Morgunblaðið - 03.08.2019, Side 20

Morgunblaðið - 03.08.2019, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Vilji íbúa erekki í há-vegum hafður hjá þeim, sem ráða ferðinni í Reykjavík- urborg. Nýjasta dæmið um það er að finna við Skúlagöt- una. Borgarráð ákvað fyrir nokkru að reist yrði átta hæða hús á reit við Frakkastíg 1. Í upphafi átti húsið að vera átta hæðir, en síðar var samþykkt að það yrði sjö hæðir. Á þess- um reit er samkvæmt skipu- lagi leyfilegt að reisa allt að sjö hæða hús að því tilskildu að efstu tvær hæðirnar séu inndregnar. Vel þurfi að rök- styðja undanþágu frá þessu skilyrði. Í fyrirhuguðu húsi eru efstu tvær hæðirnar ekki inn- dregnar og nú hefur úrskurð- arnefnd umhverfis- og auð- lindamála komist að þeirri niðurstöðu að röksemdum fyr- ir því hafi verið ábótavant og fellt úr gildi ákvörðun borg- arráðs um að gera þessa breytingu á deiliskipulaginu. Þessi niðurstaða er meðal annars afrakstur baráttu íbúa við Skúlagötu 20. Þar eru íbúðir fyrir aldraða og vildu íbúarnir gæta réttinda sinna. Greint var frá þessu máli í Morgunblaðinu í gær og rætt við Sólveigu Jónsdóttur, einn íbúanna, sem barist hafa gegn fyrirhugaðri byggingu. „Við vorum ekki svo bjartsýn að við ættum von á þessu,“ sagði hún og bætti við: „Við erum voða glöð, en við bara treyst- um engu.“ Ætla hefði mátt eftir þessa nið- urstöðu að borgin myndi láta gott heita og falla frá því að fara gegn skipulaginu. Almennum borg- urum er gert að fara eftir þeim reglum sem settar eru í borginni og því ekki fráleitt að ætlast til þess að þeir, sem fara með valdið, geri það líka, ekki síst þegar þeir hafa verið gerðir afturreka með tilraunir sínar til að fara út fyrir mörk, sem borgin vel að merkja setti sjálf. Tortryggni Sólveigar er hins vegar ekki að ástæðu- lausu því að í blaðinu í gær segir Sigurborg Ósk Haralds- dóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, að borgin muni fara lengra með málið. Sólveig segir að íbúar við Skúlagötuna muni áfram standa vörð um sín réttindi. Svo virðist sem ekki muni veita af. Enn safnast í drjúgan sarp dæma um að borgin láti sér fátt um athugasemdir borg- aranna finnast. Umboðsmaður borgarbúa hefur ítrekað gert því skil hvað erindi borgar- anna geta velkst um í borg- arkerfinu án þess að þeir fái nokkra lausn mála sinna. Þeg- ar það síðan gerist og borgin fær meira að segja högg á puttana er auðmýktin gagn- vart borgurunum ekki meiri en svo að áfram skal haldið með málið, í stað þess að kyngja einfaldlega niðurstöð- unni. Borgin tapar orrustu en ætlar að halda stríðinu áfram } Borgararnir hafa betur Þótt svo eigi aðheita að nú verði hætt að heimta okurvexti af smálánum eftir yfirlýsingu þess efnis frá fyrirtækinu Kredia Group er áfram full ástæða til að hafa varann á sér gagnvart slíkum lánum. Leyfilegir vext- ir eru nefnilega rúmlega 50% á ári og það háir að full ástæða er til að velta fyrir sér skil- greiningunni á orðinu ok- urvextir. Þá var sagt frá því að Al- menn innheimta væri hætt að innheimta lán með hærri vexti en 53,75%. Verulega margir hafa lent í vandræðum vegna smálána og átti það við um meira en helm- ing þeirra, sem í fyrra leituðu til umboðsmanns skuldara. Þá greindu Neytenda- samtökin frá því fyrr í vikunni að enn streymdu inn ábend- ingar vegna innheimtu á ólög- legum smálánum. Ekki væri að sjá að Almenn innheimta hefði látið af inn- heimtu slíkra lána þrátt fyrir yfirlýs- ingar um annað. Þar við bætist að þeir, sem hafa ofgreitt vexti, virðast ekki fá leiðréttingu mála sinna. Það gengur ekki að smá- lánafyrirtæki fari sínu fram án eftirlits og aðhalds. Markhóp- ur þessara fyrirtækja er ein- staklingar með naum fjárráð, sem reynt er að freista til að bjarga sér fyrir horn með láni þótt ljóst megi vera að getan til að endurgreiða það sé ekki fyr- ir hendi. Áður en varir eru þeir orðnir líkt og leiguliðar hjá smálánafyrirtækjunum, fastir í vítahring, sem þeir komast ekki út úr. Full ástæða er til að þessi fyrirtæki verði háð sams konar eftirliti og fjármálafyr- irtæki almennt og böndum verði komið á starfsemi þeirra. Enn er varað við smálánafyrir- tækjunum} Smálánavandinn F élag atvinnurekenda (FA) hefur barist fyrir því að fluttir séu inn lambahryggir. Reyndar hafa ein- hverjir félagsmanna FA nú þegar flutt inn erlenda lambahryggi sem virðast af myndum vera komnir frá Nýja- Sjálandi, hinum megin á hnettinum, eða um 17.000 km í beinni fluglínu, og settir í frost árið 2017. Það er sérkennilegt að fylgjast með mál- flutningnum því ég veit ekki betur en að inn- flutningsaðilar hafi yfir að ráða um 100 tonnum af sk. WTO-innflutningskvóta og því hefði verið hægt að flytja inn hryggi eða annað lambakjöt áður en FA fór af stað með sínar ásakanir. Ólíkt FA efast ég ekki um að bændur og afurðastöðvar fari að lögum en það má spyrja sig hvort ástæða þess að svona umræða, um vöntun á einstaka pörtum af lambakjöti, komi upp sé ein- mitt það lagaumhverfi sem framleiðendur búa við. Þeim er óheimilt að hafa samstarf um framleiðsluna, sem er líkleg- asta leiðin til að tryggja framboð á okkar litla markaði af innlendri framleiðslu. Í dag er hver og einn að selja innan- lands og utan, sem þýðir vitanlega litla yfirsýn. Mín skoð- un er að í kjötframleiðslu eigi að taka upp sama fyrir- komulag og í mjólkinni, þ.e. að heimila afurðastöðvum ákveðið samstarf gegn því að vörur séu tryggðar fyrir ís- lenskan markað með það að markmiði að halda niðri kostnaði. Um þetta hef ég flutt þingmál. Það hefur sýnt sig í mjólkinni að með þessu fyrirkomu- lagi er hægt að stuðla að ýmsum jákvæðum þáttum, t.d. geta neytendur gengið að ákveðnum gæða vörum vísum, hagkvæmni við framleiðslu tryggir sanngjarnt vöruverð, bændum er tryggð ákveðin afkoma, fæðuöryggi lands- manna eykst og öllum er tryggður aðgangur að hráefni svo eitthvað sé nefnt. Flestar verslanir hafa verið með íslenska hryggi í sölu þótt eðlilega hafi dregið úr birgð- um afurðastöðva rétt fyrir sláturtíð. Bændur og afurðastöðvar hafa brugðist við því og ætla að flýta slátrun svo að neytendur geti sem fyrst fengið íslenskar gæðavörur. Félagsmenn FA eru vitanlega ekki í neinni góðgerðastarfsemi, þeir hafa það eitt markmið að hámarka gróða sinn. Það gera þeir m.a. með álagningu og þá virðist skipta litlu máli hvert kolefnisspor vörunnar er eða hvort innlend vara er betri. Neytendur koma alltaf á eftir gróðanum. Málflutningur forsvarsmanns FA um að hann sé að gæta hagsmuna neytenda er því alltaf jafn broslegur. Við ættum því að leitast við að treysta innlenda mat- vælaframleiðslu og tryggja að neytendur séu upplýstir um hvaðan þær vörur koma sem þeim standa til boða, hvort sem er í verslun eða veitingastöðum, hvert kolefnissporið er, notkun lyfja við framleiðsluna o.s.frv. Það er lítil von til þess að FA hafi frumkvæði að slíkri neytendavernd og því þarf ríkisvaldið eða Alþingi að taka frumkvæðið. gunnarbragi@althingi.is Gunnar Bragi Sveinsson Pistill Hryggir Höfundur er þingmaður Suðvesturkjördæmis og varaformaður Miðflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Vitað er til þess að bleiklaxsem tilheyrir ætt kyrra-hafslaxa hafi fyrst veriðveiddur í Hítará á Mýrum 1960. Bleiklaxinn er oftast kallaður hnúðlax hér á landi vegna þess að á baki hænganna myndast hnúður þegar nær dregur hrygningu,“ segir Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri ferskvatnslífríkis hjá Hafrann- sóknastofnun. Hann segir nýgeng- inn hnúðlax mjög bragðgóðan. Gæði hans minnki mjög þegar nær dragi hrygningu og hnúðar eru komnir á bak hans. Þannig hafi indíánar notað hrygndan hnúð- lax sem æti fyrir hunda. ,,Fjölgun hnúðlaxa kemur ekki á óvart enda hafa veiðimenn séð hrygndar hrygn- ur í ám. Hnúðlaxinn er sérstakur að því leyti að tveir stofnar geta verið samtímis í sömu á og á oddatölu- árum veiðast fleiri hnúðlaxar en á sléttum ártölum. 2017-seiðin ganga niður 2018 og koma upp 2019. Eftir fyrstu og einu hrygninguna drepast bæði hrygna og hængur. Það er allt lagt í hrygninguna og tvo þarf til í verkið því hrygnan sleppir ekki hrognunum ef hængurinn er ekki nærri,“ segir Guðni, sem bætir við að hnúðlaxinn sé hafbeitarfiskur frá Kólaskaganum en finnist nú víða í ám á Atlantshafi. Í fyrstu hafi magn- ið ekki verið meira en níu til tíu laxar á ári. 2017 hafi hins verið skráðir yfir 70 hnúðlaxar alls staðar á landinu en fáir hnúðlaxar hafi verið skráðir árið 2018. Engar líkur á blöndun stofna Guðni segir hnúðlaxinn einnig veiðast við vesturströnd Noregs, á Bretlandseyjum, í Frakklandi, Sví- þjóð, Finnlandi og á Spáni. Í bígerð sé að koma á laggirnar samræmdu verkefni milli þessara landa við Norður-Atlantshaf. Til standi að taka vatnasýni og mæla svokallað umhverfis-DNA til þess að fylgjast með hvort hnúðlaxi fjölgi á svæðinu. Engar líkur eru á því að sögn Guðna að hnúðlaxinn blandist öðrum laxastofnum en hann getur verið ágeng tegund og spurningar vakna um hvort hann geti hugsanlega yf- irtekið árnar. Hvort það er gott eða slæmt kemur í ljós í fyllingu tímans. Guðni segir Kanadamenn hafa orðið vara við að rotnandi hnúðlaxar sem drápust eftir hrygningu séu góður áburður í ám og gott æti fyrir næstu kynslóð. Hvort hnúðlaxinn verði viðbót við lax, sjóbleikju og sjó- birting eða skáki einhverju af þeim í burtu sé óvitað en festi hann rætur í ám hér á landi geti það allt eins verið góð viðbót í fánu laxastofnsins og góð búbót fyrir veiðimenn. Það eigi allt eftir að koma í ljós. Að sögn Guðna líkist hnúðlaxinn bleikju þegar hann er nýgenginn, sérstaklega hrygnurnar. Þegar nær dregur hrygningu koma hnúðarnir í ljós og hnúðlaxinn verða auðþekkj- anlegur. Einnig er hægt að þekkja hnúðlax á hvössum tönnum, sem eru fleiri en hjá bleikjunni. Hreistur hnúðlaxa er fíngert og hringlaga dökkar doppur sjást á sporðinum. Á vísindavefnum kemur fram að náttúruleg heimkynni hnúðlaxa séu við strendur norðanverðs Kyrrahafs og Norður-Íshafsins en stofninn hef- ur m.a. verið alinn í vötnunum miklu á landamærum Bandaríkjanna og Kanada og í vestanverðu Rússlandi og Íran. Afleiðingar af fjölgun hnúðlaxa ekki þekktar Ljósmynd/Óskar Páll Sveinsson Nýbúi Hér hafa hnúðlaxar náðst á land, hængur sá neðri og hrygna að ofan. Þessum löxum fjölgar hér, kynþroska eru þeir 1,75-2,5 kg og 45-60 cm. Guðni Guðbergsson „Við vitum af þeim hnúðlöxum sem veiðast en ekki þeim sem veiðast ekki,“ segir Guðni Guð- bergsson, sérfræðingur í fersk- vatnsfiskum. Hann segir að ekki liggi fyrir upplýsingar um fjölda hnúðlaxa í íslenskum ám fyrr en í haust þegar veiðibækur verði teknar saman. Hann viti til þess að fjórir eða fimm hnúðlaxar hafi veiðst í Ölfusá, þrír í Þjórsá, fjórir í Fögruhlíðarósi og tveir í Breiðdalsá. Í Sporðaköstum á mbl.is kom fram að í lok júlí höfðu sex hnúðlaxar veiðst í Selá, tveir í Soginu og einn í Blöndu og Víðidalsá. Guðni segir að hugsanlega séu tveir stofnar sem gangi upp árnar hér á landi. Eftir hrygn- ingu drepist bæði hrygna og hængur. Það sé allt lagt í þetta eina skipti. Guðni segir mikil- vægt að veiðimenn láti vita af hrygndum hrygnum, hrygnu- blettum og hnúðlaxi. Hvort sem hann sé ætur eður ei. Hnúðlax veiðist víða NÝR ÁRNEMI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.