Morgunblaðið - 08.08.2019, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2019
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottum fatnaði.
Fatnaður fyrir fagfólk
Tónlistarkvöld Ja Ja Ja tónlistar-
klúbbsins og vefsíðunnar, Jajaja
Nordic, verða haldin bæði í Berlín
og í London í september næstkom-
andi og í samstarfi við Iceland
Airwaves-tónlistarhátíðina. Fyrra
kvöldið verður í Berlín 12. septem-
ber og verða þar kynntar til sög-
unnar íslenska tónlistarkonan
Rokky, Lydmor frá Danmörku og
Detalji frá Finnlandi og í London,
26. september, verður íslenska
sveitin Warmland með flytjenda
sem og The Holy frá
Finnlandi og Pink
Milk frá Svíþjóð. 6.
nóvember munu svo
allar sveitirnar sex
koma fram á Iceland
Airwaves sem haldin
verður í miðborg
Reykjavíkur að
vanda. Markmiðið með kvöldunum
er að kynna bestu nýju sveitirnar
frá Norðurlöndunum að því er fram
kemur í tilkynningu.
Ja Ja Ja í samstarf við Airwaves
Rokky
Erla Þórarinsdóttir myndlistarkona
opnar sýningu á Mokka við Skóla-
vörðustíg í dag, fimmtudag, klukkan
17. Sýninguna kallar hún Á fleka-
skilum – verðandi heimsálfa og
henni eru sjö málverk, olíuverk mál-
uð á striga á árunum 2016 til 17. Auk
þess sýnir Erla eitt nýtt fjölfeldi.
Í hugleiðingum listakonunnar sem
fylgja verkunum úr hlaði segir með-
al annars: „Við lifum á flekaskilum
Evrasíu og Ameríku. Flekarnir
fylgja streymi möttuls jarðar, í eilíf-
um árekstri eða gliðnun. Hér glenn-
ist Atlantshaf, Miðgarðsormur rak
upp hrygg í huga gamla norð-
urheims […] Með sinn fót í hvorri
álfu á glitormi Miðgarðs er flúið á vit
lita. Bak við augnlok búa þeir skín-
andi skýrir. Fest er á striga og gefið
augum sem nenna að sjá. Málverkið
tekur yfir og eitt gefur annað. Söng-
ur kerfa tauga, ónæmis og innkirtla
spilar lag lífs á orkustöðvarnar sjö.“
Erla sýnir á Mokka
Á flekaskilum Eitt málverka Erlu
Þórarinsdóttur á sýningunni.
Ragnheiður
Káradóttir
myndlistarkona
verður með leið-
sögn um sýningu
sína sem nú
stendur yfir í D-
sal Listasafns
Reyjavíkur-
Hafnarhúss í
kvöld, fimmtu-
dag, kl. 20. Sýn-
inguna kallar hún míní-míní múltí-
versa og í tilkynningu segir að
Ragnheiður kanni í verkunum
„mörkin á milli hins manngerða og
hins náttúrulega. Sérstaklega lítur
hún til staða sem hannaðir hafa
verið til afþreyingar, líkt og míní-
golfvalla, lystigarða, íþrótta-
leikvanga og skemmtigarða.“
Segir frá míní-
míní múltíversa
Ragnheiður
Káradóttir
Björk Guðmundsdóttir hefur til-
kynnt að hin viðamikla tónlistar- og
margmiðlunarsýning hennar,
Cornucopia, sem sett var upp við
mikið lof í The Shed í New York í
vor, verði sýnd í nokkrum evrópsk-
um borgum í haust.
Fyrst verða fjórar sýningar í Par-
que Bicentenario í Mexíkóborg nú
síðar í mánuðinum en í nóvember
verður aftur haldið af stað og verður
Cornucopia sett upp á eftirtöldum
stöðum: Forest National í Brussel
13. nóvember; den Atelier í Lúxem-
burg 16. nóvember; O2 í London 19
nóvember; The SSE Hydro í Glas-
gow 25. nóvember; og loks í 3Arena í
Dublin 28. nóvember. Miðasala á
sýningarnar í Evrópu hefst, sam-
kvæmt fréttatilkynningu, á morgun,
föstudaginn 9. ágúst.
Með Björk koma fram íslenski
flautuseptettinn viibra, ásláttarleik-
arinn Manu Delago, hörpuleikarinn
Katie Buckley, Bergur Þórisson sem
stýrir tölvum og leikur á ýmis hljóð-
færi, að ónefndum kór sem leikur
stór hlutverk. Í New York kom
Hamrahlíðarkórinn fram í sýning-
unum en í samtali við Morgunblaðið
á þeim tíma sagði Björk að annar
kór myndi koma við sögu á sýning-
unum í Mexíkóborg. Ekki hefur ver-
ið kynnt hver tilhögunin verði í Evr-
ópuuppfærslunum.
Samtímis tilkynningunni gaf
Björk út nýtt myndband við lagið
„Loss“ af síðustu plötu hennar, Ut-
opia. Tobias Gremmler, sem Björk
hefur áður unnið með, er leikstjóri
myndbandsins en það var skapað
sérstaklega fyrir Cornucopia-
sýninguna. Í því má sjá andlitshreyf-
ingar umbreytast á ævintýralegan
hátt í skepnur sem minna á djúp-
sjávarplöntur og skeldýr.
Blaðamaður Morgunblaðsins sem
fjallaði um tónleikasýningu Bjarkar
í New York skrifaði: „Cornucopia
eða Gnægtahorn er sýning engu lík,
hreint makalaus upplifun …“
Cornucopia í Evrópu
Björk kynnir
sýningar í sjö
borgum í haust
Ljósmynd/Santiago Felipe
Glæsisýning Björk umkringd íslensku flautuleikurunum sjö í septettinum
Viibra á einni sýninganna á Cornucopia í The Shed í New York-borg.
Vegfarandi gengur hjá stórri ljósmyndainnsetningu
eftir franska ljósmyndarann og myndlistarmanninn JR
sem sett hefur verið upp á bakhlið Hudson-leikhússins
við Broadway í New York en þar er verið að sýna verk-
ið Sea Wall/A Life með hinum kunnu leikurum Jake
Gyllenhaal og Tom Sturridge. Þetta verk JR er hluti
viðamikils verkefnis sem hann kallar „Inside Out Proj-
ect“ og hann hefur myndað í víða um lönd. JR er kunn-
astur fyrir flennistórar ljósmyndir sem hann hefur
komið fyrir á óvæntum stöðum, til að mynda á þökum
fátækrahverfa í Suður-Ameríku, en viðfangsefni verka
hans er ævinlega maðurinn og hlutskipti hans.
AFP
Ásjónur manna á leikhúsvegg