Morgunblaðið - 12.08.2019, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST 2019
Norðlingabraut 8
110 Reykjavík
S: 530-2005
Bíldshöfði 16
110 Reykjavík
S: 530-2002
Tryggvabraut 24
600 Akureyri
S: 461-4800
&530 2000
www.wurth.is
Verkfæri – Festingar – Fatnaður – Persónuhlífar – Efnavara – Bílaperur – Rafmagnsvörur
Léttur dúnjakki
• 90% dúnn/10% fiður, þéttvafið nylon efni
• Einstaklega þægilegir, hlýir og léttir,
ferðapoki fylgir hverjum dúnjakka
• 5 mismunandi litir
• Stærðir: XS - 4XL – henta báðum kynjum
Vnr: 1899 707
Verð: 13.480 kr.
12. ágúst 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 122.22 122.8 122.51
Sterlingspund 147.84 148.56 148.2
Kanadadalur 92.37 92.91 92.64
Dönsk króna 18.344 18.452 18.398
Norsk króna 13.717 13.797 13.757
Sænsk króna 12.772 12.846 12.809
Svissn. franki 125.63 126.33 125.98
Japanskt jen 1.1543 1.1611 1.1577
SDR 168.13 169.13 168.63
Evra 136.92 137.68 137.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.3988
Hrávöruverð
Gull 1503.5 ($/únsa)
Ál 1737.0 ($/tonn) LME
Hráolía 57.74 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Heimsmarkaðsverð á gulli hækkaði
töluvert í síðustu viku og stökk í nokkur
skipti upp fyrir 1.500 dali á únsuna.
Kostaði únsan tæplega 1.497 dali við
lokun markaða á föstudag og nemur
hækkunin um 4% yfir vikuna. Reuters
segir gullverðið ekki hafa hækkað svona
hratt á einni viku síðan í apríl 2016 og
málmurinn ekki verið dýrari í sex ár.
Það sem af er þessu ári hefur verð á
gulli hækkað um rösklega 24%.
Styrking gullsins í síðustu viku hélst í
hendur við veikingu helstu hlutabréfa-
vísitalna vestanhafs, sem skrifast eink-
um á vaxandi spennu í viðskiptadeilum
Bandaríkjanna og Kína. ai@mbl.is
Órói ýtir gullinu upp
Titringur Gullverð leitar oft upp
á við þegar horfur eru slæmar.
STUTT
FRÉTTASKÝRING
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Útlit er fyrir að viðskiptablaðamenn
muni hafa um nóg að skrifa næstu
mánuðina. Þann 1. september kemur
fyrsti skellurinn, með nýjum tollum
Bandaríkjastjórnar á innflutning frá
Kína. Seðlabanki Evrópu fundar 12.
september og allar líkur á að þar verði
ákveðið að lækka stýrivexti og grípa til
frekari örvunaraðgerða. Markaðsvið-
skiptanefnd Seðlabanka Bandaríkj-
anna fundar svo tæpri viku síðar, og að
auki vomir yfir að bandarískum rík-
isstofnunum verði lokað 1. október ef
ekki tekst að semja um fjárveitingar.
Stóra stundin kemur síðan þann 31.
október, og eru sjónvarpsstöðvarnar
vísar til að vera með beina útsendingu
frá því þegar klukkan á Big Ben slær
tólf á miðnætti og Bretland hættir
formlega að tilheyra Evrópusamband-
inu.
Dramatískar fréttir berast úr öllum
áttum, og mátti sjá áhrifin skýrt á
bandarískum hlutabréfamarkaði í lið-
inni viku þar sem stóru vísitölurnar
sveifluðust til og frá.
Gætu blásið næsta fund af
Nú síðast gaf Donald Trump það í
skyn að samningaviðræður í tolladeil-
um Kína og Bandaríkjanna væru að
renna út í sandinn. Sagði hann blaða-
mönnum á föstudag að óljóst væri
hvort að fyrirhugaður samningafund-
ur í september mundi fara fram.
Skömmu áður hafði bandaríska fjár-
málaráðuneytið tilkynnt að stofnunin
flokki Kína núna formlega sem land
sem stundar gjaldeyrishagræðingu (e.
currency manipulation), í fyrsta skipti
síðan 1994. Sá stimpill virðist þó ekki
ætla að hafa teljandi áhrif á stöðu ren-
minbísins því hvorki Alþjóðagjaldeyr-
issjóðurinn né G7 ríkin kipptu sér upp
við það þó gjaldmiðli Kína hafi verið
leyft að veikjast lítillega og hafa viljað
sem minnst segja um þetta útspil
Bandaríkjastjórnar.
Þeir sem eru með augun á Asíu
bíða líka spenntir eftir að sjá hvernig
Kína mun ganga að koma í veg fyrir
fjármagnsflótta. Ef gengi júansins
fær að falla, í takt við þau áhrif sem
tollastríðið við Bandaríkin hefur á
hagkerfi Kína, er víst að margir vilji
skipta gjaldmiðlinum fyrir eitthvað
stöðugra, sem svo gæti hleypt af stað
enn meiri veikingu. Er skemmst að
minnast þess þegar Seðlabanki Kína
þurfti að ganga mjög á gjaldeyris-
forða sinn og reisa alls kyns girðingar
árið 2015 þegar renminbíinu var leyft
að lækka í einum rykk. WSJ fjallar
um hættuna á fjármagnsflótta í grein
á sunnudag og bendir þar á tak-
markalausa hugvitssemi fólks í Kína
sem m.a. þefar uppi glufur í Hong
Kong og Makaó og kemur júönunum
sínum þannig í verð þrátt fyrir höft og
varnir stjórnvalda. Bendir WSJ einn-
ig á að veikara gengi geti komið sér
illa fyrir skuldsett fyrirtæki í Kína en
í mars á þessu ári skulduðu kínversk
félög nærri 900 milljarða dala, og hafa
skuldir þeirra í bandaríkjadölum þre-
faldast á fimm árum.
Verksmiðjur lækka verðin
Þá boða nýjustu hagtölur frá Kína
ekki gott. Lækkaði verksmiðjuverð á
kínverskum varningi (e. factory-gate
price) um 0,3% á milli mánaða og er
það í fyrsta skipti í þrjú ár sem þessi
vísitala leitar niður á við. Þykir verk-
smiðjuverð gefa góða vísbendingu um
eftirspurn iðnfyrirtækja eftir vörum
og hráefni og lækkunin því til marks
um að hægt hafi töluvert á kínversku
atvinnulífi.
Á sama tíma fer verð á almennri
neysluvöru hækkandi og þrengir að
kaupmætti heimilanna í landinu.
Benda sérfræðingar á að við þau skil-
yrði sem núna ríkja í hagkerfi Kína
gætu aðgerðir stjórnvalda til að örva
atvinnulífið s.s. með bættu aðgengi að
lánsfé, leitað út í vísitölu neysluverðs
og kynt undir bólu á fasteignamark-
aði.
Samkvæmt opinberum tölum var
hagvöxtur í Kína á öðrum ársfjórð-
ungi 6,2% á ársgrundvelli, og hefur
ekki mælst lægri í 27 ár.
Frá Bandaríkjunum er síðan að
frétta að það sem af er þessu ári hefur
orðið mikill kippur í fjárfestingum í
skuldabréfasjóðum. Á fyrri helmingi
ársins lögðu fjárfestar nærri 500
milljarða dala í þannig sjóði, að sögn
FT, borið saman við 148 milljarða á
fyrri hluta síðasta árs. Hefur öryggi
skuldabrefasjóða ekki höfðað svona
sterkt til fjárfesta síðan í fjármála-
kreppunni.
Vissara að spenna beltin
AFP
Snúið Frá blýantaverksmiðju í Jíangsú-héraði í Kína. Þar hægir enn á hagkerfinu og góðar lausnir vandfundnar.
Óveðursskýin hrannast upp í alþjóðahagkerfinu og í Bandaríkjunum leita
fjárfestar skjóls í skuldabréfum Kína hefur úr fáum góðum kostum að velja
Í fyrsta skipti frá árinu 2012 mælist
samdráttur á milli fjórðunga í lands-
framleiðslu Bretlands. Wall Street
Journal greinir frá þessu en sam-
drátturinn nam 0,8% á ársgrundvelli.
Er þetta mikill viðsnúningur frá
fyrsta ársfjórðungi þegar hagvöxtur
mældist 2%, reiknað yfir allt árið.
Ágætur hagvöxtur fyrstu þrjá mán-
uði ársins var þó einkum rakinn til
þess að fyrirtæki spýttu mörg í lófana
og komu sér upp góðum birgðum af
vörum og hráefni til að geta betur
ráðið við raskanir vegna fyrirhugaðr-
ar útgöngu úr Evrópusambandinu 29.
mars síðastliðinn.
Er óvissa vegna útgöngu Bretlands
úr ESB nefnd sem helsta ástæðan
fyrir samdrættinum á öðrum árs-
fjórðungi og virðast stjórnendur vilja
halda að sér höndum þar til í ljós kem-
ur hvað gerist í kjölfar Brexit-dags-
ins, 31. október næstkomandi. Þá lit-
ast þróunin í Bretlandi einnig af því
að á tímabilinu hægði á hagvexti víða í
alþjóðahagkerfinu, s.s. í Bandaríkjun-
um, Kína, Japan og á evrusvæðinu.
Pundið hefur einnig verið á niður-
leið, og ekki verið veikara gagnvart
evru síðan í október 2009. Gagnvart
bandaríkjadal hefur pundið ekki verið
veikara síðan 1985. ai@mbl.is
AFP
Mínus Frá fjármálahverfi Lundúna. Annar ársfjórðungur kom ekki vel út.
Hagkerfi Bretlands
skreppur saman