Morgunblaðið - 03.08.2019, Blaðsíða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019
Minnkar ágang af flugu og fló. Áralöng
Ekkert fosfat er í Staldren. Sótthreinsar
múkk.
nautgripi, hross, fugla, svín og fleira.
20%
afsláttur
Þýski rithöfundurinn Bern-ard Schlink gat sér gottorð þegar skáldsaga hansLesarinn frá 1995 fór sig-
urför um heiminn og var í kjölfarið
gerð að kvikmynd. Leikkonan Kate
Winslet vann til verðlauna fyrir
frammistöðu sína í myndinni á há-
tíðunum BAFTA, Academy Awards
og Golden Globe. Nú hefur Schlink
sent frá sér skáldsöguna Olgu sem
kemur út hér á landi í þýðingu El-
ísu Bjargar Þorsteinsdóttur. Verkið
segir sögu hinn-
ar viljasterku
Olgu, ástar henn-
ar á ævintýra-
manninum Her-
bert og í
bakgrunni má
lesa sögu Þýska-
lands á 20. öld-
inni.
Aðalpersónan
Olga er stórfeng-
leg og ævi henn-
ar viðburðarík en ást hennar á hin-
um fífldjarfa og óraunsæja
draumóramanni Herbert er þunga-
miðja sögunnar. Herbert er nokk-
urs konar táknmynd þjóðar sinnar
og þótt Olga sé fyrst og fremst
saga sterkrar konu er hún einnig
saga Þýskalands á 20. öldinni. Í
verkinu er saga þjóðar þar sem
mikillæti, stolt og þjóðerniskennd
ráða ríkjum sögð frá sjónarhóli
sem hefur í gegnum tíðina ekki
verið áberandi og það gerir höfund-
urinn vel. Hann varpar ljósi á skoð-
anir þýskrar konu sem hefur lifað
tímana tvenna og hefur yfirsýn yfir
sem og innsýn í fortíðina.
Þrátt fyrir að efniviður Olgu sé
spennandi gæti lestur verksins
reynst einhverjum þolinmæðisverk,
ekki vegna þess að sagan sé löng
eða langdregin, né heldur að text-
inn sé erfiður yfirferðar. Út á þýð-
ingu Elísu Bjargar er heldur ekk-
ert að setja. Það er vegna þess
hvernig verkið er byggt upp. Því er
skipt í þrjá hluta og hver hluti þess
er á sinn hátt ófullnægjandi.
Í fyrsta hluta verksins er stíllinn
knappur og farið hratt yfir sögu
sem gerir frásögninni engan greiða.
Farið er yfir ævi Olgu og ástar-
samband hennar við Herbert á
hundavaði sem verður til þess að
lítil dýpt næst sem gerir ást þeirra
ótrúverðuga.
Í öðrum hluta bókarinnar verða
viss umskipti í frásagnarmáta og
þá kemur ýmislegt í ljós sem út-
skýrir stíl þess fyrsta og þar með
verður lesandanum ljóst að líklega
var allt með ráðum gert. Stirð
sögumannsröddin þess á meðal.
Það er þó ekki ljóst að þessar eft-
iráskýringar dugi til þess að bæta
fyrir þurran og óspennandi stílinn
sem einkennir stóran hluta sög-
unnar.
Þriðji hlutinn, þar sem aðal-
persónan Olga fær rödd, er líklega
sá best heppnaði. Þar er stíllinn
ljóðrænn og lesandinn fær að kynn-
ast hugarheimi hinnar viljasterku
konu og ást hennar á Herbert. Þar
er að finna kryddið sem lesandinn
þráði í fyrsta hlutanum. Þar er
finna það sem skilur skáldsögu frá
sagnfræðiriti. Auk þess kemur
fleira í ljós sem dýpkar hina ófull-
nægjandi fyrri hluta bókarinnar.
Með þessu gerir höfundur aftur til-
raun til þess að láta síðari hluta
sögunar bæta þá fyrri upp. Það
tekst upp að vissu marki en það er
óvíst hvort ávinningurinn af þess-
um uppbótum sé biðarinnar virði.
Þegar sögu heillar þjóðar í
hundrað ár og ævisögu stórmerki-
legrar konu er fléttað saman þarf
að öllum líkindum lengri bók en
þessa eða í það minnsta dýpri.
Hinni stórkostlegu persónu Olgu
eru ekki gerð eins góð skil og til-
efni virðist til. Hún fær einfaldlega
ekki nægilegt pláss í verkinu. Les-
andinn fær aldrei að kynnast henni
almennilega. Hann sér aðeins slétt
yfirborðið en það sem kraumar
undir er mest spennandi. Höfund-
urinn myndi að öllum líkindum
færa rök fyrir því að þannig hafi
það einmitt átt að vera enda virðist
myndin sem dregin er upp af aðal-
persónunni vera yfirborðskennd af
ásettu ráði en það er því miður
engu að síður galli á verkinu.
Það er ljóst að verkið hefur sína
kosti. Fléttan er góð, aðalpersónan
heillandi og sögu Þýskalands gerð
ágæt skil frá óvenjulegum sjónar-
hóli. Höfundinum tekst að öllum
líkindum að gera það sem hann
ætlaði sér því hugmyndin að verk-
inu er snjöll, það er hnýtt vel sam-
an og allt gengur upp. Hann hefur
sínar ástæður fyrir því að hafa
verkið eins og það er og að lestri
loknum verður lesandanum ljóst
hvernig í pottinn er búið. Þá loks
virðist verkið vel heppnað en með-
an á lestri stóð var þó ekki alltaf
sömu sögu að segja. Hin snjalla og
vandaða uppsetning sem á að bæta
fyrir og skýra galla verksins dugar
tæpast til þess að heilla lesandann.
Sumar hugmyndir höfundar
hefðu getað verið betur útfærðar
og sumar ákvarðanir hans eru jafn-
vel misráðnar, því persóna á borð
við Olgu á betra skilið. Þó er ekki
þar með sagt að vegna þessara
ágalla ættu lesendur að láta Olgu
fram hjá sér fara því verkið hefur
margt til brunns að bera sem vert
er að kanna.
Snjöll en ófullnægjandi
Schlink „Höfundinum tekst að öllum líkindum að gera það sem hann ætlaði
sér því hugmyndin að verkinu er snjöll, það er hnýtt vel saman og allt geng-
ur upp,“ skrifar rýnir um nýja skáldsögu Bernhards Schlink.
Skáldsaga
Olga bbbnn
Eftir Bernard Schlink.
Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýddi.
Mál og menning, 2019.
Kilja, 260 bls.
RAGNHEIÐUR
BIRGISDÓTTIR
BÆKUR
Tveir prófessorar í Kaliforníu
komu í vikunni fyrir þremur ein-
földum vegasöltum fyrir börn að
leika sér á í rammgerðri stálgirð-
ingunni á landamærum Bandaríkj-
anna, þar sem Sunland-garðurinn í
Kaliforníu mætir Juarez-borg í Chi-
huahuaríki í Mexíkó. Gjörning-
urinn hefur vakið umtalsverða at-
hygli og hafa fjölskyldur mæst við
vegginn og að sögn AFP-fréttaveit-
unnar hafa börn vegið þar salt af
kappi.
Er uppsetning vegasaltanna sögð
ádeila á hugmyndir Trumps Banda-
ríkjaforseta um að lengja vegginn á
landamærunum, sem eru alls um
3.200 km löng.
AFP
Vinsælt Börn mætast við landamærin milli Bandaríkjanna og Mexíkós og
vega salt á þremur plönkum sem prófessorar settu upp fyrir leikinn.
Vega salt á landa-
mæragirðingunni
Þremur dögum eftir að dómstóll í
Los Angeles úrskurðaði að tónlist-
arkonunni Katy Perry bæri að
greiða kristilega rapparanum
Flame bætur fyrir að hafa nýtt bút
út lagi hans „Joyful Noise“ í met-
sölulagi sínu „Dark Horse“ hefur
dómari ákveðið upphæð bótanna.
Perry ber sjálfri að greiða Flame,
sem heitir réttu nafni Marcus Gray,
550 þúsund dali, um 68 milljónir
króna. Þá ber útgáfufélagi Perry,
Capitol, að greiða Flame 1,3 milj-
ónir dala og sex samstarfsmenn
hennar greiða líka, til að mynda
upptökustjórinn 253 þúsnd dali.
Dómstóllinn taldi 22,5 prósent
lags Perry byggð á lagi Flames og
því var dæmt að sá hluti teknanna
af „Dark Horse“ rynni til hans.
AFP
Tónlistarkonan Lagið Dark Horse frá
2013 aflaði Katy Perry mikilla tekna.
Perry greiði Flame
um 68 milljónir
Lára Bryndís
Eggertsdóttir,
organisti í
Hjallakirkju í
Kópavogi, kemur
fram á tvennum
tónleikum í Hall-
grímskirkju um
helgina, á hátíð-
inni Alþjóðlegu
orgelsumri.
Fyrri tónleikarn-
ir eru í dag, laugardag, kl. 12. Þá
leikur Lára verk eftir Johann Seb-
astian Bach og Elsu Barraine.
Á tónleikunum á morgun, sunnu-
dag, kl. 17 eru á efnisskrá verk eft-
ir Bach, Barraine, Vivaldi, Litaize
og Jean Guillou. Lára Bryndís var
áður organisti við Sønderbro-
kirkju í Horsens í Danmörku.
Lára Bryndís kem-
ur tvisvar fram
Lára Bryndís
Eggertsdóttir