Morgunblaðið - 12.08.2019, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 12.08.2019, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST 2019 Atvinnuauglýsingar Blaðberar Upplýsingar veitir Kristrún í síma 862 0382 Morgunblaðið óskar eftir blaðbera í Innri Njarðvík Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Boðinn Bingó kl. 13. Dalbraut 18-20 Brids kl.13. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring- borðið kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Hvað langar þig að hafa í félagsstarfinu í vetur? Komdu með hugmyndina og settu í hugmynda- bankann, sem er opinn kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11.30. Félagsvist kl. 13. Handavinnuhornið kl. 13-14.30. Gáfumannakaffi kl. 14.30. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Allir velkomnir óháð aldri. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Núvitund í handverksstofu kl. 10.30. Göngutúr um hverfið kl. 13. Heitt á könnunni fyrir hádegi. Hádegis- matur kl. 11.30-12.30 alla daga vikunnar, kaffi kl. 14.30-15.30 alla virka daga. Opin handverksstofa alla virka daga. Verið velkomin á Vitatorg. Garðabær Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl. 13. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13.15 kanasta. Gullsmári Handavinnuhópur kl. 9-11.30. Félagsvist kl. 20. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45. Hádegismatur er kl. 11.30, frjáls spilamennska kl. 13, liðleiki á stólum með Önnu og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Korpúlfar Gengið kl. 10 í dag frá Borgum og frá Grafarvogskirkju, allir velkomnir. Hádegisverður kl. 11.30-12.30, Opnunartími í Borgum kl. 10 til 14, opnunartími lengist frá og með morgundeginum 13. ágúst 2019. Frjáls spilamennska alla daga, gleði og gaman. Minnum einnig á gönguhópa Korpúlfa, gengið kl. 10 frá Borgum, ganga við allra hæfi, allir velkomnir. Gengið mánudag, miðvikudag og föstudag kl. 10 í allt sumar, bætir hressir kætir. Seltjarnarnes Krossgátur og kaffi í króknum kl. 10.30. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Vantar þig pípara? FINNA.is ✝ Sigurgeir Jóns-son fæddist á Húsavík 20. nóv- ember 1951. Hann lést á gjörgæslu- deild Landspítalans 1. ágúst 2019. Foreldrar hans voru Jón Árnason bifreiðastjóri frá Kvíslarhóli á Tjör- nesi, f. 22. febrúar 1915, d. 21. janúar 2008, og Helga Sigurgeirsdóttir húsmóðir frá Húsavík, f. 1. októ- ber 1926, d. 8. desember 2005. Systkini Sigurgeirs eru: Björg, f. 11. apríl 1953, maki Pálmi Pálmason, Guðmundur Aðalsteinn, f. 24. nóvember 1954, maki Sigríður Ingvarsdóttir, og Ásdís, f. 1. júlí 1962, maki Sigurgeir Stefánsson. Sigurgeir kvænt- ist 20. nóvember 1976 Guðrúnu Sig- urlaugu Óskars- dóttur, f. 25. júlí 1951. Foreldrar hennar eru Óskar Jónsson húsasmíða- meistari, f. 19. júlí 1925, og Sigríður Jónsdóttir húsmóðir, f. 6. nóv- ember 1927, d. 1. nóvember 2000. Sigurgeir og Guðrún eign- uðust tvö börn. Þau eru 1) Óskar, f. 27. apríl 1977, maki Ragnheið- ur Þorkelsdóttir. Börn þeirra eru Harpa, f. 3. febrúar 2005, Emma, f. 7. október 2007, og Orri, f. 27. ágúst 2012. 2) Arnar Jón, f. 14. september 1978, maki Helena Árnadóttir. Sigurgeir ólst upp á Húsavík og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1971. Hann lauk námi í efnafræði með BS-gráðu frá Háskóla Ís- lands árið 1974. Hann var í sum- arvinnu við Kísiliðjuna í Mý- vatnssveit og vann samhliða háskólanámi sem stundakennari í efnafræði fyrir læknanema. Sigurgeir var kennari við Menntaskólann við Hamrahlíð frá 1974 til 2018 þar sem hann gegndi jafnframt ýmsum trún- aðarstörfum. Hann var um tíma deildarstjóri og fagstjóri efna- fræðideildar auk þess sem hann átti sæti í skólastjórn og skóla- nefnd. Útför Sigurgeirs fer fram frá Lindakirkju í dag, 12. ágúst 2019, klukkan 15. Það er enn hálfóraunverulegt að hann tengdafaðir minn hafi nú kvatt þennan heim. Sárt er að sætta sig við að eftir baráttu og þrautseigju síðustu mánaða hafi stríðið tapast. Sigurgeir var hæglátur maður með afar þægi- lega nærveru sem skilur eftir sig stórt skarð í fjölskyldunni. Við sem eftir sitjum getum þó yljað okkur við góðar minningar um samveru í sumarbústaðnum, á ferðalögum erlendis og í hversdeginum. Barnabörnin missa með frá- falli hans góðan vin, spilafélaga og leiðbeinanda sem vildi allt fyrir þau gera. Afa verður minnst með því að rifja upp skemmtilegar sögur, skoða gamlar myndir, elda afakássu og borða súkkulaðirúsínur. Mesti missirinn er hennar Guðrúnar, sem missir nú lífs- förunaut sinn og besta vin, ein- mitt þegar þau ætluðu að fara að njóta lífsins saman að lokinni starfsævinni. Um leið og við minnumst þessa mæta manns með miklu þakklæti reynum við að styðja hana og hvert annað í sorginni. Þó í okkar feðrafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (Bjarni Jónsson frá Gröf) Hvíl í friði. Þín tengdadóttir, Ragnheiður. Elsku afi, við munum sakna þín mjög mikið. Við munum minnast þín þegar við syngjum saman lögin sem við sungum með þér, fáum okkur heitt súkkulaði uppi í sumarbústað og spilum á spil. Við munum sakna allra góðu tímanna með þér. Sunnan yfir sæinn breiða sumarylinn vindar leiða -draumalandið himinheiða hlær og opnar skautið sitt. Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt! Gakk þú út í græna lundinn, gáðu fram á bláu sundin -mundu að það er stutt hver stundin stopult jarðneskt yndið þitt. Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt! Allt hið liðna er ljúft að geyma, láta sig í vöku dreyma. Sólskinsdögum síst má gleyma -segðu engum manni hitt. Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt! (Jóhannes úr Kötlum) Hvíl í friði, elsku afi. Harpa, Emma og Orri. Nú er Geiri bróðir og mágur fallinn frá. Eftir harða baráttu við erfið veikindi í rúma fjóra mánuði varð hann að játa sig sigraðan. Hvers vegna hann? Það er fátt um svör. Sigurgeir fæddist og ólst upp á Húsavík og var elstur af fjór- um systkinum, yngri eru Bogga, Gummi og Dísa. Hann fékk allt sem gott var í vöggugjöf. Geira var það í blóð borið að fara vel með þá hluti sem hann eignaðist og minnist Gummi þess að hon- um hafði verið gefinn leður- fótbolti, sjálfsagt reimaður bolti upp á þann tíma. Þessi bolti varð langvinsælasti boltinn hjá krökkunum vegna þess hve mjúkur hann var og lyktaði vel, enda sat Geiri löngum stundum og bar á boltann leðurfeiti. Bekkjarsystkini hans úr Barna- skóla Húsavíkur minntust þess eitt sinn þegar árgangurinn hitt- ist að Geiri hefði átt sama strok- leðrið allan barnaskólann og ef- laust er það rétt, hvort sem er að hann fór vel með eða hitt að hann hafi ekkert þurft að stroka út. Hann var góður í öllu sem hann tók sér fyrir hendur, hvort sem það voru íþróttir, tónlist, skák eða námsbækurnar. Það er mikil eftirsjá að slík- um manni sem Sigurgeir var því hann var mörgum kostum bú- inn. Hann hafði ákaflega nota- lega og hlýja nærveru og var einstaklega hógvær maður sem vildi ekki láta á sér bera. Hann var heiðarlegur, orðvar, ljúfur og traustur og gott til hans að leita. Sigurgeir var barngóður og þolinmóður og börn hændust að honum. Hann var stefnufastur á sinn hógværa hátt, hafði skýra sýn á það hvernig hann vildi hafa hlutina og stefndi ávallt að því marki að skila fullkomnu verki. Í einkalífinu var Sigurgeir gæfumaður. Hann kynntist henni Guðrúnu á háskólaárun- um þar sem þau voru í sama námi. Það varð okkar lán að þau skyldu verða hjón enda yfirleitt nefnd í einu; Guðrún og Geiri, Geiri og Guðrún. Samband þeirra var mjög sterkt og þau voru samhentir förunautar í leik og starfi. Þau tóku við sumarbú- stað foreldra Guðrúnar og nutu þess að eyða sumrunum þar, ekki síður eftir að barnabörnin komu til. Þau spiluðu golf sér til ánægju og Geiri naut þess að tefla skák við félaga sína og samkennara. Þau kenndu við Menntaskól- ann í Hamrahlíð allan þeirra starfsaldur. Sigurgeir var góður kennari, gladdist yfir góðum nemendum og naut þess að sjá þegar fyrrverandi nemendum hans farnaðist vel í lífinu. Hann hafði fallega rithönd og skrifaði með eigin hendi útskriftar- skírteini sinna nemenda. Okkur þótti svo undurvænt um Sigurgeir og fáum ekki skil- ið hvers vegna hann þurfti að fara. Þau Guðrún höfðu fyrir ári síðan lokið störfum við MH og nutu þess að sinna fjölskyldunni og öðrum hugðarefnum sínum. Við eigum öll margar góðar minningar um Geira og þær munu lifa með okkur um ókomin ár. Heiðursmaður er fallinn frá. Við þökkum fyrir þau ár sem við fengum með honum. Elsku Guðrún, Óskar og Ragnheiður, Arnar Jón og Hel- ena, Harpa, Emma og Orri afa- strákur. Ykkar missir er mikill, við biðjum þess að tíminn muni sefa sorgina og veita ykkur huggun. Björg og Pálmi Guðmundur og Sigríður Ásdís og Sigurgeir. Í dag kveðjum við Sigurgeir, okkar kæra mág og svila. Kveðjustundin kom allt of fljótt og við munum sakna hans sárt. Sigurgeir lést á Landspítalanum 1. ágúst eftir fjögurra mánaða erfiða sjúkdómsbaráttu. Þegar við hugsum um Sigur- geir koma svo mörg orð um hans góðu eiginleika upp í huga okkar. Auk þess að vera miklum gáfum gæddur var hann ein- stakt ljúfmenni, hlýr, skemmti- legur, yfirvegaður, traustur, hjálpsamur og umburðarlyndur og hafði góða nærveru. Hann var ekki sá sem hafði hæst og stærði sig ekki af hlutum en allir löðuðust að honum því þeir skynjuðu hvað hann var þægi- legur og góður maður. Við minnumst margra góðra stunda á heimili Sigurgeirs og Guðrúnar í Vesturbænum og í sumarbústað þeirra í Þrasta- skógi. Í sumarbústaðnum var Sigurgeir hinn stóri grillmeist- ari og gekk í öll verk. Hann var handlaginn og vandvirkur og hélt öllu vel við. Þá var augljóst hvað Sigurgeir var traustur og elskulegur eiginmaður og mikill fjölskyldufaðir og afi. Barna- börnin þrjú hændust að honum. Sá yngsti, Orri tæplega sjö ára, var mikill afastrákur og gaman var að fylgjast með þegar þeir léku sér saman að því að leysa reikningsdæmi sem litli snáðinn leysti í huganum af mikilli snilld. Sigurgeir var líka tengdaföður sínum mikil stoð og stytta og var alltaf tilbúinn að aðstoða hann á allan hátt. Sigurgeir kynntist Guðrúnu eiginkonu sinni á námsárunum í Háskóla Íslands þar sem þau stunduðu bæði nám í efnafræði. Þau störfuðu síðan saman sem kennarar við Menntaskólann við Hamrahlíð fram að starfslokum vorið 2018. Frá mörgum höfum við heyrt að Sigurgeir hafi verið besti kennari sem þeir hafi nokkurn tímann haft og að hann hafi opnað fyrir þeim heim efnafræðinnar. Guðrún og Sig- urgeir höfðu fleiri sameiginleg áhugamál og stunduðu til dæmis golf í mörg ár. Þau höfðu líka mikinn áhuga á öðrum íþróttum og voru sterkur stuðningur fyrir synina sem spiluðu fótbolta frá unga aldri. Eitt af aðaláhuga- málum Sigurgeirs var skák og tefldi hann við vini sína í hverri viku. Það er mikill missir að fráfalli Sigurgeirs. Mestur er þó missir Guðrúnar, Óskars, Ragnheiðar, Hörpu, Emmu, Orra, Arnars Jóns og Helenu, enda fjölskyld- an mjög samhent. Guðrún og Sigurgeir höfðu rétt byrjað nýj- an kafla í lífinu eftir starfslok þegar erfiður sjúkdómur breytti skyndilega öllum þeirra áform- um. Þau voru einstaklega góðir vinir og samstíga í svo mörgu. Það verða því mikil viðbrigði fyrir Guðrúnu að hafa ekki Sig- urgeir sér við hlið. Það er okkur þó huggun að vita af því að hún á góða að, bæði fjölskyldur og vini, sem munu veita henni styrk. Hugur okkar er hjá Guð- rúnu og öllum börnunum sem eiga um svo sárt að binda eftir þennan stóra missi, en þau stóðu eins og klettur við hlið Sigur- geirs í hans erfiðu veikindum. Við kveðjum Sigurgeir með sorg í hjarta en góðar minningar um einstakan mann lifa með okkur. Við þökkum honum sam- fylgdina og biðjum góðan Guð að veita Guðrúnu, Óskari, Arnari Jóni og fjölskyldum þeirra styrk í sorginni. Guð blessi minningu Sigurgeirs. Sólveig og Hilmar, Gunnar og Dagný, Fanney og Guðjón. Hægláti efnafræðikennarinn, maðurinn hennar Guðrúnar, fé- lagi við skákborðið og hollráður vinur – það var í þessari röð sem flestir okkar uppgötvuðu og kynntust öðlingnum Sigurgeiri Jónssyni þar sem leiðir okkar lágu saman við störf í Mennta- skólanum við Hamrahlíð. Sigur- geir gerði kennslu að ævistarfi og átti að baki 44 ára farsælan kennsluferil í MH þegar hann lét af störfum á síðastliðnu ári. Honum var einkar lagið að gera flókna hluti skiljanlega fyrir nemendum með þaulhugsaðri og skýrri framsetningu og þeir eru ófáir sem lokið hafa lofsorði á Sigurgeir fyrir natni hans og af- bragðskennslu. Hann var og for- ystumaður innan sinnar kennslugreinar, ritaði kennslu- efni og mótaði öðrum fremur þann sess sem efnafræðin skip- ar innan raungreina í MH og víst er að mörgum var hann fyr- irmynd. Þeir sem þekkja til innra starfs MH vita að spor Sigurgeirs liggja víða því að sóst var eftir honum til margvíslegra trúnaðar- og nefndastarfa innan skólans. Það þótti nefnilega ákveðinn gæðastimpill að hafa Sigurgeir með í starfshópi eða nefnd og viss forboði um já- kvæðan framgang málefnis ef það fékk að njóta glöggskyggni hans og góðra ráða. Svo var það skákin sem við skemmtum okkur reglulega við, bæði á vinnustaðnum og á hin- um afslöppuðu og vikulegu hrað- skákkvöldum yfir vetrartímann. Þau héldum við til skiptis á heimilum okkar í nafnlausa og óformlega skákklúbbnum þar sem ekki einu sinni úrslitin voru skráð. Skólamál og önnur þjóð- þrifamál rædd inn á milli víga- ferlanna á taflborðinu. Geðs- hræringar óverulegar, engin eftirmál en alltaf jafn gaman, svo gaman að við áttum það jafnvel til að endurtaka sumar vitleysurnar næst þegar sest var að tafli. Enginn sá fyrir það endatafl Sigurgeirs sem raunin varð og nú er góðs vinar og félaga til áratuga sárt saknað. Við skák- klúbbsmenn sendum Guðrúnu og þeirra nánustu innilegar samúðarkveðjur. Jón Ingi Hannesson, Lárus H. Bjarnason, Sigurkarl Stefánsson, Valdimar Valdimarsson og Þórarinn Árni Eiríksson. Fallinn er frá góður félagi, vinur og fyrrverandi samstarfs- maður, Sigurgeir Jónsson. Við sem störfuðum með Sigurgeiri í Menntaskólanum við Hamrahlíð minnumst hans sem góðs félaga, trausts vinar og samstarfs- manns. Hann starfaði við skól- ann í 44 ár og lét af störfum vor- ið 2018 eftir farsælan og eftirtektarverðan starfsferil. Eiginkona Sigurgeirs, Guðrún S. Óskarsdóttir, starfaði nær alla tímann samhliða honum í MH og voru þau ákaflega sam- rýnd. Ef Sigurgeir birtist var Guðrún aldrei langt undan. Í huga margra nemenda og ekki síður samstarfsmanna var Sig- urgeir faðir efnafræðinnar í MH. Sigurgeir samdi námsbæk- ur í efnafræði sem hafa verið notaðar í fjöldamörg ár. Efna- fræðin var hans hjartans mál og mikill metnaður einkenndi kennsluna hjá honum. Hann lagði mikla áherslu á verklega kennslu og tilraunir sem vöktu áhuga nemenda á efninu. Hann var tilbúinn að fara óhefðbundn- ar leiðir sem vöktu ætíð athygli og gleði nemenda. Margir fv. nemendur eiga góðar minningar um plexiglertímann. Hann var afskaplega vel liðinn af nemend- um og tók alltaf vel á móti þeim. Hann þótti ljúfur í samskiptum og alltaf glaður, yfirvegaður og einlægur. Að starfa við kennslu í rúma fjóra áratugi segir sitt hvað um Sigurgeir og honum tókst að smita marga nemendur af sínum einlæga áhuga á efna- fræðinni. Sigurgeir var dugleg- ur að heimsækja skólann eftir að hann lét af störfum og hafði áfram sama áhuga á skólanum og kennslunni. Hann hafði mik- inn metnað fyrir hönd MH og í huga okkar er hann efnafræði- kennarinn í MH. Við munum sakna Sigurgeirs og sendum Guðrúnu og fjöl- skyldu innilegar samúðarkveðj- ur. Fyrir hönd MH þökkum við Sigurgeiri fyrir innilegt og far- sælt samstarf. Helga Jóhannsdóttir, Pálmi Magnússon og Steinn Jóhannsson. Sigurgeir Jónsson  Fleiri minningargreinar um Sigurgeir Jónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.