Morgunblaðið - 14.08.2019, Side 6
SVIÐSLJÓS
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Þingflokksformenn ákváðu á fundi
sínum í gærmorgun að samkomulag
sem gert var síðasta vor um af-
greiðslu þriðja orkupakka Evrópu-
sambandsins stæði. Er því ætlunin
að klára umræðuna um þingsálykt-
un utanríkisráðherra um samþykkt
orkupakkans að kvöldi 28. ágúst
næstkomandi.
Sjálfstæðismenn á landsbyggð-
inni virðast margir nokkuð jákvæð-
ir í garð þriðja orkupakkans, að því
er fram kemur í máli nokkurra for-
manna svæðisfélaga og fulltrúaráða
sjálfstæðismanna sem Morgun-
blaðið tók tali. „Við höfum rætt
þetta okkar á milli. Ég og þessi
hópur höfum ekki sett okkur upp á
móti þessu og erum ekki að fara í
þessar undirskriftir sem eru í
gangi,“ segir Samúel Karl Sigurðs-
son, formaður fulltrúaráðs Fjarða-
byggðar, en segir að skiptar skoð-
anir hafi auðvitað verið uppi. „Við
búum það vel í Sjálfstæðisflokknum
að þar rúmast alveg fleiri en ein
skoðun. Fólk þarf ekkert alltaf að
vera sammála um allt í öllu.“
Skilur áhyggjur félaganna
„Það hafa verið skiptar skoðanir
hér eins og annars staðar. Ég er
sjálfur hlynntur orkupakkanum,
mér finnst þetta ekki vera þetta
stórmál eins og margir félagar mín-
ir vilja meina, en ég hef fullan
skilning á áhyggjum þeirra,“ segir
Jónas Þór Birgisson, formaður
Sjálfstæðisfélags Ísafjarðar, og
ítrekar að ekki séu allir á sama máli
og hann. „Það eru ólíkar skoðanir
uppi. Það er alveg klárt.“ Um und-
irskriftasöfnun þá sem í gangi er
meðal flokksbundinna sjálfstæðis-
manna, sem er ætlað að knýja fram
almenna kosningu meðal flokks-
manna um orkupakkamálið, segir
Jónas: „Mér finnst þetta að sumu
leyti sniðugt, því þetta ýtir við for-
ystunni og sýnir henni að mörgum
finnst ekki rétt staðið að málum.“
Ólafur Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisfélags Mýrasýslu, segir orku-
pakkamálið hafa komið til tals á
nánast hverjum einasta fundi fé-
lagsins seinasta vetur. Fjölmargir
úr framlínu flokksins hafi sótt fund-
ina og sé stefið í Mýrasýslu það
sama og annars staðar að Ólafs
sögn; „skiptar skoðanir“. „Ég hef
ekki orðið var við mikla óánægju í
mínu félagi,“ segir hann og segir
spurður um eigin afstöðu að hann
sjái ekki að það sé „einhver dóms-
dagur að færast yfir“.
„Mjög tvístígandi“
„Ég er bara mjög tvístígandi í
þessu,“ segir Erla Gunnlaugsdóttir,
formaður fulltrúaráðs Fjallabyggð-
ar, spurð um afstöðu hennar til
orkupakkamálsins. Segir hún að
ýmsar skoðanir hafi verið uppi og
segir spurð um ofannefnda at-
kvæðagreiðslu: „Þetta kemur manni
svo sem ekkert á óvart. Fólk er
margt mjög heitt á móti þessu og
þá reynir það eðlilega að stoppa
þetta.“
„Kannski meira sáttir en ósáttir
finnst mér,“ segir Jón Daníel Jóns-
son, formaður Sjálfstæðisfélags
Skagafjarðar, spurður um afstöðu
félagsmanna hans til orkupakka-
málsins og segir um eigið álit: „Mér
finnst þetta bara allt í lagi.“
Í Vestmannaeyjum hafa menn
svipaða sögu að segja. Páll Marvin
Jónsson, formaður sjálfstæðis-
félagsins þar, segir: „Menn hafa
verið svolítið á báðum áttum.“ Segir
hann sjálfsagt að leyfa flokks-
mönnum að kjósa um málið innan
flokksins, „því það eru klárlega
skiptar skoðanir“.
„Ég skynja að fleiri en færri séu
jákvæðir,“ segir Sigurgeir Hös-
kuldsson, formaður Sjálfstæð-
isfélags Húsavíkur, sem segir orku-
pakkamálið „alls ekki“ hafa verið
hitamál þar nyrðra.
„Þarf ekki alltaf að vera sammála“
„Skiptar skoðanir“ er viðkvæðið þegar spurt er um afstöðu til orkupakkans
Morgunblaðið/Hjörtur J. Guðmundsson
Fundur Formenn þingflokka í gærmorgun. Þar var sett sú áætlun að þingsályktunartillaga um samþykkt orku-
pakkans yrði afgreidd fyrir lok mánaðarins. Nokkur ólga hefur verið í Sjálfstæðisflokknum vegna málsins.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019
Yfirskattanefnd hefur fallist á rök
húseiganda sem óskaði eftir lækkun
fasteignagjalda vegna tjóns af völd-
um veggjatítlu. Ríkisskattstjóri
hafði áður hafnað umræddri beiðni.
Kærandi krafðist þess að henni
yrði veitt ívilnun vegna tjóns af völd-
um rakaskemmda og veggjatítlu í
fasteign sem hún keypti árið 2012.
Skemmdirnar komu í ljós árið 2017.
Yfirskattanefnd féllst ekki á að
skemmdir á fasteigninni af völdum
raka, sem raktar voru til mislukk-
aðra framkvæmda, gætu talist til
eignatjóns. Hins vegar var fallist á
að virða bæri tjón kæranda vegna
skemmda af völdum veggjatítlu
„sem óvenjulegar skemmdir fjár-
muna sem talist gætu til eignatjóns“.
Var til þess tekið að skemmdir á inn-
viðum fasteigna af völdum veggja-
títlu gætu myndast án þess að um-
merki þeirra kæmu fram fyrr en
löngu síðar. Fagaðilar hefðu metið
aðstæður svo að veggjatítlan hefði
hafst við í húsnæðinu jafnvel um ára-
tugaskeið.
Í kæru húseigendans kemur fram
að kaupverð fasteignarinnar hafi
verið 34 milljónir króna en fasteigna-
mat hafi verið lækkað um ríflega 25
milljónir króna í rétt rúmlega fimm
milljónir króna. Eignin sé nú skráð
sem íbúðarhúslóð en ekki einbýlis-
hús þar eð húsið sé ónýtt og hafi ver-
ið afskrifað sem slíkt. Kærandi höfð-
aði mál gegn seljendum hússins en
því máli lauk með 500.000 króna rétt-
arsátt.
Yfirskattanefnd felldi úrskurð rík-
isskattstjóra úr gildi og fól honum
málið til meðferðar á ný og upp-
kvaðningar nýs kæruúrskurðar.
Málskostnaður að upphæð 90 þús-
und krónur skal greiddur úr ríkis-
sjóði. hdm@mbl.is
Gjöld lækkuð
vegna veggjatítlu
Yfirskattanefnd sneri við úrskurði
Morgunblaðið/Eggert
Viðhald Veggjatítla kom í ljós við
framkvæmdir. Myndin er úr safni.
Dýralæknaþjónusta á Vestfjörðum
hefur verið tryggð til 31. október,
þegar þjónustusamningar dýra-
lækna í dreifðum byggðum landsins
renna út. Sigríður Inga Sigurjóns-
dóttir, dýralæknir á Ísafirði, hefur
dregið uppsögn sína til baka og
mun gegna starfinu þar til þjón-
ustusamningurinn rennur út, sam-
kvæmt frétt frá Matvælastofnun.
Landbúnaðarráðherra hefur
ákveðið að skipa starfshóp um þjón-
ustu þessara dýralækna og vakt-
þjónustu dýralækna. MAST hefur
auglýst þjónustusamninga dýra-
lækna lausa til umsóknar.
Charlotta Oddsdóttir, formaður
Dýralæknafélags Íslands, sagði þau
hafa lagt tillögur að breytingum á
vinnuumhverfi dýralækna í dreifð-
um byggðum fyrir landbúnaðar-
ráðherra í júlí. Hún sagði mikil-
vægt að tveir eða fleiri dýralæknar
gætu starfað saman í dreifbýlinu
vegna afleysinga og erfiðra verk-
efna sem gætu komið upp. Char-
lotta sagði að dýralæknar hefðu
áhuga á breyttu kerfi. Stefnt er að
því að starfshópurinn skili af sér í
október. gudni@mbl.is
Nefnd um dýra-
lækna í dreifbýli
Dýralæknir Charlotta Oddsdóttir er
formaður Dýralæknafélags Íslands.
Í samtali við Morgunblaðið segir Grétar Þór Eyþórsson,
stjórnmálafræðiprófessor við Háskólann á Akureyri, að ef
forysta Sjálfstæðisflokksins myndi ákveða að skeyta ekki
um niðurstöðu atkvæðagreiðslu innan flokksins um orku-
pakkamálið væri líklegt að það yrði „einhver kurr“. Eins
og greint var frá á mbl.is um helgina sagði Bjarni Bene-
diktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, að atkvæða-
greiðsla sem nú væri verið að safna undirskriftum fyrir
yrði einungis ráðgefandi.
„Þetta er náttúrlega leið sem er viðurkennd í skipulagi
flokksins en það getur vel verið að forystan mæti það
þannig að hún vildi bara halda sínu striki. Hún segist hafa farið mjög vel yfir
þetta og ætli ekki að breyta neinu þar um. Það er ein leið í þessu,“ segir
Grétar og bætir við: „En ef þau fara þá leiðina þá mun það ekki verða síð-
asta orðið um það innan flokksins, hverjar svo sem afleiðingarnar verða.“
UNDIRSKRIFTASÖFNUN FYRIR ATKVÆÐAGREIÐSLU
Grétar Þór
Eyþórsson
Myndi ekki vera „síðasta orðið“
Aðstæður í Jökulsárhlaupinu sl.
helgi voru afar erfiðar, kalt og
blautar hlaupaleiðir. Fyrir vikið
voru tímamörk rýmkuð um tuttugu
mínútur. Af þeim 440 manns sem í
upphafi voru skráðir voru um 100
sem mættu ekki til þátttöku. Hilmar
Valur Gunnarsson, verkefnastjóri
hlaupsins, segir þetta í fyrsta sinn
sem svo leiðinlegt veður hittir á
Jökulsárhlaup. „Það var norðan-
slagveður sem gerði alla vinnuna í
kringum þetta dálítið erfiðari, en
hlaupið gekk ótrúlega vel upp“.
Um hundrað manns
hættu við þátttöku