Morgunblaðið - 12.08.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST 2019
Selfoss // Akureyr i // Egilsstaðir // Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Bergen garðhús eru fáanleg í fjórum stærðum. Frá 5 m2 upp í 14,9 m2.
Húsin eru vönduð, sterkbyggð og þola vel íslenska veðrið!
Frá kr.
299.900Garðhús
Bergen
*30% stafestingargjald greiðist við pöntun.
Ný sending
á leiðinni!
40.000
kr. afsláttur
ef pantað er
fyrir
15. ágúst nk.
*
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Það var mjög mikilvægt að setja
heilbrigðisstefnu á blað svo við
villumst ekki af leið eða brestir
komi í kerfið. Markmiðin og leið-
irnar þurfa að vera skýrar, þannig
að fjármunir nýtist sem best.
Fjórða hver króna hins ríkisins fer
til heilbrigðismála,“ segir Svandís
Svavarsdóttir heilbrigð-
isráðherra.
Ráðherrann fundar um þess-
ar mundir með heilbrigðisstarfs-
fólki, sveitarstjórnarmönnum og
fleirum og kynnir þar heilbrigð-
isstefnu til 2030 sem Alþingi sam-
þykkti nýlega með 45 atkvæðum
samhljóða. Meginstefin í þessari
stefnu eru að auka sveigjanleika í
heilbrigðiskerfinu og nota mæli-
kvarða til að meta gæði og árang-
ur. Horft er til þess að vandamál
sjúklinga séu meðhöndluð út frá
heildarsýn, en ekki endilega út frá
heimsóknum til sérfræðinga eða
innlögnum á sjúkrahús.
Efling þjónustu við
aldraða og gæðaáætlun
Til skemmri tíma litið byggir
heilbrigðisstefnan svo á aðgerða-
áætlun til fimm ára í senn, stefnu-
mótandi plaggi sem heilbrigð-
isráðherra skal uppfæra árlega.
Þar er efst á blaðinu nú efling
heilbrigðisþjónustu við aldraðra,
ný stefnumörkun í málefnum
heilabilaðra, bætt meðferð í þjón-
ustu við áfengis- og fíkniefna-
sjúkdóma, endurskoðun á skipu-
lagi sjúkraflutninga, innleiðing
krabbameinsáætlunar, nýtt fjár-
mögnunarkerfi fyrir heilbrigð-
isþjónustuna, mönnun hennar og
gæðaáætlun.
„Enginn ein stétt eða hópur
getur sagt að þetta sé sín stefna.
Þetta var samstarf hundraða fólks
þar sem margir komu með inn-
legg. En vissulega kannast ég við
að til dæmis læknum finnst sem
þeir hafi verið afskiptir í þessari
vinnu, sem ég tel þó ekki rétt. Inn-
an heilbrigðiskerfisins eru sterkar
fagstéttir sem koma að málinu út
frá ólíkum sjónarhornum og hags-
munum og því kemur það ekki á
óvart að ekki séu allir fyllilega
sammála,“ segir Svandís.
Heilsugæslan
verði gjaldfrjáls
Efling heilsugæslunnar sem
fyrsti viðkomustaður fólks sem
þarf aðstoð heilbrigðiskerfisins,
er meðal áherslumála í hinni nýju
stefnu. Þetta segir Svandís mik-
ilvægt; oft sé fólk að sækja þjón-
ustu á rangan staði svo úr verði á
stundum óeðlilega löng bið, tví-
verknaður og hugsanlega oflækn-
ingar.
„Því skiptir miklu máli að
stilla fókusinn rétt, þannig að fjár-
munum sé ráðstafað skynsamlega.
Í svo mörgu tilliti skiptir miklu
máli að heilsugæslan sé sterk og
þar hafa verið innleidd ný vinnu-
brögð, með teymisvinnu ólíkra
fagstétta. Þjónustan þar felst í svo
miklu meiru en viðtölum við
lækni,“ segir ráðherrann. Hún
minnir líka á að sjúkdómabyrði sé
að breytast sem kalli á nýjar
áherslur. Meðalaldur Íslendinga
sé að hækka og því fylgi marg-
víslegar áskoranir í heilbrigð-
isþjónustunni. Þá glími margir við
kulnun og þá sé nýgengi áunninna
lífsstílssjúkdóma að aukast; svo
sem stoðkerfisvandamál, syk-
ursýki og fleira slíks.
„Heilbrigðisstefnan og rík-
isfjármálaáætlun þurfa að haldast
í hendur. Í dag er kostnaðarþátt-
taka Íslendinga í heilbrigðiskerf-
inu um 17,1% samanborðið við
15% á Norðurlöndunum. Fyrir
nokkru tókum við komugjöld í
heilsugæslunni af öryrkjum og
eldri borgurum. Ég tel raunar
mjög verðugt markmið að heilsu-
gæslan öll verði gjaldfrjáls í ná-
inni framtíð.“
Heilbrigðisstefnan og ríkisfjármálaáætlun þurfa að haldast í hendur
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Heilbrigðisráðherra Það skiptir miklu máli að heilsugæslan sé sterk og
þar hafa verið innleidd ný vinnubrögð, segir Svandís Svavarsdóttir.
Brestir komi ekki
í heilbrigðiskerfið
Stofnanir heilbrigðisráðuneytisins geri árlega eigin starfs-
áætlun sem taki mið af stefnu og áætlunum ráðherra.
Allir landsmenn hafi aðgang að skýrum upplýsingum um hvern-
ig og hvert skuli leitað eftir þjónustu.
Byggingarframkvæmdum Landspítala við Hringbraut í Reykja-
vík og við Sjúkrahúsið á Akureyri verði lokið.
Landsmenn hafi aðgengi að upplýsingum og þekkingu til að
taka upplýstar ákvarðanir um val á heilbrigðisþjónustu. Allir
hafi samræmda sjúkraskrá.
Allir geti séð stöðu sína í greiðsluþátttökukerfi.
Landsmenn hafi tæknilega möguleika á heimili sínu til þess að
komast í samband við heilbrigðisþjónustu óháð búsetu.
Fjármögnun heilbrigðisþjónustu hvetji til aukinna gæða, betri
heilsu notenda, góðs aðgengis að þjónustu og stemma verði
stigu við kostnaði.
Kostnaður við skimanir og leit að ónæmum bakteríum og veiru-
sjúkdómum sé greiddur úr sameiginlegum sjóðum.
Íslendingar verði meðal fremstu þjóða í að birta niðurstöður um
árangur starfs í heilbrigðiskerfinu.
Hver þáttur heilbrigðiskerfisins verði kostnaðargreindur og
fjármagnaður með gagnsæjum hætti.
Heilbrigðisvísindasjóður verði stofnaður.
Fjármögnun hvetji til aukinna gæða
„Það er stór munur á því hvort allt
vatnasvið stórfljóts er friðlýst eða
einstaka virkjunarkostir, enda geta
þeir í sumum tilvikum fallið vel að
náttúrunni,“ segir Vilhjálmur Árna-
son, alþingismaður og varaformaður
stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs.
Friðlýsing á vatnasviði Jökulsár á
Fjöllum sem Guðmundur Ingi Guð-
brandsson, umhverfisráðherra, und-
irritaði síðastliðinn laugardag, vekur
spurningar, segir Vilhjámur sem sit-
ur í nefnd sem undirbýr stofnun
miðhálendisþjóðgarðs. Stefið í
rammaáætlun þeirri sem fyrir liggur
er að ákveðnir virkjunarkostir eru á
grænu ljósi, sumir
í biðflokki en aðrir
útilokaðir vegna
sjónarmiða um
náttúruvernd.
„Rammaáætlun
og áform um
miðhálendisþjóð-
garð þarf að ræða
í samhengi.
Ramminn var til-
raun til málamiðlunar í virkjunar-
málum og því verður líka að halda til
haga að orkunýting og náttúruvernd
geta farið vel saman,“ segir Vil-
hjálmur sem finnst friðlýsing á Jök-
ulsá á Fjöllum nú vera gott mál, enda
nái hún til svæða sem hafi mikið nátt-
úruverndargildi, svo sem Dettifoss.
Menn megi hins vegar ekki fara fram
úr sjálfum sér, heldur þurfi að meta
hvern einn kost.
Vernd gegn virkjunum
Með friðlýsingunni er Jökulsá á
Fjöllum vernduð gegn orkuvinnslu
sem tillögur voru um með Arnardals-
virkjun og Helmingsvirkjun. Svæðið
sem fellur undir friðlýsinguna af-
markast af vatnasviði ofan áður fyr-
irhugaðra stíflna um meginfarveg og
næsta nágrennis. sbs@mbl.is
Friðlýsing vekur spurningar
Vatnasvið Jökulsár á Fjöllum friðlýst Orka og náttúruvernd geta farið saman
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Dettifoss Hrikalegur og aflmikill.
Vilhjálmur
Árnason
Þrír hafa látist í
umferðarslys-
um það sem af
er þessu ári og
fara þarf aftur
til ársins 2013
til þess að finna
sömu tölu lát-
inna og er ná-
kvæmlega nú,
12. ágúst. Þenn-
an sama dag í fyrra voru látnir í
umferðinni á líðandi ári alls 12, 8
árið 2017 og 2016 og árið 2015 var
talan komin í níu alls.
Í apríl lést maður sem velti bíl
sínum í Langadal, annar lést þegar
veghefill lenti utan vegar á Ing-
gjaldssandsvegi í júní. Í sama mán-
uði fórst maður í vélhjólaslysi við
Hólmavík. sbs@mbl.is
Banaslysin eru færri
Svínahraun Slysa-
skilti vekur athygli.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
,,Ég hef talað úti á landi en aldrei
svona í kippu. Það hefur verið kvart-
að yfir því, réttilega, að ekki sé
fundað nægjanlega mikið með fólki á
landsbyggðinni. Ég hef verið hvattur
til þess að fara í svona ferð en því
miður hefur ekki gefist tími fyrr
vegna anna,“ segir Már Guðmunds-
son seðlabankastjóri um funda-
herferð sem hefst í dag á Ísafirði. Þar
kynnir Már þróun, stöðu, og áskor-
anir í peninga- og efnahagsmálum við
lok 10 ára skipunartíma hans.
Már fer ásamt bílstjóra og upplýs-
ingafulltrúa í ferðina en auk Ísafjarð-
ar verður fundað á Akureyri, Nes-
kaupstað og Árborg en sá fundur fer
fram á síðasta starfsdegi Más 19.
ágúst.
,,Í skýrslu um endurskoðun pen-
ingastefnu Íslands var talað um að
Seðlabankinn eigi að eyða meiri
kröftum í það að útskýra á sem víð-
tækustum vettvangi hvað hann sé að
gera, af hverju og hvernig hlutirnir
virka. Þetta var eitt af þeim sjón-
armiðum sem við tókum undir,“ segir
Már og bendir á að seðlabankastjór-
ar, Bretlands, Bandaríkjanna, Sví-
þjóðar, Noregs og fleiri ríkja fari
reglulega til fundar við almenning.
Már vonast til þess að nýir stjórn-
endur í Seðlabankanum hafi tök á að
gera hið sama og upplýsi almenning
með margvíslegum hætti um hlut-
verk og starf bankans. Fundastjórar
verða þrír fyrrverandi ráðherrar,
Einar Kristinn Guðfinnsson, Val-
gerður Sverrisdóttir og Guðni
Ágústsson. Smári Geirsson mun
stýra fundi á Neskaupstað en hann
er fyrrverandi formaður Sambands
sveitarfélaga á Austurlandi. Már seg-
ist kunnugur öllu þessu fólki og hann
hafi valið einstaklinga með mikla
reynslu.
Seðlabanka-
stjóri í hringferð
Bílstjóri og blaðafulltrúi með í för
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Seðlabankastjóri Már Guðmunds-
son lætur af störfum 20. ágúst.
Fundaherferð
» Fundað á Ísafirði, Akureyri,
Neskaupstað og Árborg.
» Algengt erlendis að seðla-
bankastjórar fundi með al-
menningi
» Fundarherferðin í samræmi
við endurskoðun pen-
ingastefnu Íslands
» Þrír fyrrverandi ráðherrar
fundarstjórar
Úr heilbrigðisáætlun til ársins 2030