Morgunblaðið - 08.08.2019, Page 13

Morgunblaðið - 08.08.2019, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2019 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur FALLEG OG VÖNDUÐ LEIKFÖNG úr náttúrulegum efnivið, tré og silki ERUM FLUTT ! á Nýbýlaveg 8 – Portið Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Viðskiptastríð Donalds Trumps Bandaríkjaforseta við Kínverja hef- ur orðið til þess að hagvöxturinn í landinu hefur minnkað úr 3% í rúm 2%, að því er fram kemur í forystu- grein dagblaðsins The Wall Street Journal sem segir að viðskipta- stefna forsetans stefni ávinningnum af skattalækkunum repúblikana og afnámi reglugerða í hættu. Við- skiptastríðið hefur m.a. skaðað bændur og útflutningsfyrirtæki í Bandaríkjunum og orðið til þess að stjórnvöld í Kína hafa fellt gengi jú- ansins niður fyrir 7,0 gagnvart Bandaríkjadal í fyrsta skipti í ellefu ár. „Viðskiptastríð hans er nú orðið að gjaldmiðlastríði sem færir hætt- una á efnahagstjóni á nýtt stig,“ sagði í forystugrein The Wall Street Journal. Getur sjálfum sér um kennt Trump hóf tollastríðið í mars á síðasta ári og sagði að mikill afgang- ur Kínverja í viðskiptum við Banda- ríkin stafaði m.a. af óheiðarlegum viðskiptaháttum, ríkisstyrkjum, nið- urgreiðslum og brotum á höfundar- rétti. Samið var um vopnahlé í lok júní sl. en Trump hóf stríðið að nýju 1. ágúst þegar hann tilkynnti að nýir 10% tollar á kínverskar vörur að andvirði 300 milljarða Bandaríkja- dala ættu að taka gildi 1. september. Gangi þetta eftir ná tollar Trumps til nær alls kínversks varnings sem fluttur er til Bandaríkjanna. Kín- verjar svöruðu ákvörðun forsetans með því að fresta kaupum á banda- rískum landbúnaðarvörum og seðla- banki Kína felldi gengi júansins sem hefur ekki verið jafnlágt frá árinu 2008. Trump sakaði stjórnvöld í Kína um að hafa hagrætt gengi gjaldmið- ilsins með óeðlilegum hætti til að bæta samkeppnisstöðu kínverskra útflutningsfyrirtækja en leiðarahöf- undar The Wall Street Journal segja að forsetinn geti sjálfum sér um kennt. Kínverjar séu ekki aðeins að hefna sín heldur einnig að við- urkenna að minnkandi viðskipti við Bandaríkin og minni hagvöxtur í Kína hafi orðið til þess að eftir- spurnin í heiminum eftir júaninu hafi minnkað. „Með tollum sínum er Trump höfundurinn að veikara jú- ani sem hann segist ekki vilja.“ Mikið áfall fyrir bændur Zippy Duvall, formaður banda- rísku bændasamtakanna AFBF, segir að sú ákvörðun Kínverja að fresta kaupum á bandarískum land- búnaðarafurðum sé mikið áfall fyrir bændur í Bandaríkjunum sem hafa hingað til notið góðs af vaxandi spurn Kínverja eftir matvælum. Kína hefur verið á meðal þriggja stærstu markaðanna fyrir útflutn- ing á bandarískum landbúnaðarvör- um, ásamt Kanada og Mexíkó. Út- flutningurinn til Kína á afurðum bandarískra bænda nam 19,5 millj- örðum dala (2.400 milljarða króna) árið 2017 en minnkaði í 9,1 milljarð (1.100 milljarða króna) á síðasta ári vegna nýrra tolla Kínverja. Á fyrri helmingi þessa árs var útflutning- urinn 20% minni en á sama tíma á síðasta ári. Stjórn Trumps tilkynnti í júlí að hún hygðist verja 16 milljörðum dala, jafnvirði tæpra 2.000 milljarða króna, í aðstoð við bændur sem hafa orðið fyrir tjóni vegna tollastríðsins. Nýjustu hagtölur benda hins vegar til þess að tjónið einskorðist ekki við landbúnaðinn. Hagvöxturinn minnkaði í 2,1% á öðrum fjórðungi ársins vegna minni fjárfestinga fyrirtækja og samdráttar í útflutn- ingi. Hagvöxturinn var þó meiri en búist var við vegna þess að neyslu- útgjöld heimilanna jukust um 4,3% og ráðstöfunartekjurnar um 4,9%. Búa sig undir langvinnt stríð Viðskiptastríðið hefur einnig skaðað Kínverja. Hagvöxturinn í Kína minnkaði í 6,2% á öðrum fjórð- ungi ársins og hefur ekki verið minni í þrjá áratugi, að sögn frétta- veitunnar AFP. Stjórnmálaskýrendur telja að út- lit sé fyrir að viðskiptastríðið drag- ist á langinn. Þeir segja að ráða- mennirnir í Kína séu að undirbúa mikla hátíð í október í tilefni af 70 ára afmæli Alþýðulýðveldisins Kína og búist sé við að þeir nýti þá tæki- færið til að hampa Xi Jinping sem öflugum leiðtoga. Forsetinn er tal- inn hafa lítið svigrúm til að fallast á tilslakanir í rimmunni við Trump fyrir hátíðina því að þær gætu graf- ið undan ímynd hans sem hins sterka leiðtoga. Stjórnmálaskýrendurnir segja að kínversku ráðamennirnir telji sig geta staðið af sér tollastríð Trumps og beðið eftir því að það skaði efna- hag Bandaríkjanna nógu mikið og valdi svo miklu umróti á hlutabréfa- markaði Bandaríkjanna að forsetinn neyðist til að fallast á tilslakanir. „Besta hefndin felst í því að láta bandarísku tollana á Kína skaða efnahag Bandaríkjanna,“ hefur fréttaskýrandi The Wall Street Jo- urnal eftir Yu Yongding, hagfræð- ingi og ráðgjafa kínverskra ráða- manna. „Aðgerðir Trumps hafa valdið miklum titringi meðal leið- toga Kína sem átta sig núna á því að það er ekki nokkur möguleiki á því að ná sanngjörnu samkomulagi við Bandaríkin í náinni framtíð,“ hefur blaðið eftir Shi Yinhong, prófessor í alþjóðasamskiptum við Renmin-há- skóla í Peking. „Kínverjar eru ekki aðeins að búa sig undir það að við- skiptastríðið dragist á langinn held- ur einnig að það magnist.“ Kínverjar eru m.a. taldir geta hindrað frekar innflutning banda- rískra fyrirtækja til Kína með nýj- um reglum og takmarkað útflutning á jarðmálmum sem eru m.a. nýttir í snjallsíma. Kínverjar eiga banda- rísk ríkisskuldabréf að andvirði 1,1 billjónar dala og grípi þeir til þess ráðs að selja stóran hluta þeirra myndi það leiða til vaxtahækkana í Bandaríkjunum. Ólíklegt er þó að þeir beiti því vopni þar sem það myndi m.a. verða til þess að gengi júansins hækkaði – eins og Trump vill en Kínverjar ekki. Tollar Trumps skaða efnahaginn  Hagvöxturinn í Bandaríkjunum minnkaði úr 3% í 2% vegna minni fjárfestinga fyrirtækja og samdráttar í útflutningi  Útflutningur á bandarískum landbúnaðarafurðum til Kína snarminnkaði 8. mars 2018 Viðskiptadeilur Bandaríkjanna og Kína Trump tilkynnti 25% tolla á innflutt stál og 10% tolla á innflutt ál 22. mars 19. maí 6. júlí 23. ágúst10. maí 2019 May 9 Bandaríkin Kína Nokkur lönd voru undan- þegin þessum tollum en ekki Kína Stjórn Kína svaraði með 15-25% tollum á 125 vörutegundir Drög að samkomu- lagi um að minnka viðskiptahalla Bandaríkjanna Bandarikin lögðu 25% tolla á kínverskar vélar og rafeindatæki að andvirði 34 milljarða $ Kína svaraði með svipuðum tollum Nýir tolla á kínv. varning að andvirði 16 milljarða $ 25% tollar á banda- rískar vörur að andvirði 16 ma. $ 24. september 10% tollar á kín- verskan varning að andvirði 200 ma. $ Kínverjar lögðu tolla á varning að andvirði 60 milljarða $ Trump og Xi Jinping sömdu um nýtt hlé á tollastríðinu Stjórn Trumps batt enda á vopnahléið. Tollar hækkaðir úr 10 í 25% á kínverskan varning að andvirði 200 milljarða $ 1. desember Trump og Xi Jinping sömdu um 3ja mánaða hlé á tollastríðinu Fjármálastjóri kínverska fjar- skiptarisans Huawei handtekinn í Kanada, sakaður um að hafa brotið viðskiptabann á Íran 29. júní 5. ágúst Kína lagði 5-25% tolla á bandarískar vörur að andvirði 60 ma. $ 1. júní 1. ágúst Nýir 10% tollar á kínverskar vörur að andvirði 300 ma. $ frá 1. september Kínverjar leyfðu gengi júansins að falla niður fyrir 7,0 gagnvart dollaranum í fyrsta skipti í 11 ár Helstu atburðir Hamast gegn seðlabankanum » Donald Trump gagnrýndi Seðlabanka Bandaríkjanna harkalega á Twitter í gær og krafðist meiri vaxtalækkana til að örva efnahaginn. » Seðlabankinn lækkaði vext- ina í vikunni sem leið í fyrsta skipti í ellefu ár. » Trump krafðist þess að vext- irnir yrðu lækkaðir „meira og hraðar“. Hann sagði að vaxta- stefna bankans væri „fárán- leg“, stjórn hans væri „van- hæf“ og bankinn væri meiri ógn en Kína við efnahag Bandaríkjanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.