Morgunblaðið - 08.08.2019, Page 15

Morgunblaðið - 08.08.2019, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2019 Laugardalur Undirbúningur er í fullum gangi á Laugardalsvelli fyrir tónleika Ed Sheeran um helgina. Þaki stóra sviðsins var lyft upp í gær og nær svipaðri hæð og aðalstúkan, eins og sjá má. Flatarmál sviðsins er 650 fermetrar en eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu voru fluttir inn 55 gámar til landsins vegna tónleikanna. Ed Sheeran hefur verið á tónleikaferðalagi síðan í mars 2017 og er þetta orðinn tekjuhæsti, lengsti og stærsti túr sögunnar. Hefur Sheeran slegið met U2, Bono og fleiri listamanna. Tónleikaferðinni lýkur síðar í mánuðinum en þá hefur Sheeran komið fram á 255 tónleikum og fengið til sín um 7,5 milljónir gesta um heim allan. Hallur Már Aukin samkeppn- ishæfni Íslands er keppikefli fyrir lands- menn alla þar sem verðmæti aukast og meira verður til skiptanna. Í nýsam- þykktri stefnu stjórn- ar Samtaka iðnaðar- ins er fjallað um þetta og sem fyrr áhersla á menntun í takt við þarfir at- vinnulífs, trausta inn- viði, stöðuga nýsköp- un og hagkvæmt, stöðugt og skilvirkt starfsumhverfi. Í fyrsta sinn fá um- hverfis- og loftslags- mál sérstakan sess í stefnunni enda lætur íslenskur iðnaður sig það málefni varða eins og fjölmörg dæmi bera vitni um. Framtíðarsýn stjórnar Samtaka iðnaðarins felst í því að Ísland sé fyrirmynd annarra þjóða í um- hverfismálum sem geti skapað ís- lenskum iðnaði samkeppn- isforskot. Leiðin að minni losun gróðurhúsalofttegunda er eitt af mikilvægustu verkefnum samtím- ans. Mikill árangur hefur náðst hér á landi á síðustu áratugum, m.a. með nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa til húshitunar og orku- vinnslu. Því til viðbótar hafa fyrir- tæki mikinn vilja og metnað til að gera enn betur og meira og stuðla þannig að kolefnishlutleysi árið 2040 í samræmi við stefnu stjórn- valda. Þessi aukna áhersla mun m.a. leiða til nýsköpunar og þróunar í grænni tækni og snjöllum samgöngum. Flutningar á vörum milli landa hafa sín áhrif á umhverfið með losun gróð- urhúsalofttegunda, jafnt skipaflutningar sem og flug. Fram- leiðsla nær mörk- uðum er því oftar en ekki umhverfisvænni auk jákvæðra sam- félagslegra áhrifa. Þessu til viðbótar nýtur Ísland sérstöðu því hér á landi er raf- orka framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum og losun gróðurhúsaloftteg- unda því með minnsta móti ólík því sem gengur og gerist víðast hvar annars staðar. Stjórnvöld hafa skýr markmið í loftslagsmálum og vinna nú að því að innleiða sjálfbærni hugsun í alla opinbera stefnumótun. Þarna fara áherslur stjórnvalda og iðn- aðarins saman og ætti þetta að vera stjórnvöldum hvatning til að velja innlenda framleiðslu í meira mæli enda eyðir hið opinbera um 40 krónum af hverjum 100 krón- um í hagkerfinu. Þannig geta stjórnvöld haft jákvæð áhrif á umhverfið og stutt við sjálfbærni. Eftir Guðrúnu Hafsteinsdóttur » Framtíðar- sýn stjórnar Samtaka iðn- aðarins felst í því að Ísland sé fyrirmynd ann- arra þjóða í um- hverfismálum. Guðrún Hafsteinsdóttir Höfundur er formaður Samtaka iðnaðarins. Sjálfbær iðnaður Fjórum árum eftir undirritun Parísarsam- komulagsins um lofts- lagsmál blasir við sú dapurlega staðreynd að í engu aðildarlandanna 195 hefur dregið úr los- un gróðurhúsalofts sem veldur hlýnun af mannavöldum. Það sem hefur þó breyst er auk- ið aðgengi að upplýs- ingum og ört vaxandi meðvitund al- mennings um þann háska sem að steðjar. Slíkt ætti að auðvelda ráða- mönnum, jafnt kjörnum fulltrúum og drifkröftum efnahagslífsins, að tak- ast á við vandann, þótt enn sjáist þess lítil merki. Það er því góðra gjalda vert að Sameinuðu þjóðirnar boða til sérstaks fundar 23. sept- ember næstkomandi um hertar að- gerðir í loftslagsmálum. Sjónir manna hljóta þar að beinast að rótum vandans, ósjálfbæru efnahagskerfi, sem kyndir undir gífurlegri ofneyslu og sóun í iðnríkjum, samhliða hömlu- lausri mannfjölgun á heimsvísu. „Grænn vöxtur“ leysir ekki vandann Umhverfisskrifstofa Evrópu, Europe environmental bureau (EEB), sem sameinar um 150 um- hverfisverndarsamtök í yfir 30 lönd- um, sendi fyrir mánuði frá sér skýrslu sem vakið hefur mikla at- hygli (https://eeb.org/library/ decoupling-debunked/ ). Heiti henn- ar á ensku Decoupling debunked – Evidence and arguments against green growth as a sole strategy for sustainability hljómar nokkuð fram- andi, en varðar mikið rætt og umdeilt efni tengt umhverfismálum um ára- tugi: Er í senn unnt að viðhalda hefð- bundnum efnahags- vexti og ná fram markmiðinu um sjálf- bæra þróun? Svar skýrsluhöfundanna er að fyrir því finnist eng- in gild rök, litið til reynslu liðinna ára, og ósennilegt sé að þau verði að veruleika í framtíðinni. Hér er vegið að kjarna þeirrar stefnu sem verið hefur leiðandi í alþjóðlegri umræðu um sjálfbæra þróun allt frá Brundtland-skýrslu Sameinuðu þjóðanna á níunda ára- tugnum, sem og innan Evrópusam- bandsins og helstu alþjóðastofnana eins og OECD, Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, en allar lúta þær forystu gömlu iðnríkjanna. Niðurstaða skýrslunnar er að þótt viðleitni til að draga með „grænum hagvexti“ úr sárustu áhrifum á um- hverfið sé góðra gjalda verð, þá dugi hún þrátt fyrir aukna skilvirkni eng- an veginn til að ná tökum á umhverf- isháskanum, nema samtímis sé dreg- ið róttækt úr efnislegri framleiðslu og neyslu. Ég hvet sem flesta til að kynna sér efni þessarar úttektar og þau rök sem þar eru reidd fram. Hraði manngerðra loftslagsbreytinga Það kemur flestum á óvart hvílíkt skrið hefur verið á veðurfarsbreyt- ingum af mannavöldum síðustu ára- tugi og hversu ört áhrifin magnast og leiða af sér keðjuverkanir. Hitamæl- ingarnar einar og sér segja sína sögu og áhrif methita finnur fólk á eigin skinni. Mælingar slógu met víða í Evrópu og Bandaríkjunum í síðasta mánuði, sýndu hæst 45,9°C hjá Nimes í Frakklandi. Skógareldar víða um heim tala sínu máli um af- leiðingar hlýnunar og þurrka sem og ofsi fellibylja. Það er þessi stigmögn- un og keðjuverkanir sem sett hafa loftslagsmálin efst á dagskrá í huga margra. Sumarið 2003 gekk óvenju- leg hitabylgja yfir meginland Evr- ópu. Úttekt breskra veðurfræðinga á henni gaf þá til kynna tvisvar sinnum meiri líkur á slíkum aðstæðum vegna manngerðra loftslagsbreytinga. Hitabylgjurnar síðustu sumur benda hins vegar til a.m.k. tíföldunar á tíðni slíkra fyrirbæra og með vaxandi los- un CO2 á næstu árum og áratugum verði þær orðnar hluti af daglegum og um leið skelfilegum veruleika meirihluta mannkyns. Markmið Parísarsamkomulagsins er að bregð- ast við þessum framtíðarhorfum og draga úr þeim. Stjórnmálaumræðan er hins vegar langt á eftir veruleik- anum, hér sem annars staðar, að ekki sé talað um rótgróna hagsmuni eignastétta og alþjóðafjármagns. Grænlandsjökull tekinn að bráðna Undanfarið hafa birst margar rannsóknaniðurstöður sem sýna ótví- rætt að íshellan á Grænlandi, sem að stærð gengur næst Suðurskauts- jöklum, bráðnar nú margfalt hraðar en um síðustu aldamót og á sú þróun þátt í hækkandi sjávarborði heims- hafanna. Bæði er um að ræða rýrnun vegna leysinga á yfirborði jöklanna og aukið skrið íss í sjó fram. Svipuð þróun er hafin á Suðurskauts- svæðinu og veldur eðlilega miklum áhyggjum vegna gífurlegrar hækk- unar sjávarborðs. Ef Grænlandsjök- ull hverfur er það talið valda um 7 metra hækkun strandlínu, en bráðn- un Suðurskautsjökla myndi hækka yfirborð heimshafanna um röska 60 metra. Flóðvarnir duga skammt gegn slíkum hamförum og trygg- ingafélög eru þegar á varðbergi gagnvart gjörbreyttum horfum. Sama ætti að gilda um þá sem ábyrgð bera á skipulagi um veröld víða. Draghölt stjórnmálaumræða Það veldur áhyggjum hversu stjórnmálaumræða á okkar slóðum á erfitt með að fóta sig við þessar ger- breyttu og um margt ógnvænlegu horfur. Þeim fækkar að vísu ört í Evrópu sem hafna eða gera lítið úr vanda af manngerðum loftslags- breytingum, en eftir sitja Bandaríkin föst í afneitun sinni og hægri öflin í Brasilíu keppast við að saxa á frum- skóga Amazón-svæðisins. Stór hluti stjórnmálamanna hérlendis virðist setja sig lítið sem ekkert inn í aug- ljóst orsakasamhengi þessarar háskalegu þróunar. Flestir sitja fast- ir í hefðbundnum hugmyndum um hagvöxt sem samkvæmt þeim sjón- armiðum sem hér voru viðruð í upp- hafi bætir frekar gráu ofan á svart. Alþjóðleg leit að róttækum lausnum lætur á sér standa á meðan tíminn til vitrænna viðbragða styttist óðum þar til syndaflóðið skellur á af fullum þunga. Eftir Hjörleif Guttormsson »Engin gild rök benda til að „grænn hag- vöxtur“ leysi loftslags- vandann segja evrópsk umhverfisverndarsam- tök (EEB). Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Syndaflóð efnahagsvaxtar færist nær – Engar sýndarlausnir duga lengur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.