Morgunblaðið - 03.08.2019, Side 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019
Kylfingurinn Haraldur Franklín
Magnús er í þriðja sæti, tveimur högg-
um frá efsta manni, fyrir lokahringinn
á Bråviken Open-mótinu í Nordic Golf-
mótaröðinni í Noregi. Haraldur lék
annan hringinn í gær á sex höggum
undir pari og er samanlagt á 13 högg-
um undir pari.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir komst
í gær í gegnum niðurskurðinn á
Amundi Czech Ladies Challenge-
mótinu, en það er hluti af LET Acess-
mótaröðinni í golfi sem er sú næst-
sterkasta í Evrópu. Guðrún var tveim-
ur höggum frá því að missa af niður-
skurðinum, en hún er samanlagt á
tveimur höggum yfir pari vallarins.
Páll Viðar Gíslason hefur látið af
störfum sem þjálfari Magna, sem situr
í botnsæti 1. deildar karla í knatt-
spyrnu. Páll óskaði eftir því að fá að
hætta, en hann tók við liðinu fyrir
tímabilið 2017 og kom því þá upp úr 2.
deildinni, en liðið bjargaði sér frá falli í
lokaumferð 1. deildarinnar í fyrra.
Enska úrvalsdeildarfélagið New-
castle fékk tvo nýja leikmenn til liðs
við sig í gær. Annars vegar var gengið
frá kaupunum á franska kantmann-
inum Allan Saint-Maximin frá Nice
fyrir því sem nemur 20 milljónum
punda, og hins vegar kom hollenski
bakvörðurinn Jetro Willems að láni frá
Eintracht Frankfurt í Þýskalandi.
Þá fékk Gylfi Þór Sigurðsson nýjan
liðsfélaga á miðjuna hjá Everton í gær
þegar liðið keypti Jean-Philippe
Gbamin, landsliðsmann Fílabeins-
strandarinnar, frá Mainz í Þýskalandi.
Körfuboltamaðurinn Ólafur Björn
Gunnlaugsson hefur samið við þýska
A-deildarfélagið Telekom Bonn. Ólafur
er 17 ára gamall og uppalinn hjá Val,
en hann lék með ÍR á síðasta tímabili
og Tindastóli þar á undan. Ólafur hef-
ur leikið með yngri landsliðum Íslands,
meðal annars á Norðurlandamóti U16
ára landsliða fyrr í sumar.
Ísland vann glæsilegan 98:93-sigur
gegn Hvíta-Rússlandi í B-deild Evr-
ópumóts U18-landsliða karla í körfu-
knattleik í Rúmeníu í gær. Dúi Þór
Jónsson fór á kostum í íslenska liðinu
og skoraði 30 stig, en næstur kom
Veigar Páll Alexandersson með 22
stig. Ísland keppir nú um 9.-12. sætið
og mætir Belgíu klukkan 15.30 í dag.
Stéphanie Frappart mun dæma
risaleik Liverpool og Chelsea um Stór-
bikar Evrópu sem fram fer 14. ágúst í
Istanbúl í Tyrklandi, en þar mætast
sigurliðin í Meistara- og Evrópudeild-
inni. Frappart verður fyrsta konan til
þess að dæma í þessum árlega leik, en
hún dæmdi úrslitaleik HM kvenna fyrr
í sumar. Þá varð hún
í vor fyrsta konan
til þess að
dæma karlaleik
í frönsku 1.
deildinni.
Eitt
ogannað
EVRÓPUKEPPNI
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Ríkjandi Íslands- og bikarmeistar-
ar í kvennaliði Breiðabliks leggja
land undir fót nú strax eftir versl-
unarmannahelgi. Blikar halda þá til
Bosníu þar sem liðið leikur í
undankeppni Meistaradeildar
Evrópu í knattspyrnu. Eins og síð-
ustu ár þarf Íslandsmeistaraliðið að
fara í gegnum riðlakeppni til þess
að komast í 32ja-liða úrslit og verð-
ur riðill Blika leikinn í Sarajevó.
Breiðablik leikur fyrsta leikinn
gegn Ísraelsmeisturum ASA Tel-
Aviv á miðvikudag, mæta Norður-
Makedóníumeisturum Dragon á
laugardag eftir viku og leika síðast
13. ágúst gegn heimaliðinu SFK
2000, sem er sigursælasta kvenna-
lið í sögu Bosníu og hefur orðið
landsmeistari þar 17 ár í röð. Þrátt
fyrir að renna nokkuð blint í sjóinn
má búast við því fyrir fram að
heimaliðið verði erfiðasti mótherji
Blika, en aðeins efsta liðið í riðl-
inum kemst áfram í 32ja liða úrslit.
„Við í raun vitum ekki neitt,
maður hefur reynt að gúggla þessi
lið en veit afar lítið. En það er
mjög skemmtilegt líka. Það var
þannig síðast 2016 og það var ótrú-
lega gaman líka að renna alveg
blint í sjóinn,“ sagði Berglind
Björg Þorvaldsdóttir, framherji
Breiðabliks, í samtali við Morgun-
blaðið, en Breiðablik fór síðast
þessa leið fyrir þremur árum og
lék þá í riðlakeppni í Cardiff í
Wales.
Blikar unnu þá riðilinn og mættu
sænska stórliðinu Rosengård í
32ja-liða úrslitum, sem meðal ann-
ars skartaði hinni brasilísku Mörtu
á þeim tíma, og tapaði einvíginu 1:0
í tveimur leikjum. Í fyrra fór Þór/
KA áfram úr riðlakeppni en komst
svo ekki lengra eftir að hafa mætt
Söru Björk Gunnarsdóttur og stór-
liði Wolfsburg. Stjarnan var nálægt
átta liða úrslitunum fyrir tveimur
árum en þangað komst Valur árið
2005 og Breiðablik árið 2006. Þá
var fyrirkomulagið á þann hátt að
fyrst þurfti að vinna undanriðil og
síðan að komast áfram úr milliriðli.
Hafa áhyggjur af hitanum
Blikarnir spiluðu síðasta deildar-
leikinn fyrir ferðina á fimmtudags-
kvöldið gegn Þór/KA og gátu þar
af leiðandi ekki byrjað undirbúning
almennilega fyrr en í gær. Liðið fer
svo út aðfaranótt mánudags og þarf
að millilenda tvisvar á leiðinni, en
Berglind á ekki von á því að ferða-
lagið geri liðinu erfitt fyrir. Mark-
miðið er svo að sjálfsögðu að taka
fyrsta sætið í riðlinum og fara
áfram.
„Það er klárlega markmiðið.
Eina sem við höfum áhyggjur af er
hvað verður mikill hiti þarna. En
við höldum okkur frá sólinni á
milli,“ sagði Berglind, en lang-
tímaspá gerir ráð fyrir um 30 stiga
hita í Sarajevó þegar mest verður á
daginn.
Ef litið er yfir byrjunarlið Blika
sem lék gegn Rosengård fyrir
þremur árum er Berglind ein af
þremur leikmönnum sem enn eru í
liðinu. Hinir eru markvörðurinn
Sonný Lára Þráinsdóttir og miðju-
maðurinn Hildur Antonsdóttir. Þá
voru á bekknum Kristín Dís Árna-
dóttir og Selma Sól Magnúsdóttir,
sem eru jafnan byrjunarliðsmenn í
dag, auk Fjollu Shala sem er tæp
vegna meiðsla. Ásta Eir Árnadóttir
var ekki með 2016 en spilaði hins
vegar með liðinu árið 2010 þegar
viðlíka riðill var spilaður á Kópa-
vogsvelli og Blikar fóru áfram. En
það eru því fjölmargir leikmenn í
liðinu í dag sem ekki hafa kynnst
því að taka þátt í svona verkefni.
Frábært fyrir liðsandann
Berglind er sjálf að taka þátt í
þriðja sinn, eftir að hafa einnig ver-
ið með 2010, og ítrekar að það sé
undir henni og öðrum eldri leik-
mönnum liðsins komið að stíga upp
og hjálpa þeim yngri sem eru að
upplifa svona verkefni í fyrsta sinn.
Þá gerir svona ferð mikið fyrir liðs-
andann sem Berglind telur að
hjálpi einnig þegar heim verður
komið aftur þar sem hnífjafnt
kapphlaup um Íslandsmeistaratit-
ilinn stendur sem hæst við Val.
„Já, algjörlega. Við erum saman
núna á hóteli í einhverja tíu daga
og gerum allt saman. Það er bara
jákvætt fyrir liðið. Það er hægt að
líta á þetta líka sem hálfgerða æf-
ingaferð þar sem við getum stillt
okkur enn betur af og unnið í því
sem við erum góðar í. Þetta mun
hafa mjög góð áhrif,“ sagði Berg-
lind Björg Þorvaldsdóttir við
Morgunblaðið.
Blikar stefna langt í Bosníu
Breiðablik á leið út í undankeppni Meistaradeildarinnar Mæta meisturum
Bosníu, Ísrael og Norður-Makedóníu í Sarajevó Sæti í 32ja liða úrslitum í húfi
Morgunblaðið/Ómar
Reynsla Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur leikið fjölmarga Evrópuleiki
og er hér í leik gegn Juvisy frá Frakklandi á Kópavogsvelli árið 2010.
Góðgerðarmótið Einvígið á Nesinu er
sérlega vel mannað í ár. Eins og áður
fer mótið fram á frídegi verslunar-
manna og er haldið af Nesklúbbnum
á Seltjarnarnesi. Kylfingar sem náð
hafa hvað mestum árangri í atvinnu-
mennsku, eins og Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir og Birgir Leifur Haf-
þórsson, hafa bæði þegið boð um að
vera með. Núverandi Íslandsmeist-
arar, Axel Bóasson og Guðrún Brá
Björgvinsdóttir, verða með. Guð-
mundur Ágúst Kristjánsson og Har-
aldur Franklín Magnús sem leikið
hafa vel á Nordic-mótaröðinni eru á
meðal keppenda. Heimamenn sem
gerþekkja völlinn, Ólafur Björn
Loftsson og Nökkvi Gunnarsson, eru
til alls líklegir en Ólafur hefur aldrei
sigrað á mótinu þrátt fyrir ágætar til-
raunir. Þá krydda gamlar kempur og
fyrrverandi sigurvegarar á mótinu,
Ragnhildur Sigurðardóttir og Björg-
vin Sigurbergsson, keppendalistann.
Björgvin glímir við dóttur sína Guð-
rúnu á mótinu en það hefur einu sinni
gerst áður á Nesinu eða árið 2012.
Einvígið á Nesinu er nú haldið í 23.
sinn á Nesvellinum en í ár er leikið í
þágu Barnaspítala Hringsins og
styrkja Frumherji og KEA hótel
mótið.
Einvígið verður með örlítið breyttu
sniði að þessu sinni. Höggleiks-
keppnin fellur niður og kylfingarnir
mæta beint í einvígið sjálft sem hefst
klukkan 13. Þar fellur eins og áður
einn kylfingur út á hverri holu, þar til
tveir standa eftir og berjast um sig-
urinn á 9. braut.
Keppendalistinn ætti að trekkja að
áhorfendur en alla jafna er vel mætt á
mótið. Verði veður gott standa vonir
Seltirninga til þess að áhorfendur
verði fleiri en nokkru sinni áður.
Keppendur:
Axel Bóasson, GK
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG
Björgvin Sigurbergsson, GK
Guðmundur Ágúst Kristjánsson
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK
Haraldur Franklín Magnús, GR
Nökkvi Gunnarsson, NK
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR
Ólafur Björn Loftsson, GKG
Ragnhildur Sigurðardóttir, GR
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Á Nesinu Birgir Leifur Hafþórsson og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir kapp-
klædd á mótinu árið 2013 en þau eru á meðal keppenda í ár.
Feðgin mætast
á Nesvellinum
Geysilega sterkir keppendur