Morgunblaðið - 05.07.2019, Page 34

Morgunblaðið - 05.07.2019, Page 34
34 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2019 HM-farinn Frederik Schram, sem leikið hefur 5 A- landsleiki í marki Íslands í fótbolta, er nú til reynslu hjá danska 1. deildar félaginu Vejle. Þessi 24 ára gamli markvörður er án samnings eftir að hann ákvað að yfir- gefa Roskilde sem einnig leikur í 1. deild, en Vejle féll úr úrvalsdeildinni eftir umspil í vor. Frederik verður við æfingar hjá Vejle í nokkra daga en í síðustu viku æfði hann með enska félaginu Shrews- bury sem teflir fram liði í D-deild, eða 2. deild eins og hún er kölluð í Englandi. Daninn Brian Jensen, sem áður lék með Burnley, er markmannsþjálfari hjá Shrews- bury. Frederik lék æfingaleik með liðinu en ekkert varð af því að hann semdi við félagið: „Þetta gekk vel og það stefndi í að það yrði eitthvað úr þessu en það voru ákveðin vandamál varðandi peningamál. Það voru allt í einu ekki til þeir peningar sem fólkið hjá félaginu reiknaði með, og þess vegna varð ekkert úr þessu,“ sagði Frederik við vafo.dk. sindris@mbl.is Frá Englandi til reynslu í Vejle Frederik Schram Haukur Helgi Pálsson, landsliðs- maður í körfuknattleik, hefur yfir- gefið herbúðir franska liðsins Nan- terre og mun spila með rússneska liðinu Unics á næstu leiktíð. Haukur, sem er 27 ára gamall, var í stóru hlutverki á sínu fyrsta og eina tímabili hjá Nanterre og fór meðal annars í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar. Unics, sem er staðsett í Kazan, fór í undan- úrslit um rússneska meistaratit- ilinn og í undanúrslit Evrópubik- arsins síðasta vetur. yrkill@mbl.is Haukur Helgi til Rússlands Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Rússland Haukur Helgi Pálsson er kominn á nýjar slóðir á ferlinum. Í KVÖLD! KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: Samsungv.: Stjarnan – Grindavík........19.15 1. deild karla, Inkasso-deildin: Þórsvöllur: Þór – Fram..............................18 Vivaldi-völlurinn: Grótta – Njarðvík ...19.15 Ólafsvíkurv.: Víkingur Ó. – Afturelding...20 3. deild karla: Bessastaðavöllur: Álftanes – KH..............20 Fjölnisv.: Vængir Júpiters – Skallagr......20 4. deild karla: Stykkishólmsvöllur: Snæfell – ÍH ............20 1. deild kvenna, Inkasso-deildin: Varmárv.: Afturelding – Tindastóll ..........18 Kaplakrikavöllur: FH – Þróttur R. .....19.15 Extra-völlurinn: Fjölnir – Haukar ......19.15 2. deild kvenna: Sindravellir: Sindri – Álftanes ..................17 EM kvenna Leikið í Lettlandi og Serbíu: 8-liða úrslit: Ungverjaland – Bretland .....................59:62 Spánn – Rússland..................................78:54 Frakkland – Belgía ...............................84:80 Serbía – Svíþjóð.....................................87:49 Í undanúrslitum mætast: Spánn – Serbía Frakkland – Bretland KÖRFUBOLTI HANDBOLTI Opna Evrópumót U17 karla Leikið í Gautaborg: Svíþjóð – Ísland .................................... 22:19 Tékkland – Ísland................................. 25:28  Ísland hafnaði í öðru sæti í milliriðli 1 og leikur um bronsverðlaun í dag gegn Hvíta- Rússlandi. Norðurlandamót U17 kvenna Ísland – Noregur ......................................3:2 Mörk Íslands: Amanda Jacobsen Andra- dóttir 15., María Catharina Gros 60., Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 90. Evrópudeild UEFA Forkeppni, seinni leikur: NSÍ Runavík – Ballymena United ..........0:0  Ballymena United vann einvígið, 2:0.  Guðjón Þórðarson þjálfar NSÍ. Ameríkubikarinn Undanúrslit: Síle – Perú ................................................ 0:3 Edison Flores 21., Yoshimar Yotún 38., Paolo Guerrero 90.  Perú mætir Brasilíu í úrslitaleik á sunnu- dag en Síle leikur við Argentínu um bronsið á laugardag. KNATTSPYRNA Baráttan í 1. deild karla í knatt- spyrnu, Inkasso-deildinni, hefur verið lygilega jöfn það sem af er sumri en nú gætu línur verið farnar að skýrast eitthvað. Í fyrsta sinn í sumar hefur lið náð fimm stiga for- skoti á toppnum og það eru Fjöln- ismenn sem hafa tekið skrefið frá þéttum pakka liða eftir útisigur á Leikni R. í gærkvöldi, 2:0, þegar 10. umferð deildarinnar hófst með tveimur leikjum. Fjölnir hefur unnið þrjá leiki í röð, hefur skorað í þeim sjö mörk og ekki fengið á sig eitt einasta. Grafarvogs- liðið sendi skýr skilaboð í síðustu umferð með 4:0-sigri á Þórsurum í toppbaráttuslag og þökk sé mörkum Jóhanns Árna Gunnarssonar og Ingibergs Korts Sigurðssonar gegn Leikni í gærkvöld er liðið búið að koma sér í lykilstöðu í annars jafnri baráttu um sæti í efstu deild. Dramatískt jöfnunarmark Hauka gegn Keflvíkingum Það er ekki ofsögum sagt að bar- áttan sé jöfn, því fyrir neðan Fjöln- ismenn munar aðeins þremur stig- um á næstu fimm liðum. Grótta og Fram koma næst með 17 stig og eiga leiki til góða í kvöld en Keflvíkingar voru hársbreidd frá því að ná þeim að stigum í gærkvöldi. Dagur Ingi Valsson hafði komið þeim yfir á heimavelli gegn Hauk- um og allt stefndi í sigur Keflvík- inga. Þeir fengu hins vegar á sig vítaspyrnu í blálokin sem Ásgeir Þór Ingólfsson jafnaði úr á lokamín- útunni. Niðurstaðan 1:1 og Keflvík- ingar sitja í fimmta sætinu í þéttum pakka. Stigið var hins vegar afar mikil- vægt fyrir Hafnfirðinga sem hafa verið að rétta úr kútnum en eru þremur stigum fyrir ofan fall- svæðið. Þeir munu eflaust hvetja Njarðvíkinga, sem sitja í næst- neðsta sæti, til dáða gegn Gróttu í kvöld. yrkill@mbl.is Fjölnismenn farnir að slíta sig frá pakkanum  Eru komnir með fimm stiga forskot í fyrstu deild karla Morgunblaðið/Árni Sæberg Toppurinn Bergsveinn Ólafsson, fyrirliði Fjölnis, í sigrinum á Leikni R. í gær sem skilaði liðinu auknu forskoti.  Körfuknattleiksdeild KR hefur sam- ið við litháíska þjálfarann Arnoldas Kuncaitis um að vera Inga Þór Stein- þórssyni til aðstoðar með Íslands- meistaralið félagsins í karlaflokki. Hann mun einnig þjálfa yngri flokka. Kuncaitis, sem er 24 ára, kom til Ís- lands í fyrra og þjálfaði meistaraflokk kvenna hjá Tindastóli, yngri flokka og var aðstoðarþjálfari karlaliðsins.  Bojana Besic er hætt þjálfun kvennaliðs KR í knattspyrnu. Félagið tilkynnti það í gærkvöld, en KR er í botnsæti Pepsi Max-deildarinnar eftir átta leiki. Ragna Lóa Stefánsdóttir, sem var aðstoðarþjálfari, mun taka við liðinu þar til annað verður ákveðið.  Bandaríska knattspyrnukonan Dari- an Powell er gengin til liðs við 1. deild- ar lið Aftureldingar. Powell kemur til liðsins frá Selfossi en Selfyssingar riftu samningi sínum við framherjann um miðjan júní. Hún lék fjóra deildarleiki fyrir Sel- foss og skoraði eitt mark.  Dregið var í riðla Meistaradeildar Evrópu í körfubolta í gær en allt útlit er fyrir að þar verði Tryggvi Snær Hlinason í eldlínunni með spænska liðinu Zaragoza í vetur, þó að félagaskipti hans hafi ekki verið tilkynnt ennþá. Zaragoza dróst í riðil með Besiktas frá Tyrklandi, Brindisi frá Ítalíu, Dijon frá Frakklandi, Klaipeda frá Litháen og PAOK frá Grikklandi, en tvö lið úr for- keppninni eiga svo eftir að bætast við. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.