Morgunblaðið - 03.08.2019, Síða 12

Morgunblaðið - 03.08.2019, Síða 12
Landverðir Fólkið í Ásbyrgi sem sinnir vörslu þar, við Dettifoss og víðar. Fjölbreytt fræðsludagskrá er í Vatna- jökulsþjóðgarði í allt sumar og er verslunarmannahelgin þar engin undantekning. Landverðir fylgja fólki um áhugaverð svæði innan garðsins og segja fólki frá því sem fyrir augu ber og mælast þessar frásagnir vel fyrir. Má þarna þar nefna fræðslu- göngur um Lakagíga, sem eru alla daga í sumar utan laugardag, og er þá lagt upp klukkan 12 frá bílastæði við Laka. Í Kverkfjöllum eru fræðslu- göngur alla morgna kl. 10. Loks má nefna Ásbyrgi, þar sem er hægt er að taka rölt öll kvöld í sumar og er þá lagt upp frá stóra snyrtihúsinu á tjaldsvæðinu. Einnig eru kl. 11 á morgnana fræðslustundir fyrir börn og er lagt upp frá sama stað. Í Ásbyrgi starfar vaskur hópur landvarða en sl. miðvikudag, 31. júlí, var alþjóðadagur þeirra. Landverðir á Íslandi starfa víðs vegar um landið og eru um 84 landverðir að störfum hjá Vatnajökulsþjóðgarði þetta sumarið, segir á vef stofnunarinnar. Starfið er að mestu sumarstarf en heilsárs- störfum fjölgar. Landverðir sjá til þess að náttúruverndarlögum sé framfylgt og þeir veita upplýsingar, viðhalda innviðum, vakta og veita fræðslu. Í öðrum þjóðgörðum landsins og á friðlýstum svæðum er einnig fjöldi landvarða við störf. Áður hafa þeir sótt sérstök landvarðanámskeið sem Umhverfisstofnun stendur fyrir á hverjum vetri og eru vinsæl. Landverðir eru í lykilhlutverki Fjölbreytt fræðsla í Vatnajökulsþjóðgarði 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019 FORNUBÚÐIR 12, HAFNARFIRÐI | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Vænst er allt að 8.000 mannsá Unglingalandsmót Ung-mennafélags Íslands semvar sett á Höfn í Horna- firði í gærkvöldi. Strax á fimmtudag voru mótsgestir komnir á staðinn og fjölgaði þeim jafnt og þétt allan dag- inn í gær. Þá var hægviðri á Höfn; lágskýjað og um tíu stiga hiti. „Þetta er í raun og veru fullkomið veður til að halda íþróttamót. Við getum ekki kvartað,“ sagði Auður Inga Þor- steinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, í samtali við Morgunblaðið. Vel á annað þúsund ungmenni á aldrinum 11-18 ára taka þátt í keppnisgreinum mótsins, þar sem fótbolti, frjálsar íþróttir, blak og körfubolti njóta mestrar hylli. Jöklar og kökur Einnig verður efnt til keppni í bogfimi, hlaupaskotfimi, frisbígolfi, glímu, götuhjólreiðum, mótorkrossi, stafsetningu, upplestri og köku- skreytingum. Þemað í kökuskreyt- ingakeppninni í ár er jöklar og er það í samræmi við aðstæður á Höfn í Hornafirði þar sem Vatnajökull er í bakgarðinum. Strákarnir mæta Þátttakendur á Unglingalands- móti UMFÍ þurfa hvorki að vera skráðir í ungmenna- né íþróttafélag. Ef viðkomandi vill taka þátt í hóp- íþrótt, knattspyrnu, körfubolta eða einhverri annarri grein, en er ekki í liði, er sá eða sú sett í lið með jafn- öldrum sínum sem geta verið hvað- an sem er af landinu. Með þessu móti er mótið vettvangur nýrra kynna og gleði þar sem allir hafa kost á að njóta. Þátttakan er aðal- atriði. „Mér finnst sérstaklega eftir- tektarvert hve þátttakan í blaki hér á unglingalandsmótinu er góð, það verða um 220 í þeirri keppnisgrein. Svo er gaman að sjá mikla þátttöku stráka 16-18 ára, sem sumir keppa hér í 7-8 íþróttagreinum,“ segir Auð- ur Inga. Þátttakan er aðalatriðið Búist er við um 8.000 manns á Unglingalandsmótið UMFÍ á Höfn í Hornafirði. Körfubolti og kökuskreyt- ingar eru meðal keppnisgreina þar. Kvennabolti Piknik og Orkuboltarnir í hressilegri spyrnu í fótboltanum. Start Benóný Þórhallsson blæs til leiks í knattspyrnu. Ofurhetjur Hressar stelpur úr Fossvogi í Reykjavík. Ljósmynd/Guðmundur Karl Frjálsar Grétar Jónatan Pálmason úr Búðardal mundar spjótið einbeittur á svip og ætlar að ná góðum árangri. Diskó DJ Sura hélt uppi stemningu á fimmtudagskvöld. Leikur Strákar frá Selfossi spiluðu kubb á tjaldsvæðinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.