Morgunblaðið - 08.08.2019, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2019
Lopapeysa
í sveitina
Verið velkomin í nýja og glæsilega
verslun okkar okkar á Laugavegi 4-6
Álafossvegi 23, Laugavegi 4-6, alafoss.is
Þessi eina sanna sem verður bara betri
eftir því sem þú nota hana meira.
Innan við ár er þar til næstu
Ólympíuleikar fara fram og
verða þeir í Tókíó í Japan. Einn
Íslendingur er öruggur um
keppnisrétt á leikunum eins og
staðan er núna.
Anton Sveinn McKee náði lág-
markinu í 200 metra bringu-
sundi á HM á dögunum. Undir-
strikaði Anton þar hversu
sterkur sundmaður hann er en
lágmörkin fyrir leikana eru orðin
mjög erfið. Hann þurfti á sínu
besta að halda og náði því fram.
Er hann á leiðinni á sína þriðju
Ólympíuleika.
Lágmörkin eru mjög þung
bæði í sundi og frjálsum og
verða æ strangari með árunum.
Þá getur reyndar sú staða kom-
ið upp í einhverjum greinum að
pláss sé fyrir fleiri keppendur en
þá sem ná lágmörkunum.
Ef maður skoðar lágmörkin í
frjálsum þarf okkar fólk að bæta
sinn besta árangur til að vera
öruggt um sæti á leikunum.
Aníta Hinriksdóttir og Ásdís
Hjálmsdóttir þurfa til dæmis að
bæta Íslandsmet sín til að ná
lágmarki.
Mjög erfitt er því að spá fyrir
um hversu marga keppendur Ís-
land gæti átt í þetta skiptið.
Komið hefur fram að kylfing-
arnir Ólafía Þórunn Krist-
insdóttir og Valdís Þóra Jóns-
dóttir gætu átt möguleika. Þá er
fólk í ýmsum einstaklings-
greinum sem gæti komist inn
eins og Ásgeir Sigurgeirsson
sem varð í 14. sæti í skotfimi í
London 2012.
Karlalandsliðið í handknatt-
leik er skipað ungum leik-
mönnum. Liðið er ekki komið á
þann stað að búast megi við því
á leikunum. En eftir næsta stór-
mót í janúar kemur betur í ljós
hvar liðið stendur. Und-
ankeppnin verður í apríl 2020.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
EM 2021
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Ísland þarf nauðsynlega á sigri að
halda gegn Sviss í Laugardalshöll á
laugardag til að eiga möguleika á að
komast áfram úr forkeppni EM karla
í körfubolta. Ísland tapaði með eins
naumum hætti og hugsast getur gegn
Portúgal á útivelli í gær, 80:79, þar
sem boltinn dansaði einhvern veginn
upp úr körfunni eftir lokaskot leiksins
úr smiðju Tryggva Snæs Hlinasonar.
Sviss og Portúgal hafa nú unnið einn
sigur hvort í riðlinum en Ísland getur
jafnað riðilinn út með sigri á laug-
ardag. Aðeins efsta liðið kemst áfram í
undankeppnina.
„Maður er mjög fúll með að við höf-
um ekki náð að klára dæmið og vinna
leikinn en á sama tíma er ég mjög
ánægður með karakterinn sem við
sýndum. Tryggvi setur niður 9 af 10
svona skotum á æfingum, maður er
ekki vanur að sjá hann klikka en þetta
var bara hrikaleg óheppni,“ sagði
Martin Hermannsson, besti leik-
maður Íslands í gær, en hann skoraði
28 stig, þar af 20 á fyrstu 15 mín-
útunum.
„Þrátt fyrir að við lentum 10 stigum
undir í fjórða leikhluta náðum við að
koma okkur í séns til að vinna leikinn í
lokin. Það var margt mjög fínt í þessu
hjá okkur. Við vitum alveg að það mun
taka tíma fyrir okkur að ná árangri,
því margir okkar hafa ekkert spilað
saman, en Portúgalar hittu líka á sinn
besta leik. Það fór einhvern veginn
allt ofan í hjá þeim,“ sagði Martin.
Jón Axel hlaðinn hæfileikum
Ísland var án Hauks Helga Páls-
sonar í leiknum og Martin við-
urkenndi að hans hefði verið sárt
saknað, sem og Kristófers Acox, en að
sama skapi fengu nýir og nýlegir
landsliðsmenn að láta ljós sitt skína.
Jón Axel Guðmundsson spilaði mikið
og skoraði 13 stig, og þeir Martin
virtust tengja vel saman á köflum.
„Mér finnst við hafa fullt af hæfi-
leikum og ég er mjög bjartsýnn eftir
þennan leik, þrátt fyrir tap. Jón Axel
er framtíðarlykilmaður í þessu liði,
hefur staðið sig frábærlega í Banda-
ríkjunum og maður sér að hann er að
bæta sig mikið. Auðvitað er þó svolít-
ill munur fyrir hann að mæta og spila
við fullvaxna karlmenn, verandi að
spila við jafnaldra sína úti í há-
skólaboltanum, en við gerum miklar
kröfur til hans sem er kannski ósann-
gjarnt vegna þess hve ungur hann er.
Þetta er annar leikurinn sem ég spila
með honum og maður finnur hvað það
er gott að spila með honum því hann
er hlaðinn hæfileikum,“ sagði Martin.
Orðið lífsnauðsynlegt að
landa sigri í Höllinni
Boltinn dansaði upp úr körfunni og Portúgal fagnaði sigri Martin með 28
Morgunblaðið/Hari
Stigahæstur Martin Hermannsson stóð fyrir sínu í gær og skoraði 28 stig auk þess að eiga 5 stoðsendingar.
Sines í Portúgal, 3. umferð forkeppni
EM karla, H-riðill, miðvikudaginn 7.
ágúst 2019.
Gangur leiksins: 4:8, 12:14, 14:15,
27:23, 31:31, 32:36, 36:38, 43:41,
46:46, 49:49, 60:55, 65:58, 67:60,
76:67, 76:71, 80:79.
Portúgal: Jeremiah Wilson 20, Migu-
el Cardoso 15, Joao Guerreiro 11,
Pedro Catarino 8, Miguel Queiroz 6,
Claudio Fonseca 6, Pedro Pinto 5,
Joao Grosso 5, Fabio Lima 4.
PORTÚGAL – ÍSLAND 80:79
Fráköst: 10 í sókn og 23 í vörn.
Ísland: Martin Hermannsson 28,
Tryggvi Snær Hlinason 15, Hörður
Axel Vilhjálmsson 14, Jón Axel Guð-
mundsson 13, Hlynur bæringsson 5,
Frank Aron Booker 2, Elvar Már Frið-
rikson 2.
Fráköst: 8 í sókn og 26 í vörn.
Dómarar: Yohan Rosso (Frakklandi),
Manuel Mazzoni (Ítalíu), Wojciech
Liszka (Póllandi).
Axel Bóasson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir hefja titil-
vörnina á Íslandsmótinu í golfi í dag en það hefst núna
klukkan átta að morgni á Grafarholtsvelli hjá Golfklúbbi
Reykjavíkur.
Konurnar byrja og meðal þeirra sem hefja leik klukk-
an átta er Ragnhildur Sigurðardóttir, sú gamalreynda
kempa úr GR sem á marga sigra að baki. Guðrún Brá
leggur af stað kl. 9.40, Ragnhildur Kristinsdóttir er með
henni í hópi en þær eru taldar líklegar til að slást um sig-
urinn. Þá eru Saga Traustadóttir, Berglind Björnsdóttir
og Helga Kristín Einarsdóttir í síðasta hópi sem leggur
af stað kl. 9.50.
Fyrstu karlarnir fara af stað klukkan 10. Axel Bóasson sem hefur unnið í
karlaflokki tvö ár í röð byrjar kl. 15.30 en Haraldur Franklín Magnús og
Bjarki Pétursson eru með honum í hópi. Guðmundur Ágúst Kristjánsson
fer af stað tíu mínútum síðar. Síðastir hefja leik þeir Hlynur Geir Hjart-
arson, Kristján Þór Einarsson og Sigurður Bjarki Blumenstein kl. 16.20
þannig að búast má við að fyrsta hring ljúki um kl. 21 í kvöld.
Ragnhildur fer fyrst af stað
Axel
Bóasson
Meistaralið Englands og Ítalíu í fótboltanum, Manchest-
er City og Juventus, áttu stór viðskipti í gær þegar tveir
bakverðir fluttu sig um set á milli félaganna. Joao Can-
celo til City og Danilo til Juventus.
City keypti portúgalska bakvörðinn Joao Cancelo af
Juventus fyrir 60 milljónir punda. Hann er 25 ára gamall
og gerði sex ára samning við ensku meistarana. Hann
leikur vanalega stöðu hægri bakvarðar eða kantmanns
en getur líka leyst stöðu vinstri bakvarðar.
Brasilíski vinstri bakvörðurinn Danilo, sem er 28 ára
gamall, fór til Juventus í staðinn en hann er metinn á 34
milljónir punda upp í kaupverð City á Canelo, sam-
kvæmt BBC.
Lokað verður fyrir félagaskiptin í tveimur efstu deildunum á Englandi í
dag og búist er við annríki. Sjá má allt um félagaskiptin á mbl.is/sport/
enski þar sem allt er uppfært jafnóðum. vs@mbl.is
Skipti milli meistaraliðanna
Joao
Cancelo