Morgunblaðið - 05.07.2019, Síða 30

Morgunblaðið - 05.07.2019, Síða 30
30 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2019 Kragar fyrir öll tækifæri Verslun – Snorrabraut 56, 105 Reykjavík Sími 588 0488 | feldur.is 80 ára Birgir fæddist í Vestmannaeyjum en hefur lengst af búið í Garðabænum. Hann er matreiðslumeistari og stofnaði Skútuna veisluþjónustu 1975 í Hafnarfirði og hefur starfað þar síðan. Maki: Eygló Sigurliðadóttir, f. 1944, fyrr- verandi veitingamaður. Synir: Birgir Arnar, f. 1964, Sigurpáll Örn, f. 1969 og Ómar Már, f. 1975. Barna- börnin eru sjö og langafabörnin eru tvö. Foreldrar: Páll Sigurgeir Jónasson, f. 1900, d. 1951, skipstjóri í Vestmanna- eyjum, og Þórsteina Jóhannsdóttir, f. 1904, d. 1991, húsmóðir í Eyjum.. Birgir Rútur Pálsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ótrúlega mikil hamingja fellur þér í skaut svo lengi sem þú nærð að halda í bjartsýnina. Leyfðu breytingum að hafa sinn gang. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú nýtur þess að fegra heimilið þessa dagana. Sá tími kemur að þú munt geta sagt hug þinn allan. Veltu öllum stein- um við í leit þinni að svari. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú átt auðvelt með að ná sam- bandi við börn og nú er rétti tíminn fyrir leiki, skemmtanir og frí. Þín bíður skóla- bekkur í haust og þú getur ekki beðið. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Gefðu þér tíma til að hafa sam- band við vini og ættingja. Dagdraumar eru nauðsynlegir en varastu að dvelja of lengi í þeim. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert áhugalaus og hefur enga burði til að leysa málin þessa dagana. Sóaðu ekki tímanum í vonlaust samband. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú eins og aðrir verður að beygja þig fyrir staðreyndum hvort sem þér er það nú ljúft eða ekki. Farðu varlega í um- ferðinni. 23. sept. - 22. okt.  Vog Reyndu að miðla af reynslu þinni til þeirra yngri. Horfðu í kringum þig og veldu tíu hluti sem þú getur losað þig við. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ert loksins tilbúin/n að skríða út úr skel þinni og blanda geði við aðra. Samtal við makann mun skýra ým- islegt. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú skalt ígrunda vel ráðlegg- ingar þeirra sem standa þér næst. Notaðu innsæi þitt öðrum til góðs og þú munt hafa meiri áhrif á gang mála en þú áttir von á. 22. des. - 19. janúar Steingeit Farðu í saumana á öllum fjár- málum og gefðu þér til þess góðan tíma. Auktu þekkingu þína, farðu á námskeið eða kynntu þér eitthvað ofan í kjölinn. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Gefðu þér tíma til þess að sinna vinum og vandamönnum og leita lausna á þeim vandamálum, sem þeir vilja bera upp við þig. 19. feb. - 20. mars Fiskar Einhver sem virðist ekki hafa áhuga á því sem þú segir mun brátt skipta um skoðun. Svaraðu skilaboðum eins fljótt og þú getur. ferðaskrifstofu yfir vetrarmánuðina í Selva á Norður-Ítalíu. „Ég hef sem sagt stundað nánast öll störf til sjávar og sveita. Ég stunda einnig fjallaskíðamennsku með Njóta þjóta bæði hér heima og erlendis, fer á fluguveiðar þegar tími gefst til og hef siglt á skútu. Mér líður best úti í náttúrunni með mínum nánustu.“ Fjölskylda Sambýliskona Valdimars er Sigríð- ur Vala Þórarinsdóttir, f. 3.8. 1966, Ófærð 2. Hann hlaut viðurkenningu úr minningarsjóði Stefaníu Guð- mundsdóttur 1989. Valdimar hefur gefið út tvær hljómplötur, Kettlinga árið 1991, og Hráefni árið 2016 og hefur samið tón- list fyrir aðra, m.a. Sniglabandið. Valdimar stóð fyrir námskeiðahaldi fyrir atvinnulaus ungmenni á vegum VMST, á árunum eftir hrun. Hann kenndi á skíði í Bláfjöllum, og stofnaði þar skíðaskóla, og vinnur nú sem skíðaleiðsögumaður á vegum VITA V aldimar Örn Flygenring fæddist í Reykjavik 5. júlí 1959. Hann átti heima á Miklubraut 54 og 56, til 6 ára aldurs, í Álftamýri 6 til 18 ára og í Fýlshólum í Breiðholti í stuttan tíma. „Ég fer fyrst að búa sjálfur á Skarphéðins- götu 20, svo Drápuhlíð 6, Þjórsárgötu í Skerjafirði, Skaftahlíð, Birkimel og bý núna í Auðarstræti. Ég byrjaði að selja dagblöð á göt- um úti í Reykjavík fyrir 10 ára aldur, vann svo í byggingarvinnu hjá afa í móðurætt, komst í sveit hjá eðal- menninu Vilhjálmi Sigurðssyni í Krossbæ í Nesjum í A-Skaftafells- sýslu í þrjú sumur 12-15 ára.“ Valdi- mar æfði á skíðum með ÍR, fótbolta með Fram og júdó með Ármanni. Valdimar gekk í Álftamýrarskóla og Ármúlaskóla þar sem hann tók landspróf og varð stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1979. „Ég var skiptinemi í Kosta Ríka 1980-1981 og var hálfan vetur á putta- ferðalagi og fór alla leið til New York.“ Valdimar fór í Leiklistarskóla Íslands 1982 og útskrifaðist þaðan 1986. Hann útskrifaðist frá Leiðsögu- skóla Menntaskólans í Kópavogi 2007. „Ég tók eitt ár í guðfræði 2010, sagði mig úr þjóðkirkjunni í fram- haldinu og er skráður í Ásatrúar- félagið.“ Valdimar vann sem leikari hjá Leikfélagi Reykjavíkur, Þjóðleikhús- inu og Leikfélagi Akureyrar til 2005 og hefur eftir það unnið sem leiðsögu- maður. „Ég kalla mig oft sögumann, að vera bæði leikari og leiðsögumaður þá er maður orðinn sögumaður. Ég hef gaman af því að segja sögur og flétta inn í starfið sögur af fólki og landinu.“ Valdimar hefur leikið í ótal bíó- myndum, sjónvarpsleikritum og á sviði. Meðal leikverka eru Rauðhærði riddarinn, Dagur vonar, Hamlet, Þrúgur reiðinnar, Ljós heimsins, Sjálfstætt fólk, Vér morðingjar, Spor- vagninn Girnd, Sjúk í ást, Sannur vestri, og Köttur á heitu blikkþaki. Meðal bíómynda má nefna Foxtrott og Svo á jörðu sem á himni og meðal sjónvarpsþátta eru Kallakaffi, Djákn- inn á Myrká og síðast lék Valdimar í veitingastjóri. Foreldrar hennar eru Þórarinn Stefánsson, f. 18.12. 1945, kaupsýslumaður, og Þórhildur S. Friðfinnsdóttir, f. 5.10. 1945, d. 26.6. 1985, hárgreiðslumeistari í Reykja- vík. Synir Sigríðar Völu eru Jón Karl og Einar Geir. Fyrri maki Valdimars er Ásdís Sigurðardóttir, f. 20.12. 1965, sálfræðingur, en þau skildu 2004. Börn Valdimars og Ásdísar eru 1) Þór Örn Flygenring, f. 17.11. 1992, siglingaþjálfari, búsettur í Reykjavík; 2) Sigurður Stefán Flygenring, f. 24.2. Valdimar Örn Flygenring, leikari og leiðsögumaður – 60 ára Valdimar 4 ára Í afmælisveislunni eru frá hægri: Erna, Birna og Garðar Flygenring frændsystkini, afmælisbarnið, Sigríður móðir Valdimars, Kristín Magnúsdóttir frænka, Ólöf Flygenring systir, Ingibjörg Haraldsdóttir frænka með bróður sinn, Ástráð Haraldsson hrl. í matrósafötum, í fanginu og Jóhanna Björg Magnúsdóttir frænka. Sögumaður til sjávar og sveita Morgunblaðið/Styrmir Kári Náttúruunnandinn Valdimar stundar meðal annars fjallaskíðamennsku og fluguveiðar. Leikarinn Valdimar í hlutverki Stanleys Kowalskis í Sporvagninum Girnd hjá LA veturinn 1994-1995. Hinn 5. júlí árið 1969 voru Jón Hólm Stefánsson frá Vatnsholti í Staðar- sveit, Snæfellsnesi, og Rósa Finns- dóttir frá Eskiholti í Borgarhreppi, Borgarfirði, gefin saman í Hvanneyr- arkirkju af séra Guðmundi Þorsteins- syni. Heimili Jóns Hólm og Rósu er á Gljúfri í Ölfusi, Árnessýslu. Árnað heilla Gullbrúðkaup 70 ára Sæmundur er fæddur og uppalinn í Neskaupstað og hefur búið þar alla tíð. Hann var sjómaður hjá Síld- arvinnslunni og var einnig með eigin út- gerð. Maki: Klara Sigríður Sveinsdóttir, f. 1961, kennari í Neskaupstað. Börn: Ívar, f. 1969, Sigurborg, f. 1975, Bjartur, f. 1985, Birta, f. 1987, Bjarmi, f. 1990, og Sveinn Fannar, f. 1993. Barna- börnin eru orðin fimm. Foreldrar: Sigurjón Einarsson, f. 1910, d. 1994, verkamaður í Neskaupstað, og Sig- rún Jónsdóttir, f. 1921, d. 2004, hús- móðir og verkakona í Neskaupstað. Sæmundur Sigurjónsson Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.