Morgunblaðið - 03.08.2019, Page 26

Morgunblaðið - 03.08.2019, Page 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019 ✝ Jón LíndalBóasson vél- stjóri fæddist 10. júlí 1942. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 24. júlí 2019. Kjörforeldrar: Bóas Albert Páls- son járnsmiður, f. 8. okt. 1913 á Eskifirði, d. 22. des. 1962, og kona hans Ást- ríður Runólfsdóttir, f. 16. júlí 1904, d. 28. jan. 1962. For- eldrar Jóns Líndal til 6 ára aldurs voru hjónin Jón Helgi Líndal Arnfinnsson, f. 15. maí 1912 á Ísafirði, d. 4. nóvember 1948, og Emma Ragnheiður Halldórsdóttir, f. 21. október 1915, í Skálavík, d. 13. októ- ber 1989. Jón Líndal kvæntist eftirlif- andi konu sinni, Sigrúnu Karlsdóttur fulltrúa, f. 30. sept. 1943, þann 7. desember 1963. For. Karl Jóhannesson, kjötiðnaðarmaður í Reykjavík, f. 30. september 1910, d. 12. júlí 2004, og k.h. Guðbjörg Fanney Sigurjónsdóttir, f. 20. sept. 1917, d. 2. maí 1991. Systkini Jóns eru Hafdís, f. 1936, Sævar, f. 1939, d. 2011, Sædís, f. 1946, Hafþór, f. 1947, d. 2004, Sæþór, f. 1947. Hálf- eitt barnabarnabarn. Þau hófu búskap á Hofteigi en bjuggu síðan á Urðarstíg til ársins 1969 þaðan sem þau fluttu í Safamýri sama ár og bjuggu þar til ársins 1974 þegar þau fluttu í Viðjugerði í Reykjavík. Jón lauk vélvirkjanámi í Vélsmiðjunni Héðni 1959-1962 og vélstjóraprófi frá Vélskóla Íslands 1965. Jón lærði járn- smíði í Vélsmiðjunni Héðni á námsárunum og lauk sveins- prófi vorið 1962 og fór síðan í Vélskóla Íslands um haustið. Árið 1966 var Jón vélstjóri á Sigurvon frá Reykjavík. Hann var vélstjóri á aflaskipinu Kristjáni Valgeiri sem gerður var út frá Vopnafirði á ár- unum 1967 til 1969 og síðan varð aflaskipið Grindvíkingur. Þessi fiskveiðiskip voru við þorskveiðar og loðnuveiðar á Íslandsmiðum og síldveiðar í Norðursjó á árunum 1967 til 1977. Frá janúar 1978 til októ- ber sama ár starfaði hann hjá Vinnueftirlitinu. Á árunum 1978-1982 var Jón vélstjóri á skuttogaranum Ögra sem var mikið aflaskip. Frá árinu 1982 til 1992 var hann vélstjóri á strandflutningaskipunum Heklu, Öskju og Esju sem fluttu vörur til allra hafna í kringum Ísland. Frá árinu 1992 til2009 starfaði Jón sem umsjónarmaður Odda, há- skólabyggingar í Háskóla Ís- lands. Undanfarin 10 ár stund- aði hann strandveiðar á strandveiðibátnum Teistunni. Útför Jóns hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. systir Jóns Líndal sammæðra er Ingibjörg Ólafs- dóttir, f. 1933. Börn Jóns og Sigrúnar eru: 1) Albert Þór, f. 18. maí 1962, við- skiptafræðingur, maki: Elín Þórð- ardóttir, f. 6. júlí 1963, rekstrarhag- fræðingur. Börn þeirra eru Aron Þórður, f. 27. júní 1996, og Agla María, f. 5. ágúst 1999. Fyrir átti Albert Þór Söru Margréti, f. 11. maí 1986, maki: Kolbeinn Skag- fjörð Jósteinsson. Barn þeirra er Rakel Skagfjörð. 2) Hörður, f. 23.4. 1967, viðskiptafræð- ingur, maki: Solveig Helga Gísladóttir, f. 28. júlí 1967, bókasafnsfræðingur. Börn þeirra eru Karitas Ósk Harð- ardóttir, f. 24. ágúst 1993, og Róbert Gísli, f. 4. júní 1997. 3) Linda, f. 9. janúar 1978, við- skiptafræðingur, maki: Yngvi Halldórsson, f. 30. júlí 1977, viðskiptafræðingur. Börn þeirra eru Birgitta Rún, f. 15. september 2007, Tómas Ari, f. 9. janúar 2012, og Björgvin Jón, f. 10. apríl 2013. Jón og Sigrún hófu ung búskap árið 1962 og eignuðust þrjú börn og eiga nú átta barnabörn og Ég horfi ein Í dag skein sól á sundin blá og seiddi þá, er sæinn þrá og skipið lagði landi frá. Hvað mundi fremur farmann gleðja? Það syrtir að, er sumir kveðja. Ég horfi ein á eftir þér og skipið ber þig burt frá mér. Ég horfi ein við yztu sker. Því hugur minn er hjá þér bundinn, og löng er nótt við lokuð sundin. En ég skal biðja, og bíða þín uns nóttin dvín og dagur skín. Þó aldrei rætist óskin mín til hinsta dags ég hrópa og kalla, svo heyrast skal um heima alla. (Davíð Stefánsson) Hvíl í friði elsku Nonni minn. Þín Sigrún. Ég er þakklátur föður mínum fyrir góðar stundir og góðar minningar; samverustundir á sjónum þegar ég var ungur að árum, veiðitúra og skemmtileg verkefni sem við unnum í sam- einingu. Skemmtilega tíma í byggingarvinnu við uppbygg- ingu á framtíðarheimili þeirra mömmu og að opna augu mín fyrir því að allt sé mögulegt ef vinnusemi er fyrir hendi. Takk fyrir að vera góð fyrirmynd við að leysa hin ýmsu mál með því að ganga í hlutina. Takk fyrir alla hvatninguna að ganga menntaveginn og nýta hæfileika mína. Pabbi hafði mjög gaman af góðri tónlist og var upp á sitt besta ef taka þurfti fram dans- skóna og láta til sín taka á dansgólfinu en þá naut hann sín best. Það kemur margt upp í hugann þegar ég minnist föður míns en vinnusemi, dugnaður, athafnasemi og ósérhlífni við öll verkefni voru honum eðlislæg. Hann var góð fyrirmynd á mörgum sviðum og kenndi mér margt varðandi verklega hluti en hann hafði unun af því að gera við og byggja upp og snyrtimennska var honum í blóð borin. Einbýlishúsið í Viðjugerði og sumarbústaðurinn Sólheiði í Grímsnesi sem foreldrar mínir reistu bera vitni verkvits, vinnu- semi, dugnaðar og snyrti- mennsku. Foreldrar mínir nutu þess að ferðast um Ísland í tjaldvagni og húsbíl og ófáar ferðirnar sem þau fóru um Ís- land. Íslensk náttúra og at- hafnasemi á landsbyggðinni var pabba hugleikin en hann hafði tekið þátt í uppbygginu síld- arverksmiðjanna á Austfjörðum eftir að hann útskrifaðist úr Vélskóla Íslands. Undanfarin 10 ár stundaði pabbi útgerð á strandveiðibátnum Teistunni og naut þess að fara á sjóinn þar sem hann fékk útrás fyrir at- hafnasemi sína og áhugamál. Pabbi var mikill fjölskyldumað- ur þrátt fyrir mikla fjarveru frá fjölskyldu vegna vinnu sinnar sem sjómaður. Hann hafði gam- an af því þegar öll fjölskyldan hittist og naut sín best í fjör- legum umræðum um landsins gagns og nauðsynjar. Pabbi var skemmtilegur á góðri stundu og hafði gaman af félagsskap skemmtilegs fólks. Hann var af gamla skólanum, harkaði af sér og kvartaði aldrei en var samt undir niðri viðkvæmur og hlýr og mátti ekkert aumt sjá. Hann veitti mörgum hjálparhönd á ýmsan hátt. Pabbi var sjálf- stæður, vinnusamur og lagði sig allan fram við þau verkefni sem hann vann hverju sinni. Þessi gildi eru mikilvæg og gott leið- arljós ef árangur á að nást. Ég er þakklátur fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum sam- an. Ég minnist pabba með mik- illi virðingu og þakklæti. Þinn sonur, Albert Þór. Eftir skammvinn en erfið veikindi er kær faðir minn fall- inn frá. Þetta eru ákveðin þátta- skil í lífinu og þegar maður lítur um öxl er manni efst í huga þakklæti fyrir gott uppeldi þar sem nægjusemi og heiðarleiki voru höfð að leiðarljósi. Nonni, eins og hann var oft kallaður, var vinnusamur maður með en- demum og hann hætti yfirleitt ekki í verki fyrr en annaðhvort var orðið kolniðamyrkur eða nauðsynlega þurfti að hlaða tankinn með svefni. Hann stundaði sjómennsku stóran hluta af uppvaxtarárum mínum og var að jafnaði í löngum fjar- verum frá heimilinu. Eftir að pabbi hætti sjómennsku og kom í land kynntist maður honum enn betur og sá þá betur en þegar maður var að slíta barns- skónum hvers konar dugnaðar- forkur var þar á ferð. Hann var úrræðagóður og handlaginn og gat í raun leyst öll verkefni á sviði viðgerða og framkvæmda og höfum við öll notið góðs af því í gegnum tíðina. Pabbi þurfti alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni og leið honum best ef hann var að sýsla við eitt- hvað, hvort sem það var á heim- ili sínu í Viðjugerði, sumarbú- staðnum í Vaðnesi eða í trillunni sinni sem heitir Teistan. Ferða- lög voru honum hugleikin og fátt þótti honum skemmtilegra en að keyra út í buskann og skoða sig um, hvort sem var innanlands eða erlendis. Elsku pabbi minn, þín verður sárt saknað og heimurinn verð- ur tómlegri án þín. Eins og þú sagðir á síðustu metrunum í lífi þínu varst þú sáttur við lífs- hlaupið og nú ert þú kominn á stað þar sem friður og ró hvíla yfir þér. Takk fyrir lífið sem við áttum saman. Þinn sonur, Hörður. Elsku besti pabbi minn er fallinn frá. Það sem ég á eftir að sakna hans og góðrar nærveru hans. Pabbi var á alveg sér- stökum stalli í mínum huga og hjarta og hef ég alla tíð borið mikla virðingu fyrir dugnaði hans, kappsemi, handlagni og úrræðasemi. Pabbi kvartaði aldrei og gekk beint í þau verk sem þurfti að vinna. Hann kenndi mér að með réttu viðhorfi væri ekkert verk- efni of erfitt eða stórt. Hann var prinsippmaður sem lagði mikla áherslu á að maður þyrfti að vera fjárhagslega sjálfstæður, eiga þak yfir höfuðið og vinna að því að skulda sem minnst. Við systkinin vorum alin upp við mikla nægjusemi og kennt frá unga aldri að peningarnir yxu ekki á trjánum. Pabbi var sérlega hjálpsamur og kappsamur og vildi allt fyrir fjölskylduna gera. Hann lagði mikið á sig við að byggja húsið sem fjölskyldan bjó í frá því áð- ur en ég fæddist og sumarbú- staðinn í sveitinni þar sem mamma og pabbi eyddu mörg- Jón Líndal Bóasson Sálm. 9.11 biblian.is Þeir sem þekkja nafn þitt treysta þér því að þú, Drottinn, bregst ekki þeim sem til þín leita. Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÁLFHEIÐUR UNNARSDÓTTIR, sem lést 22. júlí, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju þriðjudaginn 6. ágúst klukkan 13. Ingólfur Jóhannsson Unnur V. Ingólfsdóttir Guðjón Magnússon Jóhann Ingólfsson Jónína Daníelsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA VIGNIS frá Siglufirði, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn 29. júlí. Útför hennar fer fram frá Siglufjarðarkirkju 9. ágúst klukkan 14. Sigrún Ásta Gunnlaugsdóttir Sveinn Ingi Sveinsson K. Haraldur Gunnlaugsson Alda María Traustadóttir Guðný Gunnlaugsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR ÞORLEIFSSON, Gummi Dolla, skipstjóri, Mörk, Suðurlandsbraut 66, áður Lækjasmára 64, lést sunnudaginn 28. júlí. Útför hans fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn 8. ágúst klukkan 13. Berta Guðný Kjartansdóttir Grétar Birkir Guðmundsson Svanhildur Bjarnadóttir Guðrún Erna Sigurðardóttir G. Vilberg Guðmundsson Jóna Guðrún Vébjörnsdóttir Erla P. Guðmundsdóttir Bernhard A. Petersen Harpa Guðmundsdóttir Jóhann Hafþórsson barnabörn og barnabarnabarn Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, HARPA HJÖRLEIFSDÓTTIR, Barðastöðum 15, Reykjavík, lést á heimili sínu föstudaginn 19. júlí. Jarðsett verður frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 8. ágúst og hefst athöfnin klukkan 13. Þórður Haraldsson Svanur Þórðarson Heiðrún Þorvaldsdóttir Daníel Már Svansson Helga Rós Svansdóttir Emil Máni Svansson og systkini hinnar látnu Ástkær eiginmaður og besti vinur, faðir, tengdafaðir, bróðir og afi, SIGURÐUR SÆVAR KETILSSON, Holtsvegi 27, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 7. ágúst klukkan 11. Guðrún Hjálmarsdóttir Guðmunda D. Sigurðardóttir Árni Möller Hrafnhildur Sigurðardóttir Eiríkur Sigurðsson Ásbjörg Ólöf Sigurðardóttir Kristján Másson Katla Sigurðardóttir Magnús Viðar Heimisson Sigrún Sigurðardóttir Helgi Stefánsson Sigurður Sævar Sigurðsson Jónína R. Ketilsdóttir og afabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR frá Bólstaðarhlíð, dvalarheimilinu Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, lést að morgni þriðjudagsins 30. júlí. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 10. ágúst klukkan 14. Elías Björn Angantýsson og fjölskylda Edda Angantýsdóttir og fjölskylda Ástkær eiginmaður minn og bróðir okkar, ÆVAR ÁRMANNSSON húsasmíðameistari, Borgargerði 2, Stöðvarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Uppsölum miðvikudaginn 31. júlí. Útförin fer fram frá Stöðvarfjarðarkirkju laugardaginn 17. ágúst klukkan 14. Helena B. Hannesdóttir og systkini hins látna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.