Morgunblaðið - 05.07.2019, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 05.07.2019, Qupperneq 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2019 VINNINGASKRÁ 9. útdráttur 4. júlí 2019 316 9928 21499 31240 39758 48148 58235 70496 329 10081 21643 31293 39791 48350 58298 70828 468 10119 21657 31305 39929 48408 58768 71001 508 11117 21917 31344 40789 48531 58929 71024 586 11365 22269 31520 41043 49203 59288 71228 634 11737 22663 31641 41428 49458 59350 71351 1836 11779 23021 31662 41472 49486 59459 71965 2228 12095 23094 32253 41618 49751 59642 72485 2302 12227 23547 32906 41815 50388 59973 72542 2331 12340 23865 32911 42052 50767 60067 74495 2596 12369 24157 33008 42084 51233 60209 74593 2765 12431 24269 33015 42343 51440 60897 74738 2997 12846 24577 33066 42517 51670 61064 74835 3002 12892 24879 33114 42861 52237 61690 74919 3261 13072 25068 33398 43564 52324 62188 75659 3949 13344 26022 33470 43628 52475 62455 75683 4027 13530 26075 34131 43795 52564 62615 75860 4083 14396 26084 34134 44041 52770 62866 76555 4241 15185 26192 34275 44260 53167 63141 76568 4581 15238 26491 35841 44379 53196 63651 76841 4647 15566 26736 35932 44494 53589 64442 76885 4992 15695 26870 36204 44552 53848 64967 76887 5546 15894 27127 36268 44626 53863 65218 76898 5808 17367 27440 36814 44715 54049 65511 77028 6031 17949 27607 37006 44891 54092 65800 77096 6569 17966 28085 37290 44953 54133 66520 77309 7371 18331 28521 37419 45485 54774 66683 77459 7771 18393 28614 38005 45872 55361 66871 77758 7957 18721 28954 38126 46050 55668 67160 78031 8146 19632 30225 38744 46079 55719 67253 79231 8270 20144 30311 38949 46114 56074 67484 79429 8464 20430 30477 39035 46448 56851 67540 8651 20447 30587 39205 46689 57069 67541 8949 20602 30625 39273 47580 57606 68388 9094 20782 30926 39288 47625 57993 69103 9665 20886 31004 39625 47848 58012 69960 9846 21299 31120 39753 47851 58163 70472 1648 6982 16474 28837 41737 51550 60838 71641 2010 7339 18505 31014 42304 52182 63569 72088 2218 7621 19134 31164 42601 53216 64449 72173 2516 7656 21003 31202 44809 53778 64673 73417 3152 8517 21829 33028 46526 55436 65702 74953 3275 8995 21998 33288 46950 55830 65857 75336 4060 10095 23812 34931 47161 56733 66354 76422 4161 10153 24205 34965 48512 58494 67000 76993 4861 10395 24911 36303 50235 58555 67056 79315 4872 12907 25399 36438 50562 59569 67153 5502 14399 25786 37754 50742 59846 69089 6089 15333 27404 41511 50770 59906 70075 6748 15670 28086 41534 50934 60781 70282 Næstu útdrættir fara fram 11. 18. 25.júlí & 1. ágúst 2019 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 5849 48809 49554 66213 69006 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 691 8231 22227 28344 35257 55249 1878 9296 23906 30677 42995 56132 2976 10199 25227 33926 49339 62023 3611 10756 27700 34084 54849 67254 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 1 1 4 8 0 Jack Malik (Himesh Patel) ertónlistarmaður sem fer ámilli knæpa og tónlistar-hátíða með aðstoð bestu vinkonu sinnar, Ellie (Lily James), sem er í senn umboðsmaður, bíl- stjóri og rótari fyrir Jack. Eitt sinn var Jack ungur og efnilegur en eft- ir að „stóra tækifærið“ fer forgörð- um ákveður hann að komið sé nóg af harkinu, þrátt fyrir mótbárur Ellie. Þegar Jack er hins vegar að hjóla heim til sín slær rafmagnið út samtímis um allan heim og í myrkrinu verður hann fyrir rútu. Þegar Jack raknar úr rotinu áttar hann sig fljótlega á því að hann virðist vera sá eini í öllum heimin- um sem man eftir því að Bítlarnir hafi verið til. Malik breytist þar með alveg „óvart“ á einni nóttu í einn fremsta lagahöfund síns tíma, fremri jafnvel „sjálfum“ Ed Sheer- an (Ed Sheeran). Eftir því sem heimsfrægðin dembist yfir Jack fara þó að renna á hann tvær grímur, því hvað kost- ar frægðin, sérstaklega þegar hún tilheyrir í raun einhverjum öðrum? Það er allavega óhætt að segja að fáar kvikmyndir hafi haft úr betri tónlist að moða en þessi og unnendur Bítlanna ættu ekki að vera sviknir af því að heyra lögin þeirra í þeim búningi sem Jack Malik setur þau í. Það hjálpar auð- vitað til að Patel er ágætur söngv- ari og nær að gæða þau lög sem heyrast einstaklega mildum og ljúf- um blæ. Þá ná atriðin þar sem Malik er að taka upp „fyrstu“ lögin sín að koma vel til skila þeirri gleði sem fylgir Bítlalögunum, en auk titil- lagsins Yesterday má einnig heyra lög eins og Let It Be, I Want to Hold Your Hand, She Loves You, I Saw Her Standing There og In My Life, svo örfá dæmi séu nefnd. Myndin kafar að vísu ekki mjög djúpt í lagasmíðarnar og í raun mætti segja að lögin sem heyrast í myndinni ættu flestöll heima á „Greatest Hits“-plötu. Lögin bera því uppi mikið af myndinni en að öðru leyti hvílir sál hennar á herðum aðalleikarans, Himesh Patels, en hann er aðallega þekktur í Bretlandi fyrir leik sinn í svakamálasápunni Eastenders. Patel kemst hins vegar mjög vel frá sínu fyrsta kvikmyndahlutverki og gæðir Malik vissri ljúfmennsku. Af öðrum leikurum myndarinnar er það einna helst söngvarinn Ed Sheeran sem vekur athygli en hann „leikur“ egómaníska útgáfu af sjálf- um sér og virðist nánast sannfærð- ur um að hann sé langbesti laga- höfundur allra tíma, allt þar til Jack Malik nær að ryðja út úr sér hverjum smellinum á fætur öðrum. Hvort Sheeran sé góður leikari skal látið liggja milli hluta en hann á þó nokkur af fyndnari atriðum myndarinnar skuldlaust. Banda- ríska gamanleikkonan Kate McKin- non er hins vegar ögn of yfirdrifin í hlutverki sínu sem „vondi“ plötuút- gefandinn til að vera trúverðug. Kvikmyndin er langt því frá gallalaus og er megingallinn sá að það tekst alls ekki nægilega vel að greiða úr þeim flækjum sem Malik kemur sér í með því að stela tónlist Bítlanna. Þannig kemur til dæmis í ljós að Malik er ekki sá eini sem man „gærdaginn“, en sú uppgötvun reynist hafa lítið gildi og nær eng- ar afleiðingar. Þá ætlar undirritaður að játa að hann fékk gríðarlegan kjánahroll yfir einu atriði myndarinnar, þar sem Malik kemst að því hver örlög Johns Lennons voru í þessum nýja raunveruleika, þar sem Bítlarnir náðu aldrei heimsfrægð. Yesterday er því ágætis afþrey- ing, sem fellur kannski í skuggann af öðrum nýlegum „tónlistarmynd- um“ eins og Bohemian Rhapsody og Rocketman sem nálgast við- fangsefni sitt að vísu á allt annan hátt. Stærsti kostur myndarinnar er hins vegar sá að í henni gefst áhorfandanum prýðilegt tækifæri til þess að kynnast upp á nýtt þeim stórkostlega fjársjóði sem John, Paul, George og Ringo skildu eftir fyrir kynslóðir framtíðarinnar og um leið þakka fyrir að við lifum ekki í Bítlalausum heimi. Yesterday Jack Malik (Himesh Patel) vaknar einn daginn og kemst að því að hann er sá eini sem man eftir Bítlunum og fer að stela lögunum þeirra. Að sakna gærdagsins í Bítlalausum heimi Laugarásbíó, Háskólabíó, Smárabíó, Sambíóin og Borgarbíó Akureyri Yesterday bbbmn Leikstjóri: Danny Boyle. Handrit: Rich- ard Curtis. Aðalhlutverk: Himesh Patel, Lily James, Kate McKinnon, Joel Fry og Ed Sheeran. Bretland, 2019, 116 mín. STEFÁN GUNNAR SVEINSSON KVIKMYNDIR Mikið verður um að vera í Havaríi á Karlsstöðum í Berufirði um helgina. Í kvöld heldur Mr. Silla tónleika með Jay Tyler og Prins Póló. Sigurlaug Gísladóttir, sem kallar sig Mr. Silla, á að baki litríkan sólóferil auk þess sem hún hefur um árabil unnið með hljómsveit- inni múm. Annað kvöld verður svo sett á svið fullorð- ins-fjölbragðasýning, Búkalú um lönd og lendar. Fjöl- listakonan Margrét Erla Maack er aðaldriffjöðrin í Búkalú en með henni leikur fjöldi annarra skemmti- krafta. Miðasala fer fram á tix.is. Margrét Erla Maack Heilmikið havarí í Havaríi um helgina Dómkórinn tók þátt í kórakeppni í Salzburg í Aust- urríki í júní og keppti í tveimur flokkum; flokki trúarlegrar tón- listar og flokki blandaðra kóra. Söngur kórsins hreif svo hina al- þjóðlegu dómnefnd keppninnar að kórinn hlaut tvær gullviðurkenn- ingar og varð auk þess í öðru sæti í báðum flokkum á eftir sigurkór heildarkeppninnar 22. júní. Dóm- kórinn var með í flutningi á Krýn- ingarmessu Mozarts í messu í dóm- kirkjunni í Salzburg degi síðar, 23. júní. Tuttugu kórar tóku þátt í keppninni og komu þeir víða að. Dómkórinn annast messusöng í Dómkirkjunni og syngur við ýmsar opinberar athafnir. Hann hefur haldið fjölda tónleika innanlands sem utan og hefur m.a. flutt ýmis stórvirki tónbókmenntanna og verk sérstaklega samin fyrir kórinn. Kári Þormar dómorganisti hefur stjórnað kórnum frá árinu 2010. Dómkórinn hlaut gull í Salzburg Kári Þormar Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrr- verandi iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, hefur verið ráðin í starf verk- efnastjóra Evrópsku kvikmynda- verðlaunanna í Reykjavík 2020. Alls sóttu 45 um starfið en samkvæmt vefnum visir.is stóð valið að lokum milli Ragnheiðar Elínar og Gríms Atlasonar sem um langt árabil stýrði Iceland Airvawes. Hlutverk verkefnastjóra er að vinna að undirbúningi hátíðarinnar, sem verður haldin hér á landi á næsta ári, í samráði við stjórn verk- efnisins og Evrópsku kvikmynda- akademíuna. Það var, samkvæmt til- kynningu, mat stjórnar að Ragn- heiður Elín uppfyllti best þær hlutlægu og huglægu kröfur sem settar voru fram í starfslýsingu. Verkefnastjóri vinnur samkvæmt fyrirliggjandi verkefna- og fjárhags- áætlun og ber ábyrgð gagnvart stjórn verkefnisins. Ragnheiður Elín er með MS-próf í alþjóðasamskiptum frá Georgetown University og BA-próf í stjórnmála- fræði frá HÍ, var þingmaður og ráð- herra og hefur fjölþætta reynslu af skipulagningu og stjórnun viðamik- illa verkefna. Hún þekkir vel stjórn- sýslu kvikmyndamála og málefna ferðaþjónustunnar sem fyrrverandi ráðherra. Evrópsku kvikmyndaverðlaunin (EFA) verða veitt í Hörpu í desem- ber 2020 og er húsið forsenda þess að hægt sé að halda viðburðinn hér. Hátíðin er haldin annað hvert ár í Berlín en þess á milli til skiptis í öðr- um borgum Evrópu. Stýrir undirbúningi kvikmyndaverðlauna Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ráðin Ragnheiður Elín Árnadóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.