Morgunblaðið - 03.08.2019, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 03.08.2019, Blaðsíða 28
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SR. ÓLAFAR ÓLAFSDÓTTUR, Efstasundi 95, Reykjavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu í Reykjavík fyrir góða umönnun. Ólafur Bergmann Esther A. Óttarsdóttir Stefán Sturla Svavarsson Inga Ingólfsdóttir Pétur Gautur Svavarsson Berglind Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar LEIFS ØSTERBY CHRISTENSEN rakara. Sérstakar þakkir til starfsfólks Ljósheima fyrir frábæra umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Svandís Jónsdóttir 28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019 Elsku besta mamma, ég trúi því ekki að þú sért farin frá mér, get ekki ímyndað mér lífið án þín. Ég veit þó að þetta var þér fyrir bestu og veit að það verður tekið vel á móti þér, pabbi, Fjal- ar og Benni hafa undirbúið komu þína vel. Þú stóðst þig eins og hetja í veikindum þínum, eins og einn hjúkrunarfræðingurinn sagði við mig, að þú værir hörkutól. Þú misstir mikið þegar pabbi dó og svo þegar mömmu- strákurinn Óli Fjalar og Benni tengdasonur þinn dóu með 20 daga millibili í fyrra og þú varst næstum farin á milli þeirra, lent- ir í öndunarvél. Þegar þú vakn- aðir bað ég þig að fara ekki strax frá okkur, við gætum ekki meir, því þá var Benni orðinn mjög veikur og þú hlustaðir á mig. Þú varst alltaf fyrst á fæð- ingardeildina þegar börnin okk- ar Halla fæddust, enda var nafla- strengurinn á milli okkar ekki slitinn. Krakkarnir gátu ekki eignast betri ömmu og er miss- irinn mjög mikill, en við eigum svo margar minningar um þig sem hjálpa. Þær voru ófáar læknisferðirnar norður sem þú komst með mér í til að hjálpa mér með krakkana þegar Halli var á sjó. Þegar ég fór til Reykja- víkur í aðgerð og mátti ekki fara strax heim vorum við í íbúð og þú hugsaðir svo vel um litlu stelp- una þína. Ég lofaði pabba á dán- arbeð hans að ég skyldi hugsa vel um þig og ég veit að ég stóð við það og er mjög þakklát fyrir það. Við áttum svo góðan tíma saman, ég, þú og Fjalar, þegar við fórum suður í læknisferð og Fjalar tók á móti okkur og var með okkur í bænum. Þú bauðst okkur út að borða í djúpsteiktar rækjur, uppáhaldið þitt. Okkur Herði þótti svo gaman að koma til þín í sumar að horfa á fótboltaleiki í nýja 75" sjónvarpinu þínu. Það verður skrítið að koma ekki í heimsókn á Túngötuna og að fá ekki að heyra í þér, elsku mamma. Þú varst snillingur í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur, sauma, prjóna, smíða, steypa og bara í öllu. Takk fyrir allt sem þú kenndir mér, Hörpu Mjöll, Hildi Báru og Herði Breka. Ég er og verð ævinlega þakklát fyrir að vera dóttir þín, litla peltingin þín. Elska þig, þín dóttir Alda Björk Fossberg Óladóttir. Elsku hjartans mamma. Þú hefur nú fengið hvíldina sem þú varst farin að þrá. Það hefur verið erfitt að heyra þig tala um verki svona lengi og geta ekkert gert. Síðasta ár hefur verið þér sér- staklega erfitt eftir að Fjalar bróðir og Benni mágur kvöddu okkur með stuttu millibili. Þú hefur alltaf verið mín stærsta fyrirmynd í lífinu, gast allt og hef ég oft ekki skilið jafn- aðargeðið sem þú sýndir sama hvað við systkinin ellefu brölluð- um enda voru uppátækin á Tún- götunni æði mörg. Ég man vel þegar ég átti strák- ana mína, þá leitaði ég til þín með allt mögulegt og það brást ekki að þú áttir ráð við öllu. Eins er mér minnisstætt þegar þú, pabbi, Þór- ey, Erla, Alda og Jóhann, þá pínu- lítill, heimsóttuð okkur í Svíþjóð. Okkur þótti svo vænt um að þú skyldir koma, þá í þinni fyrstu ut- anlandsferð og svona hræðilega flughrædd, því við vissum hvernig þér leið. Það er svo margt sem kemur upp í hugann en það verð- ur skrítið að koma ekki lengur í sumarfrí á Túngötuna. Ég er svo þakklát fyrir að hafa getað verið með þér og systkinum mínum síð- ustu stundirnar þínar. Ég veit að þú ert komin á góðan stað þar sem pabbi, Fjalar, Benni og aðrir ætt- ingjar hafa tekið þér opnum örmum. Hvíl í friði, elsku besta mamma. Þín dóttir, Harpa. Það er með miklum söknuði en einnig miklu þakklæti sem ég skrifa þessa kveðju til þín, elsku mamma. Þú varst mögnuð kona og fáir myndu leika eftir þitt lífs- hlaup. Þú átt gæfuríkt líf að baki og eftir stendur stór fjölskylda sem syrgir þig en við vitum að það hafa verið fagnaðarfundir þegar þið pabbi sameinuðust á ný. Þú komst okkur 11 systkinunum til manns og þótt ég segi sjálfur frá tókst ykkur pabba mjög vel upp. Þú varst alla tíð stolt af hópnum þínum og fylgdist vel með á öllum vígstöðvum. Það er skrítið að geta ekki hringt í þig á Túngötuna til að fá fréttir af fjölskyldunni eða spyrja þig ráða. Maður kom aldrei að tómum kofunum hjá þér varðandi ráðleggingar, hvort sem það sner- ist um að gera við bíla eða búa til fiskibollur, þú hafðir alltaf svörin á reiðum höndum. Mér þótti sérstaklega vænt um hvað þú hafðir mikinn áhuga á íþróttaiðkun barnanna minna, þeirra Arnórs Gauta og Brynju Ragnar. Ég hringdi yfirleitt í þig á heimleið af annaðhvort fótbolta- vellinum eða handboltavellinum til að lýsa fyrir þér leikjunum. Og ekki þótti þér verra ef þú gast horft á útsendingu af leikjunum þeirra. Þau eiga eftir að hugsa til þín á vellinum og gera þig stolta. Mamma var sterk, dugleg og atorkusöm kona alla tíð. Þau voru fjölbreytt verkefnin sem hún tók sér fyrir hendur og hún gekk rösklega í öll verk. Hún var mikil handverkskona og er ég sérstak- lega stoltur af að hafa fengið það verkefni að ramma inn fjöldann allan af útsaumsmyndum eftir hana sem prýða nú heimili fjöl- skyldunnar. Ég kynntist þarna stúlku, sem sat á bekk og beið og blíðum augum beint hún á mig starði. Ég bað hana að ganga með mér ofurlitla leið og út við vorum komin fyrr en varði. Og sú sem þarna birtist, varð lífs- hamingja mín. Við saman höfum fetað margan stíginn. Því þó ég hafi brugðist og drukkið mikið vín, þá fyrirgaf hún oft hvað ég var lyginn. (Óli Fossberg) Elsku ofurkona, mamma mín, ég lofa þér því að ég mun halda minningu þinni á lofti og mun segja endalausar sögur af þér, öll- um sem heyra vilja. Það er þér að þakka að ég er sá maður sem ég er í dag. Þinn elskandi sonur Ragnar. Elsku mamma, nú hefur þú kvatt okkur eftir mjög erfið veik- indi og ert farin á vit nýrra æv- intýra þar sem ég veit að það hef- ur verið tekið vel á móti þér. Nú eruð þið pabbi, Fjalar bróðir og Benni mágur sameinuð á ný og eftir situr stórt skarð í mínu hjarta sem enginn mun fylla. Ég verð ykkur pabba ævinlega þakk- lát fyrir hvað þið stóðuð þétt mér við hlið þegar ég eignaðist frum- burðinn minn Jóhann Veigar enda var hann sólargeislinn ykkar eins og segir í textanum sem pabbi samdi um hann. Þið pabbi voruð alltaf til staðar fyrir hann og þú elsku mamma til þíns síðasta dags enda náði hann að koma af sjónum og vera hjá þér síðustu tvo sólar- hringana áður en þú kvaddir. Þeg- ar Thelma og Daði fæddust með tveggja ára millibili varst þú mætt á fæðingardeildina til að taka á móti þeim enda var maður svo öruggur þegar þú varst hjá okkur með þína reynslu, búin að ala upp 11 börn. Og ef eitthvað bjátaði á var talað við þig og þú áttir svör við öllu. Það verður erfitt að geta ekki leitað til þín lengur en ég er svo heppinn að þú skildir eftir níu systkini handa mér sem ég get þá leitað til. Það er erfitt að hugsa til þess að ekki verða farnar fleiri ferðir til þín á Túngötuna í kaffi og til að athuga með þig enda var það þar sem allir hittust og mikið spjallað. Oft voru haldin partí á Túngötunni og er mér minnis- stætt þegar við komum þér á óvart og héldum upp á 75 ára af- mælið þitt. Þar kom saman stór- fjölskyldan og Jónsi í svörtum föt- um kom og spilaði fyrir þig. Þú varst svo ánægð að fá alla til þín og öll þorrablótin sem haldin voru þar, þú varst alltaf til í að hafa gaman í kringum þig. Alltaf varst þú tilbúin að aðstoða mann og leggja fram hjálparhönd þegar þess þurfti. Þau voru ófá skiptin sem þú passaðir fyrir okkur krakkana enda alltaf til staðar fyrir okkur fjölskylduna. Þú kenndir krökkunum mínum svo margt að föndra enda gast þú gert allt og skilur ótal listaverk eftir þig sem við munum varðveita. Þú saumaðir, prjónaðir, smíðaðir, sagaðir út og málaðir. Barna- börnin héldu að þú værir með töfrahendur því ef þau skemmdu eitthvað kom alltaf getur amma ekki lagað þetta? Elsku mamma, ég gæti sagt svo ótal margt fleira en læt þessi fátæklegu orð duga. Ég veit að nú ert þú laus undan öllum þjáningum þínum og líður vel. Ég elska þig, mamma. Þín dóttir Erla Rut Fossberg Óladóttir. Elsku mamma, þá er kallið komið og þú laus við erfiðar þján- ingar, en þú stóðst þig eins og hetja í þessum miklu veikindum. Mikið ofsalega er skrítið og erfitt að hugsa til þess að geta ekki heimsótt þig og spurt þig ráða og spjallað við þig. Ég veit að pabbi, Fjalar bróðir og Benni hafa tekið vel á móti þér og þú ert komin á góðan stað til þeirra. Ég vissi að það var orðinn þinn vilji að fara þangað fyrst svona var komið fyr- ir þér, elsku mamma. Orð fá því ekki lýst hvað það er búið að vera erfitt að horfa upp á þig svona veika og geta ekkert gert. Þú varst kletturinn okkar. Ég man eftir því þegar þú komst til mín í Neskaupstað á spítalann þegar ég var að fara að fæða hana Hjör- dísi Báru mína. Addi minn var fastur úti á sjó og ég var svo heppin að fá þig, reynsluboltann í barneignum, til að aðstoða mig. Það liðu ekki margar mínútur frá því að þú komst til mín og fórst að ráðleggja mér þar til barnið fæddist. Þú varst snillingur í svo mörgu, elsku mamma, handa- vinnan þín svo yndislega falleg og bara allt sem þú gerðir. Við Addi áttum margar notalegar ferðir með þér suður og gott er að hugsa til þeirra þegar söknuðurinn hellist yfir mann. Barnabörnun- um þínum varstu svo góð að þau vissu að þau græddu sko alltaf þegar þau heimsóttu þig, hvort sem það var gúmmí eða kex. Þau elskuðu að koma til þín. Andrea Íris, yngsta ömmubarnið mitt, fórnaði bara höndum þegar hún frétti að þú værir dáin og sagði amma, hver á núna eiginlega að gefa mér gúmmí? Elsku mamma, ég ætla að gera mitt allra besta til að hughreysta og passa litlu pelt- inguna okkar sem á mjög erfitt þessa dagana, ég lofaði þér því. Elsku mamma mín, hvíldu í friði. Þín Hulda. Elsku amma, nú ert þú farin frá mér og ég á eftir að sakna þín svo mikið. Nú ert þú komin til afa. Það var alltaf svo gott að koma til þín á Túngötuna, það var alltaf til nammi hjá þér í búrinu sem ég mátti alltaf fá að smakka. Þegar ég var fimm ára voru mamma og pabbi alltaf í basli við að koma mér á leikskólann því mig langaði ekki að vera þar, ég vildi bara vera hjá þér. Enda fékk ég að hætta á leikskólanum og þú pass- aðir mig þegar mamma var í vinnunni og pabbi á sjó enda brölluðum við mikið saman þessa morgna sem ég var hjá þér. Það var svo gaman að þú skyldir vera hjá okkur síðustu jólin þín og við opnuðum jólapakkana saman. Ég á eftir að sakna jólaboðanna þinna þar sem við hittumst alltaf heima hjá þér á Túngötunni á að- fangadagskvöld. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Elsku amma hvíldu í friði. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Elska þig. Daði Örn Fossberg Davíðsson. Elsku besta amma, þú varst/ ert fyrirmyndin mín og allra Bára Guðmundsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN LÍNDAL BÓASSON vélstjóri, lést á Landspítalanum í Reykjavík miðvikudaginn 24. júlí. Útför Jóns hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sigrún Karlsdóttir Albert Þór Jónsson Elín Þórðardóttir Hörður Jónsson Solveig Gísladóttir Linda Jónsdóttir Yngvi Halldórsson barnabörn og barnabarnabarn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, mágkona, amma og besta vinkona, GUÐBJÖRG ÞÓRISDÓTTIR skólastjóri og kennari, lést við sólarupprás á Droplaugarstöðum föstudaginn 2. ágúst. Útförin verður auglýst síðar. Þóra Karítas Árnadóttir Sigurður Guðjónsson Einar Árnason Árný Ingvarsdóttir Jón Árni Þórisson Guðrún Hafsteinsdóttir Gylfi Þór Þórisson Sigurbjörg Sverrisdóttir Guðný Þórisdóttir Åke Lindell Sverrir Þórisson og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FJÓLA LOFTSDÓTTIR frá Bólstað, lést á hjúkrunarheimilinu Eir í Reykjavík þriðjudaginn 30. júlí. Útför fer fram frá Ríkissal Votta Jehóva, Hraunbæ 113, fimmtudaginn 8. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Parkinsonsamtökin. Aðstandendur þakka starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir góða og hlýja umönnun. Loftur Jóhannsson Katrín Albertsdóttir Ingibjörg G. Jóhannsdóttir Baldvin Þórsson Halldór Jóhannsson Steinunn Harðardóttir Víkingur Jóhannsson Ágústa Rósa Finnlaugsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA BERGÞÓRSDÓTTIR, Laugarnesvegi 89, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk sunnu- daginn 28. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Bergþór Guðjónsson Ingibjörg Guðmundsdóttir Hafsteinn Guðjónsson Anna M. Helgadóttir Birgir Guðjónsson Sigrún B. Kristjánsdóttir Guðjón Þór Guðjónsson Kari Brekke barnabörn og barnabarnabörn Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.         þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber       ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.