Morgunblaðið - 08.08.2019, Blaðsíða 27
Ef maður skoðar hópinn sem Vík-
ingar eru að spila á þá er þetta á
meðal bestu liða landsins á pappír.
Menn þurfa að fara skila stigum í
hús í Fossvoginum og lið með tvo
miðverði í landsliðsklassa á ekki að
fá á sig tvö til þrjú mörk í hverjum
einasta leik. bjarnih@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg Morgunblaðið/Árni Sæberg
Góðir Alex Þór Hauksson lék mjög
vel með Stjörnunni og Óttar Magnús
Karlsson skoraði fyrir Víking í
fyrsta leik eftir endurkomuna.
Heppinn? Haukur Heiðar
Hauksson hefði líklega
getað fengið rautt spjald
frekar en gult þegar hann
felldi Gísla Eyjólfsson sem
var sloppinn í gegn. En úr
aukaspyrnunni skoraði
Alexander Helgi Sigurð-
arson og kom Blikum í 2:0.
Evrópubarátta í
boði Pedersen
Valsmenn eru komnir upp í 23
stig og upp fjórða sæti eftir 1:0-
sigur á Fylki á heimavelli. Patrick
Pedersen skoraði sigurmarkið ann-
an leikinn í röð. Hann er kominn
með þrjú mörk í fjórum leikjum
síðan hann kom til Vals frá Sheriff í
síðasta mánuði. Valsmenn eru jafn-
framt búnir að vinna alla þrjá leik-
ina sem hann hefur skorað í. Mik-
ilvægari leikmann finnur þú varla í
deildinni. Daninn er stærsta
ástæða þess að Valsmenn eru í
mjög góðri stöðu til að tryggja sér
Evrópusæti eftir herfilega byrjun í
sumar. Eins og gegn ÍA í síðustu
umferð, þá spiluðu Valsmenn ekk-
ert voðalega vel. Þeir eru hins veg-
ar byrjaðir að finna leiðir til að
vinna leiki. Valur gerir nóg til að
stoppa andstæðinginn og svo skor-
ar Pedersen alltaf, svona nánast.
Mark Danans kom í fyrri hálfleik
og var staðan í hálfleik 1:0. For-
ystan var verðskulduð. Í seinni
hálfleik fengu Fylkismenn fleiri og
betri færi og hefðu með smá heppni
getað jafnað. Lukkudísirnar voru
hins vegar með Val í liði. Valsliðið
virkaði þreytt í seinni hálfleik eftir
langt ferðalag til Búlgaríu í síðustu
viku. Það er hins vegar farið að
duga Valsmönnum að spila þokka-
lega til að ná í þrjú stig og þurfa
hin liðin í Evrópubaráttunni að ótt-
ast meistarana. Tímabil Fylkis
heldur áfram að vera eins og vega-
salt. Fer stundum upp, en endar
alltaf á því að fara niður aftur. Það
virðist ætla að vera nóg til að
sleppa við fall, en varla meira en
það. johanningi@mbl.is
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2019
SKECHERS SUMMITS DÖMUSKÓR MEÐ MEMORY FOAM INNLEGGI.
STÆRÐIR 36-41
DÖMUSKÓR
12.995
1:0 Patrick Pedersen 37.
I Gul spjöldHaukur Páll Sigurðsson (Val),
Orri Sveinn Stefánsson, Sam Hew-
son, Ragnar Bragi Sveinsson (Fylki)
Dómari: Pétur Guðmundsson, 6.
Áhorfendur: 1.032.
VALUR – FYLKIR 1:0
M
Birkir Már Sævarsson (Val)
Sebastian Hedlund (Val)
Haukur Páll Sigurðsson (Val)
Patrick Pedersen (Val)
Andri Adolphsson (Val)
Eiður Aron Sigurbjörnsson (Val)
Sam Hewson (Fylki)
Ari Leifsson (Fylki)
Helgi Valur Daníelsson (Fylki)
1:0 Jósef K. Jósefsson 53.
2:0 Hilmar Árni Halldórss. 56. (v).
2:1 Óttar Magnús Karlsson 65.
I Gul spjöldJósef Kristinn, Hilmar Árni,
Martin Rauschenberg og liðsstjórn
(Stjörnunni), Sölvi Geir Ottesen, Kári
Árnason, Guðmundur Andri Tryggva-
son, Ágúst Hlynsson og liðsstjórn
(Víkingi)
Dómari: Jóhann Jónsson, 6.
Áhorfendur: 1.127.
STJARNAN – VÍKINGUR R. 2:1
MM
Heiðar Ægisson (Stjörnunni)
Alex Þór Hauksson (Stjörnunni)
M
Jósef K. Jósefsson (Stjörnunni)
Daníel Laxdal (Stjörnunni)
Þorsteinn Már Ragnarss. (Stjörn.)
Eyjólfur Héðinsson (Stjörnunni)
Óttar Magnús Karlsson (Víkingi)
Dofri Snorrason (Víkingi)
Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingi)
Davíð Örn Atlason (Víkingi)
Ensku úrvalsdeildarfélögin þurfa að hafa hraðar hendur
í dag til að bæta við leikmannahópa sína áður en lokað
verður fyrir félagaskipti í tveimur efstu deildum Eng-
lands síðdegis í dag, sólarhring áður en ný leiktíð í
ensku úrvalsdeildinni hefst.
Everton fékk í gær til sín franska bakvörðinn Djibril
Sidibé að láni frá Monaco með möguleika á kaupum að
leiktíðinni lokinni. Sidibé er 27 ára og var í 23 manna
sigurhópi Frakklands á HM. Everton er einnig að reyna
að fá Alex Iwobi frá Arsenal og Wilfried Zaha frá Crys-
tal Palace, en félagið seldi Palace-miðjumanninn James
McCarthy í gær.
Tottenham gæti tryggt sér Giovani lo Celso frá Real Betis sem hefur
samþykkt kauptilboð í argentínska miðjumanninn. Christian Eriksen mun
aftur á móti vilja komast frá Tottenham, til Spánar. Romelu Lukaku, fram-
herji Manchester United, er floginn til Mílanó í læknisskoðun hjá Inter.
David Luiz hefur óvænt farið fram á sölu frá Chelsea til Arsenal sem er
einnig að tryggja sér bakvörðinn Kieran Tierney frá Celtic. Fylgst er vel
með öllu sem gerist í dag á mbl.is/sport.
Líflegur lokadagur glugga?
Giovani
lo Celso
Hinn 19 ára gamli knattspyrnumað-
ur Dagur Dan Þórhallsson hefur verið
lánaður frá norska úrvalsdeildarfélag-
inu Mjøndalen til Kvik Halden sem
leikur í norsku C-deildinni. Liðið er í
harðri baráttu um að komast upp í B-
deild og er Degi ætlað að hjálpa til í
þeirri baráttu út leiktíðina sem lýkur í
byrjun nóvember. Dagur er uppalinn
hjá Haukum, fór þaðan til Gent í Belgíu
og lék með U19- og U21-liði félagsins,
og lék svo 16 leiki með Keflavík í
Pepsi-deildinni í fyrra. Hann kom inn á
sem varamaður í einum leik í norsku
úrvalsdeildinni með Mjøndalen í ár og í
fjórum bikarleikjum.
Afturelding hefur bætt við sig
spænskum knattspyrnumanni fyrir
lokasprettinn í 1. deild karla. Sá heitir
Alejandro Zambrano, 28 ára miðju-
maður sem hefur leikið með varaliðum
Villarreal og Sporting Gijon en verið í
spænsku C- og D-deildunum und-
anfarin ár.
Danijel Dejan Djuric skoraði sitt ell-
efta mark fyrir yngri landslið Íslands í
knattspyrnu þegar U17 ára liðið mætti
Finnum á Norðurlandamótinu í Dan-
mörku í gær. Það dugði þó skammt því
Finnar unnu leikinn 5:1. Danijel er 16
ára og uppalinn í Breiðabliki en leikur
nú með unglingaliði Midtjylland í Dan-
mörku.
Danny Welbeck, fyrrverandi leik-
maður Arsenal og Manchester United,
gekk í gær til liðs við enska knatt-
spyrnufélagið Watford og samdi við
það til þriggja ára. Samningur hans við
Arsenal rann út í sumar. Welbeck hef-
ur misst mikið úr vegna meiðsla und-
anfarin ár og lék aðeins átta deilda-
leiki með Arsenal síðasta vetur og
skoraði eitt mark. Hann er 28 ára.
Eitt
ogannað