Morgunblaðið - 12.08.2019, Qupperneq 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST 2019
✝ Guðbjörg Þór-isdóttir fæddist
í Reykjavík 25.
mars 1952. Hún lést
í Reykjavík 2. ágúst
2019.
Hún var dóttir
hjónanna Þóru Kar-
ítasar Árnadóttur
og Þóris Más Jóns-
sonar og ólst upp í
Vesturbæ Reykja-
víkur. Eftir útskrift
úr Hagaskóla lauk hún almennu
kennaraprófi árið 1973 og varð
stúdent frá Kennó 1974. Hún
lauk B.A. prófi í íslensku frá Há-
skóla Íslands árið 1978 og Cand.
Mag. prófi í íslenskum bók-
menntum árið 1992. Frá átján
ára aldri sinnti hún kennslu víða
um land og kenndi fólki á öllum
aldri á öllum skólastigum, meðal
annars við Kvennaskólann í
bókmenntir sem tæki til tilfinn-
ingalegs uppeldis í kennslu.
Börn Guðbjargar og Árna
Blandons Einarssonar frá fyrra
hjónabandi eru Einar f. 1978,
kvæntur Árnýju Ingvarsdóttur,
börn þeirra eru Guðrún Dís Jó-
hannsdóttir, Álfdís Jóhanns-
dóttir, Hildur Karitas og Bjartur,
en móðir Bjarts er Eyrún Magn-
úsdóttir. Þóra Karítas, f. 1979,
unnusti hennar er Sigurður Guð-
jónsson, börn þeirra eru Flóki
Hrafn, Árni Guðjón og Dagur
Kári en móðir Flóka Hrafns er
Anna Rún Tryggvadóttir.
Guðbjörg greindist sumarið
2014 með sjaldgæfan sjúkdóm,
Benson-heilkenni, og lést úr hon-
um á Droplaugarstöðum í
Reykjavík 2. ágúst 2019.
Útför hennar fer fram frá
Hallgrímskirkju í dag, 12. ágúst
2019, klukkan 16.
Reykjavík, Fóstur-
skóla Íslands og
Framhaldsskólann á
Laugum. Þá vann
hún eitt ár í Mennta-
málaráðuneytinu.
Hún vann lengi sem
skólastjóri; fyrst í
Grunnskólanum að
Skógum undir Eyja-
fjöllum, svo í Sand-
víkurskóla á Selfossi
en lengst af í Breiða-
gerðisskóla í Reykjavík og var um
tíma formaður Skólastjórafélags
Reykjavíkur. Guðbjörg hafði mik-
inn áhuga á skapandi skrifum,
skrifaði sögur fyrir börn, gaf út
bókina Krakkar, krakkar og
kenndi og hvatti nemendur sína
til að skrifa. Hún skráði sig í
doktorsnám í bókmenntum árið
2013 og lagði upp með að skrifa
um hvernig hægt væri að nýta
Guðbjörg tengdamóðir mín hef-
ur kvatt okkur langt fyrir aldur
fram.
Áratugur er síðan leiðir lágu
saman í gegnum Þóru dóttur
hennar. Með mér í fylgd var Flóki
Hrafn, fjögurra ára drengurinn
minn, sem hún tók svo eftirminni-
lega og hlýlega á móti og naut
þess að dekra við. Hún gladdist yf-
ir að sjá hann verða að ungum
manni og sagði honum hvað henni
þætti hann flottur í hvert sinn sem
þau hittust.
Örlæti Guðbjargar var ein-
stakt. Hún var opin og næm, lista-
kokkur og stemningskona sem
vissi ekkert betra en að hafa fólkið
sitt í kringum sig. Betri fyrirmynd
þegar kemur að lífsviðhorfi er
vandfundin. Við bjuggum um
skamman tíma saman á Leifsgöt-
unni þegar Árni Guðjón, ömmu-
barnið hennar, var í móðurkviði og
ég fann að sjálfstraust mitt efldist
með hverjum degi. Ég áttaði mig
fljótt á því að það var vegna þess
hve gjöful hún var á hrós og
hvatningu en lífsgleði hennar var
líka smitandi. Þetta var snemma
árs 2015 og þótt sjúkdómurinn
hafi verið farinn að herja á hana
beit hann ekki á jákvæðnina eða
getu hennar til að hvetja aðra.
Miðað við grimmd sjúkdómsins er
það ótrúlegt að fylgjast með því
hve hetjulega hún tókst á við
hann. Hún var lausnamiðuð og
þrautseig og glasið var alltaf hálf-
fullt.
Ég gleðst yfir því nú að Guð-
björg hafi fengið að njóta þess að
sjá drengina okkar Þóru koma í
heiminn því hún var ólýsanlega
góð amma. Þegar Árni fæddist
skein hún af gleði og söng fyrir
hann Aravísur og kvæði út í eitt.
Hún kenndi okkur að tala stans-
laust við ungbörn til að efla með
þeim góða máltilfinningu og
áhuga á tungumálinu og hún nálg-
aðist börn af einstakri gleði og
næmni. Með henni og Árna tókst
dýrmæt vinátta frá fyrsta degi.
Þau náðu að bralla ýmislegt sam-
an þegar hún bjó enn á Skúlagötu
og Dagur fékk að njóta nærveru
hennar fyrsta eina og hálfa árið.
Hann varð strax tengdur ömmu
sinni og knús frá honum, klapp og
bros var eitt af því sem gladdi
hana mest er hún gekk síðasta
spölinn í veikindunum. Drengirnir
okkar hafa verið mikið hjá ömmu
sinni síðan þeir fæddust.
Eftir að Guðbjörg kvaddi vildi
Árni Guðjón heimsækja hana og
komast að því hvar hún væri.
„Kannski er hún uppi á himnum,“
útskýrði mamma hans fyrir hon-
um eftir að umræða hafði átt sér
stað um að hún yrði lögð í kistu,
fjársjóðskistu vildi Árni Guðjón
meina og bætti við kistu þar sem
fjársjóðurinn er. „En hvar verður
hún þá?“ spurði hann svo og
mamma hans svaraði: „Kannski á
himnum,“ en hann var ekki viss
um það. „Nei, kannski ekki,“ sagði
hann. Kannski býr hún bara í
hjartanu okkar.“ Og þannig er
það, Guðbjörg býr nú í hjarta okk-
ar og missirinn er mikill. Hennar
skarð verður ekki fyllt. Eftir
stendur samt tilfinningin um að
það sé skylda okkar að fagna lífinu
og lifa því eins vel og hægt er með-
an færi gefst.
Guðbjörg snerti marga á lífsleið
sinni og þar á meðal mig, svo
skapandi og skemmtileg. Orðin
hennar, örlæti, umvefjandi kær-
leikur og hrós er það sem ég vona
að ég geti gefið áfram til drengj-
anna minna í minningu hennar og
samvera með góðu fólki. Hvíl í
friði, góða vinkona, með þökk fyrir
allt.
Sigurður Guðjónsson.
Í dag kveðjum við Guðbjörgu
Þórisdóttur, tengdamóður mína
og kæra vinkonu. Konu með risa-
stórt hjarta sem markaði djúp og
hlý spor í huga flestra þeirra sem
urðu á vegi hennar, hvort sem var
í eitt augnablik eða áratugi.
Guðbjörg var einstök kona og
mér varð strax við fyrstu kynni
ljóst að hún og fjölskylda hennar
væru í algerum sérflokki. Kær-
leikurinn var einhvern veginn svo
áþreifanlegur og allsráðandi í
gjörðum þeirra og viðhorfum og
mér var strax tekið opnum og um-
vefjandi örmum. Guðbjörg var
bráðgáfuð hugsjónakona, opin og
sérlega glaðlynd. Hún bar hag
sinna nánustu, sem og annarra
samferðarmanna og nemenda,
ætíð fyrir brjósti og var með ein-
dæmum styðjandi og hvetjandi.
Fáa hef ég fyrirhitt um ævina sem
hafa búið yfir jafnmikilli jákvæðni
og gleði í daglegu lífi. Á þessum
tæpu sex samferðarárum okkar
heyrði ég hana aldrei kvarta, aldr-
ei hallmæla öðrum að ósekju, aldr-
ei vorkenna sjálfri sér, heldur tók
hún því sem að höndum bar, ávallt
með augastað á því góða í aðstæð-
unum.
Guðbjörg var mikill mannvinur
og náði sérlega vel til barna. Hlýj-
an sem hún sýndi eldri dætrum
mínum frá fyrsta degi var afar
dýrmæt og ósvikin og hún elskaði
barnabörnin sín af öllu hjarta,
bæði þau sem hún fylgdi frá byrj-
un og eins þau sem hún græddi á
leiðinni. Hún hafði einlægan
áhuga á þeim og þeirra hugðar-
efnum og hafði gaman af því að
segja þeim sögur, fræða þau og
syngja og dansa, enda var alltaf
stutt í kátínuna, smitandi hlátur-
inn – og kennaraelementið. Hún
var félagsvera af guðs náð og naut
sín best umvafin vinum og vanda-
mönnum, jafnt stórum sem
smáum.
Ég hefði svo gjarnan viljað
kynnast Guðbjörgu fyrr á lífsleið-
inni því sögurnar sem ég hef heyrt
af henni bera vott um stórmerki-
lega, sterka og dugmikla konu
sem reyndi margt á sinni ævi. Þó
verð ég ævinlega þakklát fyrir
þann tíma sem við áttum saman
því þrátt fyrir að veikindin tækju
æ meiri toll eftir því sem árin liðu
tapaði hún aldrei þeim hluta síns
karakters sem hvað mestu máli
skiptir í lífinu: kærleikanum í garð
annarra og óbilandi jákvæðni.
Hún var og mun vera okkur öllum,
sem eftir standa og muna hana,
fyrirmynd í því hvernig hægt er að
takast á við marglitar áskoranir
lífsins með ást, gleði, umburðar-
lyndi og æðruleysi að vopni.
Nú kemur það í hlut okkar og
stóru krakkanna, þeirra Bjarts,
Flóka Hrafns, Guðrúnar Dísar og
Álfdísar, að bera ljósið áfram og
segja yngstu barnabörnunum,
þeim Árna Guðjóni, Hildi Karitas
og Degi Kára, sögur af gleðigjaf-
anum og kjarnakonunni ömmu
Guggu.
Blessuð sé minning þín Guð-
björg. Við munum sakna þín,
muna þig og passa upp á hvert
annað.
Árný Ingvarsdóttir.
Sumir kvíða ellinni á meðan
aðrir fá ekki tækifæri til að njóta
hennar. Fyrrverandi tengdamóðir
mín, Guðbjörg Þórisdóttir, kveið
þess alveg ábyggilega ekki að eld-
ast en hún fékk því miður ekki
tækifæri til að njóta ævikvöldsins.
Í staðinn urðu það örlög hennar að
hverfa smám saman inn í illvígan
sjúkdóm og fá að lokum friðsælt
andlát, langt um aldur fram.
Eiginlega er erfitt að ímynda
sér að nokkur hefði notið þess
meira að eldast en Guðbjörg,
amma Gugga. Þegar Bjartur,
fyrsta barnabarnið, kom í heiminn
komst fátt annað að en að vera
amma. Henni leið vel í því nýja
hlutverki og manni þykir sárt og
ósanngjarnt að barnabörnin hafi
ekki fengið fleiri ár með henni. En
engu ráðum við víst um það.
Bjartur er þakklátur fyrir tím-
ann sem hann fékk með ömmu
Guggu og yljar sér nú við dýrmæt-
ar minningar. Amma Gugga tók
fræðsluhlutverk sitt alltaf alvar-
lega, lagði áherslu á að sýna
barnabarninu bækur, kynna hon-
um söngva, leyfa honum að tjá sig,
mála myndir, skoða náttúruna og
rannsaka veröldina. En frjálsræð-
ið var líka í hávegum haft. Sigri
hrósandi sagðist hann í eitt skiptið
hafa fengið tvo íspinna í morgun-
mat hjá ömmu Guggu. Það mátti
alls konar hjá ömmu og hann var
alsæll með það. Svo var það bara
verkefni foreldranna að útskýra af
hverju þetta væri ekki vaninn alla
daga.
Mér er minnisstætt þegar eitt
sinn átti að fara í Skriðu og Bjart-
ur hefur eflaust ekki verið mikið
meira en tveggja ára. Ég smurði
nesti og Guðbjörg bauðst til að
koma með kaffi til að drekka á
leiðinni. Svo var stoppað á miðri
leið til að borða nesti og drekka
kaffi. Guðbjörg dró upp kaffið en
hló og afsakaði það að hún ætti nú
engan kaffibrúsa með þéttu loki
þannig að hún hefði hellt kaffinu í
könnu sem er hugsuð til að standa
á borði. Til að koma í veg fyrir að
kaffið læki skellti hún bara ullar-
sokki yfir könnuna. Það virkaði,
þótt sokkurinn hafi verið heldur
kaffiblautur. Svo dró hún fram
postulínsbolla sem reyndar höfðu
fengið ansi slæma útreið skrölt-
andi um skottið og eitthvað hafði
kvarnast upp úr. En þetta var
Guðbjörg Þórisdóttir
✝ Sofie MarieMarkan fædd-
ist á Siglufirði 3.
maí 1925. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Skjóli í Reykjavík
31. júlí 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Ole Christi-
an Andreassen vél-
stjóri, f. í Tønsberg
í Noregi 1894, d.
1980, og Inga
Lovísa Þorláksdóttir húsmóðir,
fædd á Ísafirði 1901, d. 1970.
Systkini Sofie Marie voru fimm:
Sofie fædd og dáin 1923, Erna
fædd og dáin 1926, Hugo, f.
1928, d. 1999, Sverre, f. 1930, d.
1938, og Erling, fæddur 1936.
Eiginmaður Sofie Marie var Rolf
Markan, f. í Noregi 1926, d.
2013. Rolf var málmsteypu-
mótari að iðn, tónlistarmaður og
garðyrkjumaður. Afkomendur
þeirra hjóna eru 1) Anne-Marie
Markan, fædd 1952, 2) Ingrid
Markan, fædd 1954; dóttir henn-
ar og Sigfúsar Grétarssonar er
þá iðn- og tónlistarnám í Ósló.
Rolf og Sofie gengu í hjónaband
á Íslandi 1951.
Sofie var heimavinnandi hús-
móðir fyrstu hjúskaparárin, en
hóf störf sem ritari hjá Íþrótta-
sambandi Íslands snemma á 7.
áratugnum. Hún starfaði síðar á
lögmannsstofu, í Málaskólanum
Mími og sem ritari Norræna fé-
lagsins. Í framhaldi af því var
hún ráðin ritari forstöðumanns
Norræna hússins við opnun þess
1968. Þar starfaði hún til ársins
1971, þegar hún var ráðin ritari
Læknafélags Reykjavíkur og
Læknafélags Íslands. Hún starf-
aði þar til ársins 1989.
Árið 1966 fengu þau hjón út-
hlutað lóð og urðu meðal frum-
byggja Stekkjahverfis í Breið-
holti. Flutti fjölskyldan inn í
nýja húsið árið 1970 og bjuggu
Sofie og Rolf þar allt til ársins
2012.
Útför Sofie fer fram frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag, 12.
ágúst 2019, klukkan 13. Jarðsett
verður í Gufuneskirkjugarði.
María Huld Markan
Sigfúsdóttir, fædd
1980; eiginmaður
hennar er Kjartan
Sveinsson, dóttir
þeirra Móey er
fædd 2008; 3) Inga
Huld Markan, fædd
1957, eiginmaður
hennar er Nicholas
Jones, synir þeirra
Fróði, fæddur 1992,
og Tumi Grendel,
fæddur 1995.
Foreldrar Sofie fluttu með
fjölskylduna til Reykjavíkur
seint á 3. áratugnum og bjuggu
þau á nokkrum stöðum í gömlu
Reykjavík en lengst af á Þórs-
götu 21. Að loknu gagnfræða-
prófi frá Kvennaskólanum í
Reykjavík 1942 starfaði Sossen
meðal annars hjá Alliance Fran-
caise í Reykjavík og hjá Olíufé-
laginu Esso.
Árið 1947 hélt hún til Noregs í
nám á húsmæðraskóla. Í Noregi
hitti hún verðandi eiginmann
sinn, Rolf Markan, sem stundaði
Við systurnar erum svo lán-
samar að hafa notið langra sam-
vista við mömmu okkar. Mynd-
irnar og minningabrotin eru svo
ótal mörg. Sterk nærvera hennar
og botnlaus kærleikur, óvænt
smitandi hlátursköst ef einhver
slysaðist til að kitla hlátur-
taugarnar, fróðleiksmolar um
venslafólk og reynslusögur og
aðrar af atvikum sem hún sjálf
taldi ef til vill löngu gleymd.
Mamma var segull og lím fjöl-
skyldunnar. Hún hafði einstakt
og ómeðvitað lag á að tengja stór-
fjölskylduna saman. Ættingjarnir
sem eru dreifðir um heiminn virt-
ust allir leita til hennar, hvort sem
það var til að forvitnast um ættir
og uppruna eða af þörf fyrir kaffi-
sopa og móðurlega hlýju og faðm-
lag.
Mamma var vinur vina sinna.
Hún átti sér sterkan og ending-
argóðan hóp vinkvenna frá
Kvennaskólaárunum og hús-
mæðraskólanum í Noregi. Þær
héldu hópinn alla tíð og voru hver
annarri styrkur og félagsskapur.
Skólagöngu mömmu lauk eftir út-
skrift úr Kvennaskólanum, en
hún hætti aldrei að læra í skóla
lífs og starfa. Hún átti einkar auð-
velt með nám og hlaut á skóla-
göngunni iðulega hrós hjá kenn-
urum sínum, og þá sérstaklega í
íslensku og öðrum tungumálum
og fyrir forkunnarfagra rithönd.
Hún var afar listræn og fjölhæf
og eftir hana liggja mörg falleg
málverk og glerlistaverk. Hún
lagði snemma fyrir sig skrautrit-
un og náði mikilli færni sem nýtt-
ist við mörg tækifæri. Kom listin
að góðum notum á meðan hún
starfaði hjá Læknafélögunum þar
sem henni var falið að skrautrita
heiðursskjöl lækna.
Mamma þurfti snemma á æv-
inni að axla mikla ábyrgð. Hún
var elst þeirra fjögurra systkina
sem lifðu og hægri hönd móður
sinnar sem var heilsuveil. Ellefu
ára aldursmunur var á henni og
yngsta bróðurnum og var hún
fyrir bragðið kölluð „litla
mamma“. Faðir hennar starfaði
sem vélstjóri og var í
millilandasiglingum. Ein fyrsta
minning hennar eru úr risinu í
Mjóstræti 3 þar sem hún stendur
við gluggann og horfir út á haf að
bíða eftir að pabbi kæmi heim af
sjónum. Önnur sterk minning er
frá Hesteyri á síldarárunum þar
sem foreldrar hennar störfuðu
sumarlangt í síldarvinnslunni.
Lífið og tilveran á Hesteyri var
spennandi fyrir 13 ára yngismey
og mamma naut lífsins. En þá
knúði sorgin dyra við óvænt and-
lát Sverre litla bróður hennar
sem var átta ára í sveit á Barða-
strönd. Má kannski rekja djúpa
ábyrgðartilfinningu mömmu alla
tíð til þessa árs andstæðra tilfinn-
inga.
Styrkur hennar lá í seiglu og
hæfilegum skammti af þrjósku.
Hún var bjartsýn og jákvæð í við-
horfi til lífsins og ágerðist já-
kvæðnin með aldrinum. Hún var
hjartahrein og leitaði þess góða í
öllu og öllum. Við getum seint
fullþakkað henni, hún studdi okk-
ur í einu og öllu og hvatti okkur til
náms eins og hugur okkar stóð til.
Blessuð sé minning elsku
mömmu. Við söknum hennar sárt.
Anne Marie (Mallý),
Ingrid og Inga Huld.
Amma Sossen var hamingju-
sömust þegar hún hafði alla fjöl-
skylduna í kringum sig. Hvenær
sem við heimsóttum ömmu og afa
beið hún spennt eftir okkur í eld-
húsinu í Geitastekk og með út-
breiddan faðminn. Hún vildi
heyra allt um skólann okkar í
Cambridge, vinina og áhugamál-
in, alltaf tilbúin að hlusta, njóta
samverunnar – og dekra við okk-
ur. Hjartahlýja, glatt geð og ör-
læti ömmu gerði tengslin við Ís-
land órjúfanleg og heimsóknirnar
tilhlökkunarefni.
Minningin um sumarið með
ömmu og afa þegar Fróði var
fimm ára verður honum alltaf
kær. Hann var ekki hár í loftinu
og ekki laust við að hann kviði fyr-
ir að vera svona lengi í burtu frá
pabba og mömmu og litla bróður.
En í lok sumarsins átti hann erfitt
með að skilja við ömmu og afa.
Ást þeirra og umhyggja – og of-
urljúffengar „afakökurnar“ henn-
ar ömmu – eru meðal bernsku-
minninga sem aldrei gleymast.
Heimsóknirnar til ömmu og
afa tengjast gleði jólanna og
áhyggjulausum sumarfríum, og
skemmtilegum og dýrmætum
samverustundum með fjölskyld-
unni. Við hlökkuðum alltaf til að
sjá ömmu Sossen og afa Roffa.
Hvunndagur skóladagsins gufaði
upp um leið og við stigum inn fyr-
ir dyr í Geitastekk. Þar mættu
okkur amma, sífellt á þönum og
baukandi í eldhúsinu með góðan
mat og gúmmulaði handa okkur,
og afi í sínum heimi, hummandi
Schubert eða Wagner yfir hráum
hvítlauk og gulrót í morgunmat.
Amma var svo góður kokkur að
við sögðum aldrei nei takk, hvort
sem við vorum svangir eða ekki.
Gæska og rausn ömmu stendur
upp úr í minningunni. En hún
hafði gaman af að gantast og
gerði oft grín af sjálfri sér. Amma
var óeigingjörn og lét aðra sífellt
ganga fyrir – eiginleiki sem var
oftast aðlaðandi en stundum dá-
lítið pirrandi. Styrkur hennar var
styrkur fjölskyldunnar á erfiðum
tímum og gleðistundirnar enn
bjartari í návist hennar.
Hvíl í friði elsku amma, við
munum sakna þín.
Fróði og Tumi,
Cambridge, Englandi.
Nú hefur hún elsku amma Sos-
sen kvatt okkur. Fíngerða konan
með hreina hjartað. Amma mín
sem hrósaði fólki óspart, talaði
aldrei illa um einn né neinn og sí-
fellt lét í ljós væntumþykju sína í
orðum og gjörðum. Alltaf hefur
verið hægt að ganga að hlýjunni
hennar ömmu vísri líkt og höfuð-
áttunum.
Ég varð þeirra forréttinda að-
njótandi að fá að alast upp að
miklu leyti í ömmu- og afahúsi.
Amma fór fyrr á eftirlaun til að
geta sinnt ömmuhlutverkinu að
fullu.
Ég gerði mér ekki grein fyrir
því á þeim tíma að þetta væru for-
réttindi, en er nú full þakklætis –
að koma heim úr skólanum í heit-
an grjónagraut með kanilsykri og
smjöri og hlusta á Rás 1 í róleg-
heitunum – að fá tíma og and-
rými, óhefta hlustun og skilyrð-
islausa nánd – fá að læra
undirstöðuatriði í skrautskrift,
krosssauma, baka kleinur – fá að
heyra sögur ömmu frá
ungmeyjarárunum í hersetinni
Reykjavík, sögur af norsku ömmu
hennar, ómetanlega tengingu inní
tíma og gildi sem nú eru horfin.
Amma Sossen átti sérstakan
stað í hjarta fólks, það heyrði ég
og fann fram á síðasta dag frá vin-
um, kunningjum, umönnunarfólki
og líka bláókunnugu fólki. Hún
gerði sér far um að gefa af sér og
sýna hlýju alveg óumbeðin og án
skilyrða. Það er langt frá því sjálf-
sagt eftir langt lífshlaup sem síð-
ur en svo var dans á rósum að
standa uppi með fegurðina að
leiðarljósi.
Elsku amma – ég man eitt sinn
þegar ég sat heima í borðkrókn-
um eftir skóla, borðaði hádegis-
mat og hlustaði á dánarfregnir að
ég spurði þig í kjölfarið í barns-
legri einlægni hvar þess Kyrrþey
væri sem svo margir kysu að jarð-
syngja sig í. Ég ímyndaði mér fal-
lega, litla, græna, friðsæla eyju
þangað sem fólk reri á bátum með
þá látnu. Mig langar að ímynda
mér að þú sért þar núna.
Góða ferð, elsku amma, og takk
fyrir allt.
María Huld Markan
Sigfúsdóttir.
Sofie Marie Markan
Sálm. 16.11
biblian.is
Kunnan gerðir þú
mér veg lífsins,
gleðignótt er fyrir
augliti þínu, yndi í
hægri hendi þinni
að eilífu.