Morgunblaðið - 05.07.2019, Síða 35
Á HLÍÐARENDA
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Danski sóknarmaðurinn Patrick Ped-
ersen hefur engu gleymt. Það sýndi
hann og sannaði í 3:1-sigri Íslands-
meistara Vals gegn KA í fyrsta leik
12. umferðar Pepsi Max-deildar karla
á Hlíðarenda í gær.
Þessi frábæri framherji, sem hefur
gert það svo gott með Valsmönnum
undanfarin ár, sneri aftur á Hlíðar-
enda í vikunni eftir stutt stopp í Mol-
dóvu og endurkoma hans virkaði sem
vítamínsprauta á meistarana. Valur
lék einn sinn besta leik á tímabilinu
þar sem Daninn skoraði fyrsta mark
Hlíðarendaliðsins og lagði upp hin
tvö. Þetta var þriðji sigur Vals í röð í
deildinni og það er greinilegt að Vals-
menn eru að ná vopnum sínum eftir
afar erfiða byrjun á leiktíðinni.
Það leit allt út fyrir markaleysi í
fyrri hálfleik en Pedersen stimplaði
sinn inn í deildina á nýjan leik þegar
hann skoraði skallamark á lokamín-
útu hálfleiksins eftir góðan undir-
búning Andra Adolphssonar.
Kristinn Freyr Sigurðsson og
Andri Adolphsson komu Val í 3:0 þar
sem Daninn átti sinn þátt í mörkunum
en tíu mínútum fyrir leikslok klóraði
Elfar Árni Aðalsteinsson í bakkann
fyrir KA-menn.
Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals-
manna, stillti upp í leikkerfið 3-5-2 og
það gafst vel því Valsmenn réðu ferð-
inni lungann úr leiknum og áttu marg-
ar góðar sóknir og spilkafla á síðasta
þriðjungi vallarins þar sem Patrick
Pedersen, Ólafur Karl Finsen og
Andri Adolphsson léku KA-vörnina
grátt og fyrir aftan þá bjó Kristinn
Freyr Sigurðsson til mikið fyrir þá.
,,Mér fannst við spila frábærlega í
kvöld. Við vorum með leikinn í okkar
höndum allan tímann og ég held bara
að þetta sé einn besti leikur okkar í
sumar. Sjálfstraustið í liðinu fer vax-
andi og það er frábært að fá Patrick í
liðið. Hann er svo góður í fótbolta og
duglegur að tengja við þá sem eru í
kringum hann. Hann gerir mikið fyr-
ir okkur, miklu meira en að skora
bara mörk. Ég var ánægður með mitt
framlag í leiknum sem og alls liðsins,“
sagði Andri Adolphsson við Morg-
unblaðið.
KA-menn þurfa að fara að gæta að
sér. Þeir hafa tapað þremur leikjum í
röð og hafa í þeim leikjum fengið á sig
tíu mörk. Þeir áttu ágæta spretti í
fyrri hálfleik en smátt og smátt fjar-
aði leikur þeirra út og þeir urðu að
játa sig sigraða fyrir talsvert betra
liði. Líklega hefðu þeir tapað stærra
ef ekki hefði komið til frábær mark-
varsla hjá Kristijan Jajalo nokkrum
sinnum í leiknum.
Patrick Pedersen sýndi
hæfileika sína heima á ný
Daninn skoraði eitt og lagði upp tvö og Valur hefur unnið þrjá leiki í röð
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Fyrirliðinn Haukur Páll Sigurðsson er leiðtogi Vals og er hér gegn Hallgrími Mar Steingrímssyni í leiknum í gær.
ÍÞRÓTTIR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2019
Það kom sennilega engum á
óvart að framherjinn Patrick
Pedersen stimplaði sig inn af
krafti í gærkvöldi þegar hann
spilaði sinn fyrsta leik í Valstreyj-
unni (reyndar í fjórða sinn!) og
átti þátt í öllum mörkum liðsins í
sigri á KA.
Það var bara tímaspursmál
hvenær Íslandsmeistararnir
myndu vakna. Þeir hafa nú unnið
þrjá deildarleiki í röð og eru
komnir upp í fimmta sæti deild-
arinnar, „bara“ tíu stigum frá
toppnum. Miðað við byrjun tíma-
bilsins og það að liðið hafi verið
á botninum eftir sjö umferðir
verður það að teljast ansi gott.
Það má því alls ekki útiloka
það að meistararnir muni blanda
sér í baráttuna við toppinn, sér-
staklega nú þegar Pedersen er
farinn að reima á sig marka-
skóna á Hlíðarenda á ný. Deildin
hefur verið gríðarlega skemmti-
leg það sem af er og verður bara
skemmtilegri.
Það sama má segja í kvenna-
boltanum, sérstaklega eftir jafn-
tefli Vals og Breiðabliks í fyrra-
kvöld. Það gerir titilbaráttuna
enn meira spennandi fyrir seinni
hlutann. Toppliðin tvö halda
áfram hnífjöfnu kapphlaupi sínu
að titlinum og deildin hefur
sjaldan verið skemmtilegri.
Raunar er þetta sumar búið
að vera mjög gjöfult af góðri
knattspyrnu. Það er allt svo að
segja í járnum í hinni svokölluðu
Inkasso-deild karla og þar mun
spennan áfram ráða ríkjum.
Því miður, leyfist mér að
segja, lýkur svo heimsmeist-
aramóti kvenna í Frakklandi um
helgina. Það hefur verið stór-
skemmtilegt og vakið miklar um-
ræður vegna umdeildra atvika.
Fótboltasumarið 2019
stendur því svo sannarlega undir
væntingum.
BAKVÖRÐUR
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, at-
vinnukylfingur úr GR, þarf að rétta
vel úr kútnum ætli hún sér í gegn-
um niðurskurðinn á Thornberry
Creek Classic-mótaröðinni í golfi á
LPGA-mótaröðinni, þeirri sterk-
ustu í heimi.
Ólafía lék fyrsta hringinn í gær á
74 höggum eða tveimur höggum yf-
ir pari. Hún fékk fjóra skolla og tvo
fugla á hringnum, en kylfingar
voru að leika mjög vel og var
minnihluti sem lék yfir parinu. Hin
kínverska Yu Liu var í forystu á tíu
höggum undir pari og voru tveir
kylfingar aðeins höggi á eftir
henni.
Nokkrir kylfingar áttu eftir að
ljúka leik þegar Morgunblaðið fór í
prentun, en þegar Ólafía kom í hús
eftir hringinn var hún í 128. sæti af
140 kylfingum sem skráðir voru til
leiks. Hún mun því þurfa að sækja
fugla á öðrum hring í dag.
Þetta er fjórða mótið sem Ólafía
tekur þátt í á mótaröðinni í ár, en
hún hefur ekki ennþá komist í
gegnum niðurskurð. yrkill@mbl.is
AFP
LPGA Ólafía Þórunn Kristinsdóttir á teig á þessu móti fyrir tveimur árum.
Ólafía þarf að gefa í
á öðrum hring í dag
1:0 Patrick Pedersen 45.
2:0 Kristinn F. Sigurðsson 49.
3:0 Andri Adolphsson 74.
3:1 Elfar Á. Aðalsteinsson 81.
I Gul spjöldElfar Árni Aðalsteinsson (KA).
I Rauð spjöldEngin.
Dómari: Helgi Mikael Jónasson, 7.
Áhorfendur: 859.
VALUR – KA 3:1
MM
Patrick Pedersen (Val)
Andri Adolphsson (Val)
M
Sebastian Hedlund (Val)
Haukur Páll Sigurðsson (Val)
Kristinn Freyr Sigurðsson
Ólafur Karl Finsen (Val)
Kristijan Jajalo (KA)
Elfar Árni Aðalsteinsson (KA)