Morgunblaðið - 08.08.2019, Page 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2019
✝ SigurðurMagnason
fæddist í Reykjavík
1. maí 1969. Hann
lést á Landspít-
alanum í Fossvogi
21. júlí 2019.
Foreldrar hans
eru Anna Lilja Sig-
urðardóttir kennari
frá Akureyri og
Magni Hjálmarsson
kennari frá Akur-
eyri. Seinni kona Magna er Anna
Þóra Karlsdóttir myndlistar-
kona frá Reykjavík. Bróðir Sig-
urðar er Borgar Magnason tón-
listarmaður.
Árið 2001 kynntist Sigurður
Signýju Sæmundsen hjúkrunar-
fræðingi úr Kópavogi og hófu
þau fljótlega búskap. Þau eiga
saman dæturnar Lilju Sig-
urðardóttur, f. 13. desember
2005, og Maríu Sigurðardóttur,
f. 25. febrúar 2011. Foreldrar
Sigurðar fóru nýútskrifaðir
„Spítalasýkingar á gjörgæslu-
deild“, sem hann hafði unnið
samhliða námi og starfi. Því
næst lagði hann stund á sér-
fræðinám í barnalækningum við
Barnekliniken í Bergen og lauk
því námi árið 2012. Er heim var
komið starfaði Sigurður við
heilsugæsluna í Hamraborg í
Kópavogi og síðar við Heil-
brigðisstofnun Vestfjarða á Ísa-
firði. Nú undir lokin var hann við
störf á Heilsugæslustöðinni í
Hlíðahverfi, en hann hafði hafið
nám í heilsugæslulækningum ár-
ið 2015 og var langt kominn með
það nám. Sem heilsugæslulæknir
barðist Sigurður ötullega fyrir
aukinni vitundarvakningu um
vanda ungra fíkla og var einn af
stofnendum samstarfshópsins
Allsgáð æska – vímuefna-
forvarnir og valdefling foreldra.
Útför Sigurðar fer fram frá
Hjallakirkju í Kópavogi í dag, 8.
ágúst 2019, og hefst athöfnin
klukkan 13.
kennarar að kenna
úti á landi þegar
hann var eins árs.
Fyrst var fjöl-
skyldan á Hvamms-
tanga í þrjú ár, svo
á Þelamörk í Hörg-
árdal í sex ár og síð-
an á Akureyri.
Grunnskólaganga
Sigurðar var í Þela-
merkurskóla, Hörg-
árdal, síðan í
Lundarskóla á Akureyri, svo í
Trørødskolen á Sjálandi og síð-
ast í Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar. Eftir að hafa lokið stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum á
Akureyri kenndi hann einn vetur
við Verkmenntaskólann á Akur-
eyri og innritaðist svo í læknis-
fræði við HÍ og útskrifaðist það-
an 1997. Sigurður starfaði á
Landspítalanum á árunum 1998-
2004. Árið 2004 lauk hann viða-
mikilli rannsókn við læknadeild
HÍ með ritgerð til meistaraprófs,
Sumarið sem við höfum notið í
ár er einstakt, ljúft og sólríkt þar
sem allt umhverfið blómstrar. Þá
kemur reiðarslagið og hér sitjum
við að skrifa eftirmæli um kæran
mann á besta aldri. Þetta er röng
röð á gangi lífsins, söknuðurinn
nánast óbærilegur.
Það er svo margs góðs að minn-
ast. Siggi kom inn í líf okkar sem
unnusti Signýjar okkar fyrir 17
árum. Lífið blasti við og framtíðin
var björt. Hann var glæsilegur,
sviphreinn, glaðlegur og stutt í
hlýtt bros. Einnig einkenndi hann
alvara, samviskusemi, nákvæmni
og nærgætni við alla, fjölskyldu,
vini og skjólstæðinga sína sem er
kostur fyrir lækna.
Sem faðir var Siggi einstakur.
Hann leiddi dæturnar af nær-
færni á þeirra forsendum í leik og
námi. Stundum var vart hægt að
fara um stofu eða herbergi þar
sem þau léku sér í ævintýraheimi
sem þau höfðu skapað saman.
Hann studdi þær af alhug í þeirra
áhugamálum, Lilju í dansnámi og
Maríu í ballett og þverflautunámi,
og leiðbeindi Maríu í heimaæfing-
um á þverflautuna með frábærum
árangri.
Við minnumst Sigga einnig sitj-
andi við píanóið spilandi sígilda
tónlist sem ljúft var að hlusta á.
Hann las mikið, tengt vísindum,
læknisfræði og var áhugasamur
um bókmenntir og þjóðmál og sat
löngum yfir þeim fræðum.
Hann var einn af stofnendum
og hugmyndasmiður samtakanna
Allsgáð æska – vímuefnaforvarnir
og valdefling foreldra sem stofnuð
voru síðasta haust. Hópurinn hélt
mánaðarlega umræðufundi sem
voru opnir og sendir út á ljós-
miðlum. Það var lýsandi fyrir hug-
sjónir hans að vilja láta gott af sér
leiða. Að byggja brýr milli mis-
munandi aðila sem hver um sig
unnu að málstað í vímuefna-
vörnum, að sameina krafta þeirra
á móti vímuefnavánni.
Siggi var ávallt tengdasonur
okkar þó svo að sambúð hans og
Signýjar lyki fyrir fáeinum árum.
Framtíð yndislegra dætra, Lilju
og Maríu, var í algjörum forgangi
hjá þeim. Þau nutu samverunnar
öll saman heima og heiman, ávallt
ljúfar og gleðiríkar stundir. Nú
síðast í vor þegar Lilja fermdist og
fjölskyldan kom saman í fallegri
fermingarveislu hennar. Siggi var
einnig duglegur að sinna dætrum
sínum einn, fara með þær á tón-
leika og ýmsa viðburði og eiga
þær dýrmætar minningar um þær
stundir, ekki síst dvölina á Húsa-
felli í vor sem og samveru þeirra
áfram í sumarfríinu sem er ný-
lokið.
Við vottum fjölskyldu Sigga,
foreldrum, bróður og fjölskyldum
þeirra okkar innilegustu samúð.
Við kveðjum með söknuði og kær-
leika elskulegan tengdason og
styðjum yndislegar dæturnar og
Signýju í framtíðinni.
Hvíldu í friði, góður Guð varð-
veiti þig. Fallegar minningar lifa.
Einar og Helga.
Það var mikið áfall að frétta af
því að Sigurður væri fallinn frá,
langt fyrir aldur fram. Sigurði
kynntumst við sem ljúfum dreng,
sem Signý systir var að kynnast
fyrir um tuttugu árum. Sigurður
var þá búinn í læknanámi en var
alltaf að grúska og lesa. Til sér-
fræðináms var svo haldið til Berg-
en, Lilja og María komu í heiminn,
og svo flutti fjölskyldan heim til
Íslands. Siggi eins og hann var
alltaf kallaður, var þolinmóður og
góður faðir, alltaf tilbúinn að setj-
ast niður og leika og spjalla við
stelpurnar sínar. Hann var ljúfur
vinur barnanna í fjölskyldunni, og
átti mörg góð samtöl við þau um
alla heima og geima. Það voru ófá
kvöldin sem Siggi kom í kvöldmat
í Birkigrundina, og stórfjörskyld-
an kom saman, að spjallað var um
þjóðmálin og annað sem brann á
fólki. Hann var allra manna hug-
ljúfi, yfirvegaður og fróður.
Við þökkum fyrir þær stundir
sem við áttum saman, elsku Siggi.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Elsku Signý, Lilja og María,
Borgar og Salvör, Anna Lilja,
Magni og Anna Þóra megi góður
Guð styrkja ykkur og varðveita í
þessari miklu sorg.
Einar Á.E. Sæmundsen, Þor-
valdur E. Sæmundsen, Sólrún
Sæmundsen, makar og börn.
Mikil harmafregn var það að
frétta af fráfalli Sigurðar í júlí
síðastliðnum.
Ég minnist allra góðra sam-
verustunda með Sigga frænda,
hvort sem þær voru í barnæsku
minni í heimsókn hjá honum norð-
ur á Akureyri eða í Bergen í Nor-
egi árið 2011 en þá heimsóttum
við, ég og foreldrar mínir hann og
fjölskyldu hans þegar hann starf-
aði sem barnalæknir í Bergen.
Alltaf var gleðin í forgrunni og á
þessum tímamótum hugsa ég til
allra þeirra góðu stunda með
þakklæti í huga.
Sigurður var einstakur maður,
maður sem vildi allt gott fyrir aðra
gera. Alltaf var hann tilbúinn að
hjálpa öðrum. Hann var greindur
og yndislegur maður og gerði aðra
sem hann hefur umgengist í gegn-
um tíðina að betri manneskjum.
Hugur minn er hjá dætrum
Sigurðar, fjölskyldu og vinum.
Votta ég þeim mínar innilegustu
samúð. Hvíldu í friði, elsku Siggi
minn, megum við varðveita þá
góðu eiginleika sem þú hafðir.
Ólafur Þórisson.
Það voru mikil forréttindi að fá
að fylgjast með og kynnast
Sigurður Magnason
✝ Ragnar JónJónsson fædd-
ist í Reykjavík 22.
mars 1929. Hann
lést á Vífilsstöðum
23. júlí 2019.
Foreldrar hans
voru Jón Bjarni
Helgason, f. 1893,
d. 1984, og Char-
lotta Soffía Al-
bertsdóttir, f. 1893,
d. 1947. Alsystkini
Ragnars voru Alrún G. Jóns-
dóttir, f. 1921, d. 1993, Sverrir
Jónsson, f. 1924, d. 2014, Leifur
Jónsson, f. 1927, d. 1995, og
samfeðra systir var Guðný K.
Jónsdóttir, f. 1942, d. 1993.
Fyrsta eiginkona Ragnars
var Lára Guðmundsdóttir, f.
1929, gift 1950. Börn Láru og
Ragnars eru Hilmar, f. 1948.
Börn Hilmars eru Hildur Björk,
maki Sveinn Zoëga. Ágústa
Erna, maki Gísli Júlíus Sigurðs-
son. Birgir, maki María Kjart-
ansdóttir. Vera, maki Stefán
Már Högnason. Hilmar á fimm
barnabörn. Jón Guðmundur, f.
1950. Dóttir Jóns er Lára Rós,
maki Daniel Myers og fóst-
ursonur Ágúst Ívar, maki Marta
Kowalkowska. Jón Guðmundur
er kvæntur Guðrúnu Hólmfríði
Ágústsdóttur og eiga þau til
samans fjögur barnabörn.
Ágúst, f. 1952. Börn Ágústar
eru Eva Lind, maki Jóhann
Ágúst Sigurðarson. Heiða, maki
Þorvaldur Stefánsson. Vaka,
börn þeirra eru Helena og Theó-
dór Helgi.
Barnsmóðir Ragnars var
Jóna Sigríður Jónatansdóttir, f.
1927, d. 2019. Dóttir þeirra er
Soffía Íris, f. 1948. Sonur Írisar
er Ólafur Þór Halldórsson, maki
Mariya Belan og eiga þau tvö
börn.
Ragnar ólst upp í Reykjavík
að frátöldum árum er hann
dvaldi að Svínafelli í Öræfum
frá níu til tólf ára aldurs.
Snemma lærði hann að teikna
og hafði unun af að mála lands-
lagsmyndir. Starfsferill hófst
hjá Símanum og stundaði radíó-
nám í bréfaskóla RCA í BNA.
Síðan tók við Flugmálstjórn og í
kjölfarið stofnaði hann ásamt fé-
laga sínum Hans Kragh
Vesturbæjarradíó. Árið 1970
var hann einn stofnenda heild-
sölunnar Íselco og starfaði þar
fram á eftirlaunaaldur, en þar á
undan var hann um skeið sölu-
maður hjá G. Þorsteinsson &
Johnson. Golfáhugamaður var
hann alla tíð og stofnaði ásamt
Pétri Björnssyni Golfklúbb Ness
árið 1964. Ragnar gekk í Frí-
múrararegluna 1974. Ragnar
var söngelskur og virkur í kóra-
starfi á efri árum. Ættfræði var
honum hugleikin frá unga aldri
og skilur hann eftir sig safn
bóka og upplýsinga fyrir afkom-
endur sína.
Útför Ragnars fer fram frá
Lindakirkju í dag, 8. ágúst 2019,
klukkan 13.
maki Bragi Dór
Hafþórsson. Hlín
og Ágúst Elí, maki
Þórdís Hrund Þórð-
ardóttir. Ágúst er
kvæntur Bergljótu
Benónýsdóttur og
eiga þau til samans
10 barnabörn og
barnabarnabarn.
Önnur eiginkona
Ragnars var Sif
Bjarnadóttir, f.
1933, d. 1982, gift 1956. Börn
Sifjar og Ragnars eru fóst-
ursonur Bjarni Ómar Guð-
mundsson, f. 1953 sonur Sifjar.
Börn Bjarna eru Þórður, maki
Edda Karen Haraldsdóttir.
Hjördís Sif, maki Hilmar Þór-
arinn Hilmarsson. Fóstursonur
Kristján Óttar Clausen, maki
Kristrún Brynja Þorsteins-
dóttir. Maki Bjarna er Þórdís
Katla Einarsdóttir og eiga þau
til samans sjö barnabörn. Ólaf-
ur, f. 1959. Börn Ólafs eru Guð-
laugur Hrafn, Sif, maki Anton
Sigurðsson og Sóldís Guðbjörg.
Ólafur er kvæntur Guðbjörgu
Pétursdóttur og eiga þau tvö
barnabörn.
Þriðja eiginkona Ragnars var
Anna Einarsdóttur, f. 1954, d.
2005, gift 1979. Börn Ragnars
og Önnu eru Ragnar Helgi, f.
1978, maki Katrín Ragnarsson,
dóttir Ragnars Helga er Ragn-
heiður Anna og fósturdóttir
Sandra Kaiser. Heiðrún, f. 1979,
maki Ragnar F. Magnússon og
Nú er pabbi gamli, eða Ronni
eins og hann var kallaður, genginn
á vit forfeðra sinna 90 ára að aldri.
Um miðjan júní fórum við Guð-
björg með pabba í bíltúr um
Reykjavík á marga staði sem hann
hafði lifað og starfað. Einn stað-
urinn var Lokastígur 9, en þar ólst
hann upp í steinhúsi sem Jón afi
og Charlotta amma byggðu og
stendur enn með myndarbrag. Við
Lokastíginn benti pabbi á húsin í
kring og nefndi nöfn vina og fé-
laga sem þar höfðu búið rétt eins
og gerst hefði í gær. Hann sagðist
hafa verið ákaflega feiminn sem
barn og ekki verið allra. Í raun er
það góð persónulýsing á pabba
gamla, því hann var alla tíð í raun
hlédrægur og einrænn að eðlis-
fari. Hafði hann unun af lestri, að
grúska í ættfræði, teikna og mála
myndir eða laga gamalt radíódót.
Pabbi var svo heppinn að eiga
góða vini og fjölskyldu sem hvöttu
hann til félagslífs og Sverrir bróð-
ir hans þreyttist aldrei á að taka
Ronna bróður með sér, hvort sem
það var á frímúrarafundi, til að
syngja með ýmsum kórum eða
aðrar athafnir. Golfíþróttina
stundaði hann af miklum áhuga og
stofnaði hann Golfklúbb Ness árið
1964 ásamt félaga sínum Pétri
Björnssyni. Á ég margar góðar
minningar sem barn þegar verið
var að byggja völlinn, þegar við
kepptumst við að láta kríurnar
sem einkenna svæðið ekki gogga í
okkur en í golfklúbbnum var hann
heiðursfélagi til æviloka.
Pabbi sagði mér sem ungum
dreng hvernig maður veit hvort
maður hafi lent í hinu efra eða
neðra eftir lífið. Munurinn væri sá
Ragnar Jón Jónsson
Sambýlismaður minn, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir og afi,
GLEN RICARDO FAULK,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans 24. júlí.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
föstudaginn 9. ágúst klukkan 15.
Aðalheiður Una Jóhannesdóttir
Sigrún Faulk
Hrafnhildur Faulk
Þóra Laufey Pétursdóttir
Arndís Kristjánsdóttir
Ólöf Kristjánsdóttir
tengdasynir og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
BENEDIKT HERMANNSSON
húsgagnasmíðameistari,
dvalarheimilinu Lögmannshlíð,
lést á heimili sínu laugardaginn 20. júlí.
Útför fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 9. ágúst klukkan
13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á dvalarheimilið
Lögmannshlíð.
Lóa Sigurjónsdóttir
Sævar Benediktsson Ólöf Kristín Ólafsdóttir
Hermann Benediktsson Þórunn Ósk Kristjánsdóttir
Rannveig Benediktsdóttir Ómar Garðarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæra,
BRYNDÍS STEINÞÓRSDÓTTIR
hússtjórnarkennari,
Dalbraut 14, Reykjavík,
lést þriðjudaginn 30. júlí. Útför hennar fer
fram frá Áskirkju miðvikudaginn 14. ágúst
klukkan 13.
Hjörtur Þórarinsson
J. Ingimar Hansson Snorri Hansson
Ásdís Arnardóttir Sigrún Ingibjörg Arnardóttir
Erna Arnardóttir Magnús Arnarson
Sigrún Hjartardóttir
og fjölskyldur
Mín góða tvíburasystir og yndisleg
móðursystir okkar,
HELGA BRYNJÓLFSDÓTTIR,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
22. júlí. Jarðsett var í kyrrþey.
Bryndís Brynjólfsdóttir
Helga Bryndís, Þorbjörn
og Brynjólfur Þór Jónsbörn
Okkar elskulegi eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
SIGURGEIR JÓNSSON
framhaldsskólakennari,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
1. ágúst. Útförin fer fram frá Lindakirkju,
Kópavogi, mánudaginn 12. ágúst klukkan 15.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk gjörgæsludeilda Landspítalans
fyrir umönnun og góðvild.
Guðrún S. Óskarsdóttir
Óskar Sigurgeirsson Ragnheiður Þorkelsdóttir
Arnar Jón Sigurgeirsson Helena Árnadóttir
Harpa, Emma og Orri Óskarsbörn
Okkar ástkæri,
BALDVIN TRYGGVASON,
fyrrverandi sparisjóðsstjóri,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
mánudaginn 12. ágúst klukkan 13.
Blóm eru afþökkuð, en þeim sem vildu
minnast hans er bent á líknarfélög.
Halldóra J. Rafnar
Sveinbjörn I. Baldvinsson
Tryggvi M. Baldvinsson