Morgunblaðið - 05.07.2019, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 05.07.2019, Qupperneq 33
ÍÞRÓTTIR 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2019 Ármúla 24 • S. 585 2800  Manchester City gekk í gær frá kaupum á spænska miðjumanninum Rodri sem kemur til félagsins frá Atl- ético Madrid. Klásúla var í samningi hans við Atlético sem gerði þennan 23 ára leikmann falan fyrir 62,8 milljónir punda, eða tæpa 10 milljarða króna.  Spænski framherjinn Ayoze Pérez er kominn til Leicester fyrir 30 millj- ónir punda, jafnvirði 4,7 milljarða króna, eftir fimm ára dvöl hjá New- castle. Hann skoraði 12 mörk í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.  Chelsea hefur ráðið Frank Lampard sem nýjan knattspyrnustjóra félagsins en hann skrifaði undir samning til þriggja ára þess efnis. Lampard tekur við af Maurizio Sarri sem yfirgaf Chelsea í júní til að taka við Ítalíu- meisturum Juventus. Lampard, sem er 41 árs, þjálfaði síðast Derby í ensku 1. deildinni og fór með liðið í úrslitaleik við Aston Villa um sæti í úrvalsdeild- inni. Hann lék á sínum tíma í 13 ár með Chelsea, alls 648 leiki, og vann til 11 titla með liðinu. Lampard tekur við Chelsea í snúinni stöðu en FIFA hefur úrskurðað að fé- lagið megi ekki kaupa leikmenn í sumar né í janúar á næsta ári, vegna brota á reglum um kaup á leikmönnum yngri en 18 ára, en þeim úrskurði hefur Chelsea áfrýjað til alþjóðaíþróttadóm- stólsins. Eitt ogannað GOLF Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Tárin fengu að streyma eftir að Bandaríkjamaðurinn Nate Lashley fagnaði sínum fyrsta sigri á móti á PGA-mótaröðinni í golfi um síðustu helgi. Brooke, systir hans, og kær- astan, Ashlie Reed, voru mættar til að faðma sigurvegarann óvænta sem fékk boð á mótið örfáum dög- um áður en það hófst og var í raun hættur í golfi árið 2012 og farinn að starfa sem fasteignasali. Lashley hafði gengið illa að koma golfferlinum á flug eftir skelfilegt áfall árið 2004, þegar hann var 21 árs gamall og lék með skólaliði Ari- zona-háskólans. Foreldrar hans og þáverandi kærasta höfðu komið til að sjá hann keppa en á heimleiðinni fórst eins hreyfils Cessna-flugvélin sem faðir hans stýrði. Lashley varð órólegur þegar ekkert þeirra hafði haft samband daginn eftir og í kjöl- farið hófst leit að flugvélinni. Brak hennar fannst þremur dögum síðar og farþegarnir þrír höfðu allir lát- ist. Mörg ár að komast yfir þetta „Ég er búinn að ganga í gegnum mikið. Það tók mig mörg ár að kom- ast yfir þetta [lát foreldranna og kærustunnar]. Þetta hélt aftur af mér andlega í langan tíma,“ sagði Lashley eftir sigurinn á sunnudag- inn, og bætti við: „Ég hugsa stöðugt til foreldra minna. Án þeirra væri ég ekki í þessari stöðu sem ég er í núna.“ Mótið sem hann vann heitir Rocket Mortgage Classic og eins ótrúlega og það kann að hljóma átti Lashley upphaflega ekki að vera með á mótinu. Hann reyndi að vinna úrtökumót á mánudeginum fyrir mótið en mistókst það. Hann fékk hins vegar á endanum sæti og nýtti tækifærið til fulls með því að vinna mjög öruggan sigur, á sam- tals -25 höggum eða með sex högga forskot á næsta mann, Doc Red- man. Upp um 252 sæti á heimslista Með sigrinum er hinn 36 ára gamli Lashley, sem lék á sínum fyrstu PGA-mótum í fyrra, búinn að eyða óvissu um næstu misseri sín í golfinu. Hann mun geta spilað á sterkustu mótaröð heims næstu tvö árin, og verður með á The Open í næsta mánuði og Masters á næsta ári, þrátt fyrir að hafa aðeins einu sinni áður náð að enda í hópi 10 efstu á PGA-móti. Lashley ákvað að gerast atvinnu- maður strax eftir háskólanámið en gekk illa að fóta sig og endaði eins og fyrr segir á að taka sér sex mán- aða hlé árið 2012 til að gerast fast- eignasali. Eftir það fór hins vegar smám saman að rofa til hjá honum á golfbrautunum og hann komst inn á PGA Latinoamérica-mótaröðina árið 2015, þar sem hann varð í 8. sæti peningalistans. Það kom hon- um upp stigann á Web.com móta- röðina þar sem hann lék árið 2017, og hann fékk svo sín fyrstu tæki- færi á PGA-mótaröðinni í fyrra. Eftir sigurinn um helgina fór Las- hley upp um 252 sæti á síðasta heimslista og er hann nú í 101. sæti. „Það var gott að taka nokkurra mánaða hlé frá golfi og með því að finna mér annað að gera á þessum tíma áttaði ég mig almennilega á því hvað golf er skemmtilegt. Það er blessun að fá að spila hérna, sér- staklega á hæsta stigi íþróttarinnar, og ég er ánægður með að hafa ekki gefist upp.“  Lashley gengið í gegnum mikið  Óvæntur sigurvegari á PGA-móti AFP Sigurstund Nate Lashley, hér með Ashlie Reed, kærustu sinni, faðmar Brooke, systur sína, eftir sigurinn á Rocket Mortgage Classic í Detroit. Lætur ljós sitt loks skína eftir skelfilegt áfall Óhætt er að segja að mikill stjörnufans verði á kveðjuhátíð til heiðurs Alfreð Gíslasyni í Kiel hinn 26. júlí. Alfreð verður þá kvaddur eftir ellefu ára veru hjá Kiel en undir hans stjórn hefur lið- ið orðið Þýskalandsmeistari sex sinnum, þýskur bikarmeistari sex sinnum, unnið Meistaradeild Evr- ópu tvisvar sinnum og EHF- keppnina einu sinni. Hátíðin verður í Sparkassen Arena, á heimavelli Kiel, og þar mun stjörnulið Alfreðs mæta liði Kiel sem Alfreð stýrði til sigurs í EHF-keppninni og þýska bik- arnum í vetur. Að minnsta kosti einn Íslendingur verður í stjörnu- liðinu, samkvæmt frétt Kieler Nachrichten, en það er Aron Pálmarsson sem hóf sinn atvinnu- mannsferil undir stjórn Alfreðs hjá Kiel og lék með liðinu árin 2009- 2015. Á þeim árum fögnuðu þeir Aron og Alfreð fjölda titla, meðal annars sigri í Meistaradeild Evr- ópu tvisvar og þýska meistaratitl- inum fimm sinnum. Auk Arons verða í stjörnuliðinu menn á borð við Svíana Stefan Lövgren, Kim Andersson og Marc- us Ahlm, Dominik Klein, Thierry Omeyer, Daniel Narcisse, Momir Ilic, Andreas Palicka, Daniel Ku- bes og Börge Lund, ásamt fleirum sem leikið hafa undir stjórn Al- freðs hjá Kiel. Annar leikur og styttri verður leikinn þetta kvöld, þegar stjörnu- lið Alfreðs mætir öðru liði Alfreðs sem myndað verður úr leik- mönnum sem léku undir hans stjórn hjá Magdeburg og Gumm- ersbach. Alfreð kveðst nú hættur þjálfun félagsliða. sindris@mbl.is Stjörnufans þegar Alfreð kveður Kiel Ljósmynd/Sascha Klahn Kveður Alfreð Gíslason kátur á lokakvöldi leiktíðarinnar hjá Kiel.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.