Morgunblaðið - 12.08.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.08.2019, Blaðsíða 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST 2019 ✝ BaldvinTryggvason fæddist í Ólafsfirði 12. febrúar 1926. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Ísa- fold í Garðabæ 29. júlí 2019. Foreldrar hans voru Rósa Frið- finnsdóttir hús- móðir, f. 26.6. 1897 í Sauðaneskoti á Upsaströnd í Svarfaðardal, d. 17.7. 1971, og Tryggvi Marteins- son, bátaformaður og útgerð- armaður, f. 17.11. 1889 í Burst- abrekku í Ólafsfirði, d. 5.4. 1969. Systir Baldvins var Dýrleif Jón- ína, f. 5.4. 1929, d. 13.1. 2015. Baldvin lauk stúdentsprófi frá MA 1948. Frá táningsaldri var hann því að mestu búsettur fjarri heimahögum. Hann flutti til Reykjavíkur að loknu stúdents- prófi og hóf nám í lögfræði við HÍ, sem hann lauk 1953. Árið 1956 kvæntist hann Júlíu Sveinbjarnardóttur, kennara og leiðsögumanni, f. 29.8. 1931. Þau eignuðust tvo syni, Sveinbjörn Ingvar rithöfund, f. 27.8. 1957, og Tryggva Martein tónskáld, f. 4.8. 1965. Júlía lést 21.10. 1984 eftir áralanga baráttu við krabbamein. Sveinbjörn er kvæntur Jónu Finnsdóttur kvikmyndaframleið- anda og eiga þau þrjú börn; Örnu Völu, Baldvin Kára og Finn Sig- urjón. Sambýlismaður Örnu Völu er Aleksi Jaakkola og þau eiga dótturina Tuulikki Jónu. Eig- inmaður Baldvins Kára er Scott formaður Fulltrúaráðs sjálfstæð- isfélaganna í Reykjavík, formaður skipulagsnefndar og miðstjórn- armaður. Baldvin var framkvæmdastjóri Almenna bókafélagsins til ársins 1976, er hann tók við starfi spari- sjóðsstjóra hjá Sparisjóði Reykja- víkur og nágrennis. Hann lét af störfum hjá SPRON 1996. Með- fram störfum sínum hjá AB og SPRON vann hann að vexti og framgangi starfsgreinanna með ýmsum hætti, svo sem á vettvangi Félags bókaútgefenda og síðar í Sambandi íslenskra sparisjóða, norrænna sparisjóða og í stjórn European Savings Bank Group. Baldvin var fulltrúi borg- arstjóra í Leikhúsráði Leikfélags Reykjavíkur í yfir þrjátíu ár (1963-1994), formaður fram- kvæmdanefndar Listahátíðar í Reykjavík 1973-74 og varafor- maður 1975-76. Hann sat einnig í stjórn Hins íslenska fornrita- félags, Tónlistarfélagsins í Reykjavík og Listasjóðs. Baldvin hlotnuðust ýmsar við- urkenningar fyrir störf sín, svo sem riddarakross og stórriddara- kross hinnar íslensku fálkaorðu og heiðursfélaganafnbót hjá Krabbameinsfélagi Reykjavíkur. Sjálfum var honum líklega kærust sú viðurkenning er hann hlaut ár- ið 1993, þegar hann var kjörinn heiðursfélagi Leikfélags Reykja- víkur. Útför Baldvins fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, 12. ágúst 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. Pontasch. Sambýlis- kona Finns Sigurjóns er Hilda Hrönn Guð- mundsdóttir. Tryggvi er kvænt- ur Vilborgu R. Ein- arsdóttur kennara og eiga þau þrjú börn; Sveinbjörn Júl- íus, Einar Sverri og Baldvin Ingvar. Barnsmóðir Svein- bjarnar er Halldóra Kristinsdóttir, en þau eiga soninn Tryggva Kristin. Sambýliskona Einars Sverris er Guðrún Þóra Arnardóttir, sem fyrir á soninn Hafliða. Eiginkona Baldvins Ingv- ars er Guðrún Pálsdóttir og eiga þau nýfædda dóttur. Árið 1992 kvæntist Baldvin eft- irlifandi eiginkonu sinni, Halldóru J. Rafnar, fv. kennara og mennta- málafulltrúa. Halldóra á synina Jónas Fr. Jónsson hrl. og Magnús Jónsson hdl. Jónas er kvæntur Lilju Dóru Halldórsdóttur fram- kvæmdastjóra og eiga þau tvö börn; Steinunni Dóru og Jónas Rafnar. Sambýlismaður Stein- unnar er Simon Kirkeby Wessel. Baldvin stundaði ýmis störf fyrstu árin eftir námslok og var m.a. framkvæmdastjóri full- trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík 1956-1960, en það ár varð hann framkvæmdastjóri Al- menna bókafélagsins. Baldvin vann mikið og óeigingjarnt starf fyrir Sjálfstæðisflokkinn fram eft- ir ævi og má sem dæmi nefna að hann var stofnandi Garðars FUS í Ólafsfirði, formaður Heimdallar, Í næstum fjörutíu ár hef ég verið svo lánsöm að geta kallað Baldvin Tryggvason tengdaföður minn. Betri mann hef ég ekki þekkt. Ég hitti hann og Júlíu, tengdamóður mína, fyrst þegar þau buðu kærustu Sveinbjarnar og Völu litlu í mat á Kleifarveg- inn. Tveggja ára stelpan var strax sett í að hjálpa húsfreyjunni við salatgerð í eldhúsinu, en kær- astan leidd niður í kjallarastofu þar sem húsbóndinn stóð í hvítri spariskyrtu og steikti kótelettur yfir opnum arineldi. Þegar hann sneri sér við til að heilsa sá ég í fyrsta sinn þetta bjarta og hlýja bros, sem mér hefur þótt svo vænt um síðan. Þessi góðu hjón tóku okkur mæðgum opnum örm- um frá fyrsta degi og í þeim eign- aðist Vala mín bestu afa og ömmu sem hægt er að hugsa sér. Júlía lést rúmum tveimur árum síðar eftir langvinn veikindi og lagðist sú reynsla sem því fylgdi þungt á tengdaföður minn um sinn. Baldvin ólst upp í Ólafsfirði og það var sérlega gaman að heyra hann segja frá uppvexti sínum þar og uppátækjum, sem hann mundi í ótrúlegum smáatriðum alveg fram á síðasta dag. Afa- börnin skemmta sér gjarnan við að rifja upp prakkarasögur af Balla Rósu Tryggva. Þegar við fjölskyldan bjuggum í útlöndum, fyrir internet og farsíma, bárust stundum í pósti þykk bréf frá afa til krakkanna, þar sem hann sagði þeim sögur af sjálfum sér litlum. Þetta er fjársjóður sem þau eiga örugglega eftir að leita í. Hann átti bjarta og góða æsku, umvafinn kærleiksríkum foreldr- um og stórum frændgarði. Hann var góður námsmaður og fyrstur Ólafsfirðinga af alþýðustétt til að fara í menntaskóla. Þorpslífið og nálægðin við sjó- inn hafa eflaust mótað lífsafstöðu Baldvins og aukið skilning hans á forgengileika tilverunnar. Við náðum oft saman í því að rifja upp sögur og atburði sem einkenna ís- lensk sjávarþorp, því þó að heil kynslóð skildi okkur að, var reynsluheimur okkar þaðan ótrú- lega svipaður í mörgu, hans að norðan og minn að vestan. Það var gott og gefandi að spjalla við tengdaföður minn og ég bar ómælda virðingu fyrir því hvern- ig hann nálgaðist umfjöllun um menn og málefni. Ætíð af alúð, einstakri víðsýni og algeru for- dómaleysi. Baldvini var trúað fyrir marg- víslegum verkefnum á langri og gjöfulli æfi og hann var óhræddur við að taka á sig bæði ábyrgð og skyldur. Fyrirtæki uxu og döfn- uðu undir hans stjórn og alls staðar þar sem hann lagði mál- efnum lið lét hann gott af sér leiða. Hann var mikill listunnandi og naut þess m.a. að kynna barnabörnum sínum töfraheima leikhússins. Hann þreyttist ekki á að láta þau heyra hvað hann var stoltur af þeim og það var svo sannarlega gagnkvæmt. Hann var alla tíð óspar á hól og hvatn- ingu og á ég honum óendanlega margt að þakka. Baldvin var svo gæfusamur að hitta Dóru sína fyrir rúmum aldarfjórðungi og duldist engum hversu kærleiks- ríkt og fallegt samband þeirra var. Ég kveð þennan öðling með virðingu og ást. Megi hann hvíla í friði. Jóna Finnsdóttir. Elsku afi minn. Það eru ótal minningar sem koma upp í hug- ann þegar ég hugsa til baka og rifja upp gamlar stundir með þér. Eins og öll þau skipti sem þú last fyrir mig ævintýri upp úr H.C.- Andersen bókunum fyrir svefn- inn, þegar ég gisti hjá ykkur Dóru. Það var svo gott að hafa þig við hliðina á mér og sofna við upp- lesturinn, hlustandi á djúpu og notalegu röddina þína þar til ég lognaðist út af. Einnig spretta upp minningar frá því þið Dóra fóruð með okkur krakkana á ýmsar leiksýningar eins og Ronju ræningjadóttur, Kardimommubæinn og Litla Kláus og stóra Kláus. Eftir sýn- ingu fóruð þið gjarnan með okkur baksviðs og við fengum að taka í höndina á leikurunum og ein- hvern tímann man ég eftir að hafa fengið að fara upp á svið og leika mér í ýmsum leynigöngum og rennibrautum sem voru part- ur af leikmyndinni. Það var mikið fjör. Þá verður að minnast ökuþórs- ins Afa Häkkinen. Þetta viður- nefni gaf ég þér þegar ég hvatti þig til dáða í akstrinum og við kölluðum á umferðarljósin: „Grænt, grænt, grænt“ af því í leiknum mátti bíllinn alls ekki stöðvast og ég var viss um að við hefðum æðri mátt yfir ljósunum og gætum óskað eftir grænu ljósi. Þú tókst virkan þátt í leiknum og hrópaðir á umferðarljósin og byrjaðir að hægja vel á ferðinni ef það var rautt ljós fram undan Svo þegar græna ljósið birtist kallaði ég: „Áfram afi Häkkinen!“ Það sem stendur þó upp úr er tíminn okkar saman á Strandveg- inum síðustu ár. Ég kom nánast vikulega í heimsókn til ykkar Dóru og fannst fátt betra en að verja deginum með ykkur og var oft langt fram á kvöld. Við vorum gott tríó. Spjölluðum um allt mögulegt, borðuðum indælis mat í boði Dóru og horfðum jafnvel á góða mynd. Þetta eru ógleyman- legar hversdagsstundir sem ég mun leita til og rifja upp ef mér finnst ég þurfa að hlýja mér um hjartarætur. Þá fór vel um okkur félaga í hægindastólunum í sjónvarps- stofunni með sinn kaffibollann hvor og jafnvel nokkrar kexkök- ur við hönd. Þar horfðum við saman á alla Arsenal-leikina og fögnuðum mörgum sigrum en þurftum líka stundum að sætta okkur við ansi súr úrslit. Eftir leiki spjölluðum við saman og þú rifjaðir stundum upp æskuminn- ingar úr Ólafsfirði eða mennta- skólaárin á Akureyri. Ég hlustaði af forvitni og ímyndaði mér hvernig strákur þú hefðir verið á þessum aldri. Það var virkilega gaman að heyra þessar sögur. Við urðum mjög góðir vinir og gátum talað hvor við annan á per- sónulegum nótum. Það þótti mér afskaplega vænt um. Þú hafðir ávallt einlægan áhuga á mér og spurðir frétta, vildir vita hvernig mér liði og hvernig mér gengi. Svo kvaddirðu mig gjarnan með þessum hlýju orðum: „Bless, elsku fallegi strákurinn minn.“ Ég er heppinn að eiga ótelj- andi minningar um okkur saman og er þakklátur fyrir allan tímann sem ég fékk með þér. Það var svo gott að vera hjá þér. Notalega lyktin af rakspíranum þínum, hlýr og mjúkur faðmur þinn og einstaklega bjart og fallegt bros mun lifa með mér alla tíð. Þinn, Finnur Sigurjón. Mér er orða vant þegar kemur að því að kveðja afa minn og nafna. Bæði vegna þess að það er erfitt að vita hvar maður eigi að byrja þegar hver minningin keppir við aðra, og einnig vegna þess að mér finnst ekkert ósagt á milli okkar – við höfum átt svo margar fallegar og innilegar kveðjustundir á síðustu árum, allt frá því ég flutti til Bandaríkjanna fyrir rúmum áratug, enda engin fullvissa fyrir hendi hvort og hve- nær við myndum hittast næst. Enginn veit sína ævina og allt það. En minningarnar eru vissu- lega margar og góðar. Ég man eftir heimsóknunum í Los Angel- es þegar ég var rétt að byrja í skóla. Þá var hver mínúta með afa svo dýrmæt og eftirsótt, að þegar hann tók að sér að hlýða Völu systur yfir svokallaðar margföldunartöflur sem ég hafði engan skilning á, þá öfundaði ég hana systur mína svo af allri at- hyglinni að ég ákvað að ég þyrfti fyrir alla muni að læra margföld- un sömuleiðis. Ég man eftir heimsóknum í Ofanleitið, þar sem maður fékk egg og beikon í morg- unmat alveg eins og krakkarnir í Ævintýrabókunum. Og allar leik- húsferðirnar, ekki má gleyma þeim. Þegar ég var kominn í menntó og síðar í Háskólann stofnuðum við nýja hefð. Þá kom afi niður í bæ og við fórum á kaffihús sam- an, bara við tveir. Og þegar hann var hættur að keyra sjálfur, fór ég og sótti hann á gamla bláa Golfinum hennar mömmu og við lögðum upp í kaffileiðangur sam- an. Við ræddum daginn og veg- inn, ég sagði frá því sem ég var að fást við hverju sinni, og oftar en ekki deildi afi með mér sögum frá sínum menntaskóla- og háskóla- árum. Alltaf studdi afi mig í hverju því sem ég tók mér fyrir hendur og hvatti til dáða. Hann las bæði ritgerðir frá mér og sögur, sem við gátum svo rætt á næsta kaffi- fundi. Og ekki dró úr hvatning- unni eftir að ég kom út úr skápn- um og varð virkur í félagsstörfum hinsegin fólks. Hann hringdi í mig á hverjum einasta gleði- göngudegi til að óska mér til hamingju með daginn, rétt eins og ég ætti afmæli. Hann skildi nefnilega hvað þetta var mér mikilvægt og samgladdist inni- lega. Við áttum einnig dýrmætar minningar hin síðustu ár, þótt heimsóknum fækkaði vissulega eftir að ég flutti til útlanda. Síðast þegar ég heimsótti afa settist ég við hlið hans og hélt í höndina á honum eins og svo oft áður. Við spjölluðum eitthvað og ég hef ef- laust sagt honum frá því sem á daga mína hafði drifið frá því við sáumst síðast. Mig minnir að sjónvarpið hafi verið í gangi en við vorum hvorugur svo sem að fylgjast með því. Aðallega minn- ist ég þess að hafa setið með hon- um og fundið hlýjuna í höndunum á honum. Við þögðum bara sam- an um stund og nutum nærver- unnar, þar til afi sagði að ef ég þyrfti að fara að koma mér þá skildi hann það mætavel. Ég sagði sem satt var að mér þætti gott að vera hjá honum, og við sátum saman svolítið lengur áður en ég kvaddi hann loksins. Gangi þér allt að sólu, kom svarið. Baldvin Kári („nafni“). Með Baldvin Tryggvasyni er genginn mannkostamaður, mikill öðlingur og drengur góður. Það væri trúlega ofsagt að eiginleikar hans hafi beinlínis verið fágætir. En hann var búinn þeim í svo rík- um mæli að hann var einstakur í huga þeirra sem voru samferða honum um lengri eða skemmri veg. Hann óf svo listilega saman í einn vef andstæð skaphafnarein- kenni. Þannig var hann allt í senn stefnufastur, hafði ljúfa lund og sýndi jafnan hófsemd í dómum um menn og málefni. Hann var hugsjónaríkur en um leið ráð- snjall og fundvís á praktískar lausnir. Þrátt fyrir hógværð var hann hrókur sérhvers mannfund- ar. Í störfum sínum var hann hvort tveggja framsækinn og að- gætinn. Og í ranni fjölskyldunnar myndugur og mildur. Af sjálfu leiddi að maður sem þessum kostum var búinn valdist til mikilla ábyrgðarstarfa. Þannig stýrði Baldvin Almenna bóka- félaginu á blómatíma þess. Þar naut fagurkerinn og hugsjóna- maðurinn sín vel. Það var á þeirri tíð þegar reiptog hugmyndabar- áttu og stjórnmála átti dýpri ræt- ur í bókmenntum en nú er. Síðar veitti hann Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis for- ystu á tímum umbreytinga og ný- mæla í fjármálaþjónustu. En gæfa hans og sparisjóðsins var kannski fólgin í því öðru fremur að hann vissi að lögmál pening- anna hafði smátt sjálfstætt gildi utan við þau mörk sem mannleg skynsemi og ábyrgð segja til um. Í fulla þrjá áratugi sat Baldvin Tryggvason í leikhúsráði Leik- félags Reykjavíkur. Leikhúsið var honum meira en bara verk- efni. Það var hluti af honum sjálf- um. Næmni hans og hyggindi á þeim vettvangi efldu bæði leik- húsið og hann sjálfan. Þó að hlut- verk hans hafi einkum verið að líta til með naumum fjárhag fé- lagsins held ég að hann hafi lifað sig inn í heim listamannanna sem margir hverjir urðu bestu vinir hans. Heima var ætíð í Ólafsfirði. Unglingur stóð hann að stofnun félags ungra sjálfstæðismanna í firðinum. Þar hófust farsæl störf hans fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Í þeim var hann heill og trúr sann- færingu sinni. Hugsjónir Bald- vins og Geirs Hallgrímssonar féllu vel saman. Hann sagði Geir hafa búið yfir ríkri réttlætis- kennd og sýnt drengskap um- fram aðra menn. Það voru viðhorf af þessu tagi sem réðu því jafnan hvar Baldvin tók sér stöðu. Baldvin var frjálslyndur og víðsýnn maður og alþjóðlegur í hugsun. Hann taldi að Ísland ætti að nýta rétt sinn til þátttöku í efnahags- og varnarsamstarfi með Evrópu og Norður-Ameríku. Mér er nær að halda að fölskva- laus ást á byggðinni milli þröngra fjalla í firðinum heima hafi eflt þá sannfæringu hans að með því móti myndi Ísland verða meira að afli og áhrifum. Drjúgur ævivegur var ekki genginn án mótlætis. Fráfall Júl- íu eftir löng og ströng veikindi var Baldvin og sonum þeirra þraut og þungur harmur. Síðar varð það auðna mín að tengjast Baldvin fjölskyldubönd- um. Það var yndi að sjá hann og Halldóru heimta hamingjuna og lífsfyllinguna svo ríkulega saman. Í dag er svo hinsta ferðin farin. Ég trúi að minni um hlýtt hjarta- lag og gæsku Baldvins létti þeim sporin er næst honum stóðu. Þorsteinn Pálsson. Baldvin Tryggvason var ein- arður liðsmaður menningar og lista. Það stýrði því góðri lukku þegar ráðamenn Reykjavíkur- borgar völdu hann fulltrúa sinn í leikhúsráð Leikfélags Reykjavík- ur. Það var á þeim minnisverðu árum í leiklistarsögu okkar að nærri aldargamalt rótgróið leik- félag höfuðstaðarins, sem alla tíð hafði haft aðsetur sitt í Iðnó við Tjörnina, var á sjöunda áratugi síðustu aldar orðið atvinnuleik- hús og var af miklum metnaði að leggja drög að byggingu Borgar- leikhúss. Það gerðist hreint ekki af sjálfu sér en okkur þykir nú sjálfsagt að eiga eins og hverja aðra höfuðstaðarprýði. Lagt var á ráðin á löngum fundum uppi á lofti í Iðnó, glaðsinna fólk saman komið í leikhúsráðinu, með þann einlæga metnað að reka gott leik- hús borgarinnar, jafnvígt Þjóð- leikhúsinu og sem allra fyrst í nýju leikhúsi, Borgarleikhúsi. Allt gekk það eftir og ekki síst fyrir liðveislu Baldvins, öndveg- isvinar okkar, sem hafði svo góð sambönd við rekstrarhöfðingja borgarinnar. Aðrar listgreinar þjóðarinnar nutu einnig atorku hans og liðsinnis. Hann naut mik- ils trausts meðal listamanna og var um tíma, fyrir tilstilli mennta- málaráðherra, formaður stjórnar listamannalauna. Baldvin Tryggvason var heils hugar vinur íslenskrar menning- ar, farsæll bókaútgefandi um skeið og síðan á góðum árum gifturíkur vörslumaður hins ver- aldlega sem sparisjóðsstjóri í far- sælum viðskiptabanka. Hann naut þeirrar lífsgæfu að láta gott af sér leiða hvar sem hann kom að verki. Ég þakka fyrir trausta og gef- andi vináttu áranna og votta Halldóru, sonum þeirra og fjöl- skyldunni allri innilega samúð að góðum dreng gengnum. Vigdís Finnbogadóttir. Baldvin Tryggvason var lykil- maður í starfi Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík þegar ég hóf þátt- töku í starfi Heimdallar FUS haustið 1958. Hann hafði tekið við starfi framkvæmdastjóra Full- trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík tveimur árum áður og gegndi því fram á Viðreisnarárin þegar hann varð framkvæmda- stjóri Almenna bókafélagsins sem í stjórnmálabaráttu þeirra ára hafði mikla þýðingu. Það var mikill kraftur í starfi sjálfstæðisfélaganna í höfuðborg- inni á þeim árum. Í hvert sinn sem eitthvað var að gerast í póli- tíkinni komu sjálfstæðismenn saman til fundar í Sjálfstæðishús- inu við Austurvöll þar sem for- ystumenn flokksins gerðu grein fyrir gangi mála. Þetta voru eft- irminnilegir fundir. Framkvæmdastjóri fulltrúa- ráðsins hélt utan um þetta starf allt og sá um að flokkskerfið væri í lagi og tilbúið til átaka þegar til kosninga kæmi. Þetta var á þeim árum þegar kalda stríðið mótaði allt umhverfi okkar. Við töluðum mikið saman á þeim árum, ekki sízt eftir að ég tók við for- mennsku í Heimdalli, og bárum saman bækur okkar um þau við- horf sem uppi voru hverju sinni meðal flokksmanna. Á hæðinni fyrir ofan í Valhöll við Suðurgötu starfaði Gunnar Helgason að málefnum verkalýðsfélaganna. Hvað var Sjálfstæðisflokkurinn að gera á þeim vettvangi? Okkur lærðist það fljótt þegar við vorum kallaðir til starfa í kosningum til stjórna verkalýðs- félaganna en þar var kalda stríðið háð ekki síður en annars staðar. Þetta var eins konar gullöld Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Menningarlífið var einn af víg- völlum kalda stríðsins á Íslandi, ekki síður en verkalýðsfélögin. Þar höfðu kommúnistar sem var samheiti okkar sem yngri vorum yfir nánast alla vinstrimenn náð mjög sterkri vígstöðu með Mál og menningu í fararbroddi. Almenna bókafélagið var stofnað til að jafna þau met. Eftir rúmlega áratugar starf hjá fulltrúaráðinu varð Baldvin framkvæmdastjóri AB. Á þeim árum skipti pólitísk reynsla máli við stjórn á bókaútgáfu. And- stæðingarnir höfðu náð miklum áhrifum meðal ungra rithöfunda og raunar annarra listamanna sem með ýmsum hætti höfðu áhrif á skoðanamyndun meðal al- mennra borgara. Því starfi gegndi Baldvin í tæpan áratug og hafði þá verið í tvo áratugi í fremstu víglínu stjórnmálaátaka þeirra ára. Menn á borð við Baldvin voru eins konar grunnstoðir í starfi Sjálfstæðisflokksins. En Baldvin kom víðar við. Hann sat í stjórn Leikfélags Reykjavíkur í meira en þrjá ára- tugi. Ég veitti því sérstaka eft- irtekt af tilfinningalegum ástæð- um hvað Baldvin var annt um hag þess félags. Það var vegna þess Baldvin Tryggvason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.