Morgunblaðið - 03.08.2019, Síða 6

Morgunblaðið - 03.08.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019 TAUBLEIUBÚÐIN ÞÍN Kíktu á netverslun okkar bambus.is Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 VIÐTAL Margrét Þóra Þórsdóttir maggath61@simnet.is „Þegar ég ranka við mér er ég að renna út af vinstri kantinum, bíll- inn hafði ekki oltið, hann var á undanhaldi undan brekkunni og ég áttaði mig á að það yrði ekki umflúið að bíllinn myndi velta. Ég man þegar hann var við það að velta fram af kantinum og svo það næsta sem ég man er þegar hann var lentur utanvegar og ég hang- andi í beltinu á hvolfi,“ segir Sig- urjón Þórsson, bílstjóri hjá Olíu- dreifingu, við Morgunblaðið en hann varð fyrir því óláni í liðinni viku að olíubíll sem hann ók valt á þjóðvegi 1 um Öxnadalsheiði, skammt vestan Grjótár. „Það sem gerðist var að ég dott- aði eitt augnablik undir stýri með þessum afleiðingum,“ segir Sig- urjón sem liggur enn á Sjúkrahús- inu á Akureyri. „Þetta verður eitthvað“ Sigurjón lagði upp frá Akureyri miðvikudagsmorguninn 24. júlí með um 30 þúsund lítra af skipa- gasolíu og var á leið fyrst til Sauð- árkróks og síðan Siglufjarðar. Óhappið varð kl. 11.15, eftir um það bil hálftíma akstur. „Þegar ég fer yfir þetta eftir á þá hef ég eflaust verið þreyttur, en hundsað það, ég hafði unnið mikið dagana á undan, en mér fannst ég alveg hress þegar ég mætti til vinnu um morguninn,“ segir hann. Sigurjón segist hafa dottið út í eitt augnablik en það nægði til að svo fór sem fór. „Ég man að ég hugsaði; þetta verður eitthvað, þegar bíllinn var við það að velta fram af.“ Bíllinn var enn í gangi og segir Sigurjón að sín fyrsta hugsun hafi verið að slökkva á honum, lykillinn var brotinn í svissinum og því ekki hægt að drepa á bílnum með hon- um. Hann fór að teygja sig eftir útsláttarrofa bílsins, en innrétt- ingar höfðu allar gengið úr skorð- um, rofinn var ekki á sínum stað auk þess sem það bætti ekki úr skák að vera meiddur og á hvolfi við leitina. Það tókst þó að lokum að drepa á vél bílsins. Þá var næsta hugsun Sigurjóns að losa sig og koma sér úr bílbeltinu. Það gekk eftir nokkr- ar tilraunir. „Ég féll aðeins niður og reyni svo að koma mér inn í miðjan topp bílsins og grúfa mig niður. Þannig var staðan þegar fyrstu menn komu á vettvang, en það voru starfsmenn frá verktakafyrirtæk- inu Víðimelsbræðrum sem voru við vinnu sína í námunda við slysstað. Aðrir vegfarendur komu einnig fljótt að og allt gekk snuðrulaust fyrir sig að mér fannst á slys- staðnum. Ég óskaði eindregið eftir því að vera togaður út úr bílnum, heyrnin var í lagi og ég varð var við að olían lak úr bílnum,“ segir Sigurjón. „Ég þorði bara alls ekki að vera lengur þarna inni.“ Vildi fyrir alla muni komast út úr bílnum Hann segir að sér hafi einnig verið mjög kalt og því fyrir alla muni viljað komast út og fá að- hlynningu. Sjálfur hafi hann verið nokkuð viss um að óhætt væri að toga sig út, hann fann vel fyrir út- limum og taldi ólíklegt að mænan hefði skaðast í slysinu. Dýna úr koju olíubílsins var lögð á jörðina og teppi fundust hér og þar þannig að búið var um Sigurjón þar til læknir og sjúkrabíll komu á stað- inn. Á slysstað var rætt hvort kalla ætti út þyrlu og flytja hann suður til Reykjavíkur eða senda hann með sjúkrabíl á Sjúkrahúsið á Ak- ureyri sem úr varð. Margvíslegir áverkar Sigurjón hlaut margvíslega áverka í slysinu og verður lengi að ná bata, sjálfur telur hann ekki ólíklegt að hann verði á sjúkrahúsi fram eftir ágústmánuði eða jafnvel fram í september. „Ég veit auðvitað ekki á þessari stundu hversu lengi ég verð að jafna mig á þessu en bý mig undir að það verði langur tími,“ segir hann, en 6 rifbein aftan til í baki eru brotin, loftbrjóst myndaðist á vinstra lunga og vökvasöfnun, hann hruflaðist umtalsvert og er mikið marinn, einkum á vinstri hlið og styrkur vinstri handar er skert- ur. Þá hlaut hann áverka á milta sem leiddi til þess að í vikunni var hann fluttur suður á Landspítala með sjúkraflugi í aðgerð. Æðar í milta höfðu farið í sundur og myndað slagæðagúlp sem hætta var á að gæti sprungið. „Það varð þarna bráðainngrip, nauðsynlegt þótti að bregðast hratt við. Að- gerðin var gerð fyrir sunnan og ég svo sendur aftur norður,“ segir hann. Á tímamótum Sigurjón stóð á tímamótum þeg- ar óhappið varð, hafði sagt upp störfum sínum hjá Olíudreifingu á Akureyri þar sem hann hafði starf- að síðan í júní í fyrra. Hann hugð- ist hætta störfum 9. ágúst næst- komandi og flytja austur á Höfn í Hornafirði þar sem hann hafði fengið starf sem leiðbeinandi við Framhaldsskólann í Austur- Skaftafellssýslu. Hann hafði áður kennt við framhaldsskóla eina önn og líkaði vel auk þess sem hann hafði innritað sig í fjarnám til kennsluréttinda við Háskólann á Akureyri. Sigurjón er stúdent frá Menntaskólanum á Egilsstöðum og iðnaðartæknifræðingur frá Háskól- anum í Reykjavík. „Öll mín plön eru auðvitað í kjöl- far þessa slyss fokin út í veður og vind og ég þarf í rólegheitum að hugsa framtíðina upp á nýtt,“ segir Sigurjón. Ljóst er að hann mun ekki geta sinnt starfinu á Höfn, en hann gælir enn við að halda áfram kennsluréttindanáminu. „Það kemur bara í ljós þegar líð- ur á hvort ég hafi þrek til þess,“ segir hann. Sigurjón er fæddur og uppalinn á Djúpavogi og þar búa foreldrar hans sem hafi boðið hon- um að flytja til sín á meðan hann nær bata. „Sá möguleiki er fyrir hendi og gott til þess að vita, en ég ætla að sjá aðeins til hvernig mér reiðir af áður en ég ákveð mig. Þetta verður langt bataferli,“ segir hann. Einhverfa og einelti Sigurjón segist hafa verið undir nokkru álagi undanfarið ár og í raun megi rekja þá sögu lengra aftur í tímann, til barnæsku hans. Sigurjón var á æskuárum greindur með einhverfu, Aspergerheilkenni, en hafði áður verið misgreindur með þroskaskerðingu og þau um- mæli fylgdu að líkast til ætti barn- ið aldrei eftir að læra að lesa og skrifa. Sú hrakspá gekk ekki eftir og hefur Sigurjóni gengið ágætlega að læra, en hann féll ekki alls kostar inn í hóp skólafélaganna, var á öðru róli og því varð hans hlut- skipti líkt og margra sem eins háttar um að lenda í einelti. „Þetta lagðist allt fremur þungt á mig en ég reyndi hvað ég gat að paufast áfram lífsins veg og hóf nám í Menntaskólanum á Egils- stöðum. Þar fór ég alveg á fullt í námi og félagslífi sem endaði með því að ég brann hreinlega yfir og leiddi hugann að því að binda enda á líf mitt. Sem betur fer varð ekki úr þeim áformum mínum og ég fékk þá hjálp sem ég þurfti.“ Vill vera til staðar fyrir syni sína þrjá Sigurjón á þrjá drengi, níu, sex og fjögurra ára. Í september á liðnu ári fæddist honum og þáver- andi eiginkonu hans andvana drengur og segir hann að það hafi verið gríðarlegt áfall, stærra en önnur sem hann hafi lent í. Það var fjölskyldunni allri þung raun og þungur baggi að bera. Svo fór að hjónabandið hélt ekki við þær aðstæður og við tók skilnaður. Sigurjón flutti út frá fjölskyldu sinni í febrúar fyrr á þessu ári og segir að eftir það hafi leiðin legið niður á við, sér hafi fundist allt ganga sér í mót bæði í einkalífi og vinnu, þar sem komu upp tafir, bil- anir og eigin klaufaskapur eins og hann orðar það sem gerði að verk- um að andlega hliðin var veik- burða. „Ég var dapur og fannst ekki neitt ganga upp hjá mér. Í byrjun mars er ég á ferðinni fyrir austan og þá sótti mjög sterkt á mig að þetta væri komið nóg og best að ljúka þessu bara endanlega. En þá komu strákarnir mínir upp í hug- ann, ég vil vera til staðar fyrir þá. Mamma hvatti mig eindregið til að leita á bráðamóttöku daginn eftir hvað ég gerði og fékk aðstoð, þá fór í gang ferli sem varð til þess að ég fór að sjá bjartari hluta tilver- unnar á nýjan leik,“ segir Sigurjón. Hann segir síðustu mánuði hafa verið þokkalega. „En auðvitað hef ég keyrt mig svolítið út í vinnu, fjárhagsstaðan var eftir skilnaðinn frekar bágborin þannig að ég reyndi hvað ég gat að vinna eins mikið og hægt var,“ segir hann að endingu. Rankar við sér og áttar sig á að velta verður ekki umflúin  Sigurjón Þórsson, bílstjóri hjá Olíudreifingu, lýsir slysinu sem hann lenti í á Öxnadalsheiði Morgunblaðið/Margrét Þóra Bataferli „Ég man að ég hugsaði; þetta verður eitthvað, þegar bíllinn var við það að renna út af kantinum og ég sá að velta var óumflýjanleg,“ segir Sigurjón Þórsson, bílstjóri hjá Olíudreifingu, sem lenti í alvarlegu slysi á Öxna- dalsheiði í liðinni viku. Hann er með margvíslega áverka og gerir ráð fyrir að bataferlið verði langt. Hreinsitjörn sem sett var upp á slysstað á Öxnadalsheiði er enn að störf- um, ef svo má segja. Í tönkum bílsins sem Sigurjón Þórsson ók, auk tengivagns, voru um 30 þúsund lítrar af skipagasolíu og var talið að um 8 þúsund lítrar hefðu lekið út. Grafið var dren í kringum bílinn og settar upp olíugildrur svonefndar. Munu þær hafa virkað vel, samkvæmt upplýs- ingum blaðsins en þarna er jarðvegurinn grófur og olían sögð fara hratt í gegn. Skömmu eftir slysið var haft eftir starfsmanni heilbrigðiseftirlits- ins á mbl.is að afleiðingar slyssins hefðu getað orðið mun verri hefði bíll- inn oltið nær vatnsverndarsvæði. Hreinsun stendur enn yfir BÍLL SIGURJÓNS VAR MEÐ 30 ÞÚSUND LÍTRA AF SKIPAGASOLÍU Ljósmynd/Aðsend Velta Olíuflutningabíllinn á hvolfi sem Sigurjón ók fyrir Olíudreifingu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.