Morgunblaðið - 08.08.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 08.08.2019, Blaðsíða 32
Guðný Einarsdóttir, organisti Há- teigskirkju, leikur verk eftir Felix Mendelssohn, Atla Heimi Sveins- son, Báru Grímsdóttur og Jón Nor- dal á Alþjóðlegu orgelsumri í Hall- grímskirkju í dag frá kl. 12 til 12.30. Guðný hefur komið fram á Íslandi og erlendis sem einleikari, meðleik- ari og kórstjóri. Hún gegnir nú stöðu organista við Háteigskirkju. Guðný leikur á Al- þjóðlegu orgelsumri FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 220. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Breiðablik, Stjarnan og Valur eru í 2.-4. sæti úrvalsdeildar karla í fót- bolta eftir að hafa öll fagnað sigri í gær í 15. umferð. Þau eru þó öll langt á eftir toppliði KR sem er með tíu stiga forskot á Breiðablik. KA og Víkingur R. eru eftir sem áður í harðri fallbaráttu en KA-menn eru í fallsæti vegna lakari markatölu en Víkingar. »26 - 27 Skýrari línur farnar að myndast í deildinni ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Borgarbókasafnið stendur fyrir kvöldgöngu í kvöld kl. 18 um mið- borgina sem leidd verður af Soffíu Auði Birgisdóttur bókmenntafræð- ingi. Sagt verður frá Guðrúnu Sveinbjarnardóttur, systur Bene- dikts Gröndal og komið inn á int- ersex og trans og lesin verða brot úr Rásum dægranna eftir Málfríði Einarsdóttur, Sögu af stúlku e. Mikael Torfason og Hans Blæ eftir Eirík Örn Norðdahl. Aðrir sem koma við sögu eru Halldór Laxness, Þórberg- ur Þórðarson og Þórður Sig- tryggsson. Gengið verður frá safninu í Grófinni. Hinsegin bókmennta- ganga með Soffíu Auði Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Landið breytist hratt og auðvitað þurfa líkön að sýna þá þróun. Slík útbúum við þó ekki nema gerðar séu ítarlegar mælingar á landinu sem sýna til dæmis hvernig jöklar hopa, hvar skriður falla og svo framvegis. Slíkt gerir allar kortagerð raunar mjög spennandi,“ segir Sigurður Halldórsson módelsmiður. Um árabil hefur Sigurður starf- rækt fyrirtækið Módelsmíði ehf. og komið að ýmsum áhugaverðum verkefnum. Hann er meðal annars einn höfunda stóra þrívíða Íslands- líkansins sem gjarnan er uppi í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Einnig upphleyptra líkana sem eru víða í þjóðgörðum landsins og sýna umhverfi þeirra. Handunnið á röngunni „Fátt sýnir landið betur en upp- hleypt kort en það er líka talsverð kúnst að útbúa þau,“ segir Sigurður sem hefur starfað við módelsmíði í rúmlega þrjátíu ár. Í upphafi naut hann leiðsagnar Axels Helgasonar sem var frumkvöðull í faginu á Ís- landi. Síðar fór Sigurður til náms í Svíþjóð. „Ég heillaðist af þessu fagi því mér finnst gaman að ferðast og hef áhuga á landinu og náttúru þess. Það er gaman að skapa sjálft Ísland í höndunum,“ segir Sigurður. Módel af landinu eru sum hver útbúin í tölvu og skorin út í vélum samkvæmt þrívíðum myndum. Handunnin eru þau hins vegar oft skorin út á röngunni sem mót sem föstu efni er hellt í, svo úr verður upphleypt mynd til dæmis úr plast- efnum. Vinnan í slíkri kortagerð er mikil og felst þá meðal annars í því að skera út allar hæðarlínur fjalla sem á líkani eru sýnd t.d. í hlutföll- unum 1:25.000 enda þótt kvarðinn á breiddina sé 1:33.000. Sigurður flutti vinnustofu sína ný- lega austur að Laugarvatni hvar hann býr nú með fjölskyldu sinni. Er þar með ágæta vinnustofu fyrir módelsmíðina sjálfa í gömlum kenn- arabústað en aðstöðu fyrir steypu- vinnu og fleira slíkt við kortin í gömlu gróðurhúsi niðri við vatnið. „Umhverfið hér á Laugarvatni fjölbreytt og myndi njóta sín vel á upphleyptu korti. Hér stöndum við niðri við vatn og hér fyrir ofan okkur eru há fjöll, brattar skriður og miklir skógar. Svo er ekki langt héðan inn á jökla eða á Þingvelli; þar sem álf- urnar aðskiljast í gjám á flekaskilum jarðarinnar,“ segir Sigurður sem þessa dagana er að útbúa líkan fyrir Framkvæmdasýslu ríkisins af svo- nefndum Stjórnarráðsreit í Reykja- vík. Af honum hefur verið unnið deiliskipulag og verður líkanið af umhverfi þess. Önnur líkön af hug- myndum arkitekta um byggingar á reitnum, sem koma inn í samkeppni sem er í undirbúningi, verða svo felldar inn í þá sviðsmynd sem Sig- urður útbýr. Ætti þannig að sjást hvernig hús sem nú eru á hugmynd- astigi gætu notið sín fullbyggð. Frábært sjónarhorn „Þrívíð upphleypt módel gefa fólki frábært sjónarhorn á umhverfið, enda eru þau mikið notuð við skipu- lagsvinnu og arkitektúr. Einnig eru þau sett upp víða á ferðamannastöð- um og í skólum og mörg kort hef ég útbúið sem farið hafa til björg- unarsveitanna. Við þurfum enda- laust að kanna landið okkar og læra á aðstæður og þar koma líkönin sér vel,“ segir Sigurður að síðustu. Morgunblaðið/Hari Umhverfi Sigurður Halldórsson við upphleypt kort af Eyjafjalla- og Mýrdalsjökli sem breytast hratt þessi árin. Skapar Ísland í þrívídd  Módelsmiðurinn Sigurður Halldórsson  Mótar landið með höndunum í gömlu gróðurhúsi austur af Laugarvatni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.