Morgunblaðið - 08.08.2019, Blaðsíða 26
SMÁRINN/GARÐABÆR/
HLÍÐARENDI
Víðir Sigurðsson
Bjarni Helgason
Jóhann Ingi Hafþórsson
Blikar sýndu á sér sparihliðarnar í
gær þegar þeir unnu afar sannfær-
andi 4:0 sigur á KA á Kópavogsvell-
inum og styrktu með því stöðu sína
í öðru sæti úrvalsdeildar karla í fót-
bolta. Þeir höfðu haldið öðru sætinu
á nánast ótrúlegan hátt þrátt fyrir
aðeins eitt stig í síðustu fjórum
leikjum sínum.
Thomas Mikkelsen og Guðjón
Pétur Lýðsson voru í aðal-
hlutverkum í frísku og samstilltu
Blikaliði. Mikkelsen skoraði tvö
markanna, það seinna eftir glæsi-
legan undirbúning Guðjóns Péturs
sem réð ferðinni á miðjunni og var
að öðrum ólöstuðum besti maður
vallarins.
Alexander Helgi Sigurðarson
skoraði fallegt mark beint úr auka-
spyrnu og varamaðurinn Brynjólfur
Darri Willumsson rak endahnútinn
með fjórða markinu undir lokin og
gerði þar með sitt fyrsta mark í
efstu deild.
Ef þetta er sú hlið sem Blikar
ætla að sýna á lokaspretti Íslands-
mótsins eru þeir kandídatar í annað
sætið. Ef við gefum okkur að það
fyrsta sé þegar frátekið fyrir KR.
Spilamennska þeirra hefur verið
köflótt undanfarnar vikur en þessi
leikur gefur fyrirheit um betri tíð
með blóm í haga.
KA situr eftir í næstneðsta sæt-
inu og markatala liðsins versnaði til
muna. Besti kafli norðanmanna var
í seinni hálfleik, þá náðu þeir að
koma Hallgrími Mar Steingríms-
syni inn í leikinn, sem er forsenda
þess að eitthvað gerist í sóknarleik
liðsins. Blikar stóðu það af sér með
traustum varnarleik og óðu síðan
yfir KA-menn á lokakaflanum þegar
þeir innsigluðu sigurinn með tveim-
ur síðari mörkunum. vs@mbl.is
Stjarnan í 3. en Víkingar brátt
uppiskroppa með afsakanir
Stjarnan nýtti sér svo sannarlega
sofandahátt Víkinga þegar liðin
mættust á Samsung-vellinum í
Garðabæ. Leiknum lauk með 2:1-
sigri Garðbæinga en öll mörk leiks-
ins komu í seinni hálfleik. Jósef
Kristinn Jósefsson kom Stjörnunni
yfir á 52. mínútu og Hilmar Árni
Halldórsson tvöfaldaði forystu
Garðbæinga með marki úr víta-
spyrnu á 56. mínútu. Óttar Magnús
Karlsson minnkaði muninn fyrir
Víkinga á 65. mínútu í sínum fyrsta
leik fyrir félagið síðan hann sneri
heim úr atvinnumennsku.
Garðbæingar lokuðu vel á allar
sóknaraðgerðir Víkinga og pressuðu
þá mjög stíft, aftarlega á vellinum.
Stjarnan vann boltann trekk í trekk
á vallarhelmingi Víkinga og
Garðbæingar voru í raun klaufar að
nýta sér það ekki betur. Stjarnan
byrjaði seinni hálfeikinn af gríð-
arlegum krafti og hálfpartinn
keyrði yfir hálfvankaða Víkinga og
það skóp sigur gærdagsins.
Víkingar voru afar ólíkir sjálfir
sér í leiknum og voru í vandræðum
eð einfaldar fimm metra sendingar
á milli manna. Þeim gekk skelfilega
að spila út frá aftasta manni og
buðu hættunni heim trekk í trekk.
Óttar Magnús byrjaði í holunni fyr-
ir aftan Nikolaj Hansen og það voru
mistök hjá þjálfara liðsins. Víkingar
voru undirmannaðir á miðjunni og
Óttar var lítið í takt við leikinn
framan af.
Skjótt skipast veður í lofti í efstu
deild þessa dagana og Stjarnan er
komin í þriðja sæti deildarinnar en
sigur Garðbæinga var ekki sann-
færandi og þeir bökkuðu allt of aft-
arlega í gær og buðu hættunni heim
með því að hleypa Víkingum inn í
leikinn. Arnar Gunnlaugsson og
lærisveinar hans í Víkinni fara að
verða uppiskropppa með afsakanir.
Breiðablik
sýndi loks
sparihliðar
Guðjón Pétur réð ferðinni í öruggum
sigri á KA Stjarnan og Valur unnu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hlíðarendi Ólafur Karl Finsen og
Helgi Valur Daníelsson.
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2019
Pepsi Max-deild karla
Breiðablik – KA........................................ 4:0
Stjarnan – Víkingur R ............................. 2:1
Valur – Fylkir ........................................... 1:0
Staðan:
KR 15 11 3 1 34:16 36
Breiðablik 15 8 2 5 29:18 26
Stjarnan 15 6 6 3 24:20 24
Valur 15 7 2 6 26:21 23
ÍA 15 6 4 5 20:17 22
FH 15 6 4 5 19:21 22
HK 15 6 3 6 19:17 21
Fylkir 15 5 4 6 23:26 19
Grindavík 15 3 8 4 12:16 17
Víkingur R. 15 3 7 5 22:25 16
KA 15 5 1 9 19:26 16
ÍBV 15 1 2 12 11:35 5
Meistaradeild kvenna
Undanriðill í Sarajevo:
ASA Tel Aviv – Breiðablik....................... 1:4
Sarajevo – Dragon.................................... 5:0
Staðan:
Sarajevo 1 1 0 0 5:0 3
Breiðablik 1 1 0 0 4:1 3
ASA Tel Aviv 1 0 0 1 1:4 0
Dragon 1 0 0 1 0:5 0
Önnur helstu úrslit:
BIIK Kazygurt – EBS/Skála .................. 6:0
Lillestrøm – Linfield ................................ 4:0
Braga – Sturm Graz ................................. 2:0
Flora Tallinn – PK-35 Vantää ................. 2:3
Anderlecht – PAOK Saloniki .................. 5:0
Twente – Alashkert.................................. 8:0
Meistaradeild karla
3. umferð, fyrri leikir:
Krasnodar – Porto................................... 0:1
Jón Guðni Fjóluson kom inn á hjá Kras-
nodar á 72. mínútu.
Istanbul Basaksehir – Olympiacos ......... 0:1
Basel – LASK Linz .................................. 1:2
CFR Cluj – Celtic..................................... 1:1
Maribor – Rosenborg............................... 1:3
Evrópudeild karla
3. umferð, fyrri leikur:
Slovan Bratislava – Dundalk................... 1:0
Tyrkland
Meistarabikarinn:
Galatasaray – Akhisarspor .................... 1:0
Theódór Elmar Bjarnason lék allan leik-
inn með Akhisarspor.
Danmörk
Bikarkeppnin, 1. umferð:
Allesö – Vejle ........................................... 0:6
Kjartan Henry Finnbogason lék ekki
með Vejle.
Noregur
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Avaldsnes – Klepp ................................... 2:1
Kristrún Rut Antonsdóttir lék ekki með
Avaldsnes.
Norðurlandamót U17 karla
Leikið í Danmörku:
Finnland – Ísland..................................... 5:1
Danijel Dejan Duric skoraði mark Íslands.
KNATTSPYRNA
Skúli Jón Friðgeirsson, knattspyrnumaður úr KR, hefur
ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið og
hyggur á nám í Svíþjóð. Frá þessu greindi hann í viðtali
við Fótbolta.net í gær.
Skúli missti af stórum hluta yfirstandandi tímabils
vegna alvarlegra höfuðmeiðsla en jafnaði sig af þeim og
hefur leikið sex deildarleiki og einn bikarleik í sumar.
Hann á möguleika á að kveðja sem bæði Íslands- og bik-
armeistari með KR og bæta þar með við titlasafn sitt en
þessi 31 árs gamli varnarmaður varð Íslands- og bik-
armeistari með KR árið 2011 og bikarmeistari árið 2008.
Þá varð hann sænskur meistari með Elfsborg árið 2012
en Skúli var hjá sænsku félögunum Elfsborg og Gefle á árunum 2012-2014
áður en hann sneri heim til KR á ný fyrir sumarið 2015.
„Það er hugsunin að ég sé búinn eftir þetta tímabil. Nú er ég bara á leið-
inni út í nám og ætla að kalla þetta gott í fótboltanum. Í rauninni býður lík-
aminn þannig lagað enn þá uppá það að halda áfram en þetta er ákvörðun
sem ég er að taka. Án þess að ég sé að endanlega að loka á allt þá er ég
samt að hætta,“ sagði Skúli við Fótbolta.net.
Hættir Skúli sem meistari?
Skúli Jón
Friðgeirsson
1:0 Thomas Mikkelsen 21.
2:0 Alexander Sigurðarson 36.
3:0 Thomas Mikkelsen 80.
4:0 Brynjólfur D. Willumsson 87.
I Gul spjöldAlexander Sigurðarson, Elfar
Freyr Helgason og Davíð Ingvarsson
(Breiðabliki), Haukur Heiðar Hauks-
son (KA).
Dómari: Guðmundur Ársæll Guð-
mundsson, 7.
BREIÐABLIK – KA 4:0
Áhorfendur: 1.068.
MM
Thomas Mikkelsen (Breiðabliki)
Guðjón Pétur Lýðsson (Breiðab.)
M
Elfar Freyr Helgason (Breiðabliki)
Viktor Örn Margeirsson (Breið.)
Davíð Ingvarsson (Breiðabliki)
Hallgrímur Mar Steingrímss. (KA)
Brynjar Ingi Bjarnason (KA)