Morgunblaðið - 03.08.2019, Blaðsíða 38
38 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019
Þýskaland
B-deild:
Sandhausen – Osnabrück ....................... 0:1
Rúrik Gíslason lék allan leikinn með
Sandhausen.
Pólland
Zaglebie Lubin – Jagiellonia.................. 2:2
Böðvar Böðvarsson spilaði allan leikinn
með Jagiellonia.
B-deild:
Chrobry Glogów – Nieciecza ................. 0:1
Árni Vilhjálmsson var ónotaður vara-
maður hjá Nieciecza.
Frakkland
B-deild:
Grenoble – Ajaccio .................................. 0:1
Kristófer Ingi Kristinsson var ekki í
leikmannahópi Ajaccio.
England
B-deild:
Luton – Middlesbrough........................... 3:3
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Hásteinsvöllur: ÍBV – HK ..................... L14
GOLF
Hið árlega góðgerðamót Nesklúbbsins,
Einvígið á Nesinu, fer fram í 23. skipti á
Seltjarnarnesi á mánudaginn og hefst kl.
13. Tíu af fremstu kylfingum landsins taka
þátt í mótinu, þar af sex atvinnukylfingar.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Frjálsíþróttakeppni Ungmennalandsmóts-
ins á Höfn stendur yfir í dag frá 10 til 15.30
og á morgun frá 10 til 15.45. Keppt er í öll-
um aldursflokkum frá 11 til 18 ára.
UM HELGINA!
EM U18 karla
B-deild í Rúmeníu:
Keppni um sæti 9-16:
Belgía – Írland...................................... 93:70
Hvíta-Rússland – Ísland...................... 93:98
Úkraína – Búlgaría............................... 97:74
Bosnía – Ungverjaland ........................ 76:60
Ísland leikur í dag gegn Belgíu í keppni
um sæti 9-12 og um endanlegt sæti á
mótinu á morgun.
Sögunni endalausu um knatt-
spyrnumanninn Harry Maguire
er að ljúka, en Leicester sam-
þykkti í gær tilboð Manchester
United í enska landsliðsmanninn.
Samningaviðræður félaganna
hafa staðið í svo til allt sumar, en
United mun borga 80 milljónir
punda fyrir Maguire, eða því sem
nemur um 12 milljörðum ís-
lenskra króna.
Maguire verður því meðal dýr-
ustu knattspyrnumanna heims og
dýrasti varnarmaður allra tíma,
en Virgil van Dijk fékk þann titil
eftir að Liverpool keypti hann á
75 milljónir punda í janúar 2018.
Maguire, sem er 26 ára gamall,
mun nú gangast undir læknis-
skoðun á Old Trafford og semja
við United um kaup og kjör.
Hann á að baki tvö tímabil með
Leicester og hefur fest sig í sessi
í enska landsliðinu þar sem hann
hefur spilað 20 leiki.
Maguire verður þriðji enski
leikmaðurinn sem United kaupir í
sumar, á eftir Daniel James frá
Swansea og Aaron Wan-Bissaka
frá Crystal Palace. yrkill@mbl.is
Verður dýr-
asti varnar-
maður heims
Kostar skildinginn Harry Maguire.
AFP
JÚLÍ
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Landsliðsbakvörðurinn Hallbera
Guðný Gísladóttir fékk M í Morgun-
blaðinu fyrir frammistöðu sína í öllum
fimm leikjum Vals í júlí í Pepsi Max-
deild kvenna í knattspyrnu, samtals
sex talsins, og er leikmaður júlí-
mánaðar hjá blaðinu.
Valskonur hafa verið á miklu flugi í
sumar og unnið ellefu af fyrstu tólf
leikjum sínum í deildinni. Valsliðinu
var spáð góðu gengi og virðist allt
vera samkvæmt áætlun hjá þeim.
„Já ég held ég geti sagt það en
kannski má einnig segja að við séum
hundfúlar að vera ekki með fullt hús
stiga. Mér fannst við eiga meira skilið
út úr Blikaleiknum (2:2-jafntefli) en
annars höfum við spilað nokkuð vel.
Það var fúlt að missa þann leik niður í
jafntefli en við áttum að vera búnar að
gera út um leikinn í fyrri hálfleik.
Spilamennskan hefur sveiflast upp og
niður að einhverju leyti en yfirleitt
stöðug. Ég er alla vega mjög sátt við
tímabilið til þessa. Valur og Breiðablik
eru þannig séð hnífjöfn lið og þetta
verður væntanlega barátta fram í síð-
asta leik,“ sagði Hallbera þegar Morg-
unblaðið tók púlsinn á henni.
Í næstsíðustu umferð mætast
Breiðablik og Valur. Miðað við úrslitin
í deildinni til þessa kæmi ekki á óvart
ef sá leikur myndi einfaldlega skera
úr um hvort liðið verður Íslandsmeist-
ari. „Stigataflan lýgur ekki. Þessi lið
hafa staðið sig best í sumar, en við
eigum engu að síður erfiða leiki eftir.
Eigum til dæmis eftir útileiki gegn
Selfossi og Fylki, lið sem hafa verið
spræk. Við erum meðvitaðar um að
leikurinn gegn Blikum verður ekki úr-
slitaleikur nema við náum í stig í leikj-
unum fram að því. Við erum með báða
fætur á jörðinni.“
Voru í takt við veðrið
Valur blandaði sér aldrei í barátt-
una fyrir alvöru í fyrra en liðið var þá
einnig með öflugan leikmannahóp og
sama þjálfara. Hver er helsti munur-
inn á liðinu á milli ára?
„Við vorum svolítið eins og veðrið í
fyrra. Veðrið var ömurlegt og við spil-
uðum ömurlega. Við áttum ekki gott
tímabil í fyrra. Lykilmenn náðu ekki
fram sínu besta, þar á meðal ég. Per-
sónulega er ég mun ánægðari með
mína spilamennsku í sumar en í fyrra.
Við fengum einnig mjög sterka leik-
menn inn eins og Guðnýju og Lillý
sem hafa verið frá-
bærar í vörninni.
Nú náði
Fanndís heilu tíma-
bili með okkur, Hlín lætur
meira til sín taka og Mar-
grét Lára og Dóra María eru
komnar í form eftir meiðsli.
Ég myndi segja að lykilleik-
menn spiluðu allir miklu bet-
ur í ár en í fyrra, Sandra
stendur fyrir sínu í markinu,
auk þess sem nýir leikmenn
hafa passað vel inn í liðið. Þetta
er tvennt ólíkt, tímabilið í sum-
ar og í fyrra.“
Endurheimti leikgleðina
Hallbera hefur verið lengi í
meistaraflokki. Lék erlendis um
tíma og hefur verið árum saman í
landsliðinu. Hefur hún alltaf jafn
mikla ánægju af sparkinu?
„Ef ég á að segja alveg eins og er
þá fannst mér frekar leiðinlegt í fyrra.
Þetta var ekki tímabil sem ég myndi
vilja upplifa aftur og andlega var ég
orðin þreytt. Auðvitað er ömurlegt
þegar liðinu gengur illa og maður spil-
ar ekki sérstaklega vel. En þetta hefur
verið skemmtilegt í sumar og á meðan
hefur maður enga löngun til að hætta.
Eina sem truflar mig er að hásinin
hefur aðeins verið að trufla mig. Ég
hef glímt við það í mörg ár. Að öðru
leyti er ég í toppstandi og eftir þreytt
og erfitt tímabil í fyrra hefur þetta
sumar rifið mann upp aftur,“ útskýrði
Hallbera en á löngum ferli hefur hún
þó verið býsna heppin hvað meiðsli
varðar.
„Ég er svo sem orðin 32 ára og
kannski ekki skrítið að maður finni
fyrir einhverju. Jú það er rétt að ég
hef verið mjög heppin, 7, 9, 13. Ég
missti af einum leik í sumar, bikar-
leiknum á móti Þór/KA, og þá var orð-
ið mjög langt síðan ég hafði ekki getað
spilað vegna meiðsla. Ég vonast nátt-
úrlega til
þess að það
haldi áfram og
ég get alls ekki
kvartað. Sér-
staklega ekki
miðað við
það sem
sumir
liðs-
félaga
minna
eru að
ganga í
gegnum,“
sagði Hallbera
Guðný Gísladóttir í samtali
við Morgunblaðið.
3-4-3
Lið júlímánaðar hjá Morgunblaðinu
Pepsi Max-deild kvenna 2019
Cecilía Rán Rúnarsdóttir
Fylki
Lára Kristín
Pedersen
Þór/KA
Sveindís Jane Jónsdóttir
Kefl avík
Margrét Lára
Viðarsdóttir
Val
Alexandra
Jóhannsdóttir
Breiðabliki
Betsy Hassett
KR
Berglind Björg
Þorvaldsdóttir
Breiðabliki
Ásta Eir Árnadóttir
Breiðabliki
Berglind Rós
Ágústsdóttir
Fylki
Fanndís Friðriksdóttir
Val
Hallbera Guðný
Gísladóttir
Val
Fjöldi sem leikmaður
fékk í mánuðinum5
Varamenn:
Aytac Sharifova, Kefl avík
Kyra Taylor, Fylki
Dóra María Lárusdóttir, Val
Hólmfríður Magnúsdóttir, Selfossi
Cloé Lacasse, ÍBV
Hlín Eiríksdóttir, Val
Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki
4
4
4
5
4
4
4
4
4 6
5
6
5 5
5
5
55
Lykilleikmenn að spila
miklu betur en í fyrra
Hallbera Guðný
Gísladóttir
» Hún er 32 ára gömul,
fædd 14. september
1986 á Akranesi og
lék með meistara-
flokki ÍA frá 2002 til
2005.
» Hallbera lék með Val frá
2006 til 2011 en síðan með
Piteå í sænsku úrvalsdeild-
inni 2012 og 2013.
» Hún spilaði fyrri hluta
ársins með Torres í
ítölsku A-deildinni en
sneri þá aftur til Vals og
lék þar í hálft annað ár.
» Hallbera lék síðan
með Breiðabliki 2015 og
2016, með Djurgården í
sænsku úrvalsdeildinni
2017 en með Val frá 2018.
» Hallbera lék fyrr á
árinu sinn 100. landsleik
og er nú sjöunda leikja-
hæst frá upphafi með
105 A-landsleiki.
» Hún hefur sex sinnum orð-
ið Íslandsmeistari og fimm
sinnum bikarmeistari.
» Hallbera hefur leikið 186
leiki í efstu deild hér á landi
og samtals 256 deildaleiki á
ferlinum en með því er hún
orðin níunda leikjahæsta
knattspyrnukona Íslands í
deildakeppni frá upphafi.
Best Hallbera Guðný
Gísladóttir er leikmaður
júlímánaðar hjá
Morgunblaðinu.
Morgunblaðið/Hari
Hallbera Guðný Gísladóttir segir Valsliðið 2018 og 2019 vera tvennt ólíkt
Er mun ánægðari með eigin frammistöðu í ár eftir erfitt tímabil í fyrra
Hallbera Guðný Gísladóttir, vinstri bakvörður úr Val og lykilleikmaður ís-
lenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu um árabil, var besti leikmaður
júlímánaðar í úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildinni, samkvæmt ein-
kunnagjöf Morgunblaðsins.
Hallbera fékk sex M í fimm leikjum Vals í júlímánuði, einu sinni tvö M og
fjórum sinnum eitt M og með frammistöðu sinni í þessum leikjum er hún
komin í hóp ellefu efstu leikmanna í einkunnagjöf blaðsins í heild sinni fyr-
ir tímabilið með samtals 9 M í tólf leikjum, en stöðuna í einkunnagjöfinni
mátti sjá í föstudagsblaðinu.
Cloé Lacasse úr ÍBV var besti leikmaður maímánaðar og Sveindís Jane
Jónsdóttir úr Keflavík besti leikmaður júnímánaðar eins og fjallað var um í
blaðinu á sínum tíma. Cloé er efst í heildareinkunnagjöf tímabilsins með 15
M samanlagt í tólf leikjum með ÍBV.
Hér til hliðar má sjá úrvalslið júlímánaðar, byggt á einkunnagjöfinni, og
eins og sjá má fékk Alexandra Jóhannsdóttir úr Breiðabliki sex M, eins og
Hallbera. Hún fékk þau hinsvegar í fjórum leikjum. Átta leikmenn voru
síðan á hælum þeirra með fimm M hver.
Fjórir leikmenn eru í liði mánaðarins í annað skipti af þremur á þessu
keppnistímabili. Alexandra og Berglind Björg Þorvaldsdóttir voru einnig í
liði maímánaðar og þær Sveindís Jane og Margrét Lára Viðarsdóttir voru
einnig í liði júnímánaðar.
Breiðablik fékk flest M samanlagt í júlí, samtals 34, en Valur kom næstur
með 33 og Fylkir þar á eftir með 27 M. Selfoss og Stjarnan voru með 23 M
hvort, KR og Þór/KA 22 M hvort, Keflavík 21, ÍBV 20 en HK/Víkingur rak
lestina með aðeins 11 M fyrir fimm leiki í júlí. vs@mbl.is
Hallbera Guðný er
leikmaður júlímánaðar