Morgunblaðið - 05.07.2019, Page 31
DÆGRADVÖL 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2019
„ÉG TRÚI ÞVÍ AÐ HLÝNUN JARÐAR SÉ
STAÐREYND – ÞAÐ ERT ÞÚ SEM ÉG
EFAST UM.”
„ÉG VILDI ÓSKA ÞESS AÐ ÞÚ TALAÐIR
EKKI VIÐ MIG ÞEGAR ÉG ER AÐ SMÍÐA.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hann kemur
fram við þig eins og
eðalborna.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
NEEEI! HVÍ?! ÉG ER BÚIN MEÐ
RAKA KREMIÐ!
BÖLVUN
MÚMÍUNNAR
MAMMA NEITAR AÐ KOMA Í
HEIMSÓKN EF ÞÚ VERÐUR
HEIMA!
SÍÐAN HVENÆR ER HÚN SVONA
TILLITSSÖM?!
Í ALVÖRU?!
1994, bardagamaður, búsettur í
Kópavogi. Stjúpdóttir Valdimars og
dóttir Ásdísar er Íris Tanja, f. 12.11.
1989, leikkona, búsett í Reykjavík.
Maki hennar er Valur Einarsson og
börn þeirra eru Aron Þór og Kolbrá
Saga.
Systir Valdimars er Ólöf Flygen-
ring, f. 10.9. 1955, arkitekt, búsett í
Reykjavík.
Foreldrar Valdimars: Hjónin Þór-
arinn Ágúst Flygenring, f. 25.9. 1932,
d. 3.9. 1985, veitingamaður og kenn-
ari, og Sigríður Valdimarsdóttir, f.
25.9. 1932, ritari. Hún er búsett í
Reykjavík.
Úr frændgarði Valdimars Arnar Flygenring
Valdimar Örn
Flygenring
Sigríður Valdimarsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Valdimar Þorsteinsson
byggingameistari í Rvík
Þorsteinn
Guðlaugsson sjómaður
og verkamaður í Rvík
Haraldur
Þorsteinsson
húsasmiður
í Rvík
Ástráður
Haraldsson
hæstaréttar-
lögmaður í
Rvík
Jónasína Guðlaugsdóttir
húsmóðir, f. í Reykjavík
Þorsteinn Ásbjörnsson
trésmíðameistari í Rvík,
f. í Andrésfjósum á
Skeiðum
Kristján Flygenring verkfræðingur í Hafnarfi rði
Sigríður Ólafsdóttir
húsmóðir, frá Ísafi rði
Ingvar Gunnlaugsson
blikksmiður og vélstjóri á
Ísafi rði og í Rvík, frá Akranesi
Ólöf Ingvarsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Halldór Ólafsson múrari,
lögregluþjónn og leikari á Ísafi rði
Aurora Halldórsdóttir
leikkona í Rvík
Magnús Ólafsson
prentsmiðjustjóri á Ísafi rði
Sigrún Magnúsdóttir leikkona
og óperettusöngkona í Rvík
Ágústína Gísladóttir
húsmóðir, f. á Fróðhúsum í Borgarfi rði
Kristján Kristjánsson
bóndi í Selárdal í Hörðudal í
Dölum, f. á Gunnarsstöðum
Ingibjörg Kristjánsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Ingólfur Flygenring
framkvæmdastjóri í
Hafnarfi rði og alþm.
Páll Flygenring
ráðuneytisstjóri
Björn Pálsson Flygenring læknir
Elísabet Flygenring
kennari í Rvík
Ragnar Borg
forstjóri í Rvík
Anna E. Borg kennari
og leikkona í Svíþjóð
Óskar Borg vörustjóri hjá Alcoa Evrópu
Garðar Ágúst Flygenring
bakari í Reykjavík
Þórunn Stefánsdóttir
húsmóðir, f. á Þóreyjarnúpi
í Línakradal, V-Hún.
Ágúst Theodór Flygenring
alþingismaður og útgerðarmaður í Hafnarfi rði, f. á Fiskilæk í Melasveit
Þórarinn Ágúst Flygenring
kennari í Reykjavík
Guðmundur Arnfinnsson birtir áBoðnarmiði skemmtilegar
braghendur um heiti á ljóðabókum.
Fyrst er „Ljós og skuggar“:
–
Ljós og skuggar leika á víxl um ljóða-
sviðið
klifið hafa klettariðið
kringum álfasteina skriðið.
Dagar.
–
Dagar eru fljótt á förum, flestir
gleymast
dagar sumir dvelja lengur
að dögum verður ávallt fengur.
Ómar af hausthörpu.
–
Hugann grípa hljómar þeir sem
heyrast víða
Út með sjó og upp til hlíða
ómar af hausthörpunni líða.
Myndir dægranna.
–
Listaskáldið ljóð og stökur löngum
semur
mildum huga mörgum fremur
myndir dægranna það nemur.
Andvarahvísl.
–
Skáldð hátt þó skvaldri vindar skynjar
bara
í huga sínum hljótt andvara
hvísl um blómalendur fara.
Ólafur Stefánsson hefur orð á því
á Leir að ólíkt hafist menn að: „Það
er sagt að þeir (og þær) á Boðn-
armiði yrki betur en páfinn. Ég veit
það ekki. Hef ekki fylgst með páf-
um síðan sá gamli Bæjari Ratzinger
hætti.
Blessar þjóðin Boðnarmjöð,
börnin hoppa sæl og glöð
þetta er eins og stoppistöð:
standa menn og pissa –
ljóðabunu láta streyma’ og fryssa
Áður fyrr var líf á Leir,
löngum kváðust tveir og tveir
á, en núna ekki meir,
ósköp er ég hissa:
Leir er ekki lengur mál að pissa.
Helgi Ingólfsson kveðst hér
skemmtilega á við sjálfan sig. Fyrst
er „LIMRA UM FERSKEYTLU“:
Ferskeytlan ort er á Fróni
og fer vel í munni hjá Jóni,
hjá Helgu og Sigga
og Halldóru og Bigga,
frá Hornbjargi austur að Lóni.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Heiti á ljóðabókum og
Leir eða Boðnarmjöður