Morgunblaðið - 05.07.2019, Blaðsíða 40
Rómantíkin mun umvefja gesti
Jómfrúarinnar á morgun kl. 15 þeg-
ar djassdúettinn Marína & Mikael
flytur þekkta dúetta úr djasssög-
unni. Á efnisskránni verða m.a. lög
sem þekkt eru í flutningi Billie Holi-
day og Lesters Youngs, Ellu Fitzger-
ald og Louis Armstrongs og verða
þeim Jónasi og Jóni Múla Árnason-
um einnig gerð skil. Marína Ósk
Þórólfsdóttir syngur, Mikael Máni
Ásmundsson leikur á gítar, Þor-
grímur Jónsson á kontrabassa og
Matthías Hemstock á trommur.
Rómantík á Jómfrúnni
FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 186. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Fimm íslensk handknattleikslið
sóttu um að fá að leika í Evrópu-
keppnum á komandi leiktíð. Þrjú
kvennalið sem höfðu þátttökurétt
slepptu því að sækja um. Íslands-
meistarar Selfoss fara í EHF-
keppni karla þar sem þrjú íslensk
lið gætu mögulega leikið. Íslands-
meistarar Vals fara í EHF-keppni
kvenna. »32
Fimm af átta liðum
nýttu rétt sinn
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin Blóðmör, sigursveit
Músíktilrauna í ár, kíkir í heimsókn í
Hljóðfærahúsið, Síðumúla 20, í dag
kl. 17 og tekur nokkur lög og spjall-
ar við gesti. Viðburðurinn er liður í
viðburðasyrpu Hljóðfærahússins,
Heimsókn í Hornið, sem felst í því
að listafólk heimsækir sviðið í horni
verslunarinnar og sýnir hvað í því
býr. Aðgangur er ókeypis.
Blóðmör fer í
heimsókn í Hornið
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hjálmar Friðbergsson, maðurinn á
bak við vefinn Iðnaðarmenn Íslands
(https://idnadarmennislands.is/), hef-
ur ákveðið að útvíkka starfsemina og
efna til keppni um fljótasta iðnaðar-
mann Íslands. Hún snýst ekki um
hver er fljótastur að saga spýtu, mála
vegg eða úrbeina naut heldur um
hlaup upp og niður Helgafell í landi
Hafnarfjarðar.
„Verkefni Iðnaðarmanna Íslands
er að aðstoða almenning við að finna
mann með réttindi í lögverndaðri iðn-
grein, einhvern sem má og kann.
Hlaupakeppnin er liður í því að
tengja saman menntun, iðngreinar og
íþróttir,“ segir Hjálmar.
Þátttakendur í hlaupinu verða að
sýna fram á meistara- eða sveinsbréf
í einni af um 50 löggiltum iðngreinum
hérlendis. Forkeppni stendur yfir frá
10. júlí til 20. ágúst nk. og mega þátt-
takendur hlaupa eins oft og þeir vilja.
Þeir skrá tímann hverju sinni og
senda inn upplýsingar með skjámynd
af tímanum úr appi eins og til dæmis
strava runkeeper. Úrslitahlaupið fer
síðan fram laugardaginn 31. ágúst og
þá keppa þeir sem eru með bestu tím-
ana, tíu karlar og tíu konur.
Árleg hvatning
„Hugmyndin er að þetta verði ár-
legur viðburður og kröfurnar um
réttindi eru til þess að hvetja fólk til
að hefja eða ljúka við iðnnám svo það
geti tekið þátt í keppninni,“ segir
Hjálmar. Hann bendir á að iðn-
greinar séu mismunandi og keppni
um hver sé fljótastur í hinu og þessu
sé þekkt en í þessari keppni ættu allir
að standa nokkuð jafnt að vígi.
Heilsuæði hafi gripið landann og
margir gangi og hlaupi um fjöll og
firnindi.
Markmið Iðnaðarmanna Íslands
ehf. er að gera lífið skemmtilegra.
„Ég renni blint í sjóinn með þetta
hlaup, en lít á það sem ævintýri og
vona að fólk njóti þess,“ segir Hjálm-
ar og leggur áherslu á að þátttakan
sé ókeypis. Hann segist sjálfur ganga
af og til á fjöll og hafi um liðna helgi
farið upp og niður Helgafell á einni
klukkustund, tveimur mínútum og
sextán sekúndum. „En ég er ekki lög-
giltur iðnaðarmaður,“ segir hann.
Hlaupið var kynnt með pósti fyrir
helgi og segist Hjálmar hafa fengið
góð viðbrögð frá fyrirtækjum sem
vilja styrkja viðburðinn og ein-
staklingum sem hafa áhuga á að vera
með. „Allar upplýsingar viðvíkjandi
hlaupinu hafa verið og verða færðar
inn á vef og facebookgrúppu Iðn-
aðarmanna Íslands og ég svara öllum
fyrirspurnum,“ segir Hjálmar
[hjalmar@idnadarmennislands.is].
„Pönnukökudeigið er komið á pönn-
una en ég á eftir að baka hana og í lok
ágúst fáum við að vita hver er fljótasti
iðnaðarmaður landsins.“
Morgunblaðið/Hari
Fljótasti iðnaðar-
maðurinn á Helgafelli
Sveinar og meistarar hlaupa upp og niður fjallið í keppni
Helgafell Hjálmar Friðbergsson líkir
eftir heimsþekktu fagni Usains Bolts,
sprettharðasta manns heims.
HEYRNARSTÖ‹IN
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Hlustaðu
á hjartað þitt
Beltone Trust
™
Beltone Trust™ heyrnartækin
gera þér kleift að heyra jafn-
vel minnstu smáatriði – sem
stundum reynast þau mikil-
vægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum
allan okkar metnað í að veita góða þjónustu
og bjóða upp á hágæða heyrnartæki. Komdu
í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnar-
tæki lánuð til reynslu.