Morgunblaðið - 08.08.2019, Qupperneq 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2019
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Málverk
Málverk
eftir Karólínu Lárusdóttur
Listaverk eftir Karólínu Lárusdóttur;
Dansað í tunglsljósinu. Vatnslitir,
75x55. Tilboð óskast á
listaverk123@gmail.com
Til sölu
Lok á heita potta og hitaveitu-
skeljar
Stærðir í cm: 200x200, 210x210,
220x220, 235x235, 235x217,
217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000
kg jafnarðarþunga af snjó. Vel ein-
angruð og koma með 10 cm svuntu.
Sterkustu lokin á markaðnum. Litir:
Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að
auðvelda opnun á loki.
www.heitirpottar.is
Sími 777 2000 Haffi
og 777 2001 Grétar
Bókhald
NP Þjónusta
Sé um að annast
bókhaldslausnir o.þ.h.
Hafið samband í síma
831-8682.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Hamarsgata 14, Fjarðabyggð, fnr. 217-7922, þingl. eig. Eðvarð Þór
Grétarsson, gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves og
Samskip hf. og Fjarðabyggð og Olíuverzlun Íslands ehf., þriðjudaginn
13. ágúst nk. kl. 09:00.
Hátún 11, Fjarðabyggð, fnr. 217-0235, þingl. eig. Aleksandra Monika
Macieja, gerðarbeiðandi Fjarðabyggð, þriðjudaginn 13. ágúst nk. kl.
10:00.
Sýslumaðurinn á Austurlandi
7. ágúst 2019
Tilkynningar
Leyfi til veiða á
sæbjúgum fiskveiðiárið
2019/2020
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um leyfi
til veiða á sæbjúgum fiskveiðiárið
2019/2020, sbr. reglugerð nr. 795, 30. ágúst
2013, um veiðar á sæbjúgum, með síðari
breytingum.
Sækja skal um veiðileyfi í UGGA, upplýs-
ingagátt Fiskistofu og skulu fylgja umsókn-
inni upplýsingar um veiðar umsækjenda á
sæbjúgum þrjú síðustu fiskveiðiár og samn-
ingur um vinnslu á sæbjúgum í landi eða
jafngild yfirlýsing þegar um eigin vinnslu er
að ræða.
Umsóknarfrestur er frá 09. ágúst til og með
15. ágúst 2019.
Auglýsing um skráningu og próf til viðurkenningar bókara
Með vísan til laga nr. 145/1994 um bókhald, er fyrirhugað að halda próf til viðurkenningar bókara 2019 sem
hér segir:
• Prófhluti I: Reikningshald og upplýsingatækni 10. október 2019 – prófið hefst kl. 13 og stendur til
kl. 16. Eindagi greiðslu prófgjalds er 1. október 2019.
• Prófhluti II: Skattskil 21. nóvember 2019 – prófið hefst kl. 13 og stendur til kl. 16.
Eindagi greiðslu prófgjalds er 7. nóvember 2019.
• Prófhluti III: Raunhæft verkefni 14. desember 2019 – prófið hefst kl. 12 og stendur til kl. 17. Eindagi
greiðslu prófgjalds er 2. desember 2019.
Skráningu í öll próf fer fram samtímis (allir prófhlutar) og lýkur þann 9. september 2019. Skiptir ekki
máli hvort próftaki ætlar að taka eitt próf eða öll. Ekki er hægt að skrá sig í próf eftir að skráningarfresti
lýkur. Próftakar bera sjálfir ábyrgð á því að skrá sig í próf.
Um efnissvið prófanna vísast til 3. gr. reglugerðar nr. 686/2015 um próf til viðurkenningar bókara og til
prófefnislýsingar prófnefndar viðurkenndra bókara. Í henni er jafnframt útlistað hvaða hjálpargögn eru leyfi-
leg í einstökum prófum. Prófefnislýsinguna má nálgast á vefsvæði prófnefndar viðurkenndra bókara á
heimasíðu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins:
https://www.stjornarradid.is/verkefni/atvinnuvegir/vidskipti/bokhald/vidurkenndir-bokarar/
Einkunnir í einstökum prófum eru gefnar í heilum og hálfum tölum frá 0-10. Lágmarkseinkunn til að
standast einstaka prófhluta er 5,0. Til þess að standast fullnaðarpróf þarf próftaki að hljóta a.m.k. 7,0 í vegna
meðaleinkunn (lokaeinkunn) úr öllum prófhlutum.
Próftökugjald fyrir hvert próf er kr. 37.500. Eigi er skylt að standa fyrir prófi nema a.m.k. 30 þátttakendur
hafi skráð sig í próf. Ef próftökugjald er ekki greitt á eindaga þá fellur niður próftökuréttur.
Við skráningu skal staðfest að fullnægt sé skilyrðum 43. gr. laga nr. 145/1994 um að próftaki sé lögráða og
hafi forræði á búi sínu (að búið hafi ekki verið tekið til gjaldþrotaskipta).
Væntanlegir próftakar skulu skrá sig til prófs á heimasíðu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins
www.anr.is eða á heimasíðu framkvæmdaraðila prófanna www.promennt.is
Reykjavík, 9. júlí 2019
Prófnefnd viðurkenndra bókara
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-
16. Gönguhópur með göngustjóra kl. 10. Opin handavinnustofa kl. 9-
16. Söngstund með Marý kl. 13.45. Opið fyrir innipútt og 18 holu úti-
púttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á
könnunni, allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Brids og kanasta kl. 13.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring-
borðið kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Hugmyndabankinn opinn
kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11.30. Salatbar kl. 11.30-12.15. Söngur kl.
13.30. Gáfumannakaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari
upplýsingar í síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Núvitund í handverkstofu kl. 10.30.
Göngutúr um hverfið kl. 13. Heitt á könnunni fyrir hádegi. Hádegis-
matur kl. 11.30-12.30 alla daga vikunnar, kaffi kl. 14.30-15.30 alla virka
daga. Opin handverkstofa alla virka daga. Verið velkomin á Vitatorg.
Garðabær Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Handvinnuhorn í
Jónshúsi kl. 13.
Gjábakki Kl. 9 handavinna.
Gullsmári Handavinnuhópur kl. 9-11.30 og frá kl. 13-14.30.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffispjall í krókn-
um á Skólabraut frá kl. 10.30. Félagsvist verður í salnum á Skólabraut
í dag kl. 13.30. Allir velkomnir.
fasteignir
✝ Harpa Hjör-leifsdóttir
fæddist í Vest-
mannaeyjum 4. jan-
úar 1953. Hún lést á
heimili sínu 19. júlí
2019. Foreldrar
hennar voru Hjör-
leifur Már Erlends-
son, f. í Vest-
mannaeyjum 13.10.
1927, d. 3.10. 1999.
og Ástrós Eyja
Kristinsdóttir, f. í Vest-
mannaeyjum 7.11. 1933, d. 31.3.
2012.
Systkini hennar eru: Þröstur
Elfar Hjörleifsson, f. 2.11. 1954,
Hrönn Hjörleifsdóttir, f. 1.12.
1955, Hlíf Hjörleifdóttir, f. 28.1.
1957, d. 30.12. 2009. Sóley Vaka
Hjörleifsdóttir, f. 27.7. 1963,
Bylgja Dögg Hjörleifsdóttir, f.
30.7. 1970.
Systkini samfeðra: Ómar
Hjörleifsson, f. 16.7. 1947, Hulda
Hjörleifsdóttir, f. 10.9. 1948,
Alma Hjörleifsdóttir, f. 26.12.
1949.
Eiginmaður
Hörpu er Þórður
Haraldsson, f. 11.3.
1948. Sonur þeirra
er Svanur Þórð-
arson, f. 24.7. 1981.
Unnusta hans er
Heiðrún Þorvalds-
dóttir, f. 9.8. 1989.
Saman eiga þau
soninn Emil Mána
Svansson, f. 1.11.
2018. Fyrir átti
Svanur Daníel Má Svansson, f.
8.3. 2005, og Helgu Rós Svans-
dóttur, f. 18.9. 2010.
Harpa lauk gagnfræðaprófi í
Vestmannaeyjum vorið 1970.
Hún stundaði nám við Hús-
mæðraskólann á Laugarvatni
1971 til 1972. Þá lauk hún námi
sem leikskólaliði 18.5. 2010.
Harpa starfaði m.a. á sauma-
stofum, við sótthreinsunarfyr-
irtæki þeirra hjóna og sem skóla-
og leikskólaliði til fjölda ára.
Útför hennar fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag, 8. ágúst
2019, kl. 13.
Það er svo sárt og erfitt að trúa
því að þú sért farin, elsku systir.
Söknuðurinn er svo sár og mikill
og tilhugsunin um að fá ekki að
knúsa þig aftur er óbærileg.
En allar yndislegu minning-
arnar um stundirnar sem við átt-
um saman lifa og þær ylja manni
svo sannarlega og gefa okkur
sem eftir stöndum hlýju og gleði í
sálina.
Dag í senn, eitt andartak í einu,
eilíf náð þín, faðir gefur mér.
Mun ég þurfa þá að kvíða neinu,
þegar Guð minn fyrir öllu sér?
Hann sem miðlar mér af gæsku sinni
minna daga skammt af sæld og þraut,
sér til þess að færa leið ég finni
fyrir skrefið hvert á lífs míns braut.
Hann, sem er mér allar stundir nærri,
á við hverjum vanda svar og ráð,
máttur hans er allri hugsun hærri,
heilög elska, viska, föðurnáð.
Morgundagsins þörf ég þekki eigi,
það er nóg, að Drottinn segir mér;
Náðin mín skal nægja hverjum degi,
nú í dag ég styð og hjálpa þér.
Guð, ég fæ af fyrirheitum þínum
frið og styrk, sem ekkert buga má.
Auk mér trú og haltu huga mínum
helgum lífsins vegi þínum á,
svo að ég af hjartaþeli hreinu,
hvað sem mætir, geti átt með þér
daginn hvern, eitt andartak í einu,
uns til þín í ljóssins heim ég fer.
(Sigurbjörn Einarsson)
Elsku Doddi, Svanur og Heiða,
Daníel Már, Helga Rós og Emil
Máni, megi Guð gefa ykkur styrk
í gegnum þessa erfiðu tíma.
Þín systir,
Sóley Vaka.
Elsku Harpa okkar.
Það er svo erfitt að trúa því að
þú sért farin frá okkur. Orð fá
ekki lýst hve mikið við söknum
þín og hversu mikið við vildum
geta spólað til baka og hafa náð
að eyða meiri tíma með þér í veik-
indunum, sem enginn gerði sér
grein fyrir að væru jafn alvarleg
og þau voru. En því verður ekki
breytt sem orðið er og það sem
við eigum og enginn getur tekið
frá okkur eru yndislegar minn-
ingar.
Það er svo gaman að hugsa til
baka til þín elsku Harpa, því
hvert einasta augnablik sem
maður átti með þér einkenndist
af gleði! Hlátur og fíflalæti voru
undirstaða hvers einasta hittings
hjá okkur og tíminn og tíðarfarið
einhvern veginn stóð í stað og
skipti ekki máli. Þegar maður var
í þinni nærveru var bara gaman.
Þegar við bræðurnir vorum
litlir var farið reglulega í Reykja-
víkurferðir eins og gengur hjá
okkur Keflvíkingunum, en
Reykjavíkurferðir voru ekki bara
Reykjavíkurferðir – ef það var
komið við í Grafarvoginum, þá
var sko gaman. Fá að leika við
hana Snotru og spennan við að
sjá hvað Svanur frændi var búinn
að fá af nýju dóti. Svo var það
alltaf sérstakt móment þegar
Freyr bróðir fékk að kíkja í
nammiskápinn og ná sér í smá
nesti fyrir heimferðina.
Í seinni tíð hittumst við oftar
þegar þú komst til Keflavíkur
með henni Bylgju okkar, í afmæl-
in, partíin og aðra hittinga. Alltaf
var hún Harpa okkar mætt með
sinn ómissandi smitandi hlátur
og alla gleðina sem alltaf fylgdi
þér og einkenndi þig. Það var svo
gaman að þú mættir oftar en ekki
í einhverri nýrri flík sem þú varst
svo spennt að sýna okkur og auð-
vitað hrósuðum við þér í bak og
fyrir þannig að þú sperrtist öll
upp af gleði. Já, elsku Harpa, það
er varla til minning hjá okkur
með þér öðruvísi en hlæjandi og
sprellandi og jafnvel svo innilega
hlæjandi að það voru flestir nán-
ast að pissa á sig.
Börn voru þitt líf og yndi. Eins
barngóða konu og þig var varla
hægt að finna. Þú varst svo ein-
staklega blíð, ljúf og einlæg að
jafnvel hin virkustu og fyrirferð-
armestu börn urðu ljúf sem lömb
í kringum þig. Svo sástu auðvitað
ekki sólina fyrir barnabörnunum
þínum og fylgdist með hverju
sporinu sem þau tóku í lífinu og
dáðist að öllum þeirra afrekum
og varst svo stolt af þeim. Ynd-
islegri ömmu held ég að hafi ekki
verið hægt að hugsa sér.
Við elskum þig, elsku Harpa
okkar, og söknum þín svo sárt.
Megi Guð og allir hans englar
vaka yfir Dodda, Svani, Heiðu og
elsku barnabörnunum þínum.
Hugur okkar er hjá ykkur elsku
fjölskylda. Megi allar góðar vætt-
ir standa með ykkur og styrkja
ykkur í gegnum þessa erfiðu
tíma.
En minningin um yndislega
konu mun lifa með okkur alla tíð.
Þinn frændi,
Hjörleifur Már,
Linda og fjölskylda.
Harpa
Hjörleifsdóttir
Sálm. 86.7
biblian.is
Þegar ég er í
nauðum staddur
ákalla ég þig
því að þú
bænheyrir mig.