Morgunblaðið - 08.08.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2019
Selfoss // Akureyr i // Egilsstaðir // Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Bergen garðhús eru fáanleg í fjórum stærðum. Frá 5 m2 upp í 14,9 m2.
Húsin eru vönduð, sterkbyggð og þola vel íslenska veðrið!
Frá kr.
299.900Garðhús
Bergen
*30% stafestingargjald greiðist við pöntun.
Ný sending
á leiðinni!
40.000
kr. afsláttur
ef pantað er
fyrir
15. ágúst nk.
*
HA
PPATALA
•
D
AGSINS
ER
•4
TIL HAMINGJU - ÞÚ HEFUR FUNDIÐ HAPPATÖLUNA!
Farðu inn ámbl.is/fimmtudagur, fylltu út upplýsingar um þig og sláðu inn Happatöluna.
Vinningshafar verða dregnir út í þættinum Ísland vaknar á K100 í fyrramálið.
Að sjálfsögðu hvetjum við þig til að taka þátt á hverjum fimmtudegi, því það er til mikils að vinna.
Glærir kassar sem innihalda Heinz-tómatsósu og sósu-
skál eru nú til sýnis á nokkrum veitingastöðum í Reykja-
vík. Eru kassarnir merktir á ensku: „In case of Ed Sheer-
an“, sem mætti þýða: „Ef ske kynni að Ed Sheeran mæti“
en aðeins tveir dagar eru í stórtónleika breska tónlistar-
mannsins sem haldnir verða á Laugardalsvelli á laug-
ardag og sunnudag næstkomandi. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins ætlar Sheeran að taka sér stutt frí fyrir
tónleikana og mæta fyrr til landsins.
Ed Sheeran er sérlegur aðdáandi Heinz-tómatsós-
unnar og hafði frumkvæði að því fyrir skömmu að biðja
fyrirtækið, sem fagnar 150 ára afmæli á árinu, um sam-
starf. Lovísa Jenný Sigurðardóttir, markaðsstjóri Innnes,
sem er umboðsaðili fyrir Heinz á Íslandi, staðfestir að
heildverslunin standi á bak við fyrrnefnda Heinz-kassa
og segir að Innnes hafi haft samband við nokkra af helstu
veitingastöðum í Reykjavík sem séu í nálægð við tón-
leikastaðinn.
„Ef hann mætir á svæðið eru þeir bara klárir með
Heinz-tómatsósu fyrir hann,“ segir Lovísa í samtali við
Morgunblaðið. Ellefu veitingastaðir taka þátt í verkefn-
inu, m.a. Matarkjallarinn, Reykjavík Meat og Humar-
húsið.
Stefanía Lára Magnúsdóttir, vaktstjóri á Humarhús-
inu, segir að mikil spenna ríki á veitingastaðnum fyrir
komu Ed Sheeran til landsins en tómatsósukassanum var
stillt upp í síðustu viku. Segir hún að það sé heiður að
Humarhúsið hafi verið valið sem einn af þeim veit-
ingastöðum sem væru taldir líklegir til að Ed Sheeran
myndi velja að borða á.
„Við erum „fine dining“-veitingastaður svo við bjóðum
venjulega ekki upp á tómatsósu hérna. Þetta var líka gert
þannig að við myndum vera með tómatsósu til öryggis ef
hann skyldi koma,“ segir Stefanía. „Erum bæði með
þessa í kassanum og svo fengum við aðra til að hafa í kæl-
inum fyrir hann sérstaklega,“ segir hún og hlær. Segir
hún að starfsmenn Humarhússins vonist eftir því að Ed
Sheeran velji að snæða á staðnum. „Hann er þekktur fyr-
ir að velja öðruvísi staði og öðruvísi matargerð og fá sér
tómatsósu með henni. Það er ekki normið að fólk fái sér
tómatsósu með humri þannig að við höldum í vonina um
að hann komi. Það eru alla vega allir viðbúnir ef hann
skyldi koma,“ segir Stefanía.
Guðmundur Víðir Víðisson, einn af eigendum Reykja-
vík Meat, segir veitingastaðinn hafa fengið nokkur við-
brögð vegna kassans. „Við erum með þetta inni í vín-
búrinu hjá okkur þannig að fólk sér þetta þegar það
kemur inn,“ segir hann. Aðspurður segist hann vonast
eftir því að Ed Sheeran velji að snæða á Reykjavík Meat.
Segir sérstakt Ed Sheeran-tilboð verða í boði á staðnum
um helgina sem verði opnaður fyrr en venjulega fyrir
fólk sem vilji fá sér í gogginn fyrir tónleikana.
Sjálfur ætlar Guðmundur á aukatónleika Ed Sheeran
á sunnudaginn og hlakkar mikið til.
„Þetta verður mjög gaman. Þetta er mjög góð tónlist
hjá honum,“ segir hann.
Veitingastaðir tilbúnir
með Heinz fyrir Sheeran
Bjóða venjulega ekki upp á tómatsósu með humri
Ljósmynd/Reykjavík Meat
Heinz Sheeran mun ekki skorta sósu á landinu.
Um 8.400 manns hafa þegar skráð
sig á Reykjavíkurmaraþonið sem
haldið verður 24. ágúst næstkom-
andi. Er þetta 1% fjölgun frá því á
sama tíma í fyrra samkvæmt upp-
lýsingum frá Íþróttabandalagi
Reykjavíkur sem hefur umsjón með
viðburðinum. Mikil fækkun hefur
orðið á útlendingum sem eru nú
20% færri en á sama tíma í fyrra en
Íslendingum hefur fjölgað um 15%.
Eins og áður hafa flestir skráð
sig í 10 kílómetra hlaupið en um
4.000 manns hafa skráð sig til þátt-
töku í því.
Þegar hafa safnast rúmlega 30
milljónir króna í áheitum sem er
35% meira en á sama tíma í fyrra en
þá höfðu safnast 24 milljónir.
„Þessar tölur gleðja okkur mikið.
Þetta er bara ívið betra en í fyrra,“
segir Anna Lilja Sigurðardóttir,
upplýsinga- og samskiptastjóri
íþróttabandalagsins.
Hægt er að skrá sig í Reykjavík-
urmaraþonið til hádegis hinn 22.
ágúst. rosa@mbl.is
Hafa safnað 35% meira í maraþonáheitum
Morgunblaðið/Eggert
Fjöldi Um 8.400 manns hafa þegar
skráð sig í Reykjavíkurmaraþonið.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Ellert Schram, formaður Félags
eldri borgara í Reykjavík og ná-
grenni (FEB), telur ekkert athuga-
vert við það að Gísli Jafetsson,
framkvæmdastjóri félagsins, og
Þorbergur Halldórsson, formaður
byggingarnefndar félagsins, hafi
fengið úthlutað íbúðum í húsi sem
Félag eldri borgara byggði fyrir
sína félagsmenn að Árskógum.
Gísli og Þorbergur voru meðal
þeirra sem önnuðust val á umsækj-
endum en umsækjendur voru fjöl-
margir að sögn Ellerts.
„Þeir [Gísli og Þorbergur] eru
meðlimir í félaginu eins og aðrir,“
segir Ellert sem getur ekki greint
nánar frá því hvernig staðið var að
vali á umsækjendum.
„Það var bara sett fólk í það og
ég fór auðvitað ekki að skipta mér
af því,“ segir Ellert. Heimildir
Morgunblaðsins herma að bróðir
Þorbergs hafi einnig fengið íbúð
úthlutað en Ellert gat ekki staðfest
það.
„Ég treysti bara mínu fólki og
við erum ekkert að fara að velja
þennan í staðinn fyrir hinn. Fólk í
okkar félagi á allt rétt á að sækja
þarna um hvort sem það er skylt
eða tengt einhverjum eða ekki,“
segir Ellert.
FEB hefur áður staðið að bygg-
ingu íbúða. Ellert segir að ekki
hafi verið stofnað byggingafélag til
þess að ráðast í framkvæmdirnar
heldur séu þær alfarið ábyrgð
FEB.
Spurður hvort fleiri fram-
kvæmdir séu í kortunum segir Ell-
ert:
„Við höfum sótt um lóðir hjá
Reykjavíkurborg og þær liggja enn
hjá þeim. Við höfum fengið vilyrði
fyrir lóð fyrir ofan Háteigsveg.“
Engar framkvæmdir eru þó í
gangi á vegum félagsins.
„Það hefur verið bið á því vegna
þess að það hefur ekki verið af-
greitt frá borginni enn þá,“ segir
Ellert sem segir stöðuna í máli Ár-
skóga ekki endilega setja framtíð-
arframkvæmdir á vegum FEB úr
skorðum.
Eins og Morgunblaðið hefur
fjallað um undanfarið varð van-
reiknun á verði íbúða á vegum
FEB til þess að íbúðirnar hækk-
uðu í verði um 4-7 milljónir króna.
Kaupendum eru nú settir afarkost-
ir, að samþykkja hækkað kaupverð
eða falla frá kaupunum.
12 íbúðir mögulega
ekki seldar
Vilhjálmur Þ. Á. Vilhjálmsson,
hæstaréttarlögmaður hjá Lög-
fræðistofu Reykjavíkur, er einn af
þeim lögmönnum sem hefur fengið
málið inn á sitt borð. Hann segir
rétt kaupenda augljósan, þeir þurfi
ekki að bera aukinn kostnað. „Ég
þurfti ekki einu sinni að skoða
kaupsamninginn. Bara það að það
væri verið að boða til fundar sagði
mér að það væri ekki mælt fyrir
um þetta í kaupsamningi. Annars
hefði ekki verið boðað til fundar.
Annars hefðu kaupendur bara
fengið bréf þar sem vísað væri í
ákvæði í samningi.“
Skjólstæðingur Vilhjálms er að
velta sinni stöðu fyrir sér enda
geta málaferli verið erfið. Vilhjálm-
ur bendir á að Félag eldri borgara
sé skráður eigandi tólf íbúða í ann-
arri blokkinni sem um ræðir.
Kaupsamningi fyrir þær hefur ekki
verið þinglýst og því veltir hann
fyrir sér hvort enn eigi eftir að
selja þær.
Spurður hvort málaferli gætu
orðið langdregin segir Vilhjálmur:
„Aðfararmál væri skjótvirkast. Ég
er ekki með öll gögn fyrir framan
mig, þ.e. samninga verktaka og
FEB. Það kæmi mér stórlega á
óvart ef það væri einhvers konar
haldsréttur hjá verktakanum sem
gæti komið í veg fyrir aðfararmál
og tel að þessi leið væri skilvirk-
ust.“
Þá segir Vilhjálmur að sam-
kvæmt kaupsamningnum liggi fyr-
ir yfirlýsing Landsbankans, sem
lánaði til framkvæmdanna, sem
lýtur að því að veðum verði aflétt
gegn greiðslu kaupverðs hverrar
og einnar íbúðar. „Verktakinn virð-
ist því ekki geta komið í veg fyrir
afhendingu eignanna.“
Vilhjálmur segist aldrei hafa
heyrt um sambærilegt mál. „Ég
hef aldrei heyrt annað eins. Þetta
eru bara venjuleg fasteignavið-
skipti. Þrátt fyrir að það sé eitt-
hvert markmið seljanda að byggja
eins ódýrt og unnt er þá skiptir
það engu máli. Það er ákveðið
kaupverð sem þarf að greiða til að
fá eign afhenta.“
Óhagnaðardrifin félög séu ekki
undanþegin lögum. „Fasteignavið-
skipti fara fram samkvæmt lögum
um fasteignaviðskipti.[...] Gegn
greiðslu kaupverðs skal afhenda
eignina,“ segir Vilhjálmur. Sigurð-
ur Kári Kristjánsson, lögmaður
annars kaupanda, gaf FEB frest
þangað til í gær til að afhenda lykl-
ana að íbúð kaupandans. Það varð
ekki svo næsta skref er að ákveða
hvort leitað verði til dómstóla með
málið og aðfarar beiðst. Hann seg-
ir réttarstöðu FEB enga.
Í gær fundaði FEB með kaup-
endum og verður slíkum fundum
haldið áfram. Hvorki náðist í Gísla
né Þorberg við vinnslu fréttarinn-
ar.
Segir rétt kaupenda augljósan
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Húsnæðið Blokkirnar sem FEB
byggði samanstanda af 68 íbúðum.
Formaður telur eðlilegt að starfsmenn FEB fái úthlutun Virðast ekki geta hindrað afhendingu