Morgunblaðið - 03.08.2019, Side 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Viðhald þarf að vera jafnt og þétt,
en í tilfelli Skálholtsdómkirkju hafði
viðhaldsþörfin safnast upp yfir mjög
langan tíma,“ segir Erlendur Hjalta-
son, þriðji formaður Skálholtsfélags-
ins hins nýja. Félagið var stofnað af
áhugamönnum og velunnurum Skál-
holtsstaðar fyrir um sex árum á
grunni eldra félagsins, sem Sigur-
björn Einarsson leiddi, með það að
markmiði að styðja við kirkjulegt og
menningarlegt starf í Skálholti.
Erlendur segir stóran hluta starfs-
ins, í samstarfi við Verndarsjóð Skál-
holtsdómkirkju sem stofnaður var
vegna viðgerða á gluggum Gerðar,
hafa verið helgaðan umræddum við-
gerðum sem lauk síðasta sumar.
„Þá voru allir steindu gluggar
Gerðar teknir úr og fluttir til Þýska-
lands þar sem Oidtmann-verkstæðið
sá um að hreinsa þá og lagfæra. Síð-
an voru þeir settir í aftur og þess
gætt að það lofti um gluggana svo
þeir verði ekki aftur fyrir skemmd-
um vegna hitamismunar sem mynd-
aðist milli steindu glugganna og
venjulega glersins að utan. Frágang-
urinn núna þýðir að gluggarnir verða
í fínu formi næstu 100 árin,“ segir
Erlendur og bendir á að altaristafla
Nínu Tryggvadóttur hafi einnig verið
löguð og pússuð eftir sprungu-
viðgerðir.
Áhugi fyrir fleiri gluggum
„Fyrir liggur að það þarf að mála
Skálholtskirkju og fara í múrvið-
gerðir,“ segir Erlendur og tekur
fram að til að fjármagna þær við-
gerðir hafi félagið, í samstarfi við
Verndarsjóð Skálholtsdómkirkju,
látið framleiða eftirprent af einum
glugga Gerðar. Gripurinn er 10x21
cm, en ljósmynd af upprunalega
glugganum er prentuð á bæði gler og
plexígler sem stendur á þar til gerð-
um stöpli. Gripirnir verða seldir í
Skálholti, í Gerðarsafni og Kirkju-
húsinu. Jafnframt hefur félagið látið
útbúa bækling um myndglugga
Gerðar í Skálholti með texta eftir
Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands
á árunum 1998-2012.
„Myndgluggar Skálholtsdóm-
kirkju eru þjóðargersemi, einhver
fegurstu og dýrmætustu listaverk
sem er að finna í íslenskri kirkju. Það
er von okkar að fólk hafa áhuga á að
eignast smærri útgáfu af þessum
listaverkum til eignar,“ segir Erlend-
ur og rifjar upp að myndgluggarnir
hafi á sínum tíma verið rausnarleg
gjöf þeirra Edvards og Ludvigs
Storr og Svends Lois Foght.
Glugginn sem varð fyrir valinu til
framleiðslu er annar glugginn á
norðurhlið sem er andspænis glugga
sem helgaður er Gissuri Ísleifssyni
biskupi. „Þetta er afskaplega fal-
legur gluggi þar sem krossmarkið
sést vel. Það hefði hver einasti gluggi
getað farið í framleiðslu,“ segir
Erlendur og bendir á að umræddur
gluggi sé helgaður brauði lífsins. „Ef
viðtökur verða góðar höfum við í
hyggju að láta framleiða eftirprent af
fleiri gluggum, enda er þetta tilvalið
til gjafa.“ Af öðrum verkefnum fé-
lagsins segir Erlendur stefnt að því
að færa bókasafn Skálholts-
dómkirkju úr turninum og niður í
gamla biskupshúsið sem verður
útbúið sem móttökuhús fyrir gesti í
Skálholti. „Draumur okkar er að þar
verði kaffihús og móttökusvæði fyrir
Skálholt með sýningum á þeim
merku munum sem tengjast staðn-
um,“ segir Erlendur og bendir á að
markmiðið sé einnig að gera forn-
minjar staðarins aðgengilegri. „Allar
tekjur af sölu glugganna munu renna
í áframhaldandi uppbyggingu í Skál-
holti,“ segir Erlendur að lokum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gluggarnir eru þjóðargersemi
Skálholtsfélagið hið nýja gefur út bækling um myndglugga Gerðar Helga-
dóttur í Skálholtsdómkirkju Hafa látið framleiða eftirprent af einum glugga
Kross Karl Sigurbjörnsson og Erlendur Hjaltason hér að ofan. Til hliðar
er eftirprent af glugga Gerðar Helgadóttur. Um hann segir í bæklingnum:
„Bjart, ávalt form umhverfis krossinn blandast dökkrauðum lit á jöðrum
gluggans og hornum og táknar heilagt sakramenti, brauðið og vínið.“
Sigurður Atli Sigurðsson mynd-
listarmaður opnar í dag, laugar-
dag, kl. 17 sýningu á nýjum mynd-
verkum í Kjallaranum í Geysi
Heima að Skólavörðustíg 12. Sýn-
inguna kallar hann Lágmyndir.
Sigurður Atli lauk meistaranámi
í myndlist í Marseille árið 2013.
Hann hefur tekið þátt í fjölda sam-
sýninga víða um Evrópu og haldið
einkasýningar í Prag, Mílanó, Ham-
borg, Leipzig, Reykjavík og á
Seyðisfirði. Sigurður Atli hefur til-
einkað sér ýmsar aðferðir prent-
listarinnar en einnig unnið með
teikningu, málverk, skúlptúr og
ljósmyndun ásamt innsetningum.
Ljósmynd/Owen Fiene
Listamaðruinn Sigurður Atli sýnir ný
verk á sýningunni í Geysi Heima.
Nýjar lágmyndir
Sigurðar Atla
Harold „Hal“
Prince, einn
áhrifamesti leik-
stjóri og fram-
leiðandi söng-
leikja á Broad-
way áratugum
saman, er látinn
91 árs að aldri.
Að sögn kynn-
ingarfulltrúa
hans lést Prince í Reykjavík á mið-
vikudaginn var eftir skammvinn
veikindi.
Í fréttum stórblaða er Prince
sagður hafa þanið út möguleika
stórra söngleikjasýninga en hann
hreppti alls 21 Tony-verðlaun fyrir
uppsetningu sýninga á borð við The
Phantom of the Opera, Cabaret,
Company og Sweeney Todd.
Goðsögn í söng-
leikjaheimi látin
Harold Prince
Sýningin Lítils háttar væta – Staf-
ræn öld Vatnsberans verður opnuð í
Verksmiðjunni á Hjalteyri í dag,
laugardag, klukkan 14. Á sýning-
unni eru verk eftir listamennina
Bryndísi Hrönn Ragnarsdóttur,
Eygló Harðardóttur, Geirþrúði
Finnbogadóttur Hjörvar, Lee Lor-
enzo Lynch, Dan deMarre, Ólöfu
Helgu Helgadóttur, Pál Hauk
Björnsson, Pétur Má Gunnarsson og
Þorbjörgu Jónsdóttur. Sýning-
arstjóri er Erin Honeycutt.
Í tilkynningu segir að sýningin
kanni „samskipti vatns sem mynd-
hverfingar undirmeðvitundarinnar
og flæði stafrænna upplýsinga sem
nútímasamfélag byggist á og minnir
á að upplýsingar eru grundvöllur
konseptlistar“.
Listamennirnir vinna í ýmsa
miðla. Páll Haukur sýnir til að
mynda þriggja rása myndbands-
verk, Geirþrúður innsetningu þrí-
víðra verka og Pétur notar verk-
smiðjuna til að ramma inn skúlptúra.
Sýningin stendur til 8. september.
Opið er alla daga vikunnar nema
mánudaga, frá kl. 14 til 17.
Stafræn öld Vatnsberans á Hjalteyri
Myndverk Listamennirnir sem sýna á
Hjalteyri vinna fjölbreytileg verk.
Saksóknari í Sví-
þjóð fór í gær, á
lokadegi réttar-
haldanna yfir
bandaríska rapp-
aranum A$AP
Rocky, fram á að
hann yrði ásamt
félögum sínum
tveimur dæmdur
í sex mánaða
fangelsi fyrir grófa líkamsárás í
Stokkhólmi 30. júní. Verjandi
A$AP Rocky krafðist þess hins veg-
ar að tekið yrði mið af nýlegu
dómafordæmi, en 2016 var 15 ára
einstaklingi gert að afplána refsi-
dóm í formi 30 daga samfélagsþjón-
ustu. Þetta kemur fram á vef SVT. Í
frétt Politiken kemur fram að
A$AP Rocky hafi á lokadegi rétt-
arhaldanna lýst sig viljugan til að
sinna samfélagsþjónustu. „Þið vitið
hvar ég bý og hafið allar upplýs-
ingar til að ná sambandi við mig og
verjanda minn. Ég vinn að velgjörð-
armálum, svo ég hef ekkert á móti
því að sinna slíku um helgar. Ég er
auðveldur,“ sagði A$AP Rocky í
rétttarsalnum.
Vill gjarnan sinna samfélagsþjónustu
A$AP Rocky