Morgunblaðið - 12.08.2019, Page 32

Morgunblaðið - 12.08.2019, Page 32
Tónlistarhátíðin New Music for Strings hófst 9. ágúst og á meðal þátttakenda eru Grammy- og Pulitzer-verðlaunahafar ásamt kennurum og listamönnum úr þekktum evrópskum og bandarísk- um háskólum. Í kvöld kl. 21 verða haldnir tónleikar í Mengi, Óðins- götu 2, þar sem flutt verður tónlist fyrir einleiksstrengjahljóðfæri. Tónlist fyrir einleiks- strengjahljóðfæri MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST 224. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Morten Beck Guldsmed sendi FH- inga upp í 3. sæti, Evrópusæti, í úr- valsdeild karla í fótbolta í gær þeg- ar hann skoraði sigurmarkið í 3:2- sigri gegn Val á Hlíðarenda. Breiða- blik minnkaði forskot KR á toppnum í sjö stig með sigri á ÍA á sama tíma og KR steinlá gegn HK í Kórnum, 4:1. Þetta var aðeins ann- að tap KR í sumar. »26 og 27 FH fór upp fyrir Val og KR steinlá gegn HK ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Marcus Rashford, Anthony Martial og nýliðinn Daniel James sáu um að skora mörkin í 4:0-sigri Manchest- er United á Chelsea í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í gær. Rashford skoraði tvö mark- anna og hann segir að með nýjum mönnum í vörn liðsins finni hann meira öryggi en áður. Harry Ma- guire og Aaron Wan- Bissaka stóðu sig báðir vel í frumraun sinni með United á Old Trafford. Jó- hann Berg Guð- mundsson skoraði í flott- um sigri Burnley. »25 Rauðu djöflarnir fóru af stað með látum Margverðlaunaðar þýskar innréttingar Verið velkomin í sýningarsalinn að Suðurlandsbraut 26 Suðurlandsbraut 26 – S: 587 2700 Opið: 11-18 virka daga www.alno.is Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Adidas kynnti nýja skó, byggða á eldri framleiðslu, í Berlín í lok lið- innar viku. Af því tilefni fékk fyrir- tækið 11 listamenn til þess að búa til framtíðarheim eftir eigin höfði með tilvísun til þess sem liðið er og var verkið sýnt samfara skókynn- ingunni. „Þetta var mjög skemmti- legt og ég er bjartsýn á að fá fleiri verkefni frá Adidas í nánustu fram- tíð,“ segir María Guðjohnsen, graf- ískur hönnuður í Berlín og einn út- valinna listamanna. Fyrirtækið valdi 11 listamenn og fengu þeir viku til þess að sinna sköpuninni í þar til gerðu og vel út- búnu húsnæði í Berlín. María segir að nokkrir í hópnum hafi áður unn- ið fyrir Adidas en aðrir verið valdir handahófskennt. „Adidas hafði sam- band við mig á instagram og spurði hvort ég vildi vera með,“ segir María um þátttökuna. Hún hefur unnið sjálfstætt með þrívíddar- grafík og sett upp nokkrar listasýn- ingar í Berlín undanfarin tvö ár. Konur og tæknigeirinn Listamennirnir unnu í þremur hópum, einn í fatahönnun, annar í tónlist og sá þriðji í myndlist. „Við höfðum algerlega frjálsar hendur,“ segir María, eini Íslendingurinn í hópnum. Hún bætir við að allt hafi verið til alls á staðnum og ímynd- unaraflið hafi ráðið för. „Yfirskriftin á listasýningunni var að vinna með gamla hluti til þess að búa til fram- tíðina og við áttum að skapa eitt- hvað sem tengdist framtíðinni.“ María segist hafa unnið út frá því að líf margra snúist um að vera á internetinu. Áður hafi einstakling- urinn verið hann sjálfur í raunveru- leikanum en einhver annar á netinu en nú sé hann bara með eitt sjálf. Hún hafi viljað sýna fram á að það gæti verið jákvætt að eiga samastað á netinu, sérstaklega fyrir jaðar- hópa. „Þar má finna aðra sem eru tilbúnir að hlusta á mann og þannig getur netið verið jákvæður öryggis- heimur.“ Til nánari skýringar segir hún að konur geti kynnst kvennahópum á netinu, fengið þar stuðning og jafn- vel atvinnutækifæri. „Það er sér- staklega mikilvægt í tæknigeiran- um, þar sem konur eiga undir högg að sækja,“ segir hún. „Í framtíðinni langar mig til þess að sjá breyt- ingar á þessu sviði, að konur verði meira áberandi, og það geta þær orðið með því að nýta sér betur möguleika sem netið hefur upp á að bjóða.“ María segir að í raun hafi sýn- ingin ekki tengst nýju skónum á nokkurn hátt. Adidas hafi viljað nota tækifærið til þess að koma listamönnum í Berlín á framfæri og hjálpa þeim að sýna fólki hvernig framtíðin gæti orðið. „Sýningin sýn- ir framtíðina með okkar augum,“ segir María og bætir við að hún hafi áhyggjur af loftslagsmálum. „Ef þau eru sett til hliðar vil ég sjá jafn- rétti kynjanna, ekki síst í tækni- geiranum.“ Framtíðarsýn Maríu með aðstoð Adidas Listamaður María Guðjohnsen vinnur að framtíðarsýninni. Myndin á skján- um táknar kvenkyns ímynd sem hefur lagt undir sig tækniheiminn.  Skapaði framtíðarheim með öðrum listamönnum í Berlín Framtíðarsýn á sýningunni Valdefling sem fæst út úr því að tengjast fólki, sem er með svipaðan bakgrunn, í sýndarveruleika.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.