi. Þeg- ar um hægðist á seinni árum treystum við að nýju vinabönd- in og hittumst mánaðarlega í bókaklúbbi og oft að öðru til- efni. Þá var gjarnan glatt á hjalla og í skötuát á Þorláks- messu lét Gísli sig aldrei vanta svo að fátt eitt sé nefnt. Blessuð sé minningin um okkar kæra vin. Börnum hans og öðrum ástvinum vottum við samúð. Bragi Halldórsson, Benedikt Svavarsson. Gísli Jónsson Það er hljóðlát stund í Áskirkju þann 25 júní sl. þar sem vinir og fjöl- skylda eru mætt til að kveðja hann Sigurbjörn F. Halldórsson, sem eftir þögla en hetjulega baráttu við veikindi er nú kominn á betri stað til nýs lífs án þrauta og verkja. Diddi, sem ég átti langa og góða samleið með, var ekki bara lengi vel mágur minn, heldur góður drengur sem í vinskap sínum við mig líkt og við aðra vini sína fór eftir þeim fallega boðskap sem er að finna í orðum Frelsarans: „Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra.“ Matteus 7:12. Diddi var bóngóður og fljót- ur til að rétta þeim hjálparhönd sem til hans leituðu, hugulsam- ur um vini sína og fjölskyldu, ljúfur og kærleiksríkur maður sem þrátt fyrir andstreymi lífs- Sigurbjörn Frí- mann Halldórsson ✝ Sigurbjörn Frí-mann Hall- dórsson fæddist 19. ágúst 1957. Hann lést 15. júní 2019. Útförin fór fram 25. júní 2019. ins gat séð spaugi- legu hliðar líðandi stundar. Hann var þó ekki fullkominn maður fremur en ég og aðrir, hann átti sína daga þeg- ar mótlætið gat beygt hann og markað, en ævin- lega fann hann sjálfan sig aftur og var þá aftur sem fyrr. En í vináttunni breytist aldr- ei neitt og dagarnir voru æv- inlega líkir hver öðrum, hann var heill og óskiptur í sínum vinskap við sitt samferðarfólk. Ég á mér einna fyrst minn- ingu um hann Didda þegar ég spurði hann í byrjun sambands hans og Gunnhildar systur minnar, hvort hann sem verð- andi mágur minn yrði þá ekki líka líkt og bróðir minn, sem hann játti og mig gladdi. Diddi þekkti það að vera bróðir ann- ars, enda ríkur af eigin bræðr- um sem ég síðar fékk að kynn- ast og hef notið forréttinda í gegnum árin að þekkja líkt og hans stórfjölskyldu alla. Við Diddi áttum margar góðar stundir saman, hvort heldur sem það var að sitja yfir kaffi- bollanum og spjalla um lífsins gátu eða þegar önnur tilefni gáfust til og þótt oft liði nokkuð milli endurfunda voru þeir allt- af fagnandi og skemmtilegir. Í börnum hans Didda og Gunnhildar, þeim Lonní Björgu, Lilju Bryndísi og Erni Aroni, lifir áfram minningin um góðan dreng sem nú er á brott enda ekki óeðlilegt að margt í þeim minni á föður sinn enda honum umhugað um þau og annar af tveimur áhrifavöldum í uppeldi þeirra og persónumót- un. Ríkulegur er ávöxtur þess- ara þriggja í barnaauði og naut Diddi þess innilega að upplifa hlutverk sitt sem afi sinna barnabarna og átti handa þeim óendanlega blíðu og mikinn kærleik sem þau öll geyma nú sem gull í sínu veganesti fyrir komandi lífsins göngu til eigin framtíðar. Og með þeim og í þeim lifir einnig áfram minningin um hann. Ég færi börnum hans, fjöl- skyldunni allri og öllum þeim sem nú hafa misst og kvatt góðan vin einlæga samúðar- kveðju og bið ykkur öllum blessunar nú á þessari stund kveðju og viðskilnaðar sem og um ókomna framtíð alla. Guð blessi minningu góðs drengs og hafðu þakkir, Diddi minn, fyrir allt og allt. Þinn vinur ávallt, Egill Örn Arnarson Hansen. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einn- ig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.