Morgunblaðið - 12.08.2019, Side 23

Morgunblaðið - 12.08.2019, Side 23
DÆGRADVÖL 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST 2019 „HORFÐU EKKI SVONA Á MIG. ÞETTA KALLAST „FRAMÞRÓUN”.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... að fá nudd fyrir þreytta fætur. VEISTU, GRETTIR, AÐRIR KETTIR ERU LÍFLEGIR OG GERA FYNDNA HLUTI! SKO, VILTU SKRÍPALÆTI EÐA EKKI? GOTT OG VEL ÞÚ DIRFIST EKKI ÁR HVERT ERUM VIÐ MEÐ STÆRRA TRÉ EN ÁRIÐ ÞAR Á UNDAN! ÆTLI ÞAÐ SÉ EKKI EINN AF KOSTUM ÞESS AÐ VERA MEÐ MOLDARGÓLF! REIÐI- STJÓRNUN „NÚNA TEL ÉG UPP AÐ TÍU Í STAÐ ÞESS AÐ BRJÁLAST. ÉG PRÓFAÐI AÐ TELJA UPP AÐ 20 EN ÞÁ FENGU ÞEIR OF MIKIÐ FORSKOT.” Fjölskylda Elsti sonur Ásdísar er 1) Róbert Andri Grímsson, f. 1997, börn henn- ar og Garðars Gunnlaugssonar knattspyrnumanns eru 2) Hektor Bergmann Garðarsson, f. 2005, og 3) Viktoría Rán, f. 2007. Bræður Ásdísar eru 1) Vignir Þór Gunnarsson, f. 1972, og 2) Gunnþór Ægir Gunnarsson, f. 1977. Vignir og Gunnþór Ægir reka saman Vaxt- arvörur í Hafnarfirði. Sammæðra Ásdísi er 3) Hrefna Sif, verk- efnastjóri í upplýsingatæknideild Icelandair hótela og fyrirsæta í aukavinnu, f. 1988, og samfeðra Ás- dísi eru 4) Jónas Reynir Gunn- arsson, skáld í Reykjavík, f. 1987, og 5) Þórhallur Elí Gunnarsson lækna- nemi, f. 1977. Foreldrar eru Ásdísar eru Gunn- ar Friðgeir Vignisson, útibússtjóri í Íslandsbanka á Egilsstöðum, f. 1954, frá Brúarlandi í Fellabæ, og Eygló Gunnþórsdóttir, f. 1952, myndlist- arkona í Reykjavík, frá Fáskrúðs- firði. Ásdís Rán Gunnarsdóttir Þuríður Kristín Indriðadóttir húsfreyja í Sjólyst og á Sætúni, frá Vattarnesi við Fáskrúðsfjörð Guðmundur Jónsson æðsti templar og útvegsbóndi á Fáskrúðs- fi rði, var í Sjólyst og síðar á Sætúni, frá Gestsstöðum í Fáskrúðsfi rði Sigurbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja og verkakona, frá Vattarnesi við Fáskrúðsfjörð Gunnþór Guðjónsson stýrimaður og skipstjóri, frá Gvendarnesi við Fáskrúðsfjörð Eygló Gunnþórsdóttir myndlistarkona í Reykjavík Arnleif Stefánsdóttir húsfreyja á Gvendarnesi, frá Grund í Stöðvarfi rði Guðjón Ólafsson útvegsbóndi á Gvendarnesi við Fáskrúðsfjörð Jónas Reynir Gunnarsson skáld Guðmundur Helgi Þórðarson læknir í Hafnarfi rði Vilborg Guðmundsdóttir húsfreyja í Hvammi á Völlum Þórður Helgason bóndi í Hvammi á Völlum Ásdís Þórðardóttir húsmóðir á Brúarlandi í Fella- bæ, frá Hvammi á Völlum Vignir Brynjólfsson atvinnurekandi á Brúarlandi í Fellabæ, frá Ekkjufelli í Fellum Friðgerður Gunnarsdóttir húsfreyja og verkakona frá Hrollaugsstöðum í Hjaltastaða- þinghá, síðast bús. í Reykjavík Brynjólfur Sigbjörnsson bóndi á Ekkjufelli í Fellum Úr frændgarði Ásdísar Ránar Gunnar Friðgeir Vignisson útibússtjóri Íslands- banka á Egilsstöðum Í tímaritinu Dvöl segir frá Frið-birni Björnssyni í Staðartungu er hann ásamt fleiri Hörgdælum var á heimleið frá Akureyri. Frið- björn orti þá um hreppsnefndina í Kræklingahlíð vísu sem varð fleyg. Tildrög hennar voru þau að hrepps- nefndin var að fara inn í fundarhús hreppsins, sem var nokkuð sér- kennilegt í laginu, ekki alveg ólíkt kuðungi á grúfu, og gekk líka undir því nafni. Á eftir henni rölti rakki eins og ekki er ótítt í sveit. Þar sem menn voru saman komnir segir sagan að þá hafi Guðmundur, hreppstjóri á Þúfnavöllum, spurt hverjir þar væru á ferð. Friðbjörn svaraði: Þar fer Hlíðar-hreppsnefndin. Hún er að skríða í kuðunginn. Ekki er hann fríður flokkurinn, Mér finnst hann prýða hundurinn. Um tungutak orti Friðbjörn: Oft hefur mjúk og mikið brúkuð tunga tengslum fest við fólskusvip, falið versta háskagrip. Friðbjörn orti um hélaðan glugga: Litlu hrósi safnar sér svakafenginn vetur, þó að rós á gluggagler grafi enginn betur. Sigurborg frá Barká, systir Frið- bjarnar, orti: Kringum mig var klaki og hjarn, hvergi yl að finna. Ég var ekkert óskabarn átthaganna minna. Dagbjartur Dagbjartsson segist á Boðnarmiði hafa rekist á þessa eft- ir Sverri Stormsker – „Drjúgmikil lífsviska samankomin“: Óljós draumur djúpt í hvers manns geði drífur áfram lífið fært í hlekki. Vonin eftir varanlegri gleði er varanleg – en það er gleðin ekki. Guðmundur Arnfinnsson yrkir og kallar „heiðursnafnbót“: Þeir kölluðu Valdemar Valda, galgopann káta og kalda, uns seig hann í björg firna brött og mörg, þeir kalla hann síðan Sigvalda. Þessi staka Önnu Soffíu Ósk- arsdóttur er falleg og vel kveðin: Enn er margt sem sem öndin byrgir Ennþá hjartað gleðst og syrgir Dýpstu sorg, mest ástaryndi átti ég hjá Búlandstindi Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hér er víða komið við og hvergi lengi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.