Morgunblaðið - 03.08.2019, Side 1

Morgunblaðið - 03.08.2019, Side 1
Komið að kaflaskilum Lögin fá annaðyfirbragð Myndlistarmaðurinn Sigurður Sævar Magnúsarson segir það vera forréttindi að geta lifað á listinni. Hann boðar tímamót ílistsköpun sinni þegarhann heldur til Evrópuí listnám. 10 4. ÁGÚST 2019 SUNNUDAGUR Flugan ógurlegaþ g y þhvernig íþrótt þeirra er leikin. 14 Moskítóflugan hefur haftmeiri áhrif á söguna enmargan grunar. 6 Andri Ólafs-son heldur tón-leika með MosesHightower áGljúfrasteini þarsem búast mávið s f tónl stem og n Ein u sinnum koma framí róttamenn sem erbre ta ví Breyttu leiknum -to u eika- ningu ánd. L A U G A R D A G U R 3. Á G Ú S T 2 0 1 9 Stofnað 1913  181. tölublað  107. árgangur  GLUGGAR GERÐAR ERU ÞJÓÐARGERSEMI ÞÁTTTAKAN ER AÐAL- ATRIÐIÐ UNGLINGALANDSMÓT 12SKÁLHOLTSKIRKJA 42 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fram undan er sú óvenjulega staða í kjölfar kjarasamninga að kaup- geta launafólks mun aukast vegna lækkandi húsnæðiskostnaðar. Þetta er mat Ara Skúlasonar, sérfræðings hjá Landsbankanum. Þá er jafnframt óvenjulegt að samtímis miklu framboði á hús- næðismarkaði um þessar mundir, í kjölfar framboðsskorts, skuli vera lág verðbólga, lækkandi vextir og mikill stöðugleiki í hagkerfinu. Sá þriðji hæsti á Íslandi Greining Landsbankans bendir til að kostnaður við framfærslu í Evrópu, að meðtaldri húsaleigu, sé aðeins hærri í Noregi og Sviss en á Íslandi. Tölur Eurostat, hagstofu ESB, benda að sama skapi til að húsnæðiskostnaður hafi hækkað mun meira á Íslandi á síðustu árum en í ríkjum ESB. Það á sinn þátt í að Ísland er ofarlega á lista yfir hús- næðiskostnað í Evrópu. Samkvæmt nýrri spá Analytica verður samdráttur í hagkerfinu árin 2019 og 2020 en hagvöxtur 2021. Gangi spáin eftir verða ekki skilyrði til útgreiðslu hagvaxtarauka fyrr en í fyrsta lagi á árinu 2022. »10 Styður kaup- getuna Morgunblaðið/Árni Sæberg Framboð Fjöldi nýrra íbúða er að koma á markaðinn á næstunni.  Óvenjuleg staða á fasteignamarkaðnum Björgunarsveitir voru kallaðar út í gærkvöldi vegna grindhvalavöðu í fjörunni við Útskálakirkju í Garði. Voru hvalirnir um 50-60. Reynt var að smala þeim út á haf á bátum til að fyrirbyggja að þá ræki upp í fjöru. Grindhvalavöður hafa verið að leita nærri ströndum Íslands undanfarið í talsvert auknum mæli miðað við það sem áður tíðkaðist. Síðast var sagt frá grindhvalavöðu í höfninni í Keflavík fyrir viku. Þeir hvalir leituðu að endingu aftur út á haf. Óttast um hvali við Garð Ljósmynd/Víkurfréttir Margrét Þóra Þórsdóttir maggath61@simnet.is „Ég þorði bara alls ekki að vera lengur þarna inni,“ segir Sigurjón Þórsson, bílstjóri hjá Olíudreifingu, sem varð fyrir því óláni í liðinni viku að olíubíll sem hann ók valt á þjóðvegi 1 um Öxnadalsheiði, en fyrstu mönnum á slysvettvang tókst skömmu síðar að toga hann út úr bílflakinu sem olía lak þá úr. Í ítarlegu viðtali við Morgunblaðið rifjar Sigur- jón slysið upp, meðal annars augnablikið þegar hann áttaði sig á því að ekki yrði komist hjá því að bíllinn ylti. „Það sem gerðist var að ég dottaði eitt augnablik undir stýri með þessum afleiðingum,“ segir hann. „Ég man ég hugsaði; þetta verður eitt- hvað, þegar bíllinn var við það að velta fram af,“ segir hann. Það næsta sem hann man var þegar hann var lentur utanvegar, hangandi á hvolfi í ör- yggisbeltinu. Sigurjón hafði að verið undir vinnuálagi dagana fyrir slysið. „Þegar ég fer yfir þetta hef ég eflaust verið þreyttur, en hundsað það, ég hafði unnið mik- ið dagana á undan, en mér fannst ég alveg hress þegar ég mætti til vinnu um morguninn,“ segir hann. Hugsar framtíðina upp á nýtt í rólegheitum Á vettvangi slyssins lak skipagasolía úr bílnum eftir bílveltuna og talið var að um 8 þúsund lítrar hefðu lekið út. Dren var grafið kringum bílinn og olíugildrur settar upp. Þær munu hafa virkað vel samkvæmt upplýsingum blaðsins. Sigurjón hlaut margvíslega áverka í slysinu. Sex rifbein brotnuðu aftan til í baki, loftbrjóst mynd- aðist á vinstra lunga og vökvasöfnun. Þá hruflaðist hann umtalsvert og er mikið marinn, einkum á vinstri hlið líkamans. Þá er styrkur vinstri handar skertur og í vikunni þurfti að flytja hann á Land- spítala með sjúkraflugi sökum þess að æðar í milta höfðu myndað slagæðagúlp. Hann segir ekki ólík- legt að hann muni dveljast á Sjúkrahúsinu á Akur- eyri út mánuðinn eða fram í þann næsta. Áform Sigurjóns um að verða leiðbeinandi við framhaldsskóla eru „fokin út í veður og vind“ að hans sögn og hann kveðst þurfa að hugsa framtíð- ina upp á nýtt í rólegheitum. Þegar slysið varð hafði hann innritað sig í fjarnám til kennsluréttinda við Háskólann á Akureyri. Sigurjón lýsir miklu álagi og áföllum sem hann hefur þurft að glíma við, einkum síðastliðið ár, en á erfiðum stundum hafa synir hans þrír, níu, sex og fjögurra ára, verið hans haldreipi. Hann vill vera til staðar fyrir drengina. Hangandi á hvolfi í beltinu  Olíubílstjóri lýsir bílveltu á Öxnadalsheiði  Dottaði „í augnablik“ undir stýri  Hafði unnið mikið dagana áður  Fortíðin lituð af álagi og erfiðum áföllum Morgunblaðið/Margrét Þóra Bílstjóri Sigurjón kveðst hafa dottað eitt augnablik undir stýri með þeim afleiðingum að bíll hans valt.MÁttaði sig á að velta yrði ekki umflúin »6 Ragnhildur Þrastardóttir Jón Birgir Eiríksson Hópmálsókn er til skoðunar á hend- ur Félagi eldri borgara vegna hækk- unar á verði 68 íbúða á vegum fé- lagsins við afhendingu. Félagið hefur gefið út að vanáætlun fjár- magnskostnaðar vegna lengri fram- kvæmdatíma sé ástæðan. Sigurður Helgi Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Húseigendafélagsins, segir að sé kaupsamningur á þann veg að verð sé fast og ákveðið eigi seljandi að bera kostnaðaraukann. Fólkinu „stillt upp við vegg“ Þannig er málum háttað í þessu tilfelli að sögn Georgs Andra Guð- laugssonar, lögfræðings, fasteigna- sala og tengdasonar hjóna sem keypt höfðu eign í húsinu, en hann telur FEB eiga að taka á sig hækk- að verð sem getur hlaupið á fimm til sjö milljónum króna fyrir hverja íbúð. Heimildir blaðsins herma að Gísli Jafetsson, framkvæmdastjóri FEB, og Þorbergur Halldórsson, formað- ur byggingarnefndar FEB, séu meðal kaupenda. Ellert B. Schram, formaður FEB, staðfesti þetta, en hann segir framkvæmdastjóra og nefndina hafa annast úthlutun íbúð- anna. Ekki fengust upplýsingar um fyrirkomulag hennar í gær. »2 Íhuga hópmálsókn gegn FEB  Tengdasonur kaupanda hefur haft samband við lögmann  FEB beri ábyrgðina  5-7 milljóna króna hækkun á íbúð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.