Morgunblaðið - 03.08.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019
Áætlunarferðum Air Iceland
Connect milli Reykjavíkur og Ísa-
fjarðar verður fækkað úr tveimur í
eina á dag, þriðjudaga og miðviku-
daga, frá nóvember og fram í febr-
úar á komandi vetri. Þá verður
ferðum í Egilsstaðaflugi á sömu
dögum og tímabili fækkað úr
þremur í tvær.
Í Ísafjarðarflugi hefur gangur-
inn verið sá að flogið er vestur
árla dagsins og svo aftur undir
kvöld. Í svartasta skammdeginu er
hins vegar skemmra milli ferða, í
þá fyrri er lagt upp kl. 10:15 og til
baka aftur klukkan 11:20 og svo er
önnur ferð vestur kl. 15:20 og flog-
ið að vestan kl. 16:25. Kemur þar
til að taka þarf sjónflug í björtu
um þröngan Skutulsfjörð þegar
lent er á Ísafjarðarflugvelli og
slíkt er ekki mögulegt þegar
dimmt er orðið. Vélar af gerðinni
Bombardier Q200 sem taka 37 far-
þega eru notaðar í Ísafjarðarflug-
inu. „Nú fellum við út aðra ferðina
á Ísafjörð þessa tvo daga vikunnar
um háveturinn þegar að jafnaði
fæstir farþegar eru. Erum með
þessu að bregðast við aðstæðum á
markaði,“ segir Árni Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Air Iceland
Connect.
Selja tvær flugfélagar
Þessi rök, segir Árni, gilda einn-
ig um Egilsstaðaflugið; að ferðir
þangað tvo daga í vetur verði tvær
í stað þriggja um háveturinn. Í
fluginu þangað hafi jöfnum hönd-
um verið notaðar Bombardier
Q200 og Q400, en hinar síðar-
nefndu taka 76 farþega. Raunar
hafi nú verið ákveðið að fækka og
selja úr flotanum eina vél af hvorri
gerð, þannig að félagið verður í
framtíðinni með tvær Q200 vélar
og aðrar tvær Q400. sbs@mbl.is
Fækka ferðum til Ísafjarð-
ar og Egilsstaða í vetur
Air Iceland Connect bregst við aðstæðum á markaði
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Umferð gekk greiðlega í gær þegar
landinn fór leiðar sinnar um þjóð-
vegina til að njóta verslunarmanna-
helgarinnar, stærstu ferðahelgi árs-
ins. Fjöldi útihátíða og
fjölskylduskemmtana fer fram víða
um land og allir ættu að geta fund-
ið sér eitthvað við hæfi til þess að
verja helginni við.
Gjarnan liggur leið margra úr
höfuðborginni og í gegnum Selfoss,
en fjölmennasta hátíðin fer fram í
Vestmannaeyjum, Þjóðhátíð, sem
nú er haldin á aldarafmæli Vest-
mannaeyjabæjar. Þá er fjöldi sum-
arhúsa á Suðurlandi og tjaldstæða,
en vel mun viðra víðast hvar um
helgina ef marka má veðurspár.
Fjöldi heldur norður í land til Ak-
ureyrar og til Ísafjarðar þar sem
Mýrarboltinn fer fram. Eru þá
ótaldar fjölmargar skemmtanir og
hátíðir.
Þúsundir ferðuðust í gær
Svanur G. Bjarnason, svæð-
isstjóri Vegagerðarinnar á Suður-
landi, segir umferð hafa gengið
greiðlega um Selfoss í gær. „Ég sá
ekki annað en þetta hefði gengið
vel hér á milli. Það voru ekki lang-
ar biðraðir hér við brúna eins og
stundum vill vera,“ segir hann, en
nefnir að þegar mest hafi látið í
dag hafi þó eflaust myndast ein-
hverjar raðir á Suðurlandi.
Unnið er að tvöföldun Suður-
landsvegar milli Hveragerðis og
Selfoss. Þar hefur hámarkshraði
verið lækkaður og ný ökuleið búin
til. Svanur segir að þetta hafi lítil
áhrif haft á umferð. „Þetta olli eng-
um sérstökum töfum,“ segir hann.
Klukkan átta í gærkvöldi hafði
teljari Vegagerðarinnar við Ingólfs-
fjall, milli Hveragerðis og Selfoss,
talið hátt í 14 þúsund bíla frá mið-
nætti í gær. Teljari við Hellu sýndi
tæplega 7 þúsund bíla og teljari við
Markarfljót sýndi rúmlega 6 þús-
und bíla. Á Vesturlandsvegi sýndi
teljari Vegagerðarinnar við Hafn-
arfjall rúmlega 9 þúsund bíla. Telj-
ari á Holtavörðuheiði sýndi rúm-
lega 3 þúsund bíla og teljari á
Öxnadalsheiði sýndi tæplega 3 þús-
und bíla.
Fylgist með mannaferðum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
minnti ökumenn á það á facebook-
síðu sinni að sýna tillitssemi og þol-
inmæði í umferðinni. Í langri
færslu var einnig minnt á reglur
um þá sem hafa eftirvagna og
ferðavagna í eftirdragi og hámarks-
hraða þegar svo ber undir sem er
80 kílómetrar á klukkustund þar
sem hámarkshraði er 90. Þá hvatti
lögregla ferðalanga til þess að hafa
augun opin fyrir grunsamlegum
mannaferðum í hverfum höfuðborg-
arsvæðisins, taka myndir af grun-
samlegu fólki og tilkynna lögreglu.
Umferð gekk
greiðlega um
þjóðvegina
Margar bifreiðar á ferð á Suðurlandi
Vinna vegna tvöföldunar tafði ekki
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
Eyjar Þjóðhátíð var sett við fjöl-
menna og hátíðlega athöfn í gær.
Umferð
» Umferð gekk greiðlega í
byrjun mestu ferðahelgarinnar.
» Framkvæmdir við tvöföldun
Suðurlandsvegar töfðu ekki
fyrir umferð um Suðurland.
» Teljarar Vegagerðarinnar
sýndu háar tölur um uppsafn-
aða umferð í gærkvöldi.
» Lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu mælist til þess að
ökumenn sýni tillitssemi og
þolinmæði.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Undirbúningur fyrir stórtónleika Ed
Sheeran, sem haldnir verða á Laug-
ardalsvelli 10. og 11. ágúst, er nú í
fullum gangi en tekið var formlega
við vellinum í fyrradag. Þetta segir
Ísleifur B. Þórhallsson, fram-
kvæmdastjóri Senu Live sem sér um
framkvæmd tónleikanna.
„Vinnan byrjaði samt á mánudag-
inn en þá var byrjað að setja upp
fyrstu girðingar og taka á móti gám-
um og svona. Nú er allt komið á
fleygiferð. Þetta er algjörlega nýtt
„level“ í umfangi og stærð,“ segir Ís-
leifur. Segist hann eiga von á 55 gám-
um af græjum fyrir tónleikana sem
vegi yfir 1.500 tonn.
„Og okkur fannst mikið þegar það
komu fimm gámar með Justin Tim-
berlake og níu með Justin Bieber,“
segir Ísleifur og hlær.
„Þetta eru lang-, langstærstu tón-
leikar sem hafa verið haldnir á Ís-
landi. Með yfirburðum. Þeir fljúga
inn öllum græjunum sínum. Þeir
flytja til landsins hljóð, svið og ljós
frá útlöndum,“ segir hann og bætir
við: „Þetta er stóra sviðið sem hann
notar á risatónleikum erlendis. Það
er bara komið með það til Íslands
sem er svakalegt.“
Ísleifur segir að erlendir und-
irbúningsaðilar séu farnir að tínast
inn á völlinn en á von á miklum fjölda
í dag.
„Bílastæðin eru að fyllast af gám-
um og það eru framkvæmdir úti um
allt. Samt er meira en vika í tón-
leikana,“ segir hann.
Sheeran fyrr til landsins
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins hyggst Ed Sheeran mæta
til landsins nokkuð
fyrir tónleikana.
Er hann sagður
vera spenntur
fyrir því að
koma og ætli sér
að njóta lands-
ins, sem hann er
mjög hrifinn af, í
nokkra daga áður
en hann mætir
á Laug-
ardals-
völl.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Laugardalsvöllur Starfsmenn unnu við það í gær að leggja plötur á völlinn þar sem sviðið verður um næstu helgi.
55 gámar með Ed
Sheeran til landsins
Undirbúningur á Laugardalsvelli er formlega hafinn
Enn eru örfáir miðar lausir á
aukatónleikana 11. ágúst en mið-
ar á fyrri tónleikana seldust upp
á örskömmum tíma. Með sölunni
var sett Íslandsmet í miðasölu
samkvæmt vef Senu Live. Sam-
anlagt voru í boði 60 þúsund
miðar, 30 þúsund fyrir hvora
tónleika.
Því er ljóst er að stór hluti
þjóðarinnar mun fjölmenna í
Laugardalinn þarnæstu helgi til
að sjá og heyra í Sheeran.
Sérstök Ed Sheeran-verslun
var opnuð í Kringlunni 18. júlí þar
sem tónleikagestum gefst færi á
að nálgast miðana sína og kaupa
Ed Sheeran-varning til að
vera rétt útbúnir fyrir tón-
leikana.
Íslandsmet
í miðasölu
STÓR HLUTI ÞJÓÐARINNAR
ÆTLAR Á TÓNLEIKANA
Ed Sheeran
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flug Vél Air Iceland Connect hefur
sig til flugs. Ferðum verður fækkað.
Ed Sheeran
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
Hotel Globales Playa Estepona
Costa del Sol
13. ágúst í 7 nætur
Verð frá kr.
99.995
Verð frá kr.
136.995
aaaa
ALLT INNIFALIÐ