Morgunblaðið - 03.08.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Opið virka daga kl. 09.00-18.30
og laugardaga kl. 12.00-16.00
VELKOMIN Í
URÐARAPÓTEK
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Illa farið með eldra fólk“
Skoða mögulega málsókn á hendur Félagi eldri borgara Verð hækkar um 5-7
milljónir Kaupverðið fast í kaupsamningi og því verðaukning á ábyrgð seljanda
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Tengdasonur hjóna sem keypt höfðu
íbúð á vegum Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni, FEB, íhugar
að auglýsa eftir þátttöku í hópmál-
sókn á hendur félaginu vegna um og
yfir 10% hækkunar á verði íbúðanna
við afhendingu.
„Það er í skoðun. Ég er búinn að
tala við lögmann sem ætlar að fara
yfir þetta og athuga hvort hann sé til
í að taka þetta að sér,“ segir tengda-
sonurinn, Georg Andri Guðlaugsson,
sem jafnframt er lögfræðingur og
fasteignasali.
Georg telur að FEB eigi að taka á
sig hækkað verð, sem er til komið
vegna ófyrirséðs kostnaðarauka og
getur hlaupið á fimm til sjö milljón-
um fyrir hverja íbúð.
„Þetta er allt unnið með afturlöpp-
unum finnst manni. Þau áttu að fá af-
hent núna 30. júlí en það hafði enginn
samband fyrr en fréttatilkynning um
málið kom í gærkvöldi. Tengdafor-
eldrar mínir eru til dæmis bara flutt-
ir inn til mín þar sem þau seldu sína
gömlu íbúð og þurftu að afhenda
hana fyrir einhverju síðan. Það eru
alveg ábyggilega fleiri í slíkri stöðu,“
segir Georg.
Smáa letrið víðfrægt
Sigurður Helgi Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Húseigendafélagsins
sem jafnframt er lögmaður, segir það
velta á því hvers eðlis kaupsamning-
urinn er hvort hærri kostnaður eigi
að falla á seljendur eða kaupendur.
Sé kaupsamningurinn á þann veg að
verð sé fast og ákveðið eigi seljandi
að bera kostnaðaraukann.
„Smáa letrið er víðfrægt og þar
geta verið einhverjar gildrur, fyrir-
varar, verðhækkanir og fleira sem
getur komið fólki á óvart,“ segir Sig-
urður.
Að sögn Georgs er verðið fast í
kaupsamningnum og ekkert rætt um
mögulega kostnaðarauka.
„Ef kostnaðurinn er fastur þá ber
seljandinn ábyrgðina,“ segir Sigurð-
ur.
Auka baðherbergi juku kostnað
Georg bendir á að fólk eigi á hættu
að verða heimilislaust gangist það
ekki við hærra kaupverði.
„Þetta er bara svo illa farið með
eldra fólk sem er á bilinu 65-85 ára.
Því er stillt upp við vegg því annars
verður það heimilislaust, fólki eru
settir tveir kostir, að kaupa á hærra
verði eða að fallið verði frá kaupunum.
ardaginn bara líða án þess að segja
neitt. Það er ekki hægt að ná í neinn
og allir í sumarfríi.“
Heimildir Morgunblaðsins herma
að kostnaðaraukinn skýrist meðal
annars af því að auka baðherbergjum
hafi verið bætt inn í einhverjar íbúð-
anna á seinni stigum byggingarinnar
og þær íbúðir því með tvö baðher-
bergi en ekki eitt eins og gert var ráð
fyrir til að byrja með. Sigríður Snæ-
björnsdóttir talsmaður FEB stað-
festir það.
„Bygginganefndin hefur ábyggi-
lega tekið þessa ákvörðun í samráði
við verktakann en þetta hefur ekki
komið beint inn á stjórnarborð til
okkar nema bara að okkur var til-
kynnt um þetta á sínum tíma.“
Sigríður segir að málið sé unnið í
miklum samskiptum við lögfræðinga.
„Þetta mál hefur algjörlega verið
unnið með lögfræðingum og við hlít-
um þeirra ráðum.“
Spurð hvort FEB ætti ekki að taka
á sig kostnaðaraukann segir Sigríð-
ur:
„Þetta er rosalega þröng staða og
kemur mikið aftan að okkur í stjórn-
inni og við erum náttúrulega miður
okkar yfir þessu og erum að gera allt
sem við getum til að auðvelda fólki að
takast á við þetta.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Árskógar Blokkin sem um ræðir samanstendur af 68 íbúðum fyrir eldri borgara. FEB ætlar að funda með hverjum
og einum kaupanda en einhverjir hafa gengist við hærra verði. Hinn kosturinn í stöðunni er að falla frá kaupunum.
Umhverfisstofnun hefur ákveðið að
bregðast við álagi á þremur við-
kvæmum náttúruperlum í Mývatns-
sveit með aðgerðum sem leiða munu
til betri stýringar umferðar fólks um
svæðin en verið hefur. Hefur þegar
verið hafist handa um það. Svæðin
eru Hverir, Leirhnjúkur og Stóra-
Víti, öll í landi Reykjahlíðar. Land-
eigandi í Reykjahlíð óskaði eftir því
að Umhverfisstofnun takmarkaði að-
gengi ferðamanna að svæðunum, að
því er segir í tilkynningu.
„Þegar stofnunin auglýsti eftir at-
hugasemdum komu fram skiptar
skoðanir meðal landeigenda sem og
annarra umsagnaraðila um ástand
svæðisins og aðgerðir. Í ljósi vernd-
argildis svæðanna telur Umhverfis-
stofnun rétt að bregðast við með því
að loka hringleið umverfis Stóra-
Víti. Til fleiri ráðstafana verður grip-
ið s.s. með því að fjölga göngustikum
á öllum svæðunum þremur, skerpa
með því á leyfilegum gönguleiðum og
setja upp skilti sem banna ferðafólki
umferð utan þeirra,“ segir í tilkynn-
ingunni. Fimm landverðir munu
vinna að því að vernda svæðið með
þessum hætti næstu daga. Auk þess
mun daglegt eftirlit næstu vikur fara
fram til að fylgja því eftir að reglur
verði virtar.
„Við höfum ekki áður farið þessa
leið en með þessum skrefum von-
umst við til að ná sama árangri og ef
svæðinu hefði verið lokað fyrir um-
ferð ferðafólks,“ segir Sigrún
Ágústsdóttir, staðgengill forstjóra
Umhverfisstofnunar.
Aðgengi takmarkað að nátt-
úruperlum í Mývatnssveit
Um er að ræða Hveri, Leirhnjúk og Stóra-Víti
Ljósmynd/Umhverfisstofnun.
Mývatnssveit Landverðir bregðast
við ágangi ferðamanna.
Rannsókn lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu á eldsvoðanum í atvinnu-
húsnæðinu í Fornubúðum í Hafnar-
firði aðfaranótt miðvikudags miðar
vel. Ekki er talið að nokkuð saknæmt
hafi átt sér stað. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu sem lögreglan hef-
ur sent frá sér vegna málsins.
„Áfram hefur verið unnið við að
yfirfara myndefni frá svæðinu, auk
þess sem rætt hefur verið við vitni.
Ekkert hefur komið fram sem bendir
til þess að eldurinn hafi kviknað af
mannavöldum. Ekki er að vænta
frekari upplýsinga um málið fyrr en
eftir verslunarmannahelgina,“ segir
enn fremur í tilkynningunni. Lög-
reglan hefur afhent tryggingafélagi
hússins vettvanginn en rannsókn
heldur áfram á þeim gögnum sem
fyrir liggja í málinu með það að
markmiði að varpa ljósi á elds-
upptök.
Ekki talið
að kveikt
hafi verið í
Bruni Hluti Fornubúða er nú rústir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið kemur næst út
þriðjudaginn 6. ágúst. Frétta-
þjónusta verður um verslunar-
mannahelgina á fréttavef
Morgunblaðsins, mbl.is. Hægt
er að koma ábendingum um
fréttir á netfangið
netfrett@mbl.is.
Áskrifendaþjónustan er opin
laugardaginn 3. ágúst frá 8-12,
lokað er sunnudaginn 4. ágúst
og mánudaginn 5. ágúst en
opnað aftur þriðjudaginn 6.
ágúst kl. 7. Símanúmer áskrif-
endaþjónustunnar er 569-1122
og netfangið er askrift@mbl.is.
Auglýsingadeildin er lokuð
og verður opnuð aftur þriðju-
daginn 6. ágúst kl. 8. Hægt er
að bóka dánartilkynningar á
mbl.is. Netfang auglýsinga-
deildar er augl@mbl.is.
Fréttaþjónusta
mbl.is um helgina
„Í framhaldi af þessari kostnaðaraukningu munum við
afnema kvaðir sem settar voru inn í fyrsta samning sem
voru þess efnis að fólk geti ekki selt íbúðir sínar á mark-
aðsverði,“ segir Ellert B. Schram, formaður Félags eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni.
„Það verður liðkað til og eitt og annað sem við mynd-
um koma til móts við fólk sem er búið að leggja í það að
kaupa íbúðir. Það var sagt af okkar hálfu að þetta hafi
verið verðið og því var úthlutað á þeim forsendum. Þetta
er spurning um það hvernig við tökumst á við þetta.“
Ellert segir engan möguleika á því að láta íbúðirnar af hendi nema
kaupendur gangist við hærra verði.
„Við getum ekki afhent íbúðirnar nema þetta sé útkljáð.“
Samkvæmt Ellert er verið að vinna að bestu mögulegu niðurstöðu.
„Það byggist náttúrulega á því að fólk þurfi að borga meira en búið var
að tala um en fólk getur bara daginn eftir selt þessa íbúð á hvaða verði
sem er.“
Afnema kvaðir um endursölu
GETA EKKI AFHENT ÁN ÞESS AÐ HÆKKA VERÐ
Ellert B. Schram
FEB ætlar væntanlega að nýta sér
kvaðir um kauprétt í þeim efnum. Ég
held að margir kaupendanna hefðu
ekki ákveðið að selja sína eign ef þeir
hefðu vitað af því að verðið myndi
hækka svona mikið,“ segir Georg
sem furðar sig á framgöngu FEB.
„Tengdaforeldrar mínir kaupa
þarna venjulega þriggja herbergja
íbúð. Í kauptilboðinu átti að afhenda í
júní en svo þegar þau fengu kaup-
samninginn þá var það í júlí. Þegar
líður á júlí fást engin svör. Þeir eru
ekki búnir að koma vel fram, þeir
hefðu átt að láta vita af þessu fyrr í
júlí í staðinn fyrir að láta afhending-